Morgunblaðið - 30.06.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988
ÍÞRÚmR
FOLK
■ TONY Woodcock, fyrrum
leikmaður Nottingham Forest og
Arsenal, sem hefur leikið með
Köln, hefur verið seldur frá félag-
inu. Woodcock fór ekki langt.
Fortuna Köln keypti hann fyrir
7.7 millj. ísl. kr.
■ REAL Madríd var sektað um
2.4 millj. ís. kr. vegna framkomu
leikmanna sinna í Evrópuleik gegn
Eindhoven. Þá voru tveir leikmenn
liðsins dæmdir í leikbann. Michel
fékk níu leikja bann og Hugo Sanc-
hez fékk þriggja leikja bann, en
þeir voru mjög dólgslegir við dóm-
ara leiksins.
■ DANSKIR handknattleiks-
dómarar hafa verið útnefndir í dóm-
yahóp þann sem dæmir á
Ólympíuleikunum í Seoul. Það eru
þeir Ole Christensen og Per
Godsk Jörgensen.
■ TÓRINÓ hefur ákveðið að
gefa danska leikmanninum Klaus
Bergreen frí. Félagið ætlar ekki
að nota krafa hans áfram í itölsku
knattspymunni. Róma, sem lánaði
Bergreen til Tórínó, vill ekki fá
hann aftur. Danska félagið Lyng-
by hefur mikinn áhuga á að fá
þennan 30 ára leikmann til sín.
■ WALTER Zenga, landsliðs-
markvörður ítaliu, sem leikur með
Inter Mílanó, verður skorinn upp
fyrir meiðslum í hné í dag. Zenga,
sem meiddist á æfingu í EM í V-
Þýskalandi, verður frá æfíngum í
sex vikur.
I JAN Zelenzny, heimsmeistari
í spjótkasti frá Tékkóslóvakíu,
kastaði spjótinu 86.88 m á Grand
Prix-móti í Leverkusen í V-
4- Þýskalandi á miðvikudagskvöld-
ið. Það er lengsta kast sem spjót-
kastari hefur náð í ár. Zelenzny
keppir í Helsinki í Finnlandi í
kvöld, en þar verða saman komnir
tíu bestu spjótkastarar heims. Að
sjálfsögðu verður Einar Vilhjálms-
son þar í sviðsljósinu.
■ SETGEI Bubka, heimsmet-
hafi í stangarstökki, tekur þátt f
mótinu í Helsinki. Hann mun reyna
að bæta heimsmet sitt - 6.05 m,
sem hann setti í 9. júní. Bubka á
fímm hæðstu stökk heims.
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Sovétmenn hafa tekið upp nýjar leikaðferðir:
„Rússneska rúllettan"
fyrst í Laugardalnum
„Höfum lært mikið af Cruyff og félögum," segir Vasilij
Rats, lykilmaðursovéska landsliðsins
Vaslllj Rats
KNATTSPYRNA
Ellertá
á ferðinni
i fjoru-
tíuár
ELLERT B. Schram, formaður
Knattspyrnusambands ís-
lands, lék tímamótaleik í gœr-
kvöldi á KR-vellinum. Það eru
nú liðin fjörutíu ár síðan ELLert
lék sinn fyrsta knattspyrnuleik
með KR.
Hér á myndinni sést Ellert á
heimavelli. Hann heldurá
platta sem hann fékk fyrir tólf
ára vel unnin trúnaðarstörf fyr-
ir UEFA - Knattspyrnusam-
bands Evrópu. Ellert var
heiðraður sérstaklega á árs-
þingi sambandsins í Múnchen
á dögunum.
SOVÉTMENN komu einna
mest á óvart í Evrópukeppni
landsliðs í V-Þýskalandi - fyrir
fjölbreytileg leikkerfi, sem þeir
hafa ekki beitt áður. Það er
greinilegt að nýir vindar blása
nú um landslið Sovétmanna og
þeir ætla sér stóra hluti í fram-
tíðinni. „Við höfum nú tekið
stefnuna á heimsmeistara-
keppnina á Ítalíu 1990,“ sagði
Vasilij Rats, miðvallarspilari og
lykilmaðurinn í sovéska iands-
liðinu.
Sovéska landsliðið er í mikilli
framför. Leikmenn liðsins, sem
geta hæglega skipt um hraða þegar
við á, sýdu mikla flölbreytni í leik
sínum. Rats, sem er fæddur í Ung-
verjalandi, stjómar leik liðsins. „Við
horfðum á mörg myndbönd sem
sýndu leiki hollenska landsliðsins í
heimsmeistarakeppninni 1974, þeg-
ar Johan Cruyff og félagar vom
upp á sitt besta, fyrir Evrópukeppn-
ina í Vestur-Þýskalandi. Við höftim
tekið leik hollenska liðsins 1974 til
fyrirmyndar og höfum lært mikið
af Cmyff og félögum.
Það verður ekkert gefíð eftir og við
munum halda áfram á sömu braut.
Mætum sterkir til leiks í heims-
meistarakeppninni. Okkar fyrsti
leikur verður gegn íslendingum í
Reylq'avík, en þar lékum við ein-
mitt okkar fyrsta leik í undan-
keppni Evrópukeppninnar og urð-
um að sætta okkur við jafntefli,
1:1,“ sagði Rats, sem stjómar nýju
„rússnesku rúllettunni."
íslendingar, Sovétmenn, Austurrík-
ismenn, A-Þjóðveijar og Tyrkir
leika saman í riðli í HM. Tvær efstu
þijóðimar í riðlinum komast í
úrslitakeppni HM á Ítalíu.
OL-LEIKARNIR
Seoul versti
staðurinn
Formaður alþjóða olympíu-
nefndarinnar, Juan Antonio
Samarance, þykir var um sig í
ummælum við fréttamenn. Á
■■■■■i fréttamanna-
Frá fundi sem hald-
Siguijóni jnn var hér í Osló
Einarssyni ( vikunni, að lok-
i oregt jnn Noregsheim-
sókn forsetans, þótti hann
óvenju tungulipur, og lét meðal
annars hafa eftir sér, að Seoul
hefði verið versti staður sem
Ólympíunefndin hefði geta valið,
fyrir Ólympíuleikana í haust.
„Ég óttast það sem hent getur
á meðan leikunum stendur, og
sá ótti mun vara þar til þeim
lýkur," sagði forsetinn. Samar-
ance hefur ekki áður tekið svo
djúpt í árinni hvað varðar hugs-
anlega ólgu og uppþot í Seoul
á Ólympíuleikunum.
KR-VÖLLUR KL. 20.00
KR - VALUR
Woodex
A VIÐINN
BAR STEAK HOUSE
Tölvupappír
ílll FORMPRENT
Hvl-ltlM|Olll /1» mmmi /VH,l)
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Vésteinn keppir
í London
Frjálsíþróttamenn á ferð og flugi
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN eru nú
á faraldsfæti. Einar Vilhjálms-
son keppir á Grand Prix í Hels-
inki í kvöld og Þórdís Gísladótt-
irtekur þátt í móti íVesteras
í Svíþjóð, þar sem hún keppir
í hástökki.
Vésteinn Hafsteinsson mun
halda til London í næstu viku
og keppa þar í kringlukasti í Grand
Prix 8. júlí. Það getur einnig farið
svo að Vésteinn og Einar Sigurðs-
son, spjótkastari, taki þátt í sama
móti og Einar Vilhjálmsson tekur
þátt í Stokkhlómi í 5. júlí.
Sex fijálsíþróttamenn taka þátt í
Árhúsarleikunum í Danmörku í
næstu viku. Pétur Guðmundsson
keppir í kúluvarpi, íris Grönfeldt í
spjótkasti, Svanhildur Kristjóns-
dóttir í hlaupum, Sigurður T. Sig-
urðsson og Kristján Gissurarson í
stangarstökki og Guðmundur Sig-
urðsson í 800 m hlaupi.
Egill náði góðum
árangri í V-Þýskalndi
Egill Eiðsson, sem hefur verið við æfingar og keppni í V-þýska-
landi, hefur náð góðum árangri á mótum þar að undanfömu.
Egill hljóp 400 m grindahlaup á 52.87 sek., en aðeins þeir Þorvaldur
Þórsson og Stefán Hallgrímsson hafa náð betri árangri. Þá hljóp
Egill 200 m á 22.06 sek.