Morgunblaðið - 12.06.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JUNI 1988
Kristín Jónsdóttir
frá Jaðri - Minning
Fædd 2. apríl 1892
Dáin 3. júní 1988
Jóna Kristín Jónsdóttir hét hún
fullu nafni. Hún var fædd að Dynj-
anda í Arnarfirði þann 2. apríl
árið 1892. Hún var dóttir hjónanna
Guðbjargar Halldórsdóttur og
Jóns Jónssonar. Kristín var þriðja
elst af sjö systkinum sem komust
upp.
Þegar Kristín var ársgömul
fluttust foreldrar hennar að Hús-
um í Selárdal í Ketildalahreppi í
Amarfirði og þrem árum síðar að
Granda í sömu sveit þar sem
Kristín ólst upp.
Átján ára hleypti Kristín heim-
draganum og hélt til Reykjavíkur
í hússtjórnarskóla. Skólinn var til
húsa í Iðnó og var jafnframt mat-
sala fyrir kostgangara. Þetta var
góður skóli og hún átti margar
góðar minningar þaðan.
Næstu misseri var hún til skipt-
is í námi og starfi. Hún vann fyr-
ir sér sem kaupakona vestur í
Amarfirði og stundaði önnur störf
í Reykjavík. Hún lærði karlmanna-
fatasaum hjá Guðsteini Eyjólfs-
syni og einnig lærði hún kjóla-
saum. Kristín aflaði sér þannig á
eigin spýtur ágætrar menntunar
og reynslu og var vel búin undir
framtíðina.
Það mun hafa verið vorið 1913
að hún ákvað að kanna nýjar slóð-
ir og réð sig sem kaupakona að
Tungufelli í Hrunamannahreppi til
Sigríðar Ámadóttur og Jóns Áma-
sonar.
Þau Sigríður og Jón áttu tíu
böm. Elsti sonur þeirra var jafn-
gamall Kristínu en yngsta dóttirin
á fyrsta ári. Sigríður átti við van-
heilsu að stríða og það veitti ekki
síður af að nýta hina góðu hæfi-
leika og kunnáttu kaupakonunnar
til að sauma á heimilisfólkið en
til að vinna við heyskapinn.
Uppbæir Árnessýslu voru ekki
í þjóðbraut á þessum tíma. Hún
þótti því nokkur heimsmaður,
þessi fríða og glæsilega, unga
kaupakona, vel klædd með þykkar
fléttur niður í mitti. Kristín flutti
með sér ferskan andblæ úr ólíku
umhverfi. Tungufellsbræður
renndu til hennar hýru auga eins
og títt var um unga menn þar sem
hún fór. Einn varð þó öðrum hlut-
skarpari um hylli hennar. Guðni
Jónsson í Tungufelli var þriðji elst-
ur af bræðmnum og þremur árum
yngri en Kristín, fæddur 1895.
Kristín var lengur í Tungufelli
en hún hafði upphaflega ætlað því
hún var beðin að vera þar áfram
um veturinn. Eftir þrjú misseri fór
hún aftur vestur í Árnarfjörð og
vann þar í eitt og hálft ár. Sam-
göngumar voru ekki eins greiðar
og nú. Unga, ástfangna parið varð
að láta nokkur bréf og póstkort
nægja til að halda sambandinu
þennan tíma.
Vorið 1916 kom Kristín aftur
upp að Tungufelli og var þar um
sumarið og veturinn. Þau Guðni
giftu sig 17. maí 1917 og fluttu
að Haga í Gnúpveijahreppi þar
sem hann var ráðinn vinnumaður.
I nóvember fæddist elsti sonur
þeirra, Sigurjón.
