Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 Höfnin 1924 Jón Stefánsson listmálari í tilefni þess að Norræna húsið efnir I Höfundurinn Poul Uttenreitter var nú til sýningar á nokkrum völdum þekktur listunnandi og gagnrýnandi og landslagsmyndum eftir Jón Stefánsson hafði töluverð kynni af íslenskum listmálara eru birtar hér glefsur úr ritlingi myndlistarmönnum í Kaupmannahöfn á sem út kom um listamanninn á vegum þessum árum — og hann kom til íslands Carlsberg-sjóðsins í Danmörku árið 1936. | að minnsta kosti einu sinni. Kona meÖ hvitan ref 1918. Þorgeirsboli 1929. ann bendir á það í upphafi að fyrir 100 árum hafi varla verið til nokkur íslensk mál- aralist að heitið gæti. Það hafi þó sennilega verið vegna ytri aðstæðna í þjóð- félaginu en ekki vegna þess að nokk- uð skorti á menningarlega sjálfsvit- und þjóðarinnar. Það hafi Islending- ar sýnt í ríkum mæli með bókmennt- um sínum, sögum, kvæðum, vefjar- list^ tréskurði skartgripagerð o.fl. Arið 1927, tæpum 10 árum áður en þessi ritlingur kom út, var í fyrsta sinn haldin yfirlitssýning á íslenskri málaralist í Danmörku á Charlotten- borg. Þar voru sýndar 200 myndir allar málaðar á síðustu 10—20 árum. Uttenreitter telur upp íslenska málara sem hafa getið sér gott orð frá aldamótum og segir að á árunum eftir 1918 hafí íslensk málaralist birst sem sjálfstæð listgrein við hlið málaralistar á hinum Norðurlöndun- um og Jón Stefánsson sé verðugur fulltrúi Islands í þeim flokki. Hann rekur síðan nokkur atriði frá æsku Jóns í Skagafirði, en hann var fæddur 1881, kaupmannssonur á Sauðárkróki. Hann nefnir til gam- ans eina formóður Jóns sem mun hafa verið af hollensku bergi brotin, sett í land á Sauðárkróki, kögubarn af hollensku skipi og átti að sækja aftur í næstu ferð, sem aldrei var þó farin. Hann rekur líka skyldleika í móðurætt Jóns við þjóðskáldið og náttúrufræðinginn Jónas Hallgríms- son og gefur með því í skyn að ekki sé langt að sækja listamannseðlið. Jón var sendur til mennta í Latínuskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1900. Skömmu síðar hélt hann til Kaup- mannahafnar og hugðist leggja stund á verkfræði og fékk til þess íjárstuðning föður síns. Uttenreitter lýsir því — og hefur það sjálfsagt eftir Jóni sjálfum, hve gífurleg áhrif hafði á hann að koma til útlanda í fýrsta sinn. I Danmörku fannst honum hann strax skynja það afl sem bjó að baki gamalgróinni listmenningu og honum fannst um leið opnast fyrir sér nýir heimar. í Kaupmannahöfn átti Jón að góðum vinum þá skáldbræðurna Jó- hann Sigurjónsson og Gunnar Gunn- arsson. Hann hóf nám í verkfræði en þótt margar hliðar þess náms vektu áhuga hans — að minnsta kosti þær sem lutu að nýsköpun og hugmyndaflugi — olli námið honum vonbrigðum. Hann ákvað því að hætta og snúa sér að málaralistinni. Hann hafði áður reynt fyrir sér á rithöfundabrautinni en fannst hann ekki vera hæfileikum búinn á því sviði. Hvatinn að þeirri ákvörðun hans að gerast listmálari segir Uttenreitt- er hafa verið óseðjandi löngun til að veita tjáningarþörf sinni útrás og að honum var eðlislægast að koma hugmyndum sínum á fram- færi myndrænt. Hann hóf nám í „Teknisk Selskabs Skole" og sat þar í tvö ár 1903—1905 en hann átti erfitt með að láta að stjóm kennara. Þá var honum ráðlagt að reyna að fá inngöngu í listaskóla Christans Zahrtmanns því tilgangslaust væri fyrir hann að sækja um inngöngu í Konunglega akademíið í Kaup- mannahöfn. Jón rifjar upp við Uttenreitter samtal, sem hann átti við Zahrtmann þegar hann fór á hans fund til að sækja um skólavist. Zahrtmann hafí þá brýnt fyrir honum að hann yrði að stunda nám- ið af dugnaði og þrautseigju. Jón hafi lofað að gera eins vel og hann gæti en þá hafi Zahrtmann orðið hinn versti við: „Það geta allir — þér verðið að gera enn betur — annars náið þér engum árangri.“ Þessum orðum seg- ist Jón aldri hafa gleymt — honum hafi alla tíð síðan fundist hann þurfa að ná betri árangri en hann • hafi í rauninni haft getu til. Jón stundaði nám í skóla Zahrt- manns að mestu í þijá vetur en fyr- ir áeggjan danská málarans Jean Heibergs hélt Jón því næst til París- ar og sótti um inngöngu í einka- skóla Matisse þar í borg og enn með fjárstuðningi föðurins. Nokkrir list- málarar frá Norðurlöndum sóttu þennan skóla en Jón var eini íslend- ingurinn. Um kennsluhætti þessa skóla (stefnu) vísar Uttenreitter á grein

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.