Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 36

Morgunblaðið - 30.06.1988, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Ytri-IMjarðvík Blaðbera vantar í Ytri-Njarðvík. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 92-13826. Kranamenn Okkur vantar góðan kranamann á Link-Belt krana, 30 tonna. Upplýsingar í símum 52247 og 651117 á kvöldin. Matreiðslumaður óskast á hótel úti á landi í sumar. Upplýsingar í síma 93-61300 og eftir kl. 21 á kvöldin í síma 93-61337. Framkvæmdastjóri L.H. Landssamband hestamannafélaga auglýsir hér með laust til umsóknar starf fram- kvæmdastjóra. Starfið veitist frá 1. nóv. nk. Upplýsingar um starfið veitir skrifstofa L.H. og Leifur Kr. Jóhannesson, formaður stjórn- ar. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. Stjórn Landssambands hestamannafélaga. Flokksstjóri Óskum eftir að ráða nú þegar flokksstjóra til starfa í verksmiðju okkar. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 18700. Verksmiðjan Vífilfell hf. Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, Sæbraut 1-2, Selfjarnarnesi Lausar stöður 1. Sálfræðingur óskast í 80% starf frá 1. október nk. Starfið felst í greiningu og meðferð fatlaðra barna og ráðgjöf við foreldra. Áskilið er að viðkomandi hafi reynslu af starfi með fötluðum, forefdra- ráðgjöf og foreldrasamstarfi. 2. Læknaritari óskast í hálft starf frá 15. ágúst nk. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist forstöðumanni. Nánari upplýsingar í síma 611180. Hafnarfjörður - blaðberar Blaðbera vantar víðsvegar um bæinn til sum- arafleysinga. Upplýsingar í síma 51880. Góð vinnuaðstaða Erum að leita að duglegu fólki til starfa í ört vaxandi matvælafyrirtæki. Okkur vantar kokk, smurbrauðsdömu og aðstoðarfólk. Bjartur og góður vinnustaður og hresst fólk til staðar. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 5. júlí merktar: „M — 14517“. Verkfræðingur — tæknifræðingur — vélfræðingur Fyrirtæki í innflutningi á tækjabúnaði fyrir fiskeldisfyrirtæki o.fl. óskar eftir manni, sem getur verið sölumaður og jafnframt tæknileg- ur ráðgjafi. Upplýsingar í síma 82306. Fulltrúastaða í utanríkisþjónustunni Staða háskólamenntaðs fulltrúa í utanríkis- þjónustunni er laus til umsóknar. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí 1988. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 28.júní 1988. Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Umsóknarfrestur á áður auglýstum kennara- stöðum við eftirfarandi skóla framlengist til 12. júlí næstkomandi: Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar til umsóknar kennarastöður í þýsku og stærðfræði/eðlisfræði. Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar kennarastöður í íslensku, íþróttum og tölvu- fræði. Einnig vantar stundakennara í fag- greinum málmiðnaðar og myndmennt. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt- inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 12. júlí næstkomandi. Umsóknir um stundakennslu sendist skóla- meisturum viðkomandi skó.la. Menntamálaráðuneytið. ísafjörður Blaðbera vantar á Hlíðarveg og Hjallaveg í júlí og ágúst og þar á eftir annan hvern mánuð. Upplýsingar í síma 3884. JWióírumuMáMífr Pípulagningamenn Vanir menn í pípulögnum óskast sem fyrst. Upplýsingar gefnar í síma 76062. Vélstjóra vantar á Ingibjörgu ST 37 sem er 69 tonn og er gerð út á rækju frá Hólmavík. Húsnæði í boði. Nánari upplýsingar í símum 985-21987 og 95-3139. Sjúkraþjálfarar! Til leigu nú þegar eða síðar í haust aðstaða í rúmgóðri endurhæfingastöð ásamt tækjum og þjónustu. Ráðning í heilt starf eða hlutastarf kemur einnig til greina. Endurhæfingastöðin, Glerárgötu 20, Akureyri, sími 96-25616. Sjómenn Stýrimann og vélavörð vantar á ms. Vörð ÞH 4 sem fer til togveiða. Hf. Gjögur Grindavík, símar91-23167og 92-68218. Kaupfélagsstjóri Staða kaupfélagsstjóra Kaupfélags Önfirð- inga er laus til umsóknar. Upplýsingar gefa Ásvaldur Guðmundsson, stjórnarformaður, í síma 94-8241 og Gunn- laugur Finnsson, í síma 94-7708. Umsóknir sendist öðrum hvorum ofan- greindra aðila fyrir 15. júlí nk. Kaupfélag Önfirðinga. Útgerðarfélag Akureyringa hf. auglýsir lausa til umsóknar stöðu annars framkvæmdastjóra félagsins. Krafist er góðr- ar menntunar og starfsreynslu. Gert er ráð fyrir að nýr framkvæmdastjóri komi til starfa um næstu áramót og taki að fullu við starf- inu 1. maí 1989. Umsóknir skulu sendar stjórnarformanni, Sverri Leósyni, sími 96-22841, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk. Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf. v/Fiskitanga, 600Akureyri. NÝTT FYRIRTÆKI Á GÖMLUM GRUNNI IRUGRIÆGUR HF Laugavegi 10, sími 27788 Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.