Sambúð þeirra Kristínar og
Guðna varð löng og farsæl. Guðni
=KE NWOOD=
ÞAO VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN
FYRSTA FLOKKS
ELDHÚSTÆKI
GOTT VERÐ-GÓÐ KJÖR-GÓÐ WÓNTJSTA
KENWOOD CHEF
KENWOOD MINI
KENWOOD GOURMET
KENWOOD CHEFETTE KENWOOD MINI (handþeytari)
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
bar alltaf mikla virðingu fyrir konu
sjnni, leit upp til hennar og mat
mannkosti hennar. Mikið jafnræði
var með þeim hjónum.
Kristín og Guðni fluttu aftur út
í Ytri Hrepp vorið eftir, að Jötu,
þar sem þau voru næsta árið.
Vorið 1919 fluttu þau að Hlíð í
Hrunamannahreppi. Hlíðin er í
Tungufellssókn og á land að
Tungufelli. Hún er nú í eyði.
í Hlíð var torfbær með hlóðaeld-
húsi en þiljaðri baðstofu. Þau
höfðu aðeins hluta jarðarinnar og
deildu baðstofunni með hinum
ábúendunum, eldri hjónum. Engin
upphitun var í baðstofunni og hún
því köld og saggafull. Eftir fyrsta
veturinn réðust þau í að kaupa sér
eldavél á 300 krónur og þilja af
fyrir hana yst í baðstofunni. Þótti
ýmsum nóg um slíka eyðslusemi.
En þau flokkuðu eldavélarkaupin
síðar með allra stærstu umbótun-
um í sínum búskap því bæði gaf
hún yl í baðstofuna og geysilega
vinnuhagræðingu fyrir húsmóður-
ina, þar eð baðstofa og eldhús
færðust nær hvort öðru og eld-
hússtörfin urðu mun auðveldari.
Lífsbaráttan var hörð og þau
þurftu að byggja bú sitt frá
grunni. Kristín vann við bústörfin
með Guðna, hvort sem það var
heyvinna, skepnuhirðingar eða
bygging útihúsa. Það hefur ef til
vill drýgt tekjumar lítið eitt að
Kristín var vinsæl saumakona og
var oft fengin á bæina til að sauma
hvort sem var karlmannaföt eða
kvenfatnað.
Þau bjuggu í Hlíð í sjö ár og
þar fæddust þeim fjögur böm. Jón
1920, Davíð Brynjólfur 1922, Guð-
bergur 1924 og Jóhanna 1925.
En þau áttu eftir að færa sig
enn nær Tungufelli því fyrsta júní
1925, daginn sem Jóhanna varð
ársgömul, fluttu þau að Jaðri með
börnin sín fimm og bústofninn.
Jörðina tóku þau á leigu til að
byrja með en keyptu hana síðar.
Jaðar er í sama túni og Tungu-
fell, aðeins nokkur hundruð metrar
eru á milli bæjanna.
Bóndinn sem fyrir var á Jaðri,
Snorri Sigurðsson, var orðinn
ekkjumaður. Hann var fæddur á
Jaðri og hafði búið þar allan sinn
búskap. Fýrstu árin eftir að Kristín
og Guðni komu að Jaðri hélt
Snorri heimili með fósturdóttur
sinni, en var síðar í heimili hjá
Kristínu og Guðna þar til hann
lést níutíu og fjögurra ára árið
1959.
Jaðarinn var stærri og betri jörð
en Hlíðin þótt bæjarhúsin væru
ekki í góðu ástandi. í rigningum
hriplak baðstofan og þægindi inn-
an bæjar voru ekki meiri en í Hlíð.
í janúar 1931 fæddust tvíbur-
amir Guðmundur og Guðrún.
Börnin voru nú orðin sjö. í Há-
holti í Eystri Hrepp bjuggu Filipp-
us, bróðir Guðna, og Valgerður
Matthíasdóttur, kona hans. Með
þeim Guðna og Filippusi, sem var
aðeins ári yngri en Guðni, voru
alla tíð miklir kærleikar. Þau
Filippus og Valgerður voru barn-
laus. Þeim Guðna og Kristínu var
mikill vandi á höndum þegar
Filippus og Valgerður báðu þau
að leyfa sér að taka nýfædda
drenginn í fóstur. Guðmundur var
tuttugu vikna þegar hann fór að
Háholti og þar ólst hann upp við
mikið ástríki.
