Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐrSUNNUDAGUR 12.JÚNÍ 1988 Hreisturskemmdur lax á markaði í New York Laxinn fór á markaðinn vegna mis- taka, segir Páll Gústafsson í ÍSNÓ TALSVERT af íslenzkum eldislaxi með hreisturskemmdir var selt á Fultons fiskmarkaðnum í New York í lok maí fyrir mistðk. Laxinn var þar sagður norskur og seldur á nokkru lægra verðir en norskur lax. Fulltrúar norskra útflytjenda vestra segja, að með þessu hafi mikið tjón verið unnið á markaðssetningu norsks lax í Bandaríkjun- um. Lax þessi var frá ÍSNÓ og átti aldrei að fara á markaðinn að sögn Páls Gústafssonar, framkvæmdastjóra ÍSNÓ. „Laxinn átti að fara til frekari vinnslu, ekki í beina sölu,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. Jens Petter Gylseth, fulltrúi norskra útflytjenda í New York, sagði í samtali við Morgunblaðið, að hér hefði verið um að ræða 300 kassa af afar slökum laxi, sem hefði örugglega ekki verið notaður til manneldis í Npregi. Þetta hefði verið þriðji flokkur, svokallaður framleiðslulax, sem bannað væri að flytja út frá Noregi. Auk þess hefði verið sagt að laxinn væri norskur og hann hefði verið í norsk- um kössum með póstnúmeri frá Vestur-Noregi. Smærri merkimiðar hefðu hins vegar gefíð til kynna að hann væri kominn frá íslandi. Væri þetta vísvitandi gert, væri það ekkert annað en skemmdarverk, sem ætti engan rétt á sér, en hvort sem svo væri eða ekki, hefði mikill skaði verið unninn fyrir markaðs- setningu á norskum laxi í Banda- ríkjunum. Páll Gústafsson, framkvæmda- stjóri ÍSNÓ, sagði að laxinn hefði verið frá þeim, en hann hefði aidrei átt að fara á markaðinn. Þetta hefði reyndar verið ágætis lax, aðeins dálítið hreisturskemmdur. Þannig væri hann ekki hæfur til sölu á mörkuðum, aðeins frekari vinnslu eins og reykingar. Hvað umbúðim- ar varðaði, notaði ÍSNÓ enn kassa frá norska_ fyrirtækinu Movi með merki ÍSNÓ, en því yrði hætt í sum- ar og eigin umbúðir notaðar frá og með næsta hausti. Þama hefðu orð- ið mikil mistök, sem erfítt yrði að leiðrétta, en séð yrði til þess að svona færi ekki aftur. Mistök sem þessi kæmu okkur ekki síður illa en Norðmönnum. Staðgreiðsla skatta: Þegar innheimtir 4,5 milljarðar kr. 4.561 milljón króna var innheimt af staðgreiðslu skatta fyrstu fjóra mánuði ársins. Af þeirri fjárhæð voru endurgreiddar 1.305 milljónir króna í bamabætur og barnabótaauka. Gert er ráð fyrir að heildarupphæð innheimtu af staðgreiðslu fyrri helming ársins verði lægri en á sama tíma í fyrra. Fjármálaráðuneytið hefur til- kynnt að innheimta af staðgreiðslu skatta á fyrsta ársþriðjungi hafí verið 4.561 milljón króna. Sveitar- félögum hafa verið greiddar af þeirri upphæð 2.071 milljón vegna útsvara. Vegna sóknargjalda og kirkjugarðsgjalda hafa verið greiddar 168 milljónir og endur- greiðslur vegna bamabóta og bamabótaauka nema 1.305 milljón- um króna. Staðgreiddur tekjuskatt- ur er því 1.017 milijónir. Við þá upphæð leggjast 595 milljónir sem em innheimtar eftirstöðvar og fyrir- framgreiðslur lögaðila. Tekjuskatt- ur á fyrsta ársþriðjungi 1988 er því alls 1.612 milljónir króna. í lok fyrsta ársþriðjungs 1987 vom innheimtir