Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 i Julian, Cheo og Leocadio fyrir framan kofann okkar. Ferð á vit fólksins sem hugsar um heíminn Taironar í Kólombíu Julian. ^Eftir SIGRÍÐIELFU SIGURÐARDÓTTUR La Sierra Nevada de Santa Marta er talin ein hæsta fjallaþyrp- ing í heimi sem rís beint upp frá hafi. Sierra Nevada er nyrsti hluti Andesíjalla en er þó slitin frá meginkeðjunni. Þekur hún um 17.000 ferkílómetra og rís allt upp í 5775 metra hæð. Loftslagið við ströndina er rakaþrungið hita- beltisloftslag, en efst uppi varir eilíft frost. Svæði þetta er því ein- ^stakt að því er varðar fjölbreytni gróðurs og dýralífs. Sierra Nevada og umhverfí þess voru heimkynni Tairona-indíána, þess þjóðflokks sem talinn er hafa náð einna lengst í gullsmíði áður en Evrópumenn komu til Ameríku. Þeir bjuggu við flókna þjóðfélags- gerð með Qölmennri prestastétt og öflugum her. Talið er að Pociqu- eica, ein helsta borg Tairona, hafi haft ríflega 20.000 manna her yfir að ráða þegar Spánveijar stiga fyrst á land í Kólombíu. Verkfræðikunnátta Tairona og -uyggingarlist voru þróuð. í bröttum fjallahlíðunum náðu þeir hámarks- ræktun með gerð stalla og flóknu áveitukerfi. Borgir þeirra og þorp voru skipulögð út frá stjamfræði- legum útreikningum, en flestir bæir þeirra höfðu meira en þúsund híbýli hver. í miðjum bæ var ávallt stórt Nabusimake. torg til samkomuhalds. Hellulagðir vegir Tairona lágu um alla Sierra Nevada og voru þeir lífæðar efna- hagskerfísins. Fiskur og salt komu frá strandsvæðunum og maís frá fjallahémðunum. Auk þess áttu þeir viðskipti við indíánaþjóðir í Venezúela, Mið-Ameríku og aðrar þjóðir hér í Kólombíu. Baðmullarrækt var mikil og vefjariðnaður því þróaður og svo var einnig um leirkerjagerð auk gullsmíðanna sem áður var getið. Heimildir frá dögum fýrstu Spán- veijanna geta þess að Sierra Nevada hafí iðað af fólki, svo fjöl- mennir voru þeir. Mannfræðingur einn sem ferðaðist á slóðum Tairona árið 1950 taldi þá líklega vera um 30.000 talsins, en nú eru þeir tald- ir vera 18.200 alls. Afkomendur Tairona Afkomendur Tairona skiptast nú í þijár ættkvíslar, Coquis Ljcas, eða Aruacos eins og flestir aðrir nefna þá, og Sancas. Allar byggja ætt- kvíslamar á sömu menningararf- leifð, en þeir síðastnefndu hafa blandast hvítum mönnum og mestízum og hafa týnt niður miklu af menningu sinni. Los Ijcas hafa löngum verið undirokaðir af Hettu- munkareglunni, sem með góðu jafnt sem illu hefur gert allt sem hún hefur getað til að eyðileggja menn- ingu þeirra. Coquis-þjóðinni hefur reitt best af enda er hún afskekkt- ust því hún býr hæst í fjöllunum. Hún hefur haldið fast í menningu sína og er því talin meiri að visku og kunnáttu af bræðraþjóðunum tveimur. Trúarbrögð Coquis byggjast á fijósemisdýrkun. Þeirra æðsta goð er Haba, heimsmóðirin mikla, sem táknuð er af ófrískum konum. Froskar tákna kynfæri hennar og hellar og vötn tákna móðurlíf henn- ar. Hún er hafið, ár og vötn og líkamnast í bergkristöllum. Hún er móðir allra og í móðurlífí hennar snúast allir að lífínu loknu. Lög heimsmóðurinnar segja að allur heimurinn sé eitt stórt egg og allt í heimni eigi sér föður, móður eða eiganda. Til að sá maís er því nauð- synlegt að komast að samkomulagi við móður maísins með viðeigandi fómum. Hvers kyns ræktun er erf- ið hæst upp til fjalla og því þarf með öllum ráðum að tryggja fijó- mátt jarðarinnar. Lög heimsmóður- innar segja einnig að kynlíf og át hvers kyns matvæla séu hinn væn- legasti kostur sköpunar. Imyndað kynlíf getur verið jafn raunverulegt og hið áþreifanlega samband tveggja einstaklinga og því sé unnt að hafa mök við guði og þjóðsagna- persónur, aðeins ef tilheyrandi fómir séu færðar. Ung stúlka að koma úr kaupstaðarferð. Kynlíf = át Það samasemmerki sem sett er á milli kynlífs og áts gerir mögu- leika Coquis-indíána til giftingar erfíða. Frá heimsmóðurinni eru komnar margar ættir og eru þær allar kenndar við dýr. Maður af ætt jagúarsins getur ekki gifst konu af ætt slöngunnar, þar sem slangan er fæða sem jagúamum finnst ógeðsleg. Hann verður helst að eiga konu af ætt villisvínsins þar sem það er uppáhaldsfæða jagúarsins. Þessar takmarkanir, ásamt með því að á móti hveijum 100 körlum eru aðeins 85 konur, voru famar að valda auknu framhjáhaldi og sam- kynhneigð. Því sá prestastéttin eða „los mamas“ ekki annað ráð en að slaka á reglunum og nú er jafnvel leyfílegt að giftast út fyrir ætt- bálkinn. Líf og dauði — eilíf meðganga Miðpunktur alls er móðurlífíð eða legið. Hinn nýfæddi fer úr legi móður sinnar inn í leg Haba, hinnar andlegfu móður sinnar. Með fæðing- unni tekur því eingöngu við annað innanlegstímabil sem skiptist í níu hluta og endar með dauðanum. Dauðinn táknar aðeins enn eitt inn- anlegstímabil, næsta leg er gröfin. Hinir látnu eru jarðaðir í fósturstell- ingu, en um hárið er hnýttur borði sem nær upp á yfirborð jarðar. Níu dögum eftir greftrun klippir „el marna" á þennan táknræna nafla- streng og þar með lýkur með- göngunni meðal hinna dauðu. Haba tekur nú á móti hinum látna í leg sitt og undirbýr jarðneska endur- fæðingu hans. „E1 mama“ „Los mamas“ eða prestar Coquis og Ijcas eru í læri í 18 ár. Iðulega gengur preststarfið í ættir, en þó er alltaf litið inn í framtíðina með viðeigandi athöfnum til að sann- reyna að væntanlegur lærisveinn sé hæfur í slíkt ábyrgðarstarf. Leocadio með „mochiluna“ sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.