Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JÚNÍ 1988 29 Morgunblaðið/Brynja Tomer ■ Aðstandendur íslensku myndarinnar Foxtrott kampakátir yfir sölumöguleikum hennar á Cannes- hátíðinni. I Clint Eastwood leiðbeinir þeim Forest Whitaker (Charlie Parker) og Sam Wright (Dizzy Gillespie) við upptöku á „B»rd“, sem byggð er á ævisögu tónlistarmannsins Charlie Parkers. hólmi.„Þeir verða að vinna því málstaður þeirra er sterkari,“ seg- ir Robert Redford um málalyktir í myndinni. Myndin kostaði um 20 milljónir dollara í framleiðslu, eða tæplega 900 milljónir íslenskra króna. Nýkominn frá Sovétríkjunum Alls komu um 600 fréttamenn frá öllum heimshornum á blaða- mannafundinn sem haldinn var í Cannes áður en myndin var frum- sýnd þar. Ekki færri en eitt hundr- að lífverðir fylgdu Robert Redford, sem mætti um tíu mínútum of seint á fundinn. Miklar varúðarráðstaf- anir voru gerðar fyrir komu leikar- ans til Cannes og var mönnum til dæmis ekki hleypt inn á blaða- mannafundinn með myndavélar og var gerð vopnaleit á öllum áður en þeim var hleypt inn. Þrátt fyrir allan þennan fjölda fréttamanna voru fáar spumingar lagðar fyrir Robert Redford á fundinum. Hann byijaði því á því að segja frá för sinni til Sovétríkjanna, en hann er nýkominn þaðan. „Það var mér mikill heiður að vera boðið til raunvísindaakademíunnar, þar sem haldin var ráðstefna um um- hverfismál. Þá kynnnti ég einnig þrjár mynda minna í Leningrad, Moskvu og Tbilisi. Mér var sagt að þetta væri í fyrsta sinn sem vestrænum leikara væri boðið að kynna myndir sínar á þennan hátt í Sovétríkjunum. Viðtökurnar voru mjög góðar og menn tóku á móti ■ Illona Staller, eða Cicciolina hélt fatafellusýningu framan við aðalkvikmyndahöllina áður en „Milagro“ Roberts Redfords var sýnd þar. mér á mjög menningarlegan og hlýjan hátt.“ Robert Redford útskýrir að hann hafi með „Milagro" viljað kynna stöðu og menningu Suður-A- meríkubúa. „Fjölskylda mín er frá Texas, sem er við landamæri Mex- íkó“ segir hann. „Mér finnst menn- ing Suður-Ameríku vera of lítið þekkt meðal Norður-Ameríkana og fannst tími kominn til að kynna hana betur. Ég er viss um að sú þekking getur orðið til þess að utanríkisstefna Bandaríkjanna breytist til hins betra. Ég hef ekki í hyggju að bjóða mig fram til for- seta Bandaríkjanna," segir hann aðspurður og heldur áfram. „Ég hef áhuga á stjórnmálum og fylg- ist með þeim. Ég er einnig mjög gagnrýninn á stjórnmál. Afsögn Nixons og kjör Carters voru að mínu mati með því jákvæðasta í bandarískum stjómmálum. Ég var stjómmálalega ánægður þá.“ Hvað annað gerir þig ánægðan? spyr einn blaðamannanna. „Þegar ég geri vinum mínum greiða er ég ánægður og einnig þegar ég horfi á sólsetrið. Hvað varðar kvikmynd- irnar er myndin „Allir menn forset- ans“ sú sem ég er stoltastur af.“ Lokaorð leikarans og leikstjórans Roberts Redfords vom tileinkuð umhverfismálum. „Við verðum að halda við fegurð jarðarinnar. Framfarir í Bandaríkjunum á öllum sviðum em jákvæðar, en þær mega ekki vera á kostnað náttúmnnar. Frægð, frami og peningar vara ekki að eilífu, það verður jörðin hins vegar að gera.“ f G. -22. JÚIMÍ l\IK. (ath. aðolns 3 vlnnudagar) Hiö glæsilega Manor House Hotel verður formlega opnað 1 7. júní, að sjálfsögöu, enda er hótelið rekið af íslendingum. Hóteliö er mjög vel staðsett uppi á fal- legri hæð u.þ.b. 500 metra frá einni af fjöl- mörgum ströndum borgarinnar. Hvorki meira né minna en tíu 1 8 holu þekktir golfvellir, eins og þeir gerast bestir f næsta nágrenni. Vallargjald frá £ 8—12. Torquay ar é suðurströnd Englands þar sam fólklð tokur IIHnu látt. SKOÐUNARFERÐIR FVRIR ÞÁ SEM ÞESS ÖSKA: ★ Frægustu hellar Englands ★ Bátsferðir um Torquayflóa ★ Stórkostlegur dýragarður ★ Ferð um Devonhéraðið með gufulest ★ Verslunarferðir. Ath. verðlag er mun hagstæðara ÍTORQUAY en í London o.fl. Flug, gisting og enskur morgunveröur í 6 nætur, akstur til ogfrá flugvelli í Englandi og veisla 17. júní. íslensk fararstjórn. 1/érð aðe/ns kr. SZB.BOO,- 17. júní. Formleg opnun hótelsins. Útigríll- veisla með þjóðhátíðarbrag. Ýmsar uppá- komur og leikir. Dansað fram eftir nóttu. FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTRÆTI 16 - SÍMI 621490
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.