Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
©DEXION
IMPEX-hillukerfi
án boltunar
Útsölustaðir:
LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun
Ármúla 23 - Sími (91)20680
STRAUMRÁS SF. — Akureyri
Slmi (96)26988
r
LANDSSMIÐJAN HF.
centt
(IIEN
Nýlagaö kaffi
10-12 bollar tilbúnir á aðeins
5 mínútum.
Gæöi, Þekking,
Þjónusta
A. ISARLSSOH MF.
HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI28
SlMI: 91 -27444
fáL/JJJA
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Morðið á bandarískum sendifulltrúa í Aþenu:
Ofgasamtök lýsa
ábyrgð á hendur sér
í bréfí frá öfgasamtökunum,
sem barst til dagblaðsins Elthnos,
sagði að Nordeen hefði verið myrt-
ur vegna stuðnings Bandaríkja-
manna við „tyrkneska heimsvalda-
stefnu“. Samtökin 17. nóvember
eru best skipulögðu skæruliðasam-
tök í Grikklandi. Undanfarin 13
ár hafa þau staðið á bak við morð
á mörgum háttsettum stjómmála-
mönnum.
í bréfínu sagði að morðið á
Nordeen hefði verið annar liðurinn
í áætlun sem hófst 23. maí sl. er
bifreið tyrkneskra sendifulltrúa
sprakk í loft upp í Aþenu. Þá var
ástæðan sögð sú að verið væri að
mótmæla heimsókn tyrkneska ut-
anríkisráðherrans, Mesuts Yilmaz.
Öfgasamtökin segjast beijast
gegn bættum samskiptum Tyrkja
og Grikkja og saka grísk og
bandarísk stjómvöld um að hafa
ofurselt hluta Kýpurbúa tyrknesk-
um yfírráðum.
Stathis Sehiotis, innanríkisráð-
herra Grikklands, sagði í gær að
gripið yrði til ráðstafana af hálfu
ríkisvaldsins til að stemma stigu
við hryðjuverkum í Aþenu, sem
hafa ágerst á þessu ári.
Ný stjórn í Frakklandi
París, Reuter.
NÝ STJÓRN Michels Rocards,
forsætisráðherra Frakklands,
tók við í Frakklandi á þriðjudag.
í stjóminni eiga sæti 24 sósíalist-
ar auk Rocards og 24 menn utan
sósíalistaflokksins, þar af bæði
miðjumenn og óflokksbundnir
menn úr hinum ýmsu stéttum
þjóðfélagsins.
Þar sem sósíalista vantar 13
þingsæti upp á að hafa meirihluta
í franska þinginu verða þeir að
treysta á stuðning miðjumanna eða
kommúnista til að koma lögum í
gegn um þingið. Þó eru ekki nema
þrír miðjumenn í hinni nýju stjóm.
Jean-Pierre Soisson er vinnumála-
ráðherra, Jean-Marie Rausch fer
með utanríkisviðskipti og Helene
Dorlhac með fjölskyldumál. í stjóm
Rócards eiga einnig sæti nokkrir
menn sem em þekktir fyrir störf á
öðrum sviðum en stjómmálum. Ala-
in Decaux er sagnfræðingur sem
kynnir sjónvarpsþætti og fer nú
með málefni franskrar menningar
erlendis. Michel Gilibert, sem er
fatlaður, er nú ráðherra yfír málefn-
um fatlaðra og þekktur krabba-
meinssérfræðingur, Leon
Schwartzenberg sér um heilbrigðis-
mál. Rocard hefur þó ekki tekist
að fá til liðs við sig þekkta menn
úr viðskiptaheiminum. Öll stærstu
ráðherraembættin em enn í hönd-
um sósíalista. Nokkrir kristilegir
demókratar hafa dregið sig úr sam-
starfí við hina miðjumennina í
stjómarandstöðu og ekki er ólíklegt
að þeir styðji ákveðin stjómarfmm-
vörp í þinginu. Rocard átti að flytja
stefnuræðu sína í gær en ekki er
búist við neinum átökum á þingi
fyrr en í haust þegar ræða á fjár-
lagafrumvarpið.
Reuter
Francois Mitterrand fyrir framan ráðherra í frönsku stjórninni sem
mynduð var á þriðjudag. Myndin var tekin fyrir utan' forsetahöllina
í París.
Aþenu, Reuter.
Vinstrisinnuð öfgasamtök,
sem kalla sig 17. nóvember,
lýstu í gær ábyrgð á hendur sér
á morðinu á bandaríska stjórn-
arerindrekanum William
Nordeen. Nordeen lét lífið í
Aþenu á þriðjudag er bifreið,
sem hann ók, var sprengd í loft
upp með fjarstýrðri sprengju
nærri heimili hans.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið:
Mútuþægni embættismanna
jafnað við vopnasöluhneykslið
RANNSÓKN bandarísku alrík-
islögreglunnar (FBI) á meint-
um fjársvikum tilekinna starfs-
manna bandariska varnarmála-
ráðuneytisins hófst i lok ársins
1986 að því er segir i frétt
breska dagblaðsins The Inde-
pendent nú nýverið. Sannað
þykir að ákveðnir starfsmenn
hafi selt vopnaframleiðendum
leynilegar upplýsingar varð-
andi útboð, áætlanir og hugsan-
leg vopnakaup. Fyrrverandi og
núverandi embættismenn
stjórnar Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta hafa verið
gagnrýndir fyrir aðgerðarleysi
og Ieyndarhyggju en ekki er
(jóst hveijir, ef nokkrir, verða
gerðir ábyrgir og sóttir til saka.
