Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
19
ríkinu. Höskuldur getur ekkert að
þessu gert. Hann setti ekki lögin
né reglugerðirnar en verður að
vinna úr þeim. Svo niðurstaðan er
einföld. Það verður mjög þröngt
framboð í Áfengisversluninni af
skiljanlegum rekstrarlegum ástæð-
um. Áratuga neysluvenjur á far-
mannabjórnum hafa í rauninni þeg-
ar ákvarðað tegundirnar, sem
boðnar verða.
Hvemig hefði mátt vinna
Auðvitað hefði verið hægt að
leyfa mönnum að flytja inn bjór
og lagera, selja á sína ábyrgð til
veitingahúsa gegn greiðslu bjór-
skatts, afgreiða pantanir gegnum
verslanir ÁTVR og vöru þar til
sýnis en ekki sölu, gegn gjaldi, ef
ekki vill betur. Leyfa mönnum
þannig að kynna sinn bjór og halda
fram hans ágæti.
En þetta skiljum við ekki. Við
erum víst og verðum indíánar á
reservati og þannig verður það víst
að vera. Okkur verður boðið upp á
annan hvorn bjórinn sem við þekkj-
um úr dollum á veitingastöðunum.
Sérhönnuð bjórglös mundu sjálf-
sagt flokkast undir auglýsingar á
áfengi eins og merktir öskubakkar,
bjórplattar o.s.frv. Engin merkjan-
leg breyting verður á bjórvenjum
okkar utan það, að við þurfum
ekki að fara í felur með dolluna
okkar eða óttast að verða uppis-
kroppa.
Og þá er bara eftir að sjá, hvern-
ig fyrri innflutningsaðilum vegnar
í samkeppninni við verðlagið í
ÁTVR. Kannske verður bara verð-
lækkun á dollubjómum okkar
græna og gyllta og við getum
drukkið fleiri með góðri efnahags-
samvizku í næsta laxveiðitúr.
Bjórmenn íslands, björt er tíð í
vændum.
Höfundur er annar af forstjórum
Steypustöðvarinnar.
Vistheimilið að Álfalandi 6
Svar við fyrirspurn Árna Sigfússonar, borgarfulltrúa, til félagsmálaráðherra
eftirLáru V.
Júlíusdóttur
í Morgunblaðinu 16. júní 1988
ritaði Ámi Sigfússon, borgarfulltrúi
og formaður Félagsmálaráðs
Reykjavíkurborgar, grein og bar
fram fyrirspum til félagsmálaráð-
herra um vistheimili fatlaðra bama
að Álfalandi 6, Reykjavík, í tveimur
liðum:
1. Setti félagsmálaráðherra sig
sérstaklega gegn því að gengið yrði
frá lögskipuðum greiðslum vegna
vistheimilis fatlaðra bama í Álfalandi
6, þrátt fyrir að svæðisstjóm fatlaðra
í Reykjavík hafi mælt eindregið með
því annað árið í röð? Ef svo er, hver
er skýringin á þessu háttemi ráð-
herra?
2. Ef staðreyndin er sú að félags-
málaráðherra er kominn í heilagt
stríð við Reykjavíkurborg, er þá ekki
þörf á að vopnabúnaður ráðherra sé
annar en vistheimili fatlaðra barna
{ Álfalandi 6?
Varðandi fyrri lið fyrirspumarinn-
ar vil ég taka fram eftirfarandi:
Það er vissulega lofsvert þegar
sveitarfélög sýna frumkvæði í upp-
byggingu heimila fyrir fatlaða, og
mætti vera meira um að slíkt væri
gert, bæði í Reykjavík og annars
staðar.
Árið 1986 seldi Reykjavíkurborg
ríkinu húsnæði að Dalbraut 12 og
mun hafa keypt húsið að Álfalandi
6 fyrir andvirði þess. Reykjavíkur-
borg keypti húsið án þess að hafa
nokkur vilyrði eða yfirlýsingar frá
stjóm Framkvæmdasjóðs fatlaðra
um greiðslur. Ríkið hefur staðið
straum af rekstrarkostnaði af heimil-
inu undanfarin ár, og á fjárlögum
þessa árs eru rúmar 6 milljónir króna
ætlaðar í rekstur fyrir skammtíma-
heimilið að Álfalandi 6.
Það er alrangt sem fram kemur í
greininni að félagsmálaráðherra hafi
sett sig sérstaklega gegn því að
gengið yrði frá greiðslum ríkisins
vegna stofnkostnaðar vistheimilis
fatlaðra í Álfalandi 6, enda virðist
misskilnings gæta hjá borgarfulltrú-
anum um framkvæmdasjóð fatlaðra,
hvemig úthlutun fer þar fram. Sam-
kvæmt lögum um málefni fatlaðra
nr. 41/1983 er hlutverk fram-
kvæmdasjóðs að ijármagna fram-
kvæmdir við stofnanir fatlaðra, sem
eru göngudeildir, þar sem jafnframt
skal veita eftirvemd, skammtíma
fósturheimili, leikfangasöfn, með-
ferðarheimili, sumardvalarheimili,
sambýli, dagvistarstofnanir fatlaðra,
hjúkrunarheimili, vemdaðir vinnu-
staðir, atvinnuleit, hæfingar- og end-
urhæfingarstöðvar, vistheimili og
skóladagheimili svo og aðrar fram-
kvæmdir ríkisins vegna sérkennslu.
