Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 + Elskuleg móðir okkar, ELÍN HALLGRlMSDÓTTIR frá GrfmsstöAum, Mýrasýslu, Álfhólsvegi 12, Kópavogi, semandaðistsunnudaginn 17. júlíverðurjarðsunginfrá Fossvogs- kirkju mánudaginn 25. júlí kl. 13.30. Áslaug Oddsdóttir, Sigríður Oddsdóttir. t Eiginkona mín og móðir, HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR, Barmahlfð 53, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. júlí kl. 15.00. F.h. aðstandenda, Gunnar Elfasson, Auður Gunnarsdóttir. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG SIGURJÓNSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, Skeiöarvogi 69, verður jarðsungin í Fossvogskirkju miðvikudaginn 27. júlí kl. 13.30. Ólafur Galti Kristjánsson, Ágústa Jónsdottir, Guðmundur Reynisson, Kristián Ólafsson, Björg Árnadóttir Erla Olafsdóttir, Þorsteinn Danfelsson, Ólafur Örn Ólafsson, Áslaug AlfreAsdóttir og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS GUÐJÓNSSON, HólmgarAi 4, Reykjavfk, er andaðist í Borgarspítalanum 16. júlí, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 25. júlí kl. 13.30. Ingibjörg Björnsdóttir, Unnur Júlfusdóttir, Sigurður SigurAsson, Guðbjörg R. Colton, Bruce Colton, Gylfi M. Guömundsson, Kristfn Erla Þórólfsdóttir, Guðrún Júlfusdóttir, Haraldur Karlsson, Björn Júlfusson, Jóhanna M. AAalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar, BJÖRNS BJÖRNSSONAR fyrrverandi yfirfiskmatsmanns frá Siglufirði. Anna FriAleifsdóttir, Alma Björnsdóttir, Bragi Björnsson. Tökum að okkur að rétta og 1 lagfæra legsteina í kirkjugörðum. 1 1 i SS.HELGASONHF 1 1STEINSMIÐJA 1 !■ SKEMMUVEGl 48 SlMI 76677 ■ ■ Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplysingar og ráðgjof um gerð og val legsteina. \ i BS.HELGASONHF ISTEINSMIÐJA ■ SKaWUÆGI 48 SiMI 76677 Elín Hallgríms- dóttir — Minning Elín Hallgrímsdóttir kvaddi þennan heim sunnudaginn 17. júlí eftir langt og fallegt líf. Við krakkamir kölluðum hana aldrei annað en Ellu frænku. Þegar afi okkar og amma á íslandi dóu fyllti hún það tómarúm sem við það myndaðist og var okkur alla tíð síðan sem amma. Fyrir okkur sem litlum bömum var það ævintýri að koma til henn- ar í Kópavoginn og er hætt við að það hafí farið ansi mikið fyrir okk- ur. Við vomm fímm talsins og tók- um heimilið oft hers höndum. Tröppumar upp á loft urðu að rennibraut, hatta og skó varð að máta og rannsóknarferðir vom famar í kjallarann. Á jólum og páskum dvöldum við of heilu dagana hjá Ellu frænku í Kópavoginum og nutum gestrisni hennar og dætranna. Var þá oft glatt á hjalla — spilað á spil, sung- ið við píanóið og falin fíngurbjörg. Svo gátum við líka gleymt okkur við að hlusta á hana og pabba rekja ættir og riíja upp gamlar sögur, en af því hafði gamla konan mikið gaman og var ótrúlegt hvað hún var fróð og minnisgóð. Við krakkamir eigum Ellu frænku mikið að þakka og mun hún ávallt lifa í minningu okkar. Hún brúaði fyrir okkur bil tveggja tíma, hinnar rótgrónu sveitamenningar sem hún ólst upp í og borgarlífsins sem við hefðum ef til vill annars aðeins þekkt. Elsku Della og Áslaug, við vott- um ykkur samúð okkar, megi guð styrkja ykkur í söknuðinum. Erlingj María, Elín, Orn og Erla Nú, þegar mín kæra frænka, Elín Hallgrímsdóttir er látin á 