Morgunblaðið - 30.06.1988, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hœfileikar
Meyjunnar
í dag ætla ég að flálla um
Meyjarmerkið (23. ágúst-23.
sept.) og leggja áherslu á
hæfleika þess og jákvæða
eiginleika. Þar með er ekki
sagt að hér sé um sjálfkrafa
þætti að ræða, heldur það
besta sem býr í merkinu og
þá möguleika sem hægt er
að rækta.
Mismundandi
aöstceöur
Þó segja megi að allar Meyjar
búi yfír svipuðum hæfleikum
þá gera aðstæður hvers og
eins einstaklings það að verk-
um að áherslan beinist að
mismunandi sviðum. Það sem
undirritaður hefur helst orðið
var við eru mennta- og tungu-
málahæfileikar, viðskipta- og
verslunar hæfileikar, hæfí-
leikar til að beita sér í heilsu-,
þjónustu- og hjálparstörfum,
og síðan handlagni og hand-
flýti sem nýtist oft í ýmis
konar handverki, hannyrðum
hjá konum og iðnaðar- og
tæknistörfum hjá karlmönn-
um.
Mikilvæg smáatriöi
Að baki öllum þessum sviðum
liggja sömu eiginleikamir.
Það er nákvæmni og sam-
viskusemi, skarpskyggni og
raunsæi. Meyjan hefur t.d.
sérstaka hæfíleika til að sjá
smáatriðið í þeirri merkingu
að þau séu lítils virði.
Tungumál
Máifræðingurinn í Meyjar-
merkinu á t.d. auðvelt með
að sundurgreina tungumálið,
flokka orðin niður, sjá upp-
runa þeirra o.s.frv. Prófarka-
lesari í Meyjarmerkinu sér
hveija einustu villu og bók-
haldarinn færir inn hveija
krónu, skipulega og af sam-
viskusemi.
Minnstu blœbrigöi
Að sjálfsögðu eru ekki allar
Meyjar tungumálamenn eða
bókhaldarar. Ef Meyjan er
t.d. í tónlist birtist nákvæmn-
in þannig að hún heyrir hin
minnstu blæbrigði einstakra
hljóma.
Sundurgreining
Einn helsti hæfleiki Meyjunn-
ar er sá að hún á auðvelt
með að greina á milli hluta.
Hún sér hvem einstakan þátt
heildarinnar. Hún hefur því
ágæta hæfíleika til að gagn-
rýna og benda á það hvað
miður hefur farið og má lag-
færa. Hún sér einnig hið
góða. Aðalatriðið í þessu sam-
bandi er að hún er skörp.
Hjálpsemi
Einn af betri eiginleikum
Meyjarinnar er hjálpsemi og
greiðvikni. Hún leggur sig
einnig fram við það að standa
við gefin loforð. Hún er því
að öllu jöftiu góður, traustur
og áreiðanlegur vinur.
Raunscei
Það má einnig segja að einn
af hæfíleikum hennar sé fólg-
inn í raunsæi, eða því að hún
sér jörðina og raunveruleika
umhverfísins eins og hann er.
Meyjan er lítið gefln fyrir
tálsýnir og óskhyggju. Hún
vill hafa fætuma á jörðinni
og vill framkvæma það sem
talað var um að framkvæma.
SkipulögÖ
Algengur hæfíieiki meyjar-
innar er síðan sá að geta
skipulagt og komið reglu á
umhverfíð. Að sjálfsögðu á
þetta ekki við um allar Meyj-
ar, því hver og einn er saman-
settur úr nokkrum merkjum,
en er algengt.
GARPUR
( BE/ÐSTO EFTJR
^geimskipi pístu?
CtKCt*
'ÉS SK/L .
SKYLDAM
^OFAR ÖLLU^
NEI! 1//D BOBBUM féc
I SaA/AO SE/NNA^, \ SKYLDAU
1VOAR HA.T/GN. EG \ o
'| pAR FA& KANNA s-
I ÖRySGIS/ylA L/N C //1/4B SKVcdT
I pyeue wgsluma j vgra að 7
''TEElfi ER.,
EK/O MEÐSr/ÍLfBl
SéR. i DAG!
1/ESALtNGS ADAM,
hann þy/c/sr i/e/?a
! /HADUR /HEO /UÖMl/UukiKÁ.. .
