Morgunblaðið - 12.06.1988, Síða 61

Morgunblaðið - 12.06.1988, Síða 61
61 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988 Minning: * Oskar B. Jónsson mælitækjasmiður 11. mars 1909 Dáinn 25. aprfl 1988 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Þessar ljóðlínur koma upp í huga mér þegar náinn vinur er allt i einu horfínn sjónum. Fimmtudaginn 5. maí fór fram í Fossvogskapellu útfðr Óskars Bem- harðs Jónssonar fyrrverandi mæli- tækjasmiðs, en hann andaðist á öldrunardeild Landspítalans í Há- túni 10, Reykjavík, 79 ára að aldri. Óskar hafði legið þar rúmfastur um eins og hálfs árs skeið. Óskar fæddist á Innra-Hólmi í Akraneshreppi 11. mars 1909, son- ur hjónanna Sigurlaugar Jónsdóttur og Jóns Jónssonar bónda þar og athafnamanns, kunnastur fyrir dugnað sinn í Reykjavík þó búsettur væri á Innra-Hólmi. Óskar var næstyngstur fímm bama þeirra hjóna en hin vom Siguijón, Guðríð- ur, Marinó og Sigurlaug, einnig hálfbróðir, Jón Sævar, sem búsettur er í Bandaríkjunum, yngstur þeirra systkina. Óskar ólst upp á Lindargötunni hjá foreldrum sínum. Það mótaði líf hans mjög að föðurafí hans hafði árið 1887 ritað merka bók um með- ferð góðmálma, kennslubók þess efíiis. Óskar kynntist að sjálfsögðu afa sínum og hugðarefnum hans vel og heillaðist af þeim. Byrjaði hann snemma að smíða úr máímum þessum undir leiðsögn hans. Seinna meir, er honum óx svo fískur um hrygg að hann var fær um og mátti læra iðn, sneri hann sér að úrsmíði og lærði hand hjá Magnúsi Benjamínssyni. Óskar var góður úrsmiður, voru honum flestir hlutir auðunnir. Hann hafði það embætti á námsárum sínum, að gæta klukk- unnar í Dómkirkjunni og víst er að engum aukvisum var falið slíkt starf. Að námi loknu starfaði hann sem úrsmiður á Akranesi um nokkurra ára skeið. Kynntist hann konu sinni, Svövu Laufeyju Kristinsdóttur frá Holtum í Mýrarhreppi, A-Skafta- fellssýslu, sem var hans mikla gæfa í lífínu. Lifír hún mann sinn. Þau hófu búskap sinn hér í Reykjavík 1931 og varð þeim tveggja bama auðið, auk þess sem þau ólu upp eina dótturdóttur sína. Bömin eru Þorsteinn, sem er deild- arstjóri hjá Landsímanum, og Sigríður Anna, sem vinnur sem yfír- meinatæknir í Bandaríkjunum. Þegar þau Óskar og Laufey hófu búskap var heimskreppan mikla í algleymingi og lítið um atvinnu. Kom sér í fyrstu vel að Óskar var hagur í höndum og hafði lært fleira en bara úrsmíðina, hann hafði einn- ig numið leturgröft og silfursmíði. En er kreppan þrengdi að hag manna um adlt land varð hann að leita annað að atvinnu og lá leið hans á hafið eins og hjá fleiri heimil- isfeðrum á þessum tíma. Þar vann hann lengst af sem vélstjóri, sigldi hann öll stríðsárin, síðast á togaran- um Þórólfi, eða þar til hann fór í land og gerðist einn af stofnendum bifreiðastöðvarinnar Hreyfíls. Hann hóf þar akstur á eigin bifreið. Þeg- ar gjaldmælar komu til sögunnar í leigubifreiðir þurfti að sjálfsögðu tæknimenntaðan mann til að sjá um ísetningu þeirra og viðhald. Óskar var ráðinn til þeirra verka °g byijaði hann á að fara til Svíþjóð- ar til Halda-verksmiðjanna þar sem hann lærði þessa iðn og fékk meist- araréttindi sem mælitækjasmiður. Starfaði hann með eigið verkstæði fyrir alla gjaldmæla í bifreiðir