tekjuskattar 1.833 milljónir króna, eða 221 milljón hærri en nú. í febrúar og apríl vom greiddar bamabætur og bamabóta- auki og er lækkunin af þeim sökum. í fréttatilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu segir, að gera megi ráð fyrir að innheimta staðgreiðslu f ríkissjóð að viðbættri innheimtu eftirstöðva og fyrirframgreiðslu tekjuskatts verði um 2.000 milljónir króna í maí og júní. Tekjur ríkis- sjóðs af tekjuskatti á fyrri árs- helmingi 1988 verði því um 3.600 milljónir króna. Það er 600 milljón- um lægri upphæð en á sama tíma í fyrra. Hækkunin á milli ára er 20%, sem er nokkm lægra en hækk- un launa á milli sömu tímabila, seg- ir í fréttatilkynningunni. Þar segir ennfremur, að hækkun persónuafsláttar 1. júní í stað 1. júlí muni lækka tekjuskatt um ná- lega 150 milljónir króna og að bamabætur muni hækka um ná- lægt 100 milljónir á síðara árs- helmingi. Auk þess munu þá verða greiddar húsnæðisbætur og vaxta- afsjáttur. í fréttatilkynningunni segir að þótt ekki sé tímabært að fullyrða um niðurstöður á síðari árshelm- ingi, bendi flest til þess að útkoma ársins í heild verði nálægt því sem áætlað var í fjárlögum að teknu tilliti til þess sem laun munu hækka umfram forsendur flárlaga. LISTAHÁTÍÐ I REYKJAVIK Dagskráin á sunnudag Kl. 13.30 Kjarvalsstaðir Dagur ljóðsins Kl. 14.00 Lindarbær Brúðuleikhús Jón E. Guðmundsson „Maður og kona“ Kl. 16.00 Fríkirkjuvegur 11 Leikbrúðuland „Mjallhvít" Leikstj. Petr Matásek Kl. 17.00 Háskólabíó - Empire Brass Quintet Kl. 20.30 Bústaðakirkja Norræni kvartettinn Einar Jóhannesson, klari- nett, Joseph Fung, gítar, Roger Carlsson, slagverk, Askell Másson, slagverk Samtímatónlist Dagskráin á mánudag Kl. 20.30 íslenska óperan Ljóðatónleikar Sarah Waiker, mezzosópran Roger Vignoles, píanó. Morgunblaðið/Rúnar Þór Ró fuglsins varð ekki raskað þótt sigið væri í bjargið nálægt þeim. Morgunblaðið/Rúnar Þór Finnur Jónsson í Grímsey fer fram af bjarg- brúninni á Eyjarfæti nyrst á eynni. Aldrei fundið fyrir lofthræðslu — segir Finnur Jónsson í Grímsey FINNUR Jónsson í Grímsey hefur stundað bjarg- sig í 26 ár og er ekkert á þvi að hætta þótt kominn sé vel á sjötugs aldur, enda segir hann sigið vera góða íþrótt til þess að halda sér í formi. Laugardaginn fyrir sjómannadag brá Finnur sér eftir eggjum í Eyjarfót, sem er nyrst í Grímsey og hafði upp úr krafsinu um 300 egg. „Ég hef aldrei fundið fyrir lofthræðslu, veit ekki hvað það er,“ sagði Finnur í samtali við Morgun- blaðið. Hann gerði lítið úr því að bjargsig væri hættuleg íþrótt og sagði að hætta væri fyrir hendi í ölium hlutum. „Ég hef lent í vandræðum, en að- eins þegar ég hef farið spottalaus í bjargið, og aldr- ei alvarlegum,“ sagði Finnur. „Þetta hefur verið mislukkað í vor. Það hefur ekkert verið hægt að síga I björgin vegna veðurs; kulda og roks. Það er misskilningur hjá mörgum að eggin stropi seinna þegar kalt er og því hægt að taka þau lengur fram á vorið. En þessu er ein- mitt öfugt farið þar sem fuglinn liggur þá meira á,“ sagði Finnur. Finnur hefur búið í Grímsey í 35 ár. „Ég kom héma 4. apríl 1953 klukkan 2 og var þá í sum- arfríi, en hef ekki farið héðan síðan. Það er engin ástæða til þess að fara þaðan sem manni líkar vel að vera.