Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 2
'2
'IÍÓritííftólÍAíÍÍ^ VflffirÓfíÁÓuS A30. JÚNÍ1988
Rúmlega 40 umsóknir um sláturleyf i:
Undanþága til slátr-
unar verður torfengin
- að sögn landbúnaðarráðuneytisins
RÚMLEGA 40 umsóknir um slát-
urleyfi hafa nú borist landbúnað-
arráðuneytinu. Landbúnaðarráð-
herra hefur heimild til að gefa
undanþágu frá settum reglum um
aðbúnað í sláturhúsum, en að sögn
Níelsar Arna Lund hjá landbúnað-
arráðuneytinu kann að verða erf-
iðara en áður að fá þá undan-
NM í brids:
Islendingar
eru enn efstir
ÍSLENZKA sveitin er enn efst í
karlaflokki á NM í brids, sem
nú fer fram hér á landi, þrátt
fyrir tap gegn Svíum í gær og
nauman sigur gegn Færeyingum.
í sjöundu umferðinni töpuðu Is-
lendingar fyrir Svíum 13-17, en eru
þó efstir með 126 stig. Svíar eru í
öðru sæti með 117 og Danir í því
þriðja með 115.
Blönduós:
Ófeigur Gests-
son ráðinn
þágu, þar sem síðasta Alþingi
hvatti tU endurbóta og endurskoð-
unar á sláturhúsamálum um leið
og það framlengdi undanþágu-
heimild til ráðherra um 2 ár. í
fyrra var slátrað i 18 löggiltum
húsum, önnur 29 fengu undan-
þágu, en einu húsi, á Bíldudal, var
synjað um sláturleyfi.
Umsagnir dýralækna um slátur-
húsin ættu að liggja fyrir á næstu
vikum og tekur landbúnaðarráðherra
ákvörðun um leyfísveitingu í kjölfar
þeirra. Sláturhús geta aðeins fengið
undanþágu frá skilyrðum laga telji
dýralæknar að slátrun geti farið þar
fram á viðeigandi hátt og mæli með
því að undanþága verði gefin.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
sent tilmæli til allra sláturleyfishafa
um að þeir bæti aðstæður í slátur-
húsum. Þar eru menn einnig beðnir
um að athuga þann möguleika að
sláturhúsum fækki og stór sláturhús
með góðan aðbúnað taki að sér slátr-
un fyrir önnur, þó að afurðir frá
þeirra slátursvæði verði settar inn á
sérstakan reikning. Níels Ámi Lund
sagði að einn helsti þröskuldurinn í
vegi fyrir fækkun sláturhúsa væri
sá að enginn úreldingarsjóður hefði
verið til sem greiddi bættur til þeirra
sláturhúsa sem hættu. Nú væri hins
vegar verið að vinna að reglugerð
um slíkan sjóð í landbúnaðarráðu-
neytinu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Páll Gíslason, borgarfulltrúi og formaður nefndar um málefni aldr-
aðra, afhjúpaði listaverkið.
Þjónustuíbúðir aldraðra við Bólstaðarhlíð:
Höggmynd eftir Hallstein
Sigurðsson komið fyrir
AFSTEYPU af höggmynd sem Þetta er lokaáfangi framkvæmda
Hallsteinn Sigurðsson högg- við Bólstaðarhlíð, að sögn Armanns
myndari gerði árið 1971 hefur Amar Armannsonar hjá Armanns-
verið komið fyrir við þjónustu- felli. „Við emm einfaldlega að gera
íbúðir aldraðra við Bólstaðarhlíð það sem alltof sjaldan er gert, sem
41-45 í Reylgavík. Afsteypan er er að framfylgja samþykktum sem
3,70 m á hæð og vegur tvö og gerðar em um að listaverk piýði
hálft tonn. byggingar," sagði Armann Öm.
Hallsteinn Sigurðsson og Ar-
mann Orn Armannsson
bæjarstjóri Steingrímur Hermannsson um gjaldskrárhækkun Landsvirkjunar:
Blönduósi.
ÓFEIGUR Gestsson sveitar-
stjóri á Hofsósi hefur verið ráð-
inn bæjarstjóri á Blönduósi frá
og með 1. september. Akvörðun
þessi var tekin á fundi hrepps-
nefndar Blönduóss í gær með
atkvæðum allra hreppsnefndar-
fulltrúa. Haukur Sigurðsson
sem hefur verið sveitarstjóri á
Blönduósi síðastliðin tvö ár hef-
ur sagt starfi sínu lausu frá og
með sama tíma.
Ófeigur Gestsson er fæddur í
Reylqavík 12. október 1943 og
hefur hann starfað sem sveitar-
stjóri á Hofsósi frá árinu 1982.
Áður starfaði Ófeigur hjá Búnað-
arsambandi Borgarfjarðar eða frá
þeim tíma er hann lauk námi frá
Bændaskólanum á Hvanneyri
1961. Sambýliskona Ófeigs Gests-
sonar er Dagmar Ásdís Þorvalds-
dóttir.
— Jón Sig.
„Skýrt dæmi nm að þessi ríkis-
sljórn ræður ekki við hlutina“
Eölileg afgreiösla, segir Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson utanríkisráðherra telur að ríkisstjórn-
in hafi átt að taka ákvörðim um gjaldskrárhækkun Landsvirkjunar.
Hann segir að við setningu bráðabirgðalaganna hafi sérstaklega
verið um það rætt að lögin næðu yfir Landsvirkjun. Friðrik Sophus-
son iðnaðarráðherra segir að ummæli utanríkisráðherra séu til þess
fallin að rýra traust á efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. „Lögin ná
aðeins yfir ríkisfyrirtæki og samkvæmt lagatúlkun er Landsvirkjun
ekki eitt þeirra. Höfuðatriði málsins er að enginn ráðherra er ósátt-
ur við það hversu hækkunin var mikil. Eg tel mig hafa fylgt lögum
og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar,“ sagði Friðrik.
\
„Ég er ákaflega ósáttur við það að Landsvirkjun sé einráð í þessu
hvemig málið var afgreitt. Iðnaðar- máli og lagði hækkunina aðeins
ráðherra virðist þeirrar skoðunar fram til kynningar í ríkisstjóm,"
Vinnuslysið á Seyðisfirði:
Öryggishlíf var til á
vélina en ekki notuð
sagði Steingrímur í samtali við
Morgunblaðið. „Ef ríkisstjómin við-
urkennir að bráðabirgðalögin nái
ekki yfír Landsvirkjun og stjóm
fyrirtækisins notfærir sér það til
að ganga fram hjá okkur er það
skýrt dæmi um að þessi ríkisstjóm
ræður ekki við hlutina."
Iðnaðarráðherra sagði að Lands-
virkjun hefði upphaflega talið sig
þurfa 18-19% hækkun á gjaldskrá
sinni. Eftir samráð við sig hefði
niðurstaðan orðið 8% hækkun, sem
þýddi 9% lækkun á árinu miðað við
verðbólgu. Trúnaðarmenn ríkis-
stjómarinnar í gjaldskrármálum,
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, og Georg Ólafsson,
forstöðumaður Verðlagsstofnunar,
hefðu fengið málið til umfjöllunar
og engar athugasemdir gert. Sagð-
ist Friðrik hafa skýrt forsætisráð-
herra frá því hvemig með málið
yrði farið.
„Mér er sagt að nokkrir ráð-
herrar hafi talið að með gjaldskrár-
mál Landsvirkjunnar yrði farið eins
og um ríkisfyrirtæki væri að ræða
en texti bráðabirgðalaganna gefur
ekki tilefni til þess. Steingrímur
Hermannsson heldur þvf fram að
ég hafi framið lögbrot en það er
alrangt. Þessi afgreiðsla var í fullu
samræmi við lög og stefnu ríkis-
stjómarinnar. Ég hélt að utanríkis-
ráðherra yrði þakklátur ef samráð
iðnaðarráðherra og stjómar Lands-
virkjunar leiddi til hófsamrar hækk-
unar. Enda hefur Steingrimur ekki
fremur en aðrir ráðherrar sett sig
á móti 8% hækkun,“ sagði Friðrik.
„Hækkunin er í sjálfu sér ekki
mikil. Höfuðatriðið er að það var
rætt að þetta ákvæði bráðabirgða-
iaganna næði til Landsvirkjunar,
eins og fjármálaráðherra og forsæt-
isráðherra hafa staðfest. Þetta var
staðfest á ríkisstjómarfundinum á
þriðjudaginn," sagði Steingrímur.
„Það er furðulegt að í fyrirtæki þar
sem rikið á helminginn og stjómar-
formaðurinn er Jóhannes Nordal,
einn helsti efnahagsráðgjafi ríkis-
stjómarinnar, skuli menn gera sér
lítið fyrir og leita álits lögfræðinga
til að sniðganga stefnu ríkistjómar-
innar. Það lofar ekki góðu, því mið-
ur,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son.
Fríkirkjan:
Ekkí varð af öðrum fundi
SAMKVÆMT reglum, sem
Vinnueftirlitið setti árið 1976,
ber að nota sérstakar öryggis-
hlífar á mamingsvélar sömu
gerðar og þá sem fjórtán ára
stúlka missti handlegg í á
þriðjudag. Slík hlíf var til í
frystihúsi NorðursUdar á Seyð-
isfirði, þar sem slysið varð, en
hún var ekki á vélinni er stúlk-
an slasaðist. Vinnueftirlitið á
Austurlandi hefur farið fram á
lögreglurannsókn á málinu, sem
það lítur mjög alvarlegum aug-
um að sögn vinnueftirlitsmanns.
Stúlkan missti handlegginn um
olnboga og var enn á gjörgæslu-
deild I gærkvöldi.
Að sögn Skúla Magnússonar,
vinnueftirlitsmanns á Austurlandi,
var gerð krafa um það árið 1976
að allar vélar sömu gerðar og
þessi, sem er japönsk, væra með
öryggishlífar. Skúli sagði að þær
skýringar hefðu verið gefnar á því
að hlífin var ekki í notkun, að það
hefði glamrað óþægilega hátt í
henni, er vélin var í gangi. „Þetta
era auðvitað engin rök,“ sagði
Skúli. „Það er alltaf hægt að lag-
færa búnað, sem er mannanna
verk.“
Skúli vildi gera athugasemd við
orð forstjóra Norðursíldar um að
vélin hefði verið lengi í húsinu og
ekki hefðu verið gerðar við hana
athugasemdir. Skúli sagði að
tvisvar á síðustu tveimur áram
hefði farið fram allsheijarskoðun
á frystihúsi Norðursíldar. I fyrra
skiptið hefði hlífin verið á vélinni
en í seinna skiptið var vélin sund-
urtekin í þvotti og gaf því ekki
tilefni til athugasemda.
Annars sagði Skúli að yfirleitt
væri ástand í vinnslusölum frysti-
húsa orðið gott hvað öryggismál
varðaði. Vegna slyssins á Seyðis-
fírði gerðu þeir Skúli og forstjóri
Vinnueftirlitsins sér sérstaka ferð
til þess að líta á mamingsvélar í
frystihúsum á Austfjörðum og
sagði Skúli að þær hefðu allar
verið með góðum öryggishlífum.
„Það er helst ef vélar bila, að
dregnar era fram gamlar vélar,
sem er þá stundum búið að kippa
ýmsum öryggisbúnaði af,“ sagði
Skúli.
EKKI varð af öðrum fundi safn-
aðarstjómar Fríkirkjunnar og
stjórnar Prestafélagsins í gær-
kvöldi vegna sjónvarpsviðtals við
formann Prestafélagsins. Safn-
aðarstjórnarmenn töldu þar
brotið samkomulag, sem gert var
á fyrri fundi stjórnanna, um að
gefa ekkert upp við fjölmiðla um
viðræður um brottrekstur sr.
Gunnars Björnssonar frá kirkj-
unni, að sögn Þorsteins Eggerts-
sonar, formanns safnaðarstjómar.
Fríkirkjumenn töldu sjónvarpsvið-
talið brot á samkomulagi og sögð-
ust ekki sjá ástæðu til frekari
fundahalda. Þorsteinn sagði, áð sr.
Sigurður hefði þó beðið Fríkirkju-
menn afsökunar og sagst ekki hafa
talið sig vera að bijóta samkomu-
lagið. Nýr fundur hefur ekki verið
ákveðinn.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
í séra Sigurð Sigurðarson formann
Prestafélagsins í gærkvöldi.