Morgunblaðið - 21.06.1988, Side 72
ÁGRÆNNIGREIN
MEÐ
^rgtutMafrifr
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
Flugmanns saknað eftir árekstur tveggja véla vestan við land:
Sá harni ekki og skil ekki
- hvernig þetta gat gerst
- sagði flugmaður þeirrar vélar sem náði landi við komu til Reykjavíkur
Flugmaðurinn, Chase S. Os-
borne, hóf rakleiðis að kanna
skemmdir á vél sinni þegar hann
steig frá borði. A myndinni sést
hvar Skúli Jón Sigurðarson
deildarstjóri hjá Loftferðaeftir-
litinu stöðvaði Osborne er hann
rykkti í laskaðar vængstoðir vél-
arinnar.
EKKI er ljóst hvað olli því að
tvær einshreyfils, fjögurra sæta
flugvélar, af gerðinni Maule,
skráðar í Bandaríkjunum, rákust
saman um það bil 130 sjómílur
vestur af Keflavík um klukkan
19.35 í gærkvöldi. Vélarnar
flugu sjónflug og var einn maður
í hvorri vél. Onnur vélin náði að
lenda í Reykjavík með laskaðan
væng, hin féll í sjóinn og var
ófundin skömmu eftir miðnætti
r í nótt. „Ég sá hann ekki, ég skil
ekki hvernig þetta gat gerst,“
sagði Chase S. Osborne, flug-
maður vélarinnar sem náði iandi,
er hann steig frá borði á
Reykjavíkurflugvelli um klukk-
an 20.50 í gærkvöldi.
Osborne er vanur feijuflugi á
þessari leið og hefur flogið nokkrum
sinnum áður hingað til lands. Loft-
ferðaeftirlit og flugslysanefnd yfir-
heyrðu hann í gærkvöldi í tæpar
tvær klukkustundir en að því loknu
' sagði Skúli Jón Sigurðarson hjá
loftferðaeftirlitinu að ekki væri ljóst
hvernig slysið bar að höndum.
Einn maður var um borð í hvorri
vél, báðir bandarískir. Vélarnar,
sem eru skrásettar í Bandaríkjun-
um, voru í samfloti á leið frá Goose
Bay með viðkomu í Narssarssuaq á
Grænlandi. Þaðan héldu flugmenn-
imir áleiðis til Reykjavíkur og flugu
sjónflug, fyrir neðan flugstjómar-
svæði og vom því ekki undir stjóm
íslensku flugumferðarþjónustunn-
ar. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var skyggni um 100 mílur
á þessum slóðum. Klukkan 19.35
óskaði Osbome aðstoðar og til-
kynnti að vélarnar hefðu rekist
, saman og að hann sæi ekki til hinn-
ar.
Leit hófst þegar að týndu flugvél-
inni og stjórnaði flugvél flugmála-
stjómar, TF-DCA, henni. Fjórar
aðrar vélar tóku þátt í leitinni; þyrla
og Fokker-vél Landhelgisgæslunn-
ar, TF-SIF og TF-SÝN, og þyrla
og Hercules-vél frá vamarliðinu.
Einnig var togari á leið á svæðið.
Leitin hafði engan árangur borið
um klukkan hálf eitt í nótt.
Eftir fimm stundarfjórðunga flug
að landi átti Osborne í erfíðleikum
með að lenda vél sinni á Reykjavík-
urflugvelli og gerði tvær atrennur
áður en hann áræddi að lenda.
komu frá Goose Bay i Kanada
19:35 Tilkynnt um árekstur tveggja
flugvéla á 63»29’N og 27°32’V,
um 130 sjómílur vestur af landinu.
Önnur vélanna komst af.
Vélamareru háþekjurogvoru mikl-
ar skemmdir á hægri væng og
stjómborðshlið bláhvítrar vélar
Osbornes og rauðgular litaskellur
umhverfis. Karl Eiríksson formaður
Flugslysanefndar og Skúli Jón Sig-
urðarson deildarstjóri hjá loftferða-
eftirliti tóku á móti Osborne og
færðu hann þegar til yfirheyrslu
um málsatvik. Að lokinni yfirheyrsl-
unni vildi Osbome ekkert segja við
blaðamann um aðdraganda slyssins
og rannsóknarmenn vörðust allra
frétta en sögðu að Osborne hefði
ekki getað gefið skýringu á því
hvemig óhappið varð.
