Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 29
TT^rtT í\f* <TTTr> TTri i TrTT/rTTr^nrM * MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 29 Reuter Æftfyrir Ólympíuleikana Björgnnaræfingf fór fram á flugvellinum i Seoul, þar sem þúsundir íþróttamanna og ferðamanna munu koma til landsins vegna Ólympíuleikanna í haust. Suður-kóreskir hermenn, lögreglumenn og slökkviliðsmenn tóku þátt í æfingunni, og æfðu þeir hvernig bregðast skyldi við flugráni og eldsvoða í flugvélum. Kína: Lögregla beitir rafmagnskylf- um tíl að dreifa mótmælendum Þrjú þúsund bændur efndu til mótmæla vegna mengunar Guci-þorp í Kína. Reuter. LÖGREGLA í smábænum Guci í Kína beitti kylfum, sem gefa raflost, til að dreifa þrjú þúsund manna mótmælum sem bændur í þorpinu efndu til. Bændurnir halda því fram að þeim stafi hætta af mengun frá iðjuveri í nágrenni bæjarins. Fyrir tíu dögum gengu þijú þúsund íbúar þorpsins Guci, sem er í útjarðri Peking, fylktu liði að vatnsbólum þorpsins til að mót- mæla mengun frá olíuhreinsunar- stöð sem er skammt frá vatns- bólunum. Kröfðust þorpsbúar þess að affallsvatn frá olíuhreinsunar- stöðinni verði ekki látið renna í gegnum þorpið. Mótmælin fóru friðsamlega fram þar til nokkur hundruð manna lögreglulið kom til að dreifa mótmælendum og notaði til þess kylfur sem gefa rafstuð. Meðal mótmælendanna voru börn og gamalmenni. Nokkrir mótmælendur slösuð- ust alvarlega í átökum við lög- reglu. Margir voru handteknir og eru níu enn í haldi að sögn íbúa í Guci. Þorpsbúar halda því fram að fimm hafi látist í átökum við lögreglu en það hefur ekki fengist staðfest. Nokkrir þorpsbúa, sem blaðamaður iíeute/-s-fréttastof- unnar ræddi við, sýndu honum sár sem þeir höfðu fengið eftir raf- magnskylfur lögreglunnar. Aðrir þorpsbúar neituðu að ræða við blaðamanninn af ótta við hefnda- raðgerðir lögreglunnar. Bændur í þorpunum í grennd við olíuhreinsunarstöðina segja að íbúar þar séu illa haldnir vegna mengunarinnar. Lungnasjúkdóm- ar hijái fullorðna og böm fái út- brot og sár. „Læknirinn segir að þetta sé psoriasis, en varla fá öll börn psoriasis," sagði miðaldra maður sem blaðamaður Reuters ræddi við. Talsmaður héraðsstjómarinnar sagði að vissulega væri vatn mengað nú eftir að starfsmenn í olíuhreinsunarstöðinni hefðu neyðst til að hleypa affallsvatni úr stíflum til að koma í veg fyrir að þær brystu eftir miklar rigning- ar að undanfömu. Sagði talsmaður héraðsstjómarinnar þetta vera einstakt tilvik. „Við höfum gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir frekari mengun,“ sagði hann. Talsmaðurinn sagði að milli tíu og tuttugu manns hefðu verið handteknir í mótmælunum en þeim hefði öllum verið sleppt. Neitaði hann að því að alvarleg slys hefðu orðið á fólki. Vestrænum blaðamönnum var bannað að fara til þorpsins eftir mótmælin. Tveir blaðamenn vom handteknir þegar þeir hugðust fara til Guci. Þeim var sleppt eftir að teknar höfðu verið af þeim fílm- ur sem þeir höfðu notað við myndatökur í bænum. Metverð fyr- ir Monet-verk Ix>ndon. Reuter. MÁLVERK eftir franska listmál- arann Claude Monet var á mánu- dag selt á uppboði í London fyrir hæstu fjárupphæð sem fengist hefur fyrir verk listamannsins til