Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
Boðið upp á þriggja ára hag-
fræðinám við Háskóla Islands
Kennsla til meistaraprófs hefst væntanlega haustið 1991
SAMÞYKKT hefur verið reglugerð um breytingar á námi við Við-
skiptadeild Háskóla Islands og munu þær taka gildi í haust. Breyting-
ar þessar felast i stofnun hagfræðiskorar sem útskrifa mun hagfræð-
inga með B.S.(econ.)-gráðu að loknu þriggja ára námi. Skiptir við-
skiptadeildin um nafn í kjölfar þessa og kallast Viðskipta- og hag-
fræðideild. Jafnframt stendur til að bjóða upp á framhaldsnám til
meistaraprófs i hagfræði frá og með haustinu 1991.
Morgunblaðið/KGA
Þorvaldur Gylfason og Guðmundur Magnússon, prófessorar við Við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla íslands. í haust mun deildin hefja
Viðskiptafræðinám hefur til
þessa tekið flögur ár. Fyrrihluta-
námið, sem tekur tvö ár, er sameig-
inlegt öllum nemendum. Við upphaf
þriðja námsárs velja nemendur á
milli fyrirtækjakjama annars vegar,
sem veitir viðskiptafræðimenntun,
og hins vegar þjóðhagskjarna, er
veitir hagfræðimenntun.
Eftir breytinguna í haust munu
nemendur velja sér námsbraut þeg-
arvið upphaf náms. Nám þeirra sem
velja sér fyrirtækjakjarna mun ekki
breytast í grundvallaratriðum og
nefnist sú námsbraut viðskiptaskor.
Þjóðhagskjami mun hins vegar
lagður niður en í hans stað býðst
ný námsbraut, hagfræðiskor. Nám
í hagfræðiskor mun taka þrjú ár,
eins og áður sagði. Með endurskipu-
lagningu og hagræðingu mun fyrri-
hlutanámið stytt úr tveimur ámm
í eitt. Annað og þriðja ár hagfræði-
skorar verður svipað og þriðja og
fjórða ár þjóðhagskjarna hefur ver-
ið hingað til.
Að sögn Þorvaldar Gylfasonar
og Guðmundar Magnússonar, próf-
essora við Viðskipta- og hagfræði-
deild, mun nám í hinni nýju hag-
fræðiskor verða síst léttara en það
fjögurra ára nám sem fyrir var,
þrátt fyrir styttingu námstíma.
Ætlunin er að bjóða upp á mark-
visst en þungt nám til þess að laða
að góða nemendur úr menntaskól-
um.
Að sögn Guðmundar velja að
jafnaði 10% nemenda í Viðskipta-
deild þjóðhagfræði. Með hinni nýju
tilhögun er vonast til þess að um
20% nemenda deildarinnar velji
hagfræðiskor, sem yrði æskilegt
hlutfall.
Guðmundur kvað sögulegar
ástæður liggja að baki því að í
þessar breytingar væri ráðist nú.
Þegar Viðskiptadeildin var stofnuð
um 1940, var hún sniðin að fyrir-
mynd erlendra viðskiptaháskóla
þeirra tíma. En þeir hafa breyst
með ámnum og kvaðst Guðmundur
ekki vita um neinn háskóla í ná-
grannalöndum okkar sem aðgreindi
nú ekki hagfræðinám frá viðskipta-
fræðinámi.
Jöfn áhersla verður lögð á þjóð-
hagfræði og rekstrarhagfræði í
hinni nýju hagfræðiskor, að sögn
Þorvaldar Gylfasonar, og era þessar
tvær greinar burðarás námsins.
Þeir sem ljúka hagfræðinámi eiga
jafnan eins greiða leið inn í íslensk
fyrirtæki og þeir sem hafa við-
skiptafræðimenntun, enda gerir
vinnumarkaðurinn hér á landi
almennt ekki greinarmun á þessu
tvennu, segir Þorvaldur.
Varðandi þá viðskiptafræðinema
sem þegar hafa hafið nám, mun
þeim innan vissra marka gefinn
kostur á að færa sig úr gamla kerf-
inu í hið nýja.