í 26 ár. Óskar var einn af þeim mönnum sem ávallt var hægt að leita til með vandamál sín á þeim tækjum og áhöldum sem biluðu. Skipti þar engu hvort „landinn" eða „kaninn“ bað um aðstoð, honum voru allir vegir færir. Er í nauðirnar rak smíðaði hann bara hlutinn. Sá er þessar línur ritar hitti Óskar oft, áttum við þá saman ánægjulegar stundir. Hafði Oskar frá mörgu skemmtilegu að segja af viðburðaríkri ævi. Óskar hafði gamanyrði oftast á takteinum og hafði sérlega skemmtilega frásagn- argáfu. Þá er óhætt að fullyrða að Laufey lagði sitt af mörkum í sam- skiptum þeirra, sem gerði líf þeirra hamingjusamt alla tíð, þó stundum blési ekki byrlega með heimilið og langar fjarvistir hans að heiman vegna starfans. Eg vil að lokum þakka Óskari og þá um leið Laufeyju fyrir alla þá góðsemd og hlýju sem þau hafa sýnt börnum mínum og allri minni fjölskyldu, það var gott að vita af siíkum góðmennum sem ávallt höfðu opið hús og hjarta til að gefa sér tíma og næði til að hugsa um þennan hóp, allt án þess að ætláSt til neins í móti. Eg votta Laufeyju og bömum hennar mína dýpstu samúð. Megi góður Guð blessa minningu Óskars. Arnar Axelsson Morgunblaðið/JúlíUB Skrifað undir mjölsamning Samningar um tilraunasendingu á fiskimjöli til Kína voru undirritaðir í Reykjavík á sunnudag af fulltrúum alþýðulýðveldinsins og fyrirtæk- inu R. Hannessyni fyrir milligöngu fyrirtækisins XCO. Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigtryggur R. Eyþórsson, framkvæmdastjóri XCO, Richard Hannesson, forstjóri, Yang Fenglin, formaður kínversku sendi- nefndarinnar, An Lu Xia, Zang Hong-Bin, Zang Jinyun og Ásmundur Richardsson, framkvæmdastjóri. t Þökkum innilega hlýhug og vináttu við andlát og útför MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR Börn, tengdabörn og barnabörn. l t Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug, við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR KRISTÍNAR SVEINBJARNARDÓTTUR, Sólheimum, Grenlvík. Sérstakar þakkir til laekna og starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra umönnun. Jón Arnþórsson, Gisela Rabe-Stephan, Kristinn Arnþórsson, Joan Katrín Lónharðsdóttir, Sigrföur Arnþórsdóttir, Jón Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför sonar okkar, bróður, dóttursonar og frænda, ERLINGS BJÖRNSSONAR, Greniteig 39, Keflavfk. Gúö blessi ykkur öll. Sjöfn Erlingsdóttir, Björn Jakobsson, Helgi Björnsson, Grétar Jakob Björnsson, Birna Margrót Björnsdóttir, Einar Haukur Björnsson, Helga Eyþórsdóttir og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, FRIÐLEIFS EGILS GUÐMUNDSSONAR, Ölduslóð 5, Hafnarflrðl. Guðrún Ingvarsdóttir, Egill Rúnar Friöleifsson, Sigríður Björnsdóttir, Erla Friðleifsdóttir, Hallgrímur Guðmundsson, Ingvar Birgir Friðleifsson, Þórdís Árnadóttir, Guðmundur Ómar Friðleifsson, Sigrún Jakobsdóttlr, Þóra Lovísa Friðleifsdóttir, Hallur Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. TOYOTA BÍLASALAN Skeifunni 15. Endursala notaöra bíla. T0Y0TA Nýbýlavegi 8. Þjónusta og sala nýrra bíla. T0Y0TA verkstæöi og umboðssölur um allt land. MfD STÖNDUM Á ÞVf FASTAR EN FÓTUNUM . AÐT0Y0TAER AREIÐANLEGT MERKI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.