Morgunblaðið - 12.06.1988, Page 40

Morgunblaðið - 12.06.1988, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988 Aldursforseti Islendinga í Kaup- mannahöfn hefur búið þar í 80 ár í byrjun marsmártaðar sl. var sagt frá því í fréttagrein frá einum fréttaritara Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn, að aldursforseti Islendinga í borginni væri 98 ára gömul kona, frú Sigríður Sigur- jónsdóttir Jensen. Blaðamaður á Morgunblaðinu taldi það geta verið forvitnilegt að heyra eitthvað nánar um hina öldruðu konu og hafði spurnir af því að aldraður Reykvíkingur, sem er borinn og bamfæddur á Frakk- astíg 5, Þorbergur Guðlaugsson veggfóðrameistari til heimilis þar, hefði verið í Kaupmannahöfn fyrir nokkru. Hefði hann og kona hans, Ólöf Guðmundsdóttir, heimsótt þennan aldursforseta íslendinga í Kaupmannahöfn. I samtali við Þorþerg um heimsóknina, bytjaði hann á því að gera grein fyrir skyldleika hans og Sigríðar Sigur- jónsdóttur Jensen. Hún var fædd vestur á Framnesvegi í Pálshúsi, en það er nú horfið. Hún ólst upp hjá móður sinni, sem hét Pálína Pálmadóttir. Faðir hennar var Sig- urjón Arnbjörnsson sjómaður í Ráðagerði á Seltjarnarnesi. Hún var hálfsystir móður Þorbergs, sem hét Agústa Árnadóttir. Faðir hans var Guðlaúgur Þorbergsson veggfóðrari. Árið 1908 lagði Sigríður land undir fót og fór til Danmerkur. Áður en hún giftist eignaðist hún son. Er það Hjörtur Hafsteinn Hjartarson fyrrum lög- reglumaður í Reykjavíkurlögregl- unni. Hann er kominn undir áttr- ætt. í Kaupmannahöfn giftist Sigríður dönskum manni Andreas Jensen að nafni, sem var vélstjóri á björgunarskipinu Geir. Eftir að hann fór í land varð hann húsvörð- ur í stórum skóla í Gladsaxe — útborg í Kaupmannahöfn. Þar starfaði hann uns hann Iétst árið 1962. — Þeim varð einnar dóttur auðið. Er það Ellen Sigrid Mar- garete, fædd árið 1912, gift og búsett eigi langt frá þar sem Sigríður móðir hennar býr í fjölbýl- ishúsi. Frú Sigríður Sigmjónsdóttir Jensen á heimili sínu. Sagði Þorbergur að það hefði verið þeim hjónum til hinnar mestu gleði að heimsækja Sigríði, sem þrátt fyrir sinn mjög háa aldur ber hann ótrúlega vel. Sjálf hafði hún annast allan undirbúning að heimsókn þeirra til hennar, jafnvel sjálf bakað meðlæti með kaffinu. Hún var viðræðugóð, spurði margs að heiman um menn og málefni. Af sjálfri sér sagði hún komu- mönnum frá Reykjavík að hún færi á hveijum degi ein út áð ganga og færi hún þá í heimsókn til dóttur sinnar. Lét hún vel af högum sínum. Hún bað fyrir kveðjur heim, einkum til Vilhelms Kristinssonar fyrrum starfsmanns hjá Reykjavíkurhöfn og konu hans Sigríðar B. Þórðardóttur, en þau búa settur á Hringbraut 76. Eins og sagt var í upphafi er Sigríður elst allra núlifandi íslend- inga í Kaupmannahöfn. Hún er fædd 5. desember árið 1889 og verður því 99 ára, ef henni endist líf og heilsa í byijun jólaföstu. Réttaðferð við vandasamt verk Semkis til viðgerða á steinsteypu Semkís viðgerðarefni fyrir fagmenn. Tilbúin til notkunar úti og inni. Vantar aðeins vatnið. Rétt efni í hvert verk: Semkís V 100. Fljótharðnandi án trefja. í almennar við- gerðir: Sprungur. Rifur. Holur. Steypuhreiður og flestar aðrar steypuskemmdir. UMBÚÐIR: 1.5 kg, 6 kg og 15 kg fötur. 25 kg pokar. Semkís V 200. Fljótharðnandi með trefjum. í viðgerðir á álagsflötum, t. d. köntum. Til uppfyllingar í stærri rifur og holur. UMBÚÐIR: 1.5 kg, 6 kg og 15 kg fötur. 25 kg pokar. Semkís V 300. Hægharðnandi með trefjum. Sérlega góð viðloðun. í viðgerðir á stórum flötum og þar sem álag er mikið. UMBÚÐIR: 25 kg pokar. HEILDSÖLUDREIFING: SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS SÆVARHÖFÐA 11,112 REYKJAVÍK. SÍMI: 91-83400 MÁNABRAUT 5, 300 AKRANES. SÍMI: 93-11555 Norræni kvartett- inn í Bú- staðakirkju NORRÆNI kvartettinn flytur samtímatónlist í Bústaðakirkju í kvöld. Á efnisskránni eru m.a. ný verk eftir Áskel Másson, Jos- eph Fung, Þorstein Hauksson, Paavo Heininen og Per Nörga- ard. Norræni kvartettinn var stofnað- ur árið 1986, af íjórum tónlistar- mönnum sem allir starfa á Norður- löndum. Þeir eru Einar Jóhannes- son, klarinettlyikari, Joseph Fung, gítarleikari, Áskell Másson, sem leikur á slagverk og Roger Carls- son, sem einnig leikur á slagverk. Þessir tónlistarmenn höfðu unnið saman áður, en ákváðu að gefa kvartettinum nafn og skipuleggja tónleika til að kynna norræna sam- tímatónlist, gjarnan þar sem hún hefði ekki heyrst áður. Á sl. ári var hópnum boðið í opinbera tónleika- ferð til Kína og urðu þar með fyrst- ir til að leika eingöngu evrópska samtímatónlist þar í landi. Hluti verkanna, sem Norræni kvartettinn leikur í kvöld voru sam- in sérstaklega fyrir þá og heyrast nú í fyrsta sinn á íslandi. Þau eru eftir Áskel Másson, Joseph Fung, Þorstein Hauksson, Paavo Heininen og Per Nörgaard. Hörpuskjól - varanlegt skjól. 1 Skulagötu 42, Pósthólf 5056 125 Reykjavlk, Slmi (91)11547 HARPA lífinu lit!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.