Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ólafsvík
Umboðsmann og blaðbera vantar til að ann-
ast dreifingu og innheimtu á Morgunblaðinu.
Upplýsingar í símum 93-61243 og 91 -83033.
Uppeldisráðgjafi
Rauða krosshúsið, Tjarnargötu 35,
vill ráða starfsmann til vaktastarfa.
Starfið er fólgið í móttöku og umönnun gesta
sem eru börn og unglingar upp að 18 ára
aldri, sem eru í vanda stödd.
Viðkomandi þarf að geta greint vandann,
veitt stuðning og leiðbeint um lausn ýmissa
vandamála, bæði í síma og á staðnum.
Þá þarf viðkomandi einnig að geta sinnt sér-
verkefnum er varða starfsemi hússins en við
val á slíkum verkefnum er tekið mið af persónu-
legum hæfileikum og reynslu umsækjanda.
Menntun og/eða reynsla á sviði uppeldis,
kennslu og félags- og/eða sálfræði er nauð-
synleg.
Umsóknir er tilgreini menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu Guðna
Jónssonar fyrir 25. júní nk. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Gupnt Tónsson
RÁÐCJÖF&RÁÐNINCARNÓNLISTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
J
Ritara- og sölustarf
Óskum eftir að ráða ritara í heildsöludeild
okkar. Starfið felst í því að taka á móti við-
skiptavinum, taka niður pantanir úr síma og
hafa umsjón með ákveðnum verkefnum.
Við leitum að jákvæðum og duglegum ein-
staklingi sem getur unnið sjálfstætt.
Vinsamlegast sendið inn umsókn til auglýs-
ingadeildar Mbl. fyrir föstudaginn 17. júní
merkt: „X - 4881“.
Gfobust
Lágmúla 5
St. Franciskusspítal-
inn í Stykkishólmi
óskar eftir að ráða:
hjúkrunarfræðing og sjúkraliða.
Einnig óskum við eftir að ráða annan
sjúkraþjálfa
til starfa í nýju og fullkpmnu húsnæði okkar.
Dagvistun fyrir börnin.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
____________93-81128.__________
Bókhald/hlutastarf
góð laun
Öflugur aðili í byggingariðnaði vill ráða van-
an starfskraft til að sjá um merkingar á bók-
haldi, launaútreikninga, innslátt og útskrift
reikninga. Allt tölvuunnið.
Starfið er laust í júlí eða byrjun ágúst.
Vinnutími kl. 9.00-13.00. Mjög góð laun og
vinnuaðstaða í boði.
Skilyrði að viðkomandi reyki ekki.
Umsóknir og nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu okicar.
Qjðnt IÓNSSQN
RÁÐGJÖF & RÁÐNI NCARÞjÓN USTA
TÚNGÓTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Hlíðartúnshverfi
Mosfellsbæ
Umboðsmann og blaðbera vantar í Hlíðartúns-
hverfi Mosfellsbæ í sumar.
Upplýsingar í síma 83033.
nripmMnMíþ
Bókari
Fyrirtækið flytur inn og selur rafmagns- og
tæknivörur.
Starfssvið er m.a.: tölvufært fjárhagsbók-
hald, verðútreikningar, vinnsla tollskjala, út-
skrift reikninga auk innheimtu.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
stúdentspróf frá Verslunarskóla íslands,
Samvinnuskólanum Bifröst eða sambærilega
menntun. Starfsmaðurinn fær handleiðslu í
starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní nk.
Viðkomandi verður að geta hafið störf sem
allra fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Aíleysmga- og rádmngaþjonusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig la - IOI Reykiavik - Simi 621355
Móttaka
Kona eða karl óskast til starfa í móttöku á
verkstæði. Verkefnið er fólgið í vinnslu launa-
og verkbókhalds ásamt almennum skrif-
stofustörfum. Einhver reynsla í tölvunotkun
nauðsynleg.
• Upplýsingar gefur þjónustustjóri í síma
681555.
Globus?
Lágmúla 5
Rekstrarhagfræð-
ingur
Viðskiptafræðingur
Mjög öflugt fjármálafyrirtæki vill ráða við-
skiptafræðing eða rekstrarhagfræðing til
starfa. Sarfsmaðurinn sem leitað er að þarf
að hafa góða undirstöðumenntun í fjármálum
og kunna að lesa og greina ársreikninga
ólíkra fyrirtækja með tilliti til hlutabréfakaupa
og/eða lánveitinga. Starfsmanninum er einn-
ig ætlað að sjá um fjárfestingar fyrirtækisins
í skuldabréfum (portfolio management), auk
þess að vera staðgengill forstjóra.
