Morgunblaðið - 30.06.1988, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
13
Myrk rödd úr Turni söngsins
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Frá tónleikum Leonards Cohen í Laugardalshöll, Julie Christensen, Leonard Cohen og Perla Batalla
Tónleikar Leon-
ards Cohen í
Laugardalshöll
LISTAHÁTÍÐ er lokið. Það er
kominn 21. júní. Til landsins
er kominn Leonard Cohen, með
engan farangnr, og ætlar að
halda tónleika í Laugardalshöll
þann 24. júní; einskonar Lista-
hátíðarauki. Hann er klæddur
dökkleitum jakkafötum, sem
henta illa til ferða í náttúru-
faðminn, einkum og sér í lagi
vegna þess að þá dagana er
íslensk náttúra hulin regni,
þoku og súld. Maðurinn hefur
fjóra daga til að skoða land og
þjóð, en verður að gera það
inni á hótelherbergi í gegnum
Egilssögu. Þannig silast da-
garnir áfram hjá Cohen á með-
an áhangendur hans biða í of-
væni eftir að sjá að hann raular
raunverulega sjálfur perlur á
borð við First we take Man-
hattan, Tower of Song, I’m
your man, Suzanne, So long
Marianne, Famous Blue Rain-
coat og fleiri söngva sem við
höfum hlustað á aftur og aftur
ein og sér heima hjá okkur,
undrandi yfir því að hægt sé
að ánetjast þessum einfald-
leika; ánetjumst samt.
Aftur og aftur yrkir Cohen um
ást sem aldrei varð, ást sem lifnar
og deyr, ást, ást ást, sem svo lítið
er til af í heiminum, en allir þrá
og leita að, halda stundum að
þeir hafí höndlað en sjá hana þá
renna eins og sáldur milli fíngra;
það var ekki hún, allt misskilning-
ur.
En Cohen yrkir sífellt á nýjan
hátt um þetta eitt sem er allt.
Við bíðum eftir lausn, en auðvitað
hefur Cohen ekki fundið svarið
fremur en allir aðrir. Kannski eins
gott, því í þessu litla orði, ást,
felast nánast allar andstæður
mannlegra tilfinninga og eitthvað
fátt gæti orðið um yrkisefni, ef
endanleg niðurstaða kæmi fram.
Svo kom föstudagskvöldið og
fáeinar þúsundir manna drifu sig
í Höllina og sátu þétt. Þegar Co-
hen gekk á sviðið, var klappað
og stappað, flautað og blístrað.
Þessi yfírlætislausi maður hafði
greinilega hrifíð fleiri en míg og
þig. Og yfirlætisleysi er líklega
besta orðið til að lýsa þessum frá-
bæru tónleikum, sem hófust á
Dance me to the end of love og
síðan Aint no cure for love.
Þeir sem komu á tónleikana af
eintómri forvitni, höfðu ekki
hlustað mikið á hann tii þessa,
heyrðust tala um að öll lögin hans
væru eins og að tónleikamir væru
frekar eintóna. En það er nú einu
sinni svo, að þegar maður er bam,
vill maður heyra sama ævintýrið
aftur og aftur, mamma og pabbi
þurfa ekki að kunna nema svosem
eina eða tvær sögur, því endur-
tekningin veitir manni eitthvert
sérkennilegt öryggi. Vissulega
má segja að lög Cohens séu hvert
öðm lík, en það er einmitt þess-
vegna sem við ánetjumst tónlist
hans; við getum treyst því að
hann ofbjóði ekki skynfærum okk-
ar. Tónlistin er einföld, nánast
bamsleg, ljúf og seiðandi. Sá Co-
hen sem kom fram í Laugardals-
höll var sá Cohen sem við biðum
eftir. Það sýndu viðbrögð áheyr-
enda svo ekki varð um viilst.
Cohen var ekki einn á ferð.
Með honum var úrvalslið hlóð-
færaleikara og tvær söngkonur,
Julie Christensen og Perla Bata-
lla. Þessar frábæm söngkonur
vora kannski það sem kom okkur
mest á óvart sem vildum helst af
öllu horfa á Cohen sjálfan raula
myrkri röddu úr Tumi söngsins,
ekkert flúr, engan óþarfa. En þær
vora hreint ekki óþarfar, því með
samstillingu sinni og sviðsfram-
komu undirstrikuðu þær megin-
þættina í skáldskap og tónlist
Cohens; einfaldleika, þokka.
En auðvitað era gallar á öllu.