I EN HANN \ VÍN,
1 SK/LUR EKKJ
KoNUP '
TAKilliill r\r* IKTIVIIVII
I UlVIIvíí Uu JtrlMIMI
SMÁFÓLK
I BORROUIEP VOUR LUMCH 30XTHI5 M0RNIM6, 316 BROTHER... IT FEILOFFTHE CURB, ANDTHE SCH00L BU5 RAN OVER IT.. /my lunch box.1) (jfS RUINEPjíy mavbe you coulp have PAMCAKE5 EVERV PAY.. @
wrv U. 1987 United Feature Syndicate, Inc. -SSdfcái- 1
j: ttt: t:
Ég fekk nestiskassann Hann datt á stéttina og Nestiskassinn minn er Kannski geturðu farið með
þinn lánaðan í morgun, skólabíllinn ók yfir ónýtur!! pönnukökur á hverjum
stóri bróðir___ hann____ deirí
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
íslenska sveitin yfírspilaði
Norðmenn gjörsamlega í síðari
hálfleik í viðureign þjóðanna í
íjórðu umferð Norðurlandamóts-
ins, sem nú stendur yfír á Hótel
Loftleiðum. ísland var 18 IMP-
um undir í hálfleik, en vann
þann síðari 68—13 og leikinn
21—9. Sveiflumar komu á færi-
bandi í fýrstu spilum hálfleiks-
ins. Sú fyrsta í spili 17, þegar
Karl Sigurhjartarson og Sævar
Þorbjömsson tóku slemmu sem
Norðmennimir slepptu:
Vesturgefur; enginn á hættu:
Norður
♦ ÁK76
VKG98
♦ 1062
♦ 53
Vestur
♦ 43
V 532
♦ ÁD93
♦ D1092
Austur
♦ 109
V 1076
♦ KG754
♦ G64
Suður
♦ DG852
VÁD4
♦ 8
+ ÁK87
Karl og Sævar sögðu þannig
á spil NS gegn Grötheim og
Tundal:
Vestur Norður Austur Suður
Grötheim Sævar Tundal Karl
Pass 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 hjörtu Pass 5 spaðar
Pass 6 spaðar Pass Pass
Pass
Kerfí þeirra Sævars og Karls
er eðlilegt (Standard), en þeir
opna á ekki á hálit nema með
fímmlit. Opnanir á tígli og laufi
geta því byggst á þrílit.
Sævar kaus að opna á létt á
spil norðurs, enda með báða
hálitina. Þegar Karl fær stuðn-
ing við spaðalitinn reynir hann
við slemmu með flórum laufum,
sem er fyrirstöðusögn. Sævar
hefur þegar sýnt lágmark með
hækkuninni í tvö spaða, svo
hann getur leyft sér að segja frá
hjartakontróli. Karl sér þá að
vömin á slag á tígul. Því veltur
allt á því hvað Sævar á í tromp-
inu. Og með því að stökkva í
fímm spaða segir Karl: „Ég hef
áhyggjur af spaðanum, hækk-
aðu í sex með tvo af þremur
efstu, en passaðu ella.“
Og Sævar hlýddi, með góðum
árangri.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Lvov í Sov-
étrkjunum í febrúar kom þessi
staða upp f skák tveggja ungra
og efnilegra skákmanna. Sovét-
maðurinn Vasily ívantsjúk hafði
hvít og átti leik gegn gráka al-
Hvfur: Kgl, Db5, Hdl, He8, Be3,
Rg5, a2, c4, d7, f2, g2, h4.
Svartur: Kg7, Df5, Ha8, Hd8,
Bc5, Rd3, a5, b6, f7, g6.
35. Hxd3! - Dxd3 36. Db2+ -
f6 37. Re6+ - Kh7 38. Dxf6 -
Hxd7 39. Dh8 mát.
fvantsjúk þessi sigraði mjög
óvænt á New York Open mótinu
um páskana. Úrslitin í Lvov urðu
hins vegar þessi:
1. Kaidanov 9>/2 v. af 14 möguleg-
um, 2.-4. fvantsjúk, Malanjuk og
Moskalenko 9 v. 5.-6. Dorfman
og Kútsman 8 v. 7.-9. Kupreit-
sjúk, Novíkov (allir Sovétrkjunum)
og Piket (Hollandi) 7 v. o.s.frv.