96. aldursári, streyma margar kærar minningar fram. Hún var uppeldis- systir móður minnar og ætíð henn- ar kærasta vinkona. Foreldrar hennar voru sæmdarhjónin Sigríður Helgadóttir frá Vogi á Mýrum og Hallgrímur Níelsson bóndi og hreppstjóri á Grímsstöðum á Mýr- um. Hallgrímur var föðurbróðir móð- ur minnar og er hún missti móður sína 6 ára að aldri fór hún í fóstur til Hallgríms og Sigríðar og undi þar vel hag sínum á því myndar- heimili. Yngstu dætumar á bænum, þær Sigríður og Elín Hallgríms- dætur, urðu henni sem kærustu systur og héldu þær mikilli tryggð hver við aðra alla tíð. Margar ferðimar fómm við móð- ir mín til Elínar og man ég þær allt frá bemsku. Hún bjó með dætr- um sínum þremur á Freyjugötu, Bámgötu, Hrefnugötu og Háteigs- vegi í Reykjavík og nú síðast á Álfhólsvegi 12 í Kópavogi. Á öllum stöðunum stóð hús hennar opið fyr- ir mér og minni íjölskyldu. Á seinni ámm gekk hún bömum mínum í ömmu stað og var í miklu uppá- haldi hjá þeim öllum. Elín var sérstaklega glaðvær og spaugsöm og einkar bamgóð. Gest- risnin var slík, að ég man að ég treysti mér ekki til að koma við hjá Ellu frænku á leið úr Laugames- skólanum, ef ég var ekki vel svang- ur, því enginn slapp við að þiggja vel útilátnar góðgerðir sem bar að hennar rausnargarði. Systumar þijár gerðu stundimar eftirminni- Þorbjöm Sigurðsson, Höfn - Kveðjuorð Fæddur 7. febrúar 1918 Dáinn 16. apríl 1988 Sagan líður áfram í tímabilum. Aldir renna. Lífskeið flestra manna verður einnig í tímabilum, einkum þeirra, er auðnast langt æviskeið. Ég hygg að íslandssagan geymi t.d. skeið, sem nefnt hefur verið Viðreisn. Skeið samfelldrar stjómar í höfuðdráttum í þijú kjörtímabil. Því skeiði ætla ég ekki að lýsa hér, sem tímabili í stjómmálum. En margt er mér minnisstætt frá þeim tíma, en þá kynntist ég mjög mörgu fólki víðsvegar um Austurland. Á mörgum áram á efri hluta ævi fym- ist yfír fólk og atburði, misjafnlega þó. Einn þeirra manna, sem ég minnist furðuglöggt er Þorbjöm Sigurðsson, flugafgreiðslumaður á Höfn. Og stundum tekur fjarlægð upp á því að skýra atburði eða fólk. Á öndverðum síðasta vetri, sóttu þau áhrif að mér, að ég varð að ná sambandi við hann eða fólk hans. Kom þá í ljós að dagar hans kynnu að vera brátt á enda. Og andláts var ekki langt að bíða. Eitt af gildustu gildum á þroska- braut lífsskeiðsins er að kynnast góðu fólki. Fyrirbæri, sem verður ljósara eftir því sem árin færast yfír. Kynni mín af Þorbimi vora að mestu á áranum, sem flugbraut- in var suður í tanganum og því ætíð farið yfir Homafjarðarfljót um ósinn. Ákveðnin og skerpan er minnisstæð og traustið, sem hann vakti ótvírætt, þótt stundum kynni yfírbragðið að virðast eilítið hijúft. En mér er í huga stór fj'ölskylda við minningar Þorbjöms. Faðir hans, Sigurður Ólafsson, kemur í hugann, þessi stóri maður í stóra stólnum við símann og tal- stöðina á Höfn í flugafgreiðslunni í ekki stórri stofu. Síkátur, síhlæj- andi, háum rómi og sópaði burt öllum dranga er inn kynni að ber- ast. Já, sonur hans var Þorbjöm. Og Þorbjöm var kvæntur. Tengda- foreldrar hans Vignir og Þórann bjuggu öldrað í nágrenninu. Á fyrstu áram viðreisnartíma- bilsins kom ég oft til þeirra, gisti eða neytti máltíðar. Hvemig á því stóð í upphafí að leiðin lá oft til þeirra man ég ekki. Hitt man ég vel hve notalegt var að koma í eld- húsið. „Hér andar guðs blær og hér er ég svo fijáls!" I litla húsinu við fábreytt skilyrði aldraðra íslenzkra hjóna. Sjálfsbjörg í auðmýkt örygg- is — „í trú sem hærra bendir." Þórann var systir Skarphéðins á Vagnsstöðum. Þetta er mér minnis- stætt, því eitt sinn er ég var þar á ferð, vora þau systkin að rifja upp almennt týnda Grallarasöngva frá þeirra bemskuskeiði og ég held að upptökumaður frá útvarpinu hafí verið þar að taka á stálþráð, til að bjarga frá glötun. Margt er það í koti karls, sem kóngs er ekki í ranni. Frá þessu heimili var Ágústa kona Þorbjöms. Ég kynntist heim- ili þeirra Þorbjöms aldrei mikið, þó nóg til þess að átta mig á hve vel Þorbjöm var giftur. Ég man eftir einni komu á heim- ili þeirra, að mig minnir nokkra síðar. Þá vora þau á nýjum stað í rúmgóðri íbúð. Þau hjón man ég allvel. Þorbjöm var stilltari en oft er hann átti annríkt og „húsmóðir- in“ geislaði af Ágústu. Þama var hjónaband, sem vitnaði um sannleik þess „að maðurinn er ei nema hálf- ur, með öðram er hann meiri en hann sjálfur!" Samhent hjón, og stærri hlutur -konu innan húss, en einingin fyllti íbúðina. Smám saman hefur skýrst fyrir mér, hve öll þessi stóra fjölskylda er gæfa byggðarinnar. I fréttum heyrist stundum um sjómennina homfirzku, skipstjóra, leiðandi hetj- ur — þar í hópi era synir Ágústu og Þorbjöms. Hve mörg böm þeirra hjóna vora, má ég varla með fara, legar, því þær sóra sig í ættina með gestrisnina og hið glaðværa viðmót og oftast settist einhver þeirra við píanóið og menn tóku lagið. Sérstaklega hlakkaði ég til jóla- boðanna hjá Ellu frænku. Þar var vel veitt, en sérstaklega vora hinir ýmsu jólaleikir, sem ætíð var farið í, eftirminnilegir. Eitt sinn voram við Elín frænka samferða ásamt fleira fólki upp að Grímsstöðum. Meðan hitt fólkið var að kljást við óþæga trússahesta hleypti Elín sínum klár fram úr hópnum og minn hestur elti. Ég var aðeins 7 ára og dauðhræddur. „Stoppaðu, Ella, ég er að detta af baki,“ hrópaði ég. Þá leit hún um öxl og söng þessar hendingar Ein- ars Benediktssonar: „„Láttu hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist“.“ Það var Ellu frænku líkt. Hún átti þann eiginleika í ríkum mæli, að láta gleðina ríkja, þá gleði sem lætur drauma hjartans rætast. Blessuð sé minning hennar. Haraldur EUingsen þó nefni ég 6 sonu. Missagnir era mér leiðar, og ef yfírbragð mitt á þessum minningarorðum kann að fá í huga nákunnugra dálítð sveim- andi svip, þá á hann þó að sýna af algjörri hreinskilni hugrenningar mínar við þær ljúfu sýnir er nú horfa við. Allar þessar minningar era ómet- anlegur arður í lífí mínu. Þess vegna fékk ég ekki frið við sjálfan mig, ég þarf að segja samtíð frá þessu. Fjölskyldan, þessi náttúralega granneining mennskra samfélaga er í hættu í gróðahyggju viðskipta- æðisins. Vinjar era þó til og ég held að það sé ekki skáldsýn sem ég er að leitast við að lýsa með þessum minningarorðum. Til þín Ágústa, allra ykkar vösku sona og afkomenda eiga þau að flyta fölskvalausa samúðarkveðju. Bless- uð sé minning Þorbjamar Sigurðs- sonar. Jónas Pétursson Birting afmælis- og minningargreina. Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins i Hafnarstræti 85, Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.