Morgunblaðið - 21.06.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNl 1988
Mamman við Sirrý litlu sem var að hjálpa til
við húsverkin:
- Guð minn almáttugur, kanarífuglinn er
horfmn úr búrinu sínu!
- Vá maður, en skrýtið! Hann var þar rétt
áðan þegar ég var að ryksuga það!!
KÓKÓMJÓLK FJ3RJR 6LATT FÓLK /
| MjÓLKURSAMSALAN ( REYK|AVÍK |
Gódan daginn!
Þrið)udagur 14. júni '
Éinkaverslun
og dreifbýii
Raddsterkur og hávær!
Það að vera garralegur merkir að vera
raddsterkur eða hávær. Þetta tekst
Garra Tímans vel þegar hann veitist að
Staksteinum vegna hugleiðinga um tap-
rekstur samvinnuverzlunar. En eitt er að
vera hávær, annað að hitta naglann á
höfuðið. Þessvegna er óhjákvæmlegt að
gera ofurlitla athugasemd við hugleið-
ingu Garra í Tímanum þriðjudaginn 14.
júní síðastliðinn.
Kaupmáttur
mismunandi
eftir verzlun-
um!
Staksteinar véku að
því á dögunum að vinstri
pressan hafi um langt
árabil ekki verið marg-
orðari um annað en
meintan verzlunargróða
kaupmanna og stórmark-
aða. Þetta var gert í
framhaldi af fréttum
Tímans um mörg hundr-
uð milljóna króna tap á
samvinnuverzlun, kaup-
félögum og verzlunar-
deild SÍS, árið 1987.
Staksteinar komust svo'
að orði:
„Ef rétt er, sem viss
öfl halda fram, að verzl-
unargróði einkaverzlun-
ar sé himinhár, á sama
tima sem hún býður al-
menningi sambærileg
eða betri kjör en sam-
vinnuverzlun, sem hang-
ir á horrim ef marka má
fréttir af aðalfundi SÍS,
er það ekki sannfærandi
dæmi um ágæti sam-
vinnuverzlunar".
Staksteinar héldu þvi
og fram að kaupmáttur
launa væri mismunandi
eftir verzlunum. Sam-
keppni í verzlun hafi í
raun tryggt betra vöru-
úrval og aukið kaupmátt
launa. Ekki fara sögur
af því að kaupfélög geti
státað af lægra vöruverði
en einkaverzlun. Samt er
því haldið fram að einka-
verzlun hlaði upp gróða
á sama tima og sam-
vinnuverzlun sekkur i
tap.
Staksteinar bentu
jafnframt á þá staðreynd
að vöruverð væri á heild-
ina litið hærra hér á landi
en í grannríkjum. Skýr-
ingin væri að hluta til
hærri ríkisskattar í vöru-
verði: tollar, vörugjöld
og söluskattur. Sú verð-
skýring dyggði þó ekki
til, ein sér, i öllum tilfeU-
um. Þessvegna væri
verðsamanburður Verð-
lagseftirlitsins af hinu
góða og í þágu almenn-
ings, þótt samvinnuverzl-
un hafi sjaldnast hlotið
vinninginn á þeim vett-
vangi.
Verzlar Garri
ÍKRON?
í orðabók Menningar-
sjóðs merkir orðið garri
þrennt. í fyrsta lagi rosta
eða frekju. í annan stað
frekan einstakling. í
þriðja lagi kaldan vind,
sveljanda. Satt bezt að
segja ris Garri Tímans
undir öUum þessum orð-
skýringum þegar hann
veitist að Staksteinahöf-
undi í Tímanum, þriðju-
daginn 14. júni sl., í heU-
agri vandlætingu vegna
meintrar aðfarar að fé-
lagsverzlun í landinu.
„Staksteinahöfundur
gleymir því að það er
fyrst og fremst dreif-
býlisverzlunin sem nú á
í erfiðleikum," staðhæfir
Garri. Satt er það þjá
Garra Tímans að strjál-
býlisverzlun býr við aðr-
ar og lakari verzlunarað-
stæður en til dæmis
KRON. En hver er það
sem „gleymir“? Tapaði
ekki KRON tugmiUjón-
um 1987?
KRON býr að áratuga
áunninni aðstöðu á
„bezta“ verzlunarsvæði
iandsins. Þar á meðal
[væntanlega] viðskiptum
Sveijandans á Tímanum.
Ekki sakar nábýUð við
Sambandið, verziunar-
risann. Eða „samvinnan"
innan SlS, sem mjög hef-
ur verið í fréttum.
Ef Garri vUl vera heið-
arlegur í málflutningi
mætti hann gjaman gera
lesendum sinum grein
fyrir þvi — með rök-
studdum dæmum —
hvort kaupmáttur Reyk-
vikinga er meiri í KRON
en tU dæmis stórmörkuð-
um einkaverzlunar.
Hann mætti og sýna
fram á hvem veg verzl-
unargróðinn á höfuð-
borgarsvæðinu kemur
fram í ársreikningi
KRON 1987. Máske Garri
geti um síðir tínt tU
„sannfærandi dæmi um
ágæti samvinnuverzlun-
ar umfram einkaverzl-
un“? Við biðum og sjáum
hvað setur.
„Glimrandi
tap“
Alþýðublaðið stingur
nefi í framangreind
Garraskrif sl. miðviku-
dag og segir:
„Garri geip penna sinn
og birti grein í Timanum
í gær, þar sem hann
ræðst UlþyrmUega á höf-
und Staksteina fyrir að
halda fram annari eins
þvælu og að samvinnu-
hreyfingin geti ekki rek-
ið verzlanir. Aðalmálið
er nefnUega ekki að mati
Garra, að verzlunin skili
hagnaði, heldur að hún
sé tU á afskekktustu stöð-
um fyrir fólkið. Þessi
efnahagsstefna hefur
stundum verið nefnd
framsóknarhagfræði og
byggist á því að sam-
vinnuhreyfingin veiti
landsmönnum um alla
dali og annes þjónustu,
reki heUdarbisnessinn
með glimrandi tapi, en
láti ríkissjóð borga mis-
muninn og velþað og
hagnist á öUu saman“.
Þetta vóru orð Al-
þýðubiaðsins.
Viltu kaupa...
)rúar, mars, apríl,
lí, júlí, ágúst, sep
r, október, nóvem
sember, janúar, fe
ars, apríl, maí, júi
í, ágúst, septembí
... bíl, íbúð, þvottavél eða fara í heimsreisu?
Söfnunarreikningur VIB gerir þér
þetta kleift á þægilegan hátt. VIB sér
um að senda þér gíróseðla eftir sam-
komulagi og annast síðan ávöxtun
fjárins. Þú tekur féð svo út þegar tak-
markinu er náð. Njóttu vel.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi68 15 30