“ Bróðir Finns, Alfreð, er einnig kunnur bjargmaður en er hættur að síga núna. Morgunblaðið/Rúnar Þór Finnur kominn úr bjarginu og eggin komin í körfuna. Með Finni á myndinni er Henning Jó- hannesson. Norðurlönd: Aukafundur samstarfsráð- herra um þörungamyndunina Matthías Á. Mathiesen, sam- gönguráðherra og samstarfsráð- herra Norðurlanda, og Magnús Jóhannesson, siglingamálastjóri, munu dagana 12. og 13. júní nk. sækja aukafund samstarfsráð- herra Norðurlanda og forstætis- nefndar í Kaupmannahöfn, sem boðað er til vegna þörungamynd- ana við strendur Noregs, Dan- merkur og Svíþjóðar. Þessi fundur er haldinn til að ræða sameiginleg viðbrögð stjóm- valda á Norðurlöndum og aðgerðir á alþjóðavettvangi til að fyrirbyggja þá vá sem lífríki sjávar er búin af framangreindum orsökum. Á fundi samstarfsnefndar um vamir gegn mengun hafsins í Stokkhólmi hinn 3. júní sl. var rætt um þörungamyndanir og varð það niðurstaða fundarins að enda þótt ástæður hins mikla þörungablóma væru ekki að fullu ljósar ætti meng- un af völdum köfnunarefnis og fos- fórs í sjó hér stóran hlut að máli. Eru uppi áform á Norðurlöndum um að draga úr losun þessara efna í sjó, en grípa þarf til víðtækra al- þjóðlegra aðgerða til að minnka álag þessara efna á þessum haf- svæðum. í þessu sambandi má nefna að frárennsli allra helstu fljóta í Evrópu berst með haf- straumum inn í Skagerrak þar sem þörungablóminn var mestur. 15.-17. júní nk. verður haldinn 10. ársfundur Parísarsamningsins um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum og verða þá ræddar leiðir til þess að draga úr losun þessara efna í sjó. Magnús Jóhann- esson, siglingamálastjóri, mun sækja fundinn fyrir íslands hönd. (Fréttatilkynning) Sveinn bakari kaup- ir Nýja kökuhúsið SVEINN bakari hefur fest kaup á öllum fimm verslunum Nýja Köku- hússins i Reykjavík og nágrenni. Verslanir Sveins bakara eru þá orðnar 11 talsins, auk þess sem verið getur að sú tólfta verði sett á laggirnar áður en langt um líður. „Fyrir án opnaði ég fullkomið mun áfram reka bakarí og kaffihús bakarí í Álfabakkanum, og það þyrfti að nýta það mun betur en gert hefur verið fram að þessu,“ sagði Sveinn Kristdórsson bakari í samtali við Morgunblaðið. „Helst þyrfti að vera starfað þar allan sól- arhringinn til þess að ég gæti lækk- að þann fasta kostnað, sem rekstr- inum fylgir," sagði Sveinn. Birgir Páll Jónsson eigandi Nýja kökuhússins sagði í gær, að hann hyggðist draga saman í rekstrinum og leggja meiri áherslu á aðra starf- semi en rekstur verslana, einkum rekstur kaffihúsa. Nýja kökuhúsið í Austurstræti. Auk þess mun verða sett upp kaffihús í Kringlunni. Þá sagði Birgir Páll, að aukin áhersla verði lögð á að baka tertur og kök- ur fyrir veislur og eftir pöntunum. 65 manns var sagt upp störfum hjá Nýja kökuhúsinu við eigenda- skiptin, aðallega í verslununum. Flest fólkið mun halda störfum sínum hjá nýjum eiganda. Verslan- irnar sem seldar voru, eru í Hafnar- firði, Garðabæ, Kópavogi, við Laugaveg og í JL húsinu við Hring- braut í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.