Ennfremur er heimilt að veija allt
að 10% af ráðstöfunarfé sjóðsins til
annarra sameiginlegra verkefna
varðandi sérkennslu og endurhæf-
ingu svo og annarra verkefna, sem
ríki eða sveitarfélagi ber sannanlega
ekki að greiða.
Stjómamefnd um málefni fatlaðra
annast stjóm sjóðsins. Stjómamefnd
er skipuð sjö mönnum til fjögurra
ára í senn. Félagsmálaráðuneyti,
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti
og menntamálaráðuneyti skipa hvert
sinn stjómarmann, Samband
íslenskra sveitarfélaga tilnefnir einn
fulltrúa, en samtök fatlaðra, Lands-
samtökin þroskahjálp og Oiyrkja-
bandalag íslands tilnefna þijá menn
í nefndina. Fulltrúi félagsmálaráðu-
neytis er formaður nefndarinnar.
Þannig er einungis einn fulltrúi í
stjómamefnd tilnefndur af félags-
málaráðherra.
Lára V. Júlíusdóttir
„Öllum dylgjum um
annarleg sjónarmið
ráðherra vegna úthlut-
unar fjár úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra
er alfarið vísað á bug.“
Hlutverk stjómamefndar er að
ráðstafa fé sjóðsins í samræmi við
lög um málefni fatlaðra að fengnum
tillögum svæðisstjóma og umsögn
viðkomandi ráðuneytis. Svæðis-
stjómir senda tillögur sínar viðkom-
andi ráðuneyti, sem síðan sendir þær
stjómamefnd ásamt umsögn um
þær. Stjómamefnd skal leita stað-
festingar viðkomandi ráðherra á til-
lögum sínum um úthlutun úr sjóðn-
um.
Á fjárlögum þessa árs hafði sjóð-
urinn 180 milljónir króna til ráðstöf-
unar í ofangreind verkefni. Tillögur
svæðisstjómar Reykjavíkur einnar
vegna úthlutunar 1988 námu á verð-
lagi 1. október 1987 tæpum 263
milljónum króna. Frá upphafi var því
ljóst að nauðsynlegt var að skera
vemlega niður af þeim tillögum. í
tillögum um forgangsröðun verkefna
frá Svæðisstjóm Reykjavíkur árið
1987 var skammtímavistun í Álfal-
andi 6 í 7. sæti. í tillögum um for-
gangsröðun í ár varð skammtíma-
vistunin í Álfalandi 6 í 9. sæti. Sú
fullyrðing, sem borgarfulltrúinn set-
ur fram í fyrirspum sinni að svæðis-
stjóm fatlaðra í Reykjavík hefði
mælt eindregið með flárveitingunum
til Álfalands 6 annað árið í röð, er
því ýkt, og stenst ekki raunveruleik-
ann.
Ég hirði ekki um að svara seinni
lið fyrirspumar borgarfulltrúans, og
tel að störf ráðherra í þágu fatlaðra
hingað til beri vott um annað en ill-
vilja í þeirra garð, en Framkvæmda-
sjóður fatlaðra var stofnaður að
frumkvæði ráðherrans.
Ég vil að lokum vekja athygli
borgarfulltrúans á þeim vanda sem
stjómamefnd um málefni fatlaðra
er á höndum við úthlutn fjár úr sjóðn-
um. Verkefnin eru óþijótandi en fjár-
magnið takmarkað. Ákvarðanir um
synjun fjár til einhverra verkefna
verður að taka. Slíkar ákvarðanir er
auðvelt að gagnrýna. Þeir sem ætla
að helga sig stjómmálum í framtí-
ðinni ættu að skilja þessa aðstöðu
fremur en aðrir. Öllum dylgjum um
annarleg sjónarmið ráðherra vegna
úthlutunar fjár úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra er alfarið vísað á bug.
Höfundur er aðstoðarmaður fé-
lagsm&lariðherra.
'IBEK
/ALI
MILDA HUNANGS- OG
HNETUBRAGÐIÐ Á
SÉRLEGA VEL VIÐ
SÚRMJÓLK OG MJÓLK.
ALGJÖRT HUNANG!
FLÖGUR ÚR 100%
HEILHVEITI, FULLAR
AF TREFJUM OG
ÖLLUM
MÖGULEGUM
FJÖREFNUM, PÆR
ERU LÉTTAR I MAGA
OG STÓRFÍNAR Á
BRAGÐIÐ.
BAKAÐ UR
HEILHVEITI- OG
MAlSKLlÐI. ÞAÐ ER
SYKURSNAUTT OG
'Á BOLLI GEFUR
HELMING
TREFJANNA SEM
TALIÐ ER ÆSKILEGT
AÐ NEYTA DAGLEGA.
HEILSUFÆÐA AF
BESTU GERÐ - SAMT
ALGJÖRT NAMMI!
MEÐ KANIL OG RUSÍi
MÚSL( FRÁ NATURE
VALLEY ER RISTAÐ ÚR
HEILUM HÖFRUM, HRfSI
OG ÝMSU GÓÐMETI ÚR
RÍKI NÁTTÚRUNNAR.
ROSALEGA BRAGÐ-
GOTT, BÆÐI MEÐ
MJÓLKURMAT OG
BEINT ÚR PAKKANUM...
...HEILSUSAMLEGT
SJÓNVARPSNART.
VANILLU OG HR(SI.
EINFALT, LÉTT,
STÖKKT OG LJÚFT
FYRIR MUNN OG
MAGA.
VV
ÁVÖXTUM..
ALGJÖRT...
ÆÐI!
BLANDAÐ
( SÚRMJÓLK
- BRÁÐHOLLT
SÆLKERAFÆÐI.