Vorið 1931 var hafist handa við
að byggja nýjan bæ á Jaðri enda
var gamli torfbærinn orðinn óhæf-
ur til íbúðar. Nýja íbúðarhúsið var
úr timbri. Þar var rennandi vatn
og miðstöðvarhitun. En nú var
kreppa og afurðir bænda í lágu
verði. Þau Kristín og Guðni áttu
fullt í fangi með að sjá heimilinu
farborða og standa í skilum næstu
árin. Það var einungis fyrir sér-
staka spameytni og nýtni að þeim
tókst að láta enda ná saman.
Kristín var ákaflega handlagin og
nýtin. Hún prjónaði og saumaði
föt á ijölskylduna, oft hverja
flíkina upp úr annarri, bætti og
stykkjaði. „Það er engin skömm
að því að vera í viðgerðum fötum,
ef þau em hrein og heil,“ sagði
hún oft. Hreinlæti og snyrti-
mennska einkenndi heimili
Kristínar og Guðna.
Eftir nokkur ár fór hagurinn
að batna. Kreppunni lauk. Efna-
hagur landsmanna reis úr rústum.
Þau áttu nú jörðina og skulda-
byrði íþyngdi ekki lengur. Upp-
bygging búsins var hröð á fimmta
áratugnum. Efnin uxu og brátt
var komið rafmagn til þæginda
við öll heimilisstörf. Börnin vom
uppkomin og höfðu aflað sér
starfsmenntunar. Tveir synirnir,
Davíð og Guðbergur, vom búfræð-
ingar og bjuggu félagsbúi með
foreldmm sínum. En það vom
áfram börn á heimilinum. Kristín
og Guðni ólu upp tvær dætur Jó-
hönnu, Lilju og Björgu. Þau voru
þeim alla tíð fremur foreldrar en
afi og amma.
Nú fóm að skapast tækifæri til
ferðalaga stöku sinnum. Kristín
hafði sérstakt yndi af að ferðast.
Hún naut þess að sjá nýja staði,
hitta fólk og víkka sjóndeildar-
hringinn. Það var henni ógleyman-
leg upplifun þegar hún fór í sína
fyrstu flugferð. Það hefur verið í
kringum 1950 að hún fór að heim-
sækja ættingja sína í Arnarfirði.
Farkosturinn var Oatalina-flug-
bátur og aðstæður hafa áreiðan-
lega verið í fmmstæðara lagi á
nútíma vísu. Eftir árangurslausa
tilraun til lendingar varð að snúa
við til Reykjavíkur og reyna aftur
næsta dag. Hún var jafnvel enn
ánægðari yfir því að fá þannig
lengri og fjölbreyttari flugferð en
gert hafði verið ráð fyrir.
Kristín var mjög dugleg að ferð-
ast á hestum og lét vatnsföll og
önnur óþægindi ekki aftra sér.
Hún var mikill dýravinur og fram-
an af vann hún mikið við skepn-
urnar með bónda sínum. Reið-
hestana sína þótti henni afar vænt
um og þó öðmm fremur hryssuna
Brönu sem hún lét heyja framan
við baðstofugluggann sinn á Jaðri.
Þótt minni Kristínar brygðist
síðustu árin mundi hún lengi
hryssuna Brönu.
Vorið 1964 brugðu þau Kristín
og Guðni búi og fluttust til
Reykjavíkur til dóttur sinnar, Guð-
rúnar, og eiginmanns hennar,
Ingimars Karlssonar. Hjá þeim
bjuggu þau bæði til ársins 1982
að heilsu Kristínar var svo hrakað
að hún fékk vist á hjúkmnar-
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins I Hafnarstræti 85, Akureyri.