Leitað er að snyrtilegum ungum manni eða
konu með mikið frumkvæði og góða og ag-
aða frámkomu. Starfsmaðurinn þarf að hafa
góða tilfinningu fyrir tölum og gott vald á
notkun PC-tölva með tilliti til áætlanagerðar.
Við bjóðum upp á mjög spennandi og fjöl-
breytt starf sem gefur tækifæri til þess að
vera í nánu sambandi við atvinnurekstur auk
er ekki fjölmennur en starfsaðstaða öll 1.
flokks. Starfsmaðurinn þarf að geta hafið
störf eigi síðar en 1. október nk. Farið verð-
ur með allar umsóknir sem trúnaðarmál og
öllum umsóknum verður svarað og fylgigögn
endursend.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Þ - 4883“ fyrir 27. júní nk.
Framtíðarstörf
Óskum að ráða sem fyrst gott fólk til margv-
íslegra framtíðarstarfa. Þar á meðal:
☆ Byggingaverkfræðing sem fram-
kvæmdastjóra framleiðslu- og viðhalds-
sviðs hjá góðu fyrirtæki.
☆ Viðskiptafræðing til endurskoðun-
arstarfa.
☆ Markaðsstjóra hjá bókaforlagi.
☆ Sölustjóra hjá góðu fyrirtæki.
☆ Sölumann hjá heildsölufyrirtæki
sem verslar með efnavörur.
☆ Deildarstjóra herrafatadeildar í
góðri verslun.
☆ Fulltrúa til að annast innflutnings-
og tojlapappíra hjá umsvifamiklu inn-
flutningsfyrirtæki.
☆ Lipra manneskju til léttra skrif-
stofustarfa og útréttinga. Þarf að hafa
bíl.
☆ Rafvirkja til starfa hjá traustum
aðila á Vestfjörðum.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá
kl. 9.00-12.00 og 13.00-15.00.
SJMSNÓNUSm n/r
Brynjolfur Jonsson • Nóatún 17 105 Rvik • simi 621315
• AlhUda raöningaþjonusta
• Fyrirtækjasala
• Fjarmalaradgjof fyrir fyrirtæki
Laus störf
Móttökuritari (314)
Fyrirtækið er útflutningsfyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Símavarsla, móttaka viðskipta-
vina, vinna við telex og ritvinnslu.
Við leitum að ritara með góða enskukunn-
áttu og reynslu í almennum skrifstofustörf-
um.
í boði er líflegt starf, vinnutími frá kl. 12.30-
17.00.
Laust strax.
Sölumaður (350)
Fyrirtækið er verslun í Kringlunni.
Starfssvið: Sala og afgreiðsla á heimilistækj-
um og rafmagnsvörum.
Við leitum að ungum og áhugasömum
manni. Reynsla af sölu- og afgreiðslustörfum
æskileg. Þekking og áhugi á viðkomandi
vöruflokkum æskileg. Laust strax.
Rannsóknarmaður (351)
Fyrirtækið er málningarverksmiðja í
Reykjavík.
Starfssvið: Aðstoð á rannsóknarstofu. Mæl-
ingar, skýrslugerð, skráning, útreikningar
o.fl.
Við leitum að stúdent af raungreinabraut.
Viðkomandi þarf að vera nákvæmur, vand-
virkur og töluglöggur. Laust strax.
Sölumaður (334)
Fyrirtækið er Ijósmyndavöruverslun í
Reykjavík.
Starfssvið: Sala og afgreiðsla á Ijósmynda-
vörum.
Við leitum að manni með þekkingu og áhuga
á Ijósmyndun. Laust strax eða eftir nánara
samkomulagi.
Leitum einnig að fólki til starfa við lager- og
afgreiðslustörf hjá m.a. innflutnings-, fram-
leiðslu- og heildsölufyrirtækjum í Reykjavík.
Ráðningartími strax eða eftir nánara sam-
komulagi.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Ráðning-
arþjónustu Hagvangs hf. mánudaginn 13.
júní nk. milli kl. 10.00-12.00.
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta