Morgunblaðið - 24.07.1988, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
Þetta kort sýnir helstu ferðamannastaði á Suðurnesjum.
Vaxandi ferðamanna-
straumur um Suðumes
TIL SKAMMS tíma var lítið um
ferðamenn á Suðurnesjum enda
lítið um þjónustu fyrir þá. Á
síðustu árum hefur orðið á þessu
rnikil breyting. Nú eru starfandi
tvö stór hótel í Keflavík, Hótel
Keflavik og Flughótelið. í
Njarðvík hefur Hótel Kristína
starfað i nokkur ár og einnig
er hótel við Bláa lónið. Sex veit-
ingastaðir eru í Keflavík og eru
flestir þeirra nýir. Boðið er uppá
ferðir um Krísuvík og Suðurnes
og hafa þær verið vinsælar.
Rúmlega 30 þúsund manns
heimsækja Bláa Iónið á hverju
ári og fer aðsóknin þar stöðugt
vaxandi. Þá er sjóstangaveiði
vinsælt sport en bátarnir fara
frá Keflavík, Sandgerði eða
Garði.
Pétur Jóhannsson formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja og Stein-
þór Jónsson hótelstjóri.
Ferðir um Suðurnes
Við hófum átak í ferðamálum
hér á Suðumesjum fyrir þremur
árum, sagði Pétur Jóhannsson sem
er formaður hjá Ferðamálasamtök-
um Suðumesja. Til skamms tíma
hafa ferðamenn aðeins farið hér í
gegn vegna flugvallarins en nú er
þetta að breytast. Bláa lónið hefur
mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn
og svo hafa verið skipulagðar hóp-
ferðir sem njóta vinsælda.
Við getum sagt að boðið sé uppá
þrjár mismunandi leiðir en ferða-
mennimir geta sjálfir valið um
hvemig ferðunum er hagað.
Krísuvíkurhringurinn er sennilega
vinsælastur. Þá er farið í Krísuvík
og allt að Krísuvíkurbjargi. Þaðan
er farið í Grindavík og gjaman
komið við á Vigdísarvöllum en
endað í Bláa lóninu.
Aðrir velja Hafnahringinn. Þá
er farið í Hafnir og út á Hafna-
berg. Þaðan er farið út á Reykja-
nes. Þar er hverasvæði og víða
fagurt útsýni. Þar gefst fólki kost-
ur á að skoða Sjóefnavinnsluna og
með ströndinni á þessari leið eru
margar laxeldisstöðvar. Svo er
endað í Bláa lóninu.
Þá er einnig vinsælt að fara út
á Garðskaga. Oft er komið við hjá
Hómlsbergi og bjargið skoðað. Á
Garðskaga /ar nýlega opnuð
greiðasala og þar er skemmtilegur
útsýnistum sem áður var viti.
Fjaran við Garðskaga er ákjósan-
leg til gönguferða og þar er mikið
fuglalíf. Frá Garðskaga er farið til
Básenda en svo er farið á Hvals-
nes og þaðan til baka.
Þetta eru helstu ferðimar sem
boðið er uppá en eins og ég sagði
geta ferðamenn ráðið því sjálfir
hvemig þeir fara þessa hringi og
hversu marga staði þeir skoða.
Við höfum einnig skipulagt
nokkrar Eldeyjarferðir á hverju
sumri en það fer eftir tíðarfarinu
hversu margar þær eru.
— Hvemig eru sjóstangaveið-
amar skipulagðar?
Það er ekki um neinar fastar
ferðir að ræða en við skipuleggjum
veiðiferðir með mjög stuttum fyrir-
vara ef fólk hefur samband við
okkur og pantar. Það er hægt að
hringja í hótelin héma og panta
og getum við þá venjulega útvegað
bát daginn eftir. Sjóstangaveiðin
hefur verið mjög vinsæl og eru
útlendingar ánægðir með hversu
mikið fískast. Það voru einhveijir
Bretar sem sögðu að hér aflaðist
eins mikið á einum degi og þeir
físka á heilu ári heima hjá sér.
Bátamir fara ýmist frá Keflavík,
Sandgerði eða Garði eftir því
hvemig viðrar en venjulega er far-
ið á miðin út af Stafnesi eða Garð-
asjó. Svo er verið að í sex til tíu
tíma eftir þvi sem veiðimennimir
vilja, sagði Pétur.
Fullbókað hjá Hótel
Keflavík
Steinþór Jónsson er hótelstjóri
hjá Hótel Keflavík en hann er jafn-
framt framkvæmdastjóri Ofna-
smiðju Suðumesja.
Það hefur verið fullbókað hér á
hótelinu í allt sumar og reyndar
hafa jafnan verið tveir til úórir
gestir heima hjá mér að auki, þann-
ig að við getum ekki kvartað und-
an því að ferðamennina vanti hér,
sagði Steinþór. Það hefur orðið
mikil aukning í ferðamennsku hér
á síðustu árum — áður fóru ferða-
menn aðeins hér í gegn en nú eru
þeir orðnir nokkuð áberandi hér í
bænum yfír sumartímann. Það er
líka mikill hugur í mönnum að
bæta þjónustuna héma. Það stend-
ur til að gera tjaldstæði hér í
Keflavík þar sem ferðamenn geta
haft sæmilega aðstöðu og verður
það sennilega tilbúið næsta sumar.
Á skömmum tíma hafa opnað sex
veitingastaðir hér í Keflavík og
hefur það sett sinn svip á bæjarlíf-
ið.
— Hvað býr að baki velgengn-
inni í hótelrekstrinum hjá þér?
Ég vil meina að velgengnin sé
fyrst og fremst því að þakka að
við höfum lagt okkur fram um að
veita góða þjónustu og reyndar
höfum við fengið sérstaka viður-
kenningu fyrir hana. Við höfum
fímm sjónvarpsrásir hér á hótelinu,
það er stöðvamar tvær og þrjár
myndabandsrásir og geta hótel-
gestír valið um hvaða myndir eru
sýndar á þeim. Töluvert er um það
að fólk utan af landi sem er að
fara til útlanda gisti hér til að
þurfa ekki að vakna eins snemma
til að mæta á flugvöllinn. Við
sjáum til þess að það vakni á rétt-
um tíma og bjóðum því ókeypis
akstur að flugstöðinni.
Ég hef jafnan lagt á það áherslu
að starfsfólkið gefí sér góðan tíma
til að upplýsa gesti okkar um allt
sem þeir vilja vita. Ferðalög hér
um Suðumesin njóta mikilla vin-
sælda enda er hér margt að skoða.
Baðstrandarsteimnning í Bláa lóninu
BLÁA LÓNIÐ er með vinsælustu ferðamannastöðum hér á landi og
koma þangað þúsundir baðgesta á hveiju ári. Bláa Iónið myndaðist
vegna afrennslis frá Hitaveitu Suðumesja en brennisteinsríkum
jarðsjó er stöðugt veitt í lónið og er streymið um 28 þúsund tonn á
sólarhring. Sá hluti Bláa lónsins sem baðgestir nota mest er um 300
metra langur og 100 metra breiður. Dýpið er mest þrír metrar en
víða ekki nema um háifur metri. Ekkert afrennsli er úr Bláa lóninu
heldur sígur vatnið niður í hraunið og reyndar er lónið alltaf að
stækka.
Bláa iónið er mikil heilsulind og
vatnið er af mörgum talið duga vel
til lækninga á gigt, exemi og psor-
iasis. Fléstir baðgesta koma hins
vegar til að njóta þess að vera i
þessum heilsubrunni og njóta þeirr-
ar baðstrandarstemmningar sem
þama hefur skapast. Fyrirtækið
Kleifar sf. rekur baðhús og greiða-
sölu við lónið. Þar er einnig gistihús
með 11 tveggja manna herbergjum
sem Þórður Stefánsson á og rekur.
Það er Hitaveita Suðumesja sem
á Bláa lónið en fyrirtækið Kleifar
sf. sér um rekstur baðhúss og hefur
tekið að sér að annast framkvæmd-
ir þar. Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Hermann Ragnarsson,
framkvæmdastjóra Húsaness sf.,
sem er eitt stærsta verkatakafyrir-
tækið á Suðumesjum, en hann er
einn eigenda Kleifa sf. Var Her-
mann fyrst spurður um fram-
kvæmdir þær sem nú standa yfír
við baðhúsið við Bláa lónið.
Við erum að ljúka við að stækka
baðhúsið um helming og er það nú
um 300 fermetrar, en þessi stækk-
un ieysir ekki vandann nema til
bráðabirgða, sagði Hermann. Að-
sókn að Bláa lóninu hefúr farið
stöðugt vaxandi á síðustu ámm og
aðstaðan sem við höfum komið upp
nægir alls ekki á góðviðrisdögum
þegar aðsóknin er mest.
- Hversu mikil er aðsóknin að
Bláa lóninu?
Það vom rúmlega 30 þúsund
manns sem komu allt árið í fyrra
og kemur meirihlutinn yfir sumar-
mánuðina. Aðgangseyririnn er 200
krónur og em það einu tekjumar
sem við höfum auk tekna af rekstri
greiðasölu í anddyri baðhússins.
Kostnaður við framkvæmdir á
þessu ári er þegar kominn yfir 20
milljónir og því auðséð að um hagn-
að er ekki að ræða fyrir Hitaveitu
Suðumesja og vantar mikið uppá
að svo sé. Ef tekjur eiga að skap-
ast af Bláa lóninu verður að bjóða
uppá meiri þjónustu og er stefnt
að því að svo geti orðið í náinni
framtíð.
— Hvaða framkvæmdir em í
bígerð þama?
Veitingahúsið sem fyrirhugað er að reisa við Bláa lónið. Pýramidinn, sem verður um 10 metrar á
hæð, verður klæddur álplötum og spegilgleri og, mun væntanlega setja mikinn svip á umhverfið í
Svartsengi.
Hermann Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri
Við emm búnir að fá landrými
við Bláa lónið, sem er um 25 hektar-
ar. Þar er fyrirhugað að reisa
heilsumiðstöð og er þegar byijað
að teikna hana. Ef bæjaryfírvöld i
Grindavík samþykkja þetta skipu-
lag og afgreiða málið fljótlega mun-
um við hefjast handa áður en langt
líður. í fyrsta áfanga verður reistur
10 metra hár pýramídi á tveimur
hæðum sem Páll V. Bjamason arki-
tekt hefur teiknað. Á neðri hæð-
inni, sem mun verða um 250 fer-
metrar, verður kaffíhús, en sú efri
verður notuð sem útsýnispallur en
pýramídinn verður þannig staðsett-
ur að þaðan mun sjást yfír Bláa