Morgunblaðið - 30.06.1988, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
fclk í
fréttum
HOLLYWOOD
Stjörnurnar velja sér
yngrimenn
Flestar kvikmyndastjömur hafa
mikið fyrir því að halda sér
unglegum og sætum. Margar konur
í þessum hóp fara jafnvel í skurðað-
gerðir og andlitslyftingar tii að ná
takmarkinu. Þrátt fyrir aldur líta
þær út eins og unglingsstúlkur og
reyna að haga sér samkvæmt því.
Starf þeirra krefst þess af þeim að
þær standist tímans tönn.
Söng- og leikkonunni Cher hefur
tekist sérstaklega vel til á þessu
sviði. Hún lítur út eins og tvítug
stúlka en í reyndinni er hún orðin
42 ára. Kærastinn hennar, Rob
Camiletti er aðeins 24 ára gamall
og samband þeirra er mjög gott.
Þau hittust í næturklúbbi árið 1986
og það var ást við fyrstu sýn.
Þegar Cher er spurð hvers vegna
hún vilji frekar yngri menn, svarar
hún því til að aðeins ungir menn
bjóði henni út. Það er í rauninni
ekki svo vitlaust. Hvaða eldri maður
gæti svosem haldið í svona skutlu?
Fleiri konur í kvikmyndabrans-
anum standa í sömu spomm og
Cher. Þar á meðal er söng- og leik-
konan Olivia Newton-John. Hún er
orðin 39 ára en kærastinn hennar
Matt Lattanzi er 10 árum yngri.
Þegar þau hittust í fyrsta sinn var
hann aðeins 19 ára gamall og hún
29 ára. Það má næstum kalla bam-
arán en hjónaband þeirra stendur
föstum fótum og þau virðast vera
mjög hamingjusöm.
Flestir þekkja gamanleikkonuna
Goldie Hawn. Hún er 43 ára og
hefur í nokkur ár búið með leikaran-
um Kurt Russel sem er 37 ára eða
sex árum yngri en hún. Þau eiga
samtals fjögur börn og búa með
þeim í Colorado í Bandaríkjunum.
Nýlega léku þau saman í kvikmynd-
inni „Overboard" óg var það nokk-
urs konar þolpróf á samband þeirra.
Þau stóðust prófið og hafa aldrei
verið betri saman.
Að lokum má nefna leikkonumar
Juliet Mills, Mary Tyler Moore,
Raquel Welch, Debru Winger og
Jacquline Bisset sem eiga það sam-
eiginlegt með Cher, Oliviu og Goldie
að hafa valið sér yngri menn.
Goldie Hawn og Kurt
Russel eru fyrirmynd-
arpar en Goldie er sex
árum eldri en hann.
Juliet Mills er hálf-
fimmtug en hún er
gift unga, myndar-
lega leikaranum,
Maxwell Caulfield
sem er átján árum
yngri en hún. Þau búa
í Santa Barbara og
aldrei heyrist slúðrað
um hjónaband þeirra.
Mary Tyler Moore er lifandi
dæmi um að allt er fimmtug-
um fært. Hún er gift Robert
Levine sem er 34 ára gamall.
Debra Winger er 33 ára gömul
en eiginmaður hennar Timothy
Hutton er sex árum yngri. Þau
urðu ástfangin í annað skipti sem
þau hittust og drifu í að gifta sig
nokkrum vikum síðar.
Leikkonan Jacquline Bisset og
sovéski ballettdansarinn Alex-
ander Godunov eru stórkostlegt
par. Hún er fimm árum eldri en
hann en sá aldursmunur er ekki
sjáanlegur.
COSPER
Cher ásamt kærastanum Rob
Camiletti sem hún kallar gælu-
nafninu „Mookie". Hún er 42
ára gömul en hann er aðeins
24 ára.
Olivia Newton-John
framdi næstum barnarán
þegar hún náði sér í eig-
inmanninn Matt Latt-
anzi.
Kynbomban Raquel
Welch er sex árum eldri
en franski eiginmaður
hennar, Andre Weinfi-
eld. Hún var áður um-
töluð fyrir að vera hrylli-
lega skapstór en Andre
hefur tekist að blíðka
óhemjuna.
©PIB
COM.xlllK
I08C.B
CQSPER
— Þessi saga er svo Ieiðinleg að ég er alveg að sofna.