Hneykslið varð opinbert um
miðjan þennan mánuð og tóku
þegar að heyrast háværar gagn-
rýnisraddir á Bandaríkjaþingi.
„Svikin eru öldungis ótrúleg,“
sagði einn þingmaður öldunga-
deildarinnar og bætti við að þetta
væri „umfangsmesta og alvarleg-
asta hneykslismál í sögu banda:
ríska vamarmálaráðuneytisins". í
nýjasta hefti vestur-þýska tíma-
ritsins Der Spiegel segir að vopna-
framleiðendur hafí mútað emb-
ættismönnum í ráðuneytinu með
óbeinum peningagjöfum, bifreið-
um og utanlandsferðum auk þess
sem tilteknum starfsmönnum hafí
verið heitið vellaunuðum störfum
hjá viðkomandi fyrirtælqum í
framtíðinni. í grein Der Spiegel
er fullyrt að hneyksli þetta sé síst
umfangsminna en Iran-kontra-
hneykslið svonefnda er uppvíst
varð að ágóða af leynilegri vopna-
sölu til klerkastjómarinnar í Iran
hefði verið varið til að styðja
kontra-skæruliða í Nicaragua.
Segir ennfremur að mál þetta
muni á næstu mánuðum koma til
jneð að skaða Repúblikanaflokk-
inn og frambjóðanda hans, Ge-
orge Bush varaforseta, í forseta-
kosningunum í haust.
Edwin
herra.
Meese dómsmálaráð-
John Lehman,
málaráðherra.
fyrrum flota-
Fyrrum ráðherra flæktur
í svikin
Rannsóknin beinist nú um
stundir einkum að meintum svik-
um starfsmanna í flotamálaráðu-
neytinu sem heyrir undir vamar-
málaráðuneytið. í grein D.er Spi-
egel segir að John Lehman, sem
sagði af sér embætti flotamála-
ráðherra á síðasta ári, hafí meðal
annars skipað undirmönnum
sínum að leiða hjá sér tilteknar
reglur varðandi útboð og samnin-
gaumleitanjr við vopnaframleið-
endur. Þetta hafí leitt til þess að
valdið færðist á fárra hendur og
ákveðnir embættismenn hafí verið
slegnir siðblindu er þeim vom
fengin slík völd. Þannig hafí til-
teknum fyrirtækjum, og em eink-
um nefnd til sögunnar McDonnell
Douglas og General Dynamics,
tekist að tryggja sér samninga
um sölu á vígtólum eftir að hafa
fengið upplýsingar frá starfs-
mönnum þessum. Lehman var
einkum þekktur fyrir flotastefnu
sína sem miðaði að því að stór-
efla flotavamir Bandaríkjamanna
með gríðarlegum tilkostnaði og
segir í Der Spiegel að hann hafi
neyðst til að segja af sér er uppvíst
varð um starfsaðferðir hans.
í frétt The Independent segir
ennfremur að Lehman sé gmnað-
ur um að hafa skýrt ákveðnum
starfsmönnum frá því að alríkis-
lögreglan fylgdist með þeim en
lögreglumenn hófu skipulegar
símahleranir í byrjun síðasta árs.
Alls vom 4.764 samtöl hleruð og
tekin upp á segulband og herma
heimildir að tæplega 700 þeirra
geti talist sönnunargögn ef höfðað
verður mál á hendur þeim gmn-
uðu.
Leyndarhyggja og
dugleysi
Caspar Weinberger, fyrmm
vamarmálaráðherra og yfírmaður
Johns Lehmans, hefur verið gagn-
rýndur fyrir að hafa staðið í vegi
fyrir skipulegum rannsóknum á
því hvemig fjármunum ráðuneyt-
isins var varið en enn hefur ekk-
ert komið fram sem bendir til
þess að hann hafí vitað um mútu-
greiðslumar. Þá hefur framganga
Edwins Meese dómsmálaráðherra
einnig þótt ámælisverð og þykir
mörgum það með ólíkindum að
mútugreiðslur og víðtæk siðspill-
ing skuli hafi fengið að þrífast svo
lengi án vitundar starfsmanna
dómsmálaráðuneytisins. Meese
hefur bent á að frá árinu 1985
Caspar Weinberger, fyrrum
varnarmálaráðherra.
hafí fjársvikadeild dómsmálaráðu-
neytisins komist yfír rúmar 32
milljónir Bandaríkjadala (tæplega
einn og hálfan milljarð ísl. kr.)
sem greiddar hafí verið með
óleyfílegum hætti. Höfðuð hafí
verið mál á hendur 43 mönnum
og hafí 35 þeirra verið dæmdir.
Mörgum þykir framganga fjár-
svikadeildarinnar tæpast geta tal-
ist vaskleg og benda á að vamar-
málaráðuneytið veiji 100 milljörð-
um dala til vopnakaupa að jafnaði
á ári hveiju.
Vitnaleiðslur og
endurskoðun
Stjóm Reagans forseta leggur
áherslu á að kerfíð hafí ekki
brugðist heldur hafí tilteknir
starfsmenn gerst sekir um spill-
ingu og mútuþægni. Segja þeir
hinir sömu að ekki sé við stjómina
að sakast og eigi embættismenn
raunar hrós skilið fyrir að hafa
afhjúpað siðleysingjana. Búist er
við að fram fari vitnaleiðslur á
þingi vegna þessa máls auk þess
sem það þykir styrkja mjög mál-
stað þeirra þingmanna sem hvatt
hafa til þess að fyrirkomulag
vopnakaupa vamarmálaráðuneyt-
isins verði tekið til endurskoðunar.