Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
47 '
Sól en slæm
sjóveður í
Olafsvík
^ Ólafsvík.
ÓLAFSVÍK hefur verið böðuð sól
undanfarna daga þrátt fyrir
dimmviðri og súld í nágranna-
byggðum. Astæðan er sú að í
þeirri vindátt sem verið hefur
klýfur Snæfellsjökull þokubak-
kann og úr verður sólbjartur
geiri sem við njótum góðs af.
A hinn bóginn fylgja vestanátt-
inni slæm sjóveður og aflatregða.
Um það bil 50 smábátar sem héðan
róa hafa því verið bundnir þessa
daga eftir gott vorúthald. Fiskur
hefur horfið af heimaslóð og ekki
gefur út á fláka.
Stærri bátar hafa róið en afli
þeirra er dræmari en að undan-
fömu. Einn bátur hefur hætt veið-
um og afskráð mannskap vegna
þess að lítill aflakvóti hans er bú-
inn. Fleiri eru við stöðvun af sömu
orsök. Að sögn þeirra sem nú verða
að hætta er æ ljósara að þeir bátar
sem fengu lægstan kvóta í upphafi
hafa ekki náð að vinna sig upp
neitt að ráði meðan rýmkanir hafa
orðið til þess þeir kvótahæstu mega
heita komnir á fijálsar veiðar.
Helgl
Aðalfundur Kaupfé
lags Hvammsfjarðar:
Óeðlilegt að
verðlagssljóri
sé oddamað-
ur f imm-
mannanefndar
Búðardal.
Á AÐALFUNDI Kaupfélags
Hvammsfjarðar í Búðardal sem
haldinn var 9. maí voru sam-
þykktar ýmsar ályktanir. Meðal
annars var samþykkt að fela
stjórn félagsins að boða til stofn-
fundar hlutafélags um afurða-
stöð eins fljótt og auðið er.
Samþykkt var að bjóða slátur-
leyfishöfum í nágrannabyggðalög-
um aðild að félaginu og allir fram-
leiðendur og félagsmenn K.Hv.
hvattir til að gerast hluthafar.
Fundurinn lýsti yfir áhyggjum
vegna rekstrarskilyrða sláturhúsa
og telur að margt hafi farið úrskeið-
is í framkvæmd búvörulaganna.
í ályktun er því mótmælt að verð-
lagsstjóri sé oddamaður fimm-
mannanefndar, sem verðleggur bú-
vörur í heildsölu, og að hlutlaus
aðili verði skipaður í hans stað.
Telur fundurinn að verðlagsstjóri
geti ekki talist hlutlaus þar sem
hlutverk hans sé að halda niður
verðlagi.
Kristjana.
Daglega stígur fjöldi
Kjörbókareigenda eitt þrep uppá við.
Og fær milljónir í staðinn.
Já, Kjörbókareigendur góðir og aðrir áhuga-
menn um góða ávöxtun sparifjár. Þrepahækkun
Kjörbókarinnar er komin til framkvæmda.
Afturvirkir vextir eru reiknaðir á þær inn-
stæður sem hafa legið óhreyfðar í 16 eða 24
mánuði. Þúsundir Kjörbókareigenda náðu
16 mánaða markinu í lok apríl og daglega
bætastfleiri við sem fá reiknaða viðbótar-
vexti á sínar innstæður.
í desember mun fjöldi Kjörbókareigenda
stíga annaó þrep upp á við, - 24ra mánaða
Kjörbókarþrepið. Og fá enn fleiri milljónir
í staðinn.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Kjörbókin ber háa vexti auk verð-
tryggingarákvæðis, verðlaunar þá sérstak-
lega sem eiga lehgi inni en er engu að
síður algjörlega óbundin.
Ársvextir á Kjörbók eru nú 36%,
16 mánaða vaxtaþrepið gefur 37,4%,
og 24 mánaða þrepið 38%.
FATASKÁPAR
FRA OKKUR ERU LAUSNIN
Smiöjuvegi 9, Kópavogi,
sími (91)43500