Morgunblaðið - 12.06.1988, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1988
4
■>
-4
i
í
I
í
»NANASTI VOPNABROÐIRINN"
DAUÐI
UNPIAOS
Lin Piao talar
... á kjörstað
með
formanninum
’iao
og Mao: Samsæri gegn formanninum.
Kínverski kommúnistaf lokkurinn
virðist hafa komið í veg fyrir tilraun
til að gefa út ævisögu Lins Piaos
(Lins Biaos) marskálks, staðgengils
Mao Tse- tungs, sem staðhæft er að
hafi gerzt landráðamaður og reynt
að flýja til Sovétríkjanna, en farizt í
flugslysi í Mongólíu í september 1971.
Hann var sakaður um að hafa reynt
að ráða Mao af dögum og hrifsa til
sín völdin. Dularfullt mál hans var
talið mesta hneyksli
„menningarbyltingarinnar “.
Tveir bræður, sem starfa
við blað kínverska hers-
ins, munu nýlega hafa
farið þess á leit við
fyrrv. samstarfsmann
Lins Piaos að hann skrifaði ævisögu
hans og bókaforlag hersins gæfi
hana út. Sá sem þeir sneru sér til
var Li Zuopeng, fv. yfirmaður
stjómmáladeildar sjóhersins, sem
var leiddur fyrir rétt um leið og
fleiri yfirmenn heraflans og svoköll-
uð „fjórmenningaklíka" 1980,
dæmdur fyrir að hafa verið í vit-
orði með Lin Piao, en látinn laus í
fyrra.
Kínverska öryggisþjónustan, sem
greindi frá þessu, sagði að hér
væri á ferðinni „skuggalegt sam-
særi“ um að rétta við álit Lins Pia-
os. Ummæli hennar sýna að enn
er ekki talið óhætt að íjalla opin-
skátt um mál marskálksins,’ sem
var 65 ára þegar hann hvarf og
gegndi embætti landvarnaráðherra,
auk þess sem hann var sérstakur
skjólstæðingur og staðgengill Maos
formanns.
Lin Piao var einn hæfasti herfor-
ingi kínverskra kommúnista. Ferill
hans hófst fyrir daga „göngunnar
miklu" 1934 og hann leiddi heri
kommúnista til sigurs í borgara-
stríðinu 1946-1949. Á næstu árum
fylgdi hann dæmigerðri hentistefnu
og vitnaði óspart í „hugsanir" Ma-
os. Hann studdi „hinn mikla stýri-
mann“ í baráttu hans gegn klíku
stuðningsmanna Rússa undir for-
ystu Pengs Teh-huai marskálks,
fékk sæti í stjómmálaráðinu (fram-
kvæmdastjórn flokksins) 1958 og
varð landvarnaráðherra ári síðar í
stað Pengs.
Arftaki Maos
Skömmu síðar fann Lin Piao upp
litla „rauða kverið" með hugsunum
Maos og gróf undan áhrifum Lius
Shao-chis, sem var sviptur embætti
forseta 1965, Dengs Xiaoping og
fleiri „hægrimanna“. í „menningar-
byltingunni" ýtti Lin undir sefa-
sjúka „Mao-dýrkun“ og færði sér
umrótið í nyt. Undir forystu hans
tryggði herinn „rauðu varðliðunum"
sigur í viðureign þeirra við „endur-
skoðunarsinna" og hann var til-
nefndur „nánasti vopnabróðir og
arftaki" Maos 1969.
Smám saman náði þó bandalag
hófsamra manna í hernum og
stjórnkerfinu undirtökunum og
„vinstriöfgamönnum" var vikið úr
fylkisstjórnum. Þessar hreinsanir
náðu hámarki sumarið 1971. í júní
hvarf Lin Piao og sást ekki opin-
berlega eftir það. Vitað var að hann
þjáðist af ólæknandi berklasjúk-
dómi, blóðskorti og svefnleysi. Al-
varleg valdabaráti.a virtist í uppsigl-
ingu. í júlí kom Henry Kissinger,
öryggisráðunautur Richards Nix-
ons, í leyniheimsókn til Peking og
ákveðið var að forsetinn færi þang-
að síðar.
Dagana 12. til 16. september
hættu allir fulltrúar í stjórnmála-
ráðinu að sjást opinberlega. Jap-
önsk sendinefnd sá að óvenjumikið
var um að vera við aðalstöðvar
flokksins í Peking. Um leið hurfu
allir helztu yfirmenn heraflans.
Flugbann var fyrirskipað og eftir-
litsflugi hætt á Taiwan-sundi.
Deildir hersins virtust vera í við-
bragðsstöðu. Þótt hermenn sæjust
á ferli í Peking hermdu fréttir að
heimfararleyfi hermanna hefðu ver-
ið afturkölluð. Mesta athygli vakti
að tilkynnt var að hefðbundinni
skrúðgöngu á þjóðhátíðardaginn 1.
október yrði aflýst „af sparnaðar-
ástæðum". .
Seinna kom í Ijós að allt átti
þetta rætur að rekja til máls Lins
Piaos, en mjög óljósar fréttir bárust
um það. Chou En-lai forsætisráð-
herra staðfesti ekki fyrr en níu
mánuðum síðar að Lin væri látinn
og hefði reynt að myrða Mao og
taka völdin. Málið skýrðist nokkuð
í réttarhöldunum gegn „íjórmenp-
ingaklíkunni" 1980-1981 ognokkru
síðar í grein í flugmálariti, en mörg-
um spurningum er ósvarað.
Morðsamsæri
Sagt var að Lin Piao hefði ákveð-
ið „í einhverju fáti“ að flýja til
Kantons til að koma á fót nýrri
miðstjóm. Kona hans, Ye Qun, og
sonur þeirra, Lin Liguo, hvottu
hann til samsærisins. Lin yngri
starfaði í aðalstöðvum flughersins,
sem var undir stjórn Wu Fa-hsien
(Wu Faxian), skjólstæðings föður
hans. Wu var einn helzti forkólfur
menningar-byltingarinnar og hafði
notað öryggissveitir flughersins til
að koma í veg fyrir að landherinn
bryti andspyrnu rauðu varðliðanna
á bak aftur.
... með
rauðum
varðliðum og
formanninum
(1966)