þessa. A sama uppboði var verk eftir hollenska málarann Vincent Van Gogh selt fyrir meira en tvöf- alt hærra verð en vænst var. Myndir franska impressionistans Monets hafa á síðustu árum orðið afar vinsælar. Myndin sem seldist á mánudaginn heitir Bláa húsið og er fyrirmynd þess hús í Zaandam, ná- lægt Amsterdam, þar sem málarinn dvaldist um tíma árið 1871. Málverk- ið var selt á tæplega 7 milljónir doll- ara eða um 315 milljónir íslenskra króna. Kaupandi bauð í verkið gegn- um síma. Verk Van Goghs sem einnig var selt í gegnum síma nefnist Sögur Parísarbúa en það var selt fyrir um 580 milljónir íslenskra króna. ífyrra var verk Van Goghs, Sóllilj- Timar, selt á uppboði fyrir hæstu fjár- upphæð sem greidd hefur verið fyrir málverk. Það var japanskt trygging- arfyrirtæki sem keypti myndina á 39.9 milljónir dollara, eða um það bil 1800 milljónir ísl. kr. Bandaríkin: Lögsókn vegna of- urvalds mafíunn- ar á stéttarfélaeri New York, Reuter. ^ * Bandaríkjastjórn hefur höfðað mál gegn forustumönnum stétt- arfélags bandariskra flutninga- manna, en það félag hefur i ára- tugi verið sakað um tengsl við mafíuna. Auk þeirra hafa meint- ir glæpamenn, þar á meðal mafíuforingjar, verið lögsóttir fyrir að beita félaga stéttarfél- agsins fjárkúgunum og hafa orð- ið tuttugu þeirra að bana. Rudolph Giuliani, alríkissaksókn- ari, lagði fram ákæruna í Man- hattan á þriðjudag og nefndi sem sakbominga 18 forustumenn stétt- arfélagsins, þar á meðal forsetann, Jackie Presser, og 26 menn sem taldir eru félagar í glæpasamtökum. Þar af eru sex sagðir mafíuforingj- ar. Guiliani sagði að mennimir væru sakaðir um að hafa beitt fé- laga í stéttarfélaginu fjárkúgunum og myrt tuttugu manns. Auk þess væm þeir sakaðir um skotárásir, sprengjutilræði, barsmíðar, mútur og misnotkun fjármuna stéttarfé- lagsins. „Við erum að leysa stéttarfélagið undan ofurvaldi glæpasamtaka," sagði William Doran, yfírmaður alríkislögreglunnar í New York. Forustumenn stéttarfélagsins vísuðu því hins vegar á bug að þeir lytu stjóm mafíunnar og sökuðu ráðherra í stjórn Reagans um að vilja koma stéttarfélaginu fyrir kattamef. í stéttarfélaginu eru 1,6 milljón félagar, og hafa dómsmálayfirvöld talið það hafa verið í tengslum við glæpasamtök í meira en þtjá ára- tugi. Fjórir af fimm síðustu forset- um verkalýðsfélagsins hafa verið lögsóttir. Þrír þeirra voru sakfelldir og neyddust til að segja af sér. Einn þeirra var Jimmy Hoffa sem hvarf á dularfullan hátt eftir að hafa verið sleppt úr fangelsi og er talið að hann hafí verið myrtur. Núverandi forseti stéttarfélagsins, Jackie Presser, á yfír höfði sér lög- sókn í Cleveland vegna fjárglæfra, en talið er að hann komi aldrei fyr- ir rétt þar sem hann þjáist af krabbameini. Tískusýning í Blómasal á morsun á íslenskum fatnaði. Módelsamtökin sýna ullarlínuna ’88 í hádeginu alla föstu- daga frá Rammagerðinni, Hildu, Fínull, Álafossi og Æsver ásamt skartgripum frá Jens Guðjónssyni gullsmið. Víkingaskipið er hlaðið íslenskum úrvalsréttum alladagaársins. Sjávarréttahlaðborð á aðeins 995 kr. Borðapantanir í síma 22321. HÚTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA HÓTEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.