Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐEÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 53 Monika S. Helgadóttír, Merkigili — Minning Monika Helgadóttir á Merkigili lézt 10. júní sl. á 87. aldursári og var jarðsett frá Reykjakirkju 22. júní að viðstöddu miklu fjölmenni. Pyrr um daginn hafði farið fram húskveðja á Merkigili, þar sem einn- ig var flölmenni. Moniku á Merkigili heyrði ég fyrst getið á unglingsárum mínum austur á Fljótsdalshéraði, þegar út kom árið 1954 bókin „Konan í dalnum og dætumar sjö“, saga Moniku, skráð af Guðmundi G. Hagalín rit- höfundi. Bók þessi vakti mikla at- hygli eins og reyndar sérhver bók frá hendi Hagalíns á þessum árum, en i bókinni rekur skáldið uppvaxtar- ár Moniku í Skagafirði og búskapar- feril á Merkigili í Austurdal. í hinum fagra og grösuga Aust- urdal var fyrrum mikil byggð eða um tuttugu bæir, en er hér var kom- ið sögu aðeins fjórir í byggð, Merki- gil og kirkjustaðurinn Abær um 9 km framar í dalnum, en Skatastaðir og Bústaðir handa Jökulsár. Jörðin Merkigil er vel til búskapar fallin , en umkringd árgljúfrum á þrjá vegu að segja má, en fjöll að baki og því aðdrættir allir afar erfið- ir, varð eigi komizt af bæ nema með því að fara yfír Merkigilið, hrikalegt klettagil, er aðskilur lönd Austurdals og svokallaða Kjálka, og yfír það varð að sjálfsögðu eigi farið nema á tveimur jafnfljótum eða þá með aðstoð þarfasta þjónsins. í bók sinni rekur Hagalín búskap- arár Moniku á Merkigili, en þar hóf hún búskap ásamt manni sínum, Jóhannesi Bjamasyni frá Þorsteins- staðakoti, árið 1926. Jóhannes var góður bóndi og mikill heimilisfaðir, en sambúð þeirra varð eigi löng, því Jóhannes lézt árið 1944, aðeins 47 ára að aldri. Þá stóð Monika ein uppi með 8 böm þeirra hjóna, sjö dætur og einn son, þijú elztu börnin sloppin yfir fermingu, en yngsta bamið aðeins nokkurra vikna gamalt, og var það skírt við kistu föður síns. En Monika ákvað að halda aftur heim að Merkigili með hópinn sinn, og þar með hefst hetjusaga konunn- ar í dalnum og dætranna sjö. Með útkomu bókarinnar varð hetjusagan úr Austurdalnum á allra vörum og Monika þjóðkunn kona. Hún var konan, sem storkaði ör- lögunum og tókst á við það, sem í augum flestra virtist óhugsandi. Um allt land lásu menn um kon- una, sem með áðstoð dætra sinna ungra lét reisa nýtt íbúðarhús á Merkigili og flyfja allt efni, er til húsbyggingarinnar þurfti, svo sem timbur, jám og sement, á klökkum yfir torfæruna miklu, Merkigilið, já, meira að segja baðker og miðstöðv- areldavél. Með fádæma dugnaði, viljaþreki og kjarki tókst Moniku og dætrunum að búa myndarlegu búi á Merkigili. Um það skal eigi íjallað nánar hér, en þess getið, að á Merkigili var Monika húsfreyja í rúmlega sextíu ár og átti þar heima allt til dauða- dags. Það var svo ekki fyrr en árið 1983, að leiðir okkar Moniku lágu saman. Atvikin höfðu þá hagað því þannig, að ég hafði gerzt sóknar- prestur á Mælifelli í Skagafirði og átti að flytja mína_ fyrstu messu í prestakallinu að Ábæ, kirkjustað Moniku, en sú venja hefur skapazt að messa í Ábæjarkirkju einu sinni á ári á vígsluhelgi kirkjunnar, sem venjulega ber upp á fyrsta sunudag í ágúst. Svo var og að þessu sinni. Ég hafði þá ekki komi fram í Austurdal áður og þótti leiðin bæði löng og torsótt. Verður mér þessi fyrsta messa i Ábæ einkar minnisstæð, m.a. vegna þess að i minn hlut kom að leiða söng í messunni, þar sem enginn organisti eða hljóðfæri var til stað- ar, reyndar ekki rafmagn í kirlq- unni. Állt gekk þó slysalaust, og að lokinni athöfn var haldið í kaffi nið- ur á Merkigil, en sá siður hefur tíðkast, allt frá því Monika tók kirkj- una upp á sína arma á 5. tug aldar- innar, er byggð lagðist af í Ábæ. Ábæjarkirkju annaðist hún eins og eitt af börnum sínum, slíkt kom einhvem veginn eins og af sjálfu sér án þess hún væri beinlínis til þess skikkuð. Þar hafði hún sótt guðs- þjónustur, meðan heilsa og kraftar leyfðu, en nú leyfði heilsan eigi, að hún kæmist til messu, og þvf tók -iún á móti kirkjugestum á heimili sínu þennan messudag, höfðingleg og hress í anda, þótt komin væri á níræðisaldur. Af fyrstu kynnum mínum af Mon- iku þennan fagra ágústdag sumarið 1983, varð mér ljóst, að hetjusagan í Austurdalnum, sem ég hafði heyrt forðum, var enn að gerast. Að vísu var komið nýtt fólk til sögunnar. Dætumar sjö og sonurinn eini höfðu í áranna rás flutzt burt og stofnað sín eigin heimili, en árið 1974 hafði ráðizt til Moniku Helgi Jónssn frá Herríðarhóli í Rangárvallasýslu og tekið þar við búsforráðum. Honum hafði Monika nú falