Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 20

Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 20
20 MORGUNbLaÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 DAGVIST BARIVA MIÐBÆR Grænaborg v/Eiríksgötu Fóstrur óskast á leikskóladeild í Grænu- borg, geta byrjað strax eða í haust. Athugið breytt vinnuskipulag. Upplýsingar gefur Jóhanna í símum 14470 og 681362. Símar 35408 og 83033 UTHVERFI Nökkvavogur Hjallavegur AUSTURBÆR Bollagata Laugarásvegur39staka talan og uppúr Dyngjuvegur Hrísateigur Eskihlíð 5-15 o.fl. Eskihlíð 14-18 Eskihlíð 20-35 Mávahlíð 2548 JMtvgnnMiiMfr Ian Clark, fiskihagfræðingur frá Nýja Sjálandi: Þjóðin á fiskinn og því á að skattleggja kvótann íslendingar ættu að binda kvóta við einstaklinga, ekki skip ÓHEFTAR fiskveiðar eru úrelt ar og kvótakerfi í einhverri mynd er það sem koma skal. Um þetta eru helstu sérfræðing- ar heims í fiskveiðistjórnun sammála, en rúmlega 50 þeirra sitja nú fimm daga ráðstefnu á Hótel Sögu. Það kerfi sem hvað mestrar athygli nýtur nú er það sem Nýsjálendingar hafa tekið upp, enda telja þeir sig hafa náð að auka hagkvæmni í fiskveið- um á sama tíma og fiskistofn- arnir eru verndaðir fyrir of- veiði. Kvótakerfi þessarra and- fætlinga okkar er að mörgu leyti frábrugðið þvi íslenska og þá einna helst að þvi leyti að það er bundið við einstaklinga, en ekki við skip. Kvóthm má einnig ganga kaupum og sölum á Nýja Sjálandi og kvótaeign er þar skattlögð. Óneitanlega er það forvitnilegt fyrir íslendinga að kynna sér þetta kerfi og var Ian Clark, yfirfiskihagfræðing- ur i sjávarútvegsráðuneytinu á Nýja Sjálandi, tekinn tali á Hót- el Sögu og spurður um kvótann hér og þar. Sóknartakmarkanir gagnslausar Hvemig er kvótakerfið á Nýja Sjálandi uppbyggt? „Það er kannski best að byrja á að lýsa því af hverju við tókum upp kvótakerfi. Ofveiði var orðið mikið vandamál á grunnslóð og sjómenn voru sífellt að leggja harð- ar að sér í keppninni um að ná sem stærstum hlut af minnkandi fiski- stofnum. Þegar við sáum fram á að það sama væri að henda í úthaf- sveiðum var ljóst að það yrði að takmarka veiðamar á einhvem hátt. Við komumst að þeirri niður- stöðu að sóknartakmarkanir á borð við skrapdagakerfi, takmarkanir á bátastærð, reglur um veiðarfæri o.s.frv. næðu ekki tilætluðum ár- angri. Sjómenn finna alltaf leiðir í kringum slík boð og bönn. Eina Ieiðin var að stjóma afla- magninu, að takmarka afla hvers sjómanns. Um leið og það er gert er hægt að sleppa öllum öðmm takmörkunum, því það skiptir ekki máli hvemig eða hvenær sjómað- urinn veiðir sinn kvóta, það er honum í sjálfsvald sett. Það er mjög mikilvægt í þessu kerfí að hægt sé að versla með kvótann, því aðeins þannig verður kerfið sveigjanlegt og fiskveiðam- ar byggjast upp á réttan hátt. Reynslan af þessu kerfi er sú að okkur hefur tekist að ná því mark- miði að vemda fiskistofnana og að gera rekstur sjávarútvegsins hagkvæman." Ríkisafskipti í lágmarki Hver er helsti munurinn á nýsjá- lenska kerfinu og íslenska kvóta- kerfínu? „Ég þekki íslenska kerfíð ekki til hlítar, en helsti munurinn er sá að á íslandi er kvótinn bundinn við ákveðin skip, en á Nýja Sjál- andi eiga sjómennimir kvótann. Við höfum reynt að halda ríkisaf- skiptum í lágmarki og menn hafa fullkomið frelsi hvemig þeir ráð- stafa kvóta sínum. Menn geta veitt hann á eigin skipum eða leigt skip, og menn geta leigt eða selt kvóta sinn. Það er meira að segja hægt að leigja útlendum skipum kvó- tann. Ríkisvaldið ákveður heildarkvót- ann á hverri tegund og innheimtir skatt af hveiju tonni af kvóta, en skiptir sér ekki að öðm leyti af málunum. Þess vegna er hægt að nota kvótann sem veð fyrir banka- láni og reyndar eiga bankar á Nýja Sjálandi nú töluvert af kvóta. Morgunblaðið/Einar Falur Ian Clark: Nýsjálenska kerfið sameinar kosti stjómunar og frjáls markaðar, þar sem ríkis- valdið setur grunnreglur til að verada fiskistofnana, en ein- staklingar ráða hvort og hvera- ig þeir nýta, leigja eða selja kvóta sinn. I upphafi var kvótanum ráðstaf- að þannig að farið var eftir meðal- afla hvers og eins síðustu ár, en síðan er hægt að kaupa og selja þennan upphaflega kvóta að vild." Kvóti á skip þýðir of mörg skip Það hefur komið fram gagnrýni á íslenska kvótakerfið fýrir að nánast gefa ákveðnum mönnum einkaleyfí á fískimiðin og meina öðrum aðgangað þessarri auðlind. „Kvótinn verður að geta gengið kaupum og sölum til að nýtt fólk komist inn í fiskveiðar. Ríkisvaldið á ekki að skipta sér af því hver veiðir aflann, það á eingöngu að setja