Morgunblaðið - 30.06.1988, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 30.06.1988, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988 t Eiginkona mín, GUÐMUNDA GUÐBJÖRNSDÓTTIR, Arnarhrauni 35, Hafnarfirði, lést 27. júní. Ásgeir Guðbjartssan og fjölskylda. t Eiginmaður minn, JÓN NORDGULEN MAGNÚSSON, Garðavegi 14, Hafnarfirði, er látinn. Fyrir hönd vandamanna, Margrót Þorsteinssdóttir. t Útför föður okkar, ÁSGRÍMS SIGURÐSSONAR fv. skipstjóra, frá Siglufirði, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.30. Marfa Ásgrímsdóttir, Halldóra Asgrfmsdóttir, Eiríksína Ásgrfmsdóttir. t Útför SVAVARS GUÐNASSONAR, llstmálara, verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 1. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Ásta Eiríksdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, SIGRÍÐUR KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR Beykihlfð 27, andaðist á heimili sinu 20. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Viggósson, Ragnar Bjartur Guðmundsson, Hrafnhildur Björt Guðmundsson, Hafdfs Ragnarsdóttir. INGIBJÖRG SIGNÝ FRÍMANNSDÓTTIR (LILLA), HoRabraut 10, Blðnduósi, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 2. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Ole Aadnegórd. Minning: Sigurður Sigurðsson bóndi, Skanunadal Hinn 24. maí sl. lézt í Landspítal- anum Sigurður Sigurðsson, bóndi í Skammadal í Mýrdal. Hafði hann átt við langvarandi veikindi að stríða um mörg ár og af þeim sök- um oft orðið að dveljast á Vífílsstöð- um um lengri eða skemmri tíma. Útför hans var gerð frá Víkurkirkju 4. júní. Því miður átti ég þess ekki kost að fylgja þessum mikla öðl- ingsmanni síðasta spölinn, og því er það að ég set þessi síðbúnu kveðjuorð saman, þegar leiðir skil- ur. Sigurður í Skammadal var eng- inn málskrafsmaður, og því er ör- uggt, að honum er enginn greiði ger með löngum ræðum að honum gengnum. Engu að síður var hann svo gegn samferðamaður og elsku- legur í viðkynningu, að allir þeir, sem honum kynntust, hljóta að minnast hans með virðingu og þökk. Enda þótt Sigurður ynni ævistarf sitt í Mýrdal um rúma hálfa öld, stóðu rætur hans austan Mýrdals- sands. Hann var Meðallendingur að ætt og uppruna og fæddur í Lágu-Kotey í Meðallandi 9. nóv- ember 1903. Voru foreldrar hans búandi hjón þar, Kristín Guðmunds- dóttir og Sigurður Sigurðsson. Bjuggu þau þar um langt árabil og eignuðust 14 böm. Að auki ólst þar upp hálfbróðir, sammæðra, Einar Sigurfínnsson, faðir dr. Sigur- bjöms, fyrrverandi biskups. Fýfrir og um síðustu aldamót var landþröngt í Meðallandi og almenn fátækt, enda leitaði sandfok mjög á býli og lönd manna. Engu að síður óx þar úr grasi hið mennilegasta fólk, sem hefur mjög sett svipmót sitt á mannlíf í V-Skaftafellssýslu, og raunar langt út yfír þá sýslu. Fara má nærri um það, að ekki hefur verið auðvelt að framfleyta stómm systkinahópi í Lágu-Kotey, en ég hef fyrir satt, að þar hafí bæði ríkt mikil eindrægni og glað- værð. Þar sem mér ern ekki svo kunn uppvaxtarár Sigurðar í Skammadal, vil ég einungis stikla á þeim atriðum í ævi hans, sem ég þekki til. í upphafí þessarar aldar og lengi fram eftir öldinni var það almennur siður ungra manna í V-Skaftafells- sýslu og vissulega miklu víðar að halda í útver að vetri til hér suður með sjó og eins til Vestmannaeyja. Á þann hátt öfluðu ungir bænda- synir sér nokkurs skotsilfurs og eins sjófangs, sem þeir fluttu svo heim með sér að vori til. Sigurður í Skammadal var einn í þessum hópi. Stundaði hann um mörg ár sjó bæði í Vestmannaeyjum og Kefla- vík. En svo festi hann ráð sitt árið 1935 og gekk að eiga frændkonu mína, Vilborgu Ámadóttur frá Efri-Ey í Meðallandi. Var mikið jafnræði með þeim hjónum og hjónaband þeirra farsælt alla tíð. Á þessum árum voru erfiðleikar miklir í íslenzku þjóðlífi, og afleið- ingar heimskreppunnar miklu frá um 1930 höfðu sett mark sitt á íslenzkt atvinnulíf, jafnt til sjávar og sveitar. Voru þetta vissulega engir glæsitímar fyrir ungt fólk að hefja búskap í sveit. Ekki bætti það svo úr skák, að erfítt var um jarð- næði í Meðallandi. Þetta mun hafa valdið því, að hin ungu hjón yfír- gáfu þá mold, sem ættir þeirra höfðu nærzt af um aldir, og settust að út í Mýrdal. Þijátíu árum áður höfðu afí og amma okkar Vilborgar haldið í sömu átt og setzt að á Kaldrananesi, svo að þetta var svo sem engin nýlunda í ætt okkar. Um þetta leyti var laus til ábúðar annar hluti jarðarinnar Skammidalur. Settust þau að í austurbænum og gerðust leiguliðar um nokkur ár. Frá þessum tíma hefur samband mitt og fjölskyldu minnar verið órofíð við þau mætu hjón og heim- ili þeirra. Vilborg og Sigurður hófust þegar handa um að koma sér sem bezt fyrir í Skammadal og bæta jörðina. Varð öllum ljóst, að hér hafði mýr- dælskri bændastétt bætzt góðir liðsmenn. Fáum árum síðar eignuð- ust þau svo meiri hluta þess jarðar- hluta, sem þau sátu, og ekki minnk- uðu umsvif þeirra við það. Siðan festu þau svo kaup á Skammadal II og settust þá að í vesturbænum, sem svo var nefndur. Hafa þau síðan búið ein á allri jörðinni og bætt hana svo, að hún er nú með beztu jörðum í Mýrdal. Ekki hafa þau staðið ein í búskap sínum, því að um mörg ár hafa búið með þeim synir þeirra tveir, Ámi og Guðgeir. Eins hefur dóttir þeirra, Kristín Sunnefa, sem býr í Vík, hlaupið undir bagga, þegar hún hefur getað komið því við. Hér hefur því sam- hent fjölskylda unnið hörðum hönd- um og af mikilli hagsýni að því að gera Skammadalinn að vildisjörð. Sigurði bónda var það vel ljóst, að hagur heimilisins yrði bezt tryggður með góðum bústofni. Kom hann sér því upp góðu og þriflegu kúa- og fjárbúi, enda var þetta fyr- ir allt tal um kvóta og alls kyns takmarkanir. Um leið sá hann í hendi sér, að hann yrði að byggja vel og vandlega yfír skepnur sínar og það áður en hann hugsaði til sín og fjölskyldu sinnar í þeim efnum. Létu þau Vilborg sér því nægja gamla vesturbæinn, en þó með margvíslegum endurbótum, þar til fyrir fáum árum, að þau fluttust í nýtt og vandað íbúðarhús. Þá var t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, VILMUNDA EINARSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Meðalbraut 4, Kópavogi, verður jarðsungin frá Landakirkju i Vestmannaeyjum laugardaginn 2. júlí kl. 14.00. Gunnar Á. Hinrlksson, Bertha Vigfúsdóttir, Helga Hinriksdóttir, Ólafur Bjarnason, Guðrún Hinriksdóttir, Sveinn Magnússon og barnabörn. t Móðir okkar, SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR frá Ási, Hringbraut 55, Hafnarfirðl, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.30. Sigurlaug Arnórsdóttir, Sigurður Arnórsson, Ásta Arnórsdóttir, Sigrún Arnórsdóttir, Sólveig Arnórsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR frá Keldudal, Hólmagrund 11, Sauðárkrókl, er andaðist 26. júní, veröur jarðsungin frá Sauöárkrókskirkju laug- ardaginn 2. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Skagfirðinga. Sigurður Pálsson, Magnhildur Pálsdóttir Bender, Skarphéðinn Pálsson, Reynir B. Pálsson, Hólmfrfður Pálsdóttir, Gestur B. Páisson, Hólmar B. Pálsson, Gréta Tómasdóttir, Ingibjörg Stella Guðvinsdóttir Petrún Sigurðardóttir, Valborg Sigurbergsdóttir, Péll Sigurðsson, Marfa K. Einarsdóttir, Kristfn Kalmansdóttir, Ingólfur R. Kristbjörnsson og barnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra sem vottað hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, MONIKU HELGADÓTTUR. Börn hinnar látnu. það ekki í anda Sigurðar að láta vélar og áhöld liggja úti og ryðga, heldur reisti hann og synir hans yfír þau hús og skemmur, þar sem einnig mátti dytta að þeim og lag- færa fyrir næsta sumar. Alls þessa sér stað í myndarlegum byggingum, þegar farið er hjá garði í Skamma- dal, en þjóðvegurinn liggur einmitt um_ land jarðarinnar. Ég man mjög vel, þegar Vilborg og Sigurður settust að í Skamma- dal fyrir hálfri öld, enda tókst strax mikið og gott vinfengi með þeim og móðurfólki mínu á Giljum. Á þeim árum sat einnig föðurfólk mitt á Kaldrananesi. Hér voru því bæði vinir og skyldmenni á næsta leiti, þegar komið var í Mýrdalinn. Alltaf var tilhlökkunarefni að hitta þetta góða fólk og dveljast með því hluta úr hveiju sumri. Enda þótt margt af því sé horfíð yfír móðuna miklu og minningamar einar eftir, hefur Skammidalur enn haldizt sem áningarstaður, þegar ég og fjöl- skylda mín hefur átt leið um Mýr- dalinn, hvort sem verið er á austur- eða útleið. Vissulega er nú skarð fyrir skildi, þegar húsbóndinn er horfínn úr hópnum, og það vand- fyllt. Hins vegar var heilsu Sigurðar þannig farið hin síðari árin, að hvíldin hlaut að verða honum kær- komin, ekki sízt þegar hann fann, að hann, jafn vinnusamur og hann var, gat ekki lengur verið þátttak- andi í búskapnum með konu sinni og sonum. Þessu fátæklegu orð eru sett hér á blað til þess að þakka hinum látna samferðamanni órofa tryggð og vináttu við mig og mitt fólk og um leið til þess að votta Vilborgu og bömum hennar dýpstu samúð okk- ar við fráfall hans. Minning um góðan dreng og vammlausan lifir í hugum okkar allra, sem hann þekktu. Jón Aðalsteinn Jónsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar fmmort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd f dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.