í reglugerð fyrir Viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla íslands er
heimild fyrir stofnun framhalds-
deildar. Aætlað er að kennsla til
meistaraprófs hefjist eftir þrjú ár.
kennslu við nýja hagfræðiskor.
haustið 1991. Þeim sem hefja nám
við hagfræðiskor í haust mun því
standa til boða að ljúka meistara-
prófi hér heima strax að loknu
B.S.(econ.)-prófi.
Nám til meistaraprófs mun taka
eitt til tvö ár. Framhaldsdeildin
kemur til með að styrkja mjög rann-
sóknir við Viðskipta- og hagfræði-
deildina, að sögn þeirra Guðmundar
og Þorvalds, þar sem hentugt er
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
rithöfunda var haldinn fyrir
nokkru. A fundinum var sam-
þykkt að halda áfram baráttu
fyrir bættum kjörum rithöfunda
að virkja framhaldsnemendur til
vísindastarfa. Jafnframt koma þeir
til með að aðstoða við kennslu á
neðri stigum, ef á þarf að halda.
Næstu daga verður nýstúdentum
sendur bæklingur þar sem þeim
verður kynnt þessi nýbreytni Við-
skipta- og hagfræðideildar. Jafn-
framt verður haldinn kynningar-
fundur um nám við hagfræðiskor
þann 28. júní í Odda.
og að vinna gegn misrétti og
pólitískri mismunun.
í fréttatilkynningu um fundinn
kemur fram að hagur félagsins er
góður og starf þess þróttmikið á
síðasta ári, með fundum, bók-
menntakynningum og upplestrar-
kvöldum. Nýr heiðursfélagi var
kjörinn í apríl síðast liðnum, Indriði
Indriðason rithöfundur og ættfæð-
ingur.
Formaður Félags íslenskra rit-
höfunda er Sveinn Sæmundsson.
Næstum eng-
in f lensaí
Reykjavík
síðan um
miðjan maí
Faraldurinn í
rénun úti á landi
AFAR lítið hefur verið um inflú-
ensu í Reykjavík siðan í miðjum
maí en ekki er enn vitað hvort
dregið hafi úr flensufaraldrin-
um úti á landi. Hjá landlækni-
sembættinu fengust þær upplýs-
ingar að heldur fleiri hefðu
fengið flensu í maí en apríl utan
Reykjavíkur öfugt við þróunina
á höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta styður kenningu um að
flensan hafi borist frá Reykjavík
út á land. Utan höfuðborgarinnar
hefur hún líklega stungið sér fyrst
niður í Keflavík, þar sem tilfellum
var farið að fækka í maí,“ sagði
Guðjón Magnússon, aðstoðarland-
læknir, og bætti við að nú væri
flensan sennilega farin að láta
undan síga utan Reykjavíkur.
Að sögn Skúla Johnsen, borgar-
læknis, hefur mjög lítið verið um
inflúensu í Reykjavík þennan mán-
uðinn samkvæmt upplýsingum
læknavaktar. Hann sagði að yfir-
leitt gengi flensufaraldur yfir á
sex vikum og sú hefði verið raun-
in á höfuðborgarsvæðinu. Flensa
af a og b stofni greindist fyrst um
páskaleytið og tilfellin vom orðin
örfá um miðjan maí.
Blaðbaar
Simar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
BREIÐHOLT
Stórholt
Meðalholt
Grettisgata 2-36
Óðinsgata o.fl.
Hjaltabakki
Irabakki
Jörfabakki
óskast
ýniist í Mt starf
eða hlutastarf
H júkrunarf ræði ngar
Óskum eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunar-
og læknanemum í júlí og ágúst á Uppvöknun,
göngudeiid (recovery).
Starfshlutfall samkomulagsatriði, dagvinna.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 601300.
Umsóknirsendisttil skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Sjúkraliðar
Óskum eftir að ráða sjúkraliða nú þegar á Skurð-
stofu Landspítalans í fullt starf. Um er að ræða
dagvinnu frá 07.30 - 15.30 og gæsluvaktir.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 601306.
Óskum eftir að ráða sjúkraliða við Dauðhreinsun.
Vinnutími 08.00 - 16.00. Starfið felur í sér um-
sjón, pökkun og dauðhreinsun á taui og umbúðum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 601306.
RÍKISSPÍTAIAR
LANDSPÍTAUNN
Félag íslenskra rithöfunda:
Baráttu haldið áfram
fyrir bættum kjörum