grunnreglur og gæta þess að þær séu ekki brotnar. Einstakl- ingamir sjá síðan um að veiða fisk- inn á sem hagkvæmastan hátt inn- an þeirra marka sem þeim er sett, því tilgangur þeirra er auðvitað að hagnast." íslenska kerfíð - það er að binda kvóta við einstök skip - hefur einn- ig verið gagnrýnt fyrir að lögbinda óhagkvæman rekstur, þar sem of mörg skip eru að eltast við tak- markaða auðlind. „Ég held að þessi gagnrýni sé rétt. Við íhuguðum þann kost að binda kvótann við skip, en töldum að hann væri óhagkvæmur. Helsti ókosturinn við það kerfi er að það gefur einstaklingnum ekki mögu- leika á að ná fram hámarkságóða á þann hátt sem hann telur best- an. Það gæti til dæmis verið hag- kvæmt fyrir mann með 100 tonna kvóta að kaupa sér smærri bát til að afla upp í hann. Ef fiskveiðiflot- inn er of stór og kvóti er bundinn við skip er ekkert hægt að gera við því vandamáli að skipin em of mörg. Á Nýja Sjálandi hefur þró- unin orðið sú að á sumum sviðum hefur bátum fækkað en á öðrum hefur þeim fjölgað, en þá hefur verið um smærri skip að ræða. Stærð og uppbygging flotans lagar sig þannig að veiðiþoli tegund- anna. Kvótinn er ekki einu sinni bundinn við nýsjálensk skip, því oft á tíðum er það hagkvæmara að láta japönsk, sovésk eða kóre- önsk skip veiða fisk fyrir nýsjá- lensk fiskvinnslufyrirtæki." íslendingar ein af 4 þjóðum í fararbroddi Er þróunin í fiskveiðistjórrðin I heiminum í þá átt að binda kvóta við skip, eins og íslendingar gera, eða við einstaklinga, eins og á Nýja Sjálandi? „Það er mikill áhugi í heiminum á því sem íslendingar og Nýsjá- lendingar eru að gera, en þessar þjóðir, ásamt Kanadamönnum og Áströlum, eru í fararbroddi í heim- inum hvað varðar stjómun fisk- veiða. Flestar þjóðir hafa ekki gert það upp við sig hvaða aðferðum þær eigi að beita, en æ fleiri hall- ast að þeirri hugmynd að einstakl- ingsbundinn, seljanlegur kvóti (Individual Transferable Quotas) sé rétta leiðin. íslendingar hafa tekið skref í rétta átt, en það væri athyglisvert að sjá þá stíga skrefið til fulls og binda kvótann við einstaklinga, ekki við báta.“ Sjómenn sáttir við kvótaskatt Hvemig er kvótinn skattlagður á Nýja Sjálandi? „Þar sem kvótinn getur gengið kaupum og sölum hefur hann ákveðið verðmæti. Verðið ræðst af því hvað fólk er tilbúið að borga mikið fyrir kvótann, sem aftur ræðst af gróðavoninni í einstökum veiðum. Þú þarft að borga skatt af þínum kvóta hvort sem þú nýt- ir hann sjálfur, leigir hann, selur hann, eða ákveður að gera alls ekki neitt við hann. Nýsjálenska ríkisstjómin lítur ekki á kvótann sem þína einkaeign, þar sem físk- urinn í sjónum er sameign þjóðar- innar. Kvótaeign er því skattlögð sem tekjur sem viðkomandi hefur ekki unnið fyrir. Á síðasta ári vom tekjur ríkis- sjóðs af kvótaskatti á Nýsjálend- inga 16 milljónir dollara (um 730 milljónir íslenskra króna) og um 20 milljónir dollara (rúmlega 900 milljónir íslenskra króna) af skatti á veiðar erlendra skipa í nýsjá- lenskri lögsögu. Sjómenn á Nýja Sjálandi em sáttir við að borga kvótaskatt, þó svo að þeir séu ekki endilega sátt- ir við upphæðina sem þeir borga, þeir vilja sleppa með sem minnst." Verðmætari afli í kvótakerfinu íslendingar tóku upp kvótakerfí af svipuðum ástæðum og Nýsjá- lendingar - sem ráð gegn ofveiði - og margir líta enn á það sem neyðarúrræði sem stríði gegn frelsi og veiðimannseðli Islendinga. Tel- urðu að það sé hægt að snúa við frá kvótakerfínu til eldri aðferða í fískveiðistjómun? „Það væm mikil mistök, þar sem það myndi draga úr hagkvæmni fiskveiðanna. Ef þú segir þorsk- veiðiflotanum að veiðitíminn sé takmarkaður við tvo mánuði á ári reynir hvert skip að moka eins ir.iklu upp og hægt er á sem skemmstum tíma. Það er bijálæði. Sjómennimir á Nýja Sjálandi vom óhressir með kvótakerfíð fyrst í stað og sögðu: Við emm veiðimenn. Hins vegar var ljóst að gamla kerfið var allt of dýrt og óhagkvæmt og raunvemlega græddi enginn á því, hvorki sjó- menn né þjóðin. Við teljum ekki að kvótakerfið hafi drepið veiðieð- lið. Maður sem á 100 tonna kvóta verður eftir sem áður að vita hvar bestu miðin em, bestu veiðiað- ferðimar og hann verður að haga veiðunum þannig að þær gefi sem mest í aðra hönd. Kvótakerfíð hef- ur breytt tilhögun veiðanna og það er athyglisvert að verðmæti afla sumra tegunda hefur aukist mikið eftir tilkomu þess. í stað þess að skófla fískinum upp úr hafinu reyna menn nú frekar að einbeita sér að því að fá sem verðmætasta vöm úr þeim fiski sem þeir mega veiða."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.