Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
45
heimilinu Droplaugarstöðum í
Reykjavík. Guðni lést síðar sama
ár. Þau höfðu því sextíu og fimm
ára farsæla og hamingjuríka sam-
fylgd að baki þegar hann lést.
Kristín dvaldi á Droplaugar-
stöðum síðustu sex árin. Hún undi
vistinni þar afar vel. Persónuleg
umönnun og hlýja starfsfólksins
gerði henni dvölina þar ánægju-
lega og þægilega.
Kristín var ljóðelsk og kunni
ógrynni af vísum og kvæðum sem
henni lágu gjarna á tungu. Hún
gerði þó ekki vísur sjálf en faðir
hennar og afi voru báðir hagyrð-
ingar.
Kristín hafði yfirbragð heims-
manns, bein í baki og fijálsleg í
fasi. Hún átti alltaf vönduð, falleg
föt sem hún hirti vel og hún lagði
af smekkvísi rækt við útlit sitt.
Henni leið vel í margmenni. Kristín
var metnaðargjöm og mat þá mik-
ils sem náðu árangri. Hún var
áræðin og órög og leiddist kveifar-
skapur og pempíuháttur.
Minni Kristínar þvarr mjög
síðustu árin. Jákvætt viðhorf til
umhverfisins og hæfileiki til að
láta hugann reika, óháð þeim
skorðum sem heilsufar og aðrar
kringumstæður settu, gerðu henni
ævikvöldið léttbært. Reisn sinni
og frjálslegu fasi hélt hún fram
til hins síðasta og hafði vísurnar
og kvæðin á hraðbergi þótt flest
annað væri gleymt. Alltaf hafði
hún eitthvað jákvætt að segja við
þá sem til hennar komu.
Kristín andaðist þann 3. júní sl.
níutíu og sex ára að aldri. Afkom-
endur hennar og Guðna eru 45.
Þeir eiga kærar minningar um
móður, ömmu og langömmu. Þær
lifa áfram þótt hún hafi kvatt
þennan heim.
Blessuð sé minning hennar.
Lilja Ólafsdóttir
Árbæjarsafn gefur út árbók:
Saga safnsins komin út
I TILEFNI þrjátíu ára afmælis
Arbæjarsafns á síðasta ári, hefur
verið gefin út árbók safnsins í
fyrsta sinn. Nefnist hún „Safn og
Samtíð“. Þar er saga safnsins
rakin ítarlega, og hlutverk þess
og framtíð reifuð.
Bókin hefst á kveðju borgarstjóra,
þar sem hann m.a lýsir yfir stuðn-
ingi borgaryfirvalda við stefnu
safnsins. Bókinni sjálfri er skiptí tíu
kafla. Þar er m.a. að finna kafla um
fomleifarannsóknir í Viðey, vaxtöfl-
ur frá Viðey og einnig er grein um
rannsóknir á lóð Fjalakattarins Aðal-
stræti 8, Reykjavík. Upplýsingar
um húsakannanir á vegum safnsins
má lesa í bókinni og einnig er kynn-
ing á myndasafni safnsins.
SAFN
OG.
SAMTIÐ
Árbæjarsafn
ARBOK 1987
Fyllsta öryggis gætt
viö gerð skrapmiða
- segir Jón Thors í dómsmálaráðuneyti
„Hingað til höfum við talið að
fyllsta öryggis hafi verið gætt
við gerð skrapmiðanna," sagði
Jón Thors, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu en hann
var inntur þessa, vegna þess að
aðstandendur nokkurra skrap-
miðahappdrætta hafa að undan-
förnu séð ástæðu til að lýsa yfir
því að fyllsta öryggis sé gætt við
framleiðslu miðanna.
Jón sagðist hafa heyrt sögusagn-
ir um að hægt væri að sjá hvort
vinningur væri á sumum skrap-
miðunum og taldi hann þær sögur
ástæðu þess að aðstandendur happ-
drættanna lýstu yfir öryggi mið-
anna. Jón sagði engar kærur hafa
borist vegna skrapmiðanna og því
hefði ráðuneytið ekki athugað hvort
eitthvað væri hæft í þessum sögu-
sögnum. Slík athugun gæti allt eins
orðið en engin ákvörðun hefði enn
verið tekin um það enn.
Jón sagði ráðuneytið hafa lítið
annnað eftirlit með skrapmiðahapp-
drættunum en að reynt væri að
fylgjast með að aðstandendur
skrapmiðanna hefðu þá vinninga
sem þeir lofuðu kaupendum.
Ævintýraferð
um landið
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur skipulagt
fróðlega og skemmtilega hringferð um
landið í sumar.
Ferðin tekur 10 daga eða frá 19.07.-28.07.
Komið verður víða við og tækifæri gefst til
að kynnast merkum söguslóðum
undir leiðsögn þaulreynds fararstjóra.
Gist verður á hótelum og
hálft fæði er innifalið í verði.
Ellilífeyrisþegar fá 10% afslátt.
LÁTTU SKRÁ ÞIG.
Nánari upplýsingar veittar á
Ferðaskrifstofu ríkisins.
♦
Ferðaskrifstofa Ríkisins
Skógarhlíð 6, 101 Reykjavík, sími 91 25855. Telex 2049.
• •
Best undir sólinni
Húsenamg
-mttverð
NOVAsumarhúsgögninvöWurmWaathygJiN^r^9^nun’
gæði og ekki ^orrtn NOVA sumarhúsgögnm
Gróðurhúsinu v/Sigtún. Sími: 68 90 70