Samkvæmt upplýsingnm frá
Veðurstofu Islands var suðvestan-
kaldi, 4-5 vindstig og skúrir á því
svæði þar sem talið er að flugvélin
Morgunblaðið/Ól.K.M.
hafí lent í sjónum. Ölduhæð mun
hafa verið um 3-4 metrar.
Breytingar á hvalarannsóknuniim
Hvalvertíðin mun hefjast í nótt
„VIÐ erum að vinna að þeim breytingum sem við hyggjumst gera
á rannsóknaráætluninni og munum kynna þær breytingar á miðviku-
daginn," sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Ég er ekki að segja að þá muni liggja
fyrir ákveðin niðurstaða frá fundinum við Bandaríkjamenn nú um
helgina. Sá fundur var haldinn til að undirbúa niðurstöðu í mál-
inu.“ Hvalveiðiskipin halda út í nótt, aðfaranótt miðvikudags.
Tveggja daga viðræðum banda- bandarísku fulltrúarnir ætluðu að
rískrar sendinefndar við íslenska
embættismenn lauk í Borgartúni 6
á sunnudag og héldu Bandaríkja-
mennirnir þá utan. Sjávarútvegs-
ráðherra lýsti viðræðunum sem vin-
samlegum og sagðist ætla að
greína ríkisstjóminni frá efni þeirra
í dag, þriðjudag. Hann sagði að
kynna þarlendum yfírvöldum gang
viðræðnanna og bjóst við að Banda-
ríkjamenn myndu gefa út yfirlýs-
ingu á morgun, miðvikudag, og
fulltrúar þjóðanna tveggja myndu
þá hafa samband sín á milli.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er það ekki krafa Banda-
ríkjamanna að íslendingar hætti
alveg að veiða sandreyði, en sam-
kvæmt rannsóknaráætlun
Hafrannsóknarstofnunar á að veiða
80 langreyðar og 20 sandreyðar í
sumar. Verði um einhveijar breyt-
ingar að ræða hlýtur því að vera
um niðurskurð á veiðum á bæði
langreyði og sandreyði að ræða.
Þá verður ákvæðinu um leyfí til
hámarksútflutnings á 49% af kjöti
og öðrum hvalaafurðum líklega
ekki breytt.
Af íslands hálfu tóku þátt í við-
ræðunum um helgina þeir Guð-
mundur Eiríksson, þjóðréttarfræð-
ingur, Helgi Ágústsson, skrifstofu-
stjóri í utanríkisráðuneytinu, Jó-
hann Siguijónsson, sjávarlíffræð-
ingur, Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur, Kjartan Júlíusson, deildar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og
Hermann Sveinbjömsson, aðstoð-
armaður sjávarútvegsráðherra. Af
hálfu Bandaríkjamanna tóku þátt
í viðræðunum þeir James Brennan,
M. Tillman og D. Swanson frá við-
skiptaráðuneytinu, R. Johnson, E.
Wolfe og P. Bodansky frá utan-
ríkisráðuneytinu, D. Carr frá dóms-
málaráðuneytinu og L. Nicholas
Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi.
Þrjár kon-
ur kærðu
nauðg'un
ÞRJÁR konur kærðu nauðgun til
Rjinnsóknarlögreglu ríkisins um
helgina. Tveir menn hafa verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald
vegna tveggja málanna, en þriðja
málið er í rannsókn.
Um kl. fimm að morgni sunnu-
dagsins kærði kona í Hafnarfirði
nauðgun, sem hún sagði hafa átt sér
stað í heimahúsi þá um nóttina.
Skömmu síðar, eða um kl. 9, kærði
önnur kona þar í bæ nauðgun, sem
hún sagði einnig hafa átt sér stað í
heimahúsi aðfaranótt sunnudags.
Tveir menn voru handteknir vegna
þessara mála og voru þeir úrskurðað-
ir í 30 daga gæsluvarðhald í Saka-
dómi Hafnarfjarðar. Annar mann-
anna er um þrítugt, en hinn um fer-
tugt.
Þriðja nauðgunin var einnig kærð
á sunnudagsmorgun. Hana kærði
kona í Reykjavík. Konan kvaðst hafa
þegið far með tveimur varnarliðs-
mönnum í bifreið þeirra eftir dans-
leik í veitingahúsi í Reykjavík á laug-
ardagskvöld. Hún segir mennina
hafa komið fram vilja sínum í bifreið-