Eftir hlé var hljóðkerfið magnað
til muna og var það ekki til bóta,
þvi hljóðfæraleikurinn varð svo
yfirgnæfandi að þeir sem ekki
gjörþekktu texta Cohens heyrðu
sjaldan orða skil. Skaði. Auk
þessa virtist ljósamaðurinn ekki
horfa ýkja mikið á það sem fram
fór á sviðinu, því „spottin" lentu
hvað eftir annað til hliðar við
þann sem skyldi upplýstur og
mestallan tímann var önnur söng-
konan I ljósinu, hin í myrkri. Svo
hugsaði maður bara, greyið hefur
ekki augu í hnakkanum, og hélt
áfram að njóta tónleikanna. Fór
svo heim og sétti plötu með Leon-
ard Cohen á plötuspilarann.
Súsanna Svavarsdóttir
Örlaga-
teningur-
inn eftir
Finn
Jónsson.
Listasafn íslands:
Orlagateningurinn
mynd júlímánaðar
FARANDSÝNING á norrænni
konkretlist 1907—1960 stendur
nú yfir í Listasafni íslands. Á
sýningunni eru á annað hundrað
listaverk, málverk og höggmynd-
ir. Listasafnið hefur valið olíu-
málverkið Örlagateninginn eftir
Finn Jónsson frá árinu 1925 sem
mynd júlímánaðar.
Vikulega er boðið upp á ókeypis
umfjöllun sérfræðings um mynd
mánaðarins. Safnast er saman í
andyri safnisins alla fimmtudaga
kl. 13.30 meðan sýningin stendur
yfír. Farandsýningin er sett upp að
framkvæði Norrænu listamiðstöðv-
arinnar í Sveaborg í Finnlandi.
Listasafn íslands er aðili að sýning-
unni og hefur staðið að undirbún-
ingi fyrir íslands hönd. Sýningin
er opin alla daga kl.ll—17, nema
mánudaga.
(Úr fréttatilkynningu)
Vinnueftirlit ríkisins:
Slysavarnaatak
í byggingariðnaði
I VOR hófst sérstakt slysa-
varnaátak í byggingariðnaði á
vegum Vinnueftirlits ríkisins.
Kynningarfundir eru haldnir
fyrir starfsmenn byggingarfyr-
irtækja, veggspjöldum hefur ver-
ið dreift og leitast verður við að
koma áróðri á framfæri í fjöl-
miðlum.
Tilgangur átaksins er að efla
skilning starfsmanna og stjómenda
í byggingariðnaði á öryggismálum.
Að sögn Kára Kristjánssonar vinnu-
eftirlitsmanns era öryggismál yfír-
leitt í miklum ólestri á byggingar-
svæðum hér á landi. Telur hann að
um sé að kenna almennu sinnuleysi
um þessi mál, sem komi fram hjá
starfsmönnum jafnt sem atvinnu-
rekendum og opinberam aðilum.
„En með átakinu reynum við að
ná fram hugarfarsbreytingu í þess-
um efnum,“ sagði Kári.
Flestum stærstú byggingarfyrir-
tækjum á Suðvesturlandi hefur nú
verið gefínn kostur á hálfs dags
námskeiði fyrir starfsmenn sína.
Era þar sýndar skyggnur, ýmis
öryggisbúnaður kynntur og rætt
um nauðsynlegar varúðarráðstaf-
anir. Hefur þetta mælst vel fyrir,
bæði hjá starfsmönnum fyrirtækj-
anna og stjómendum þeirra.
Vinnueftirlitið hefur einnig látið
prenta veggspjöld, sem vekja at-
hygli á hættunni á fallslysum og
mikilvægi öryggishjálma. Þá mun
áróður í fjölmiðlum gegna veiga-
miklu hlutverki í slysavamaátak-
inu.
Morgunblaðið/Sverrir
Starfsmenn ístaks á kynningarfundi hjá Vinnueftirlitinu.
tilbúina
ádisVá»»-
Spariðykkur bæði
tíma og peninga.
KJOTBOLLUR
m/kartöflum, grænmeti og |
salati
KJUKLINGUR
m/kokteilsósu, frönskum og|
saiati
440.-
Karrý pottréttur
m/hrisgrjonum, grænmeti og
brauöi
NAUTABUFF
m/kartöflum, grænmeti og |
salati
DJÚPSTEIKT ÝSA
m/kartöflum, sósu og salati
340.-
SAMLOKA
80. ■■ stk.
Il
ll
IHAMBORGARAR
1170---k
| Súpa + salatbar
1260.-
Heitir réttir
framreiddirfrá
kl. 11.30-13.30
og frá kl. 16.00
Auk þess bjóðum við daglega
þjóðlegan mat s.s. svið, lifrar-
pylsu, blóðmör, rófustöppu
o.fl. eftir hádegi.
Á salatbarnum er alltaf til
rækju-, túnfisk-, laxa-, epla-,
kartöflusalat o.fl. o.fl.
KJÖTMIOSTÖÐIN
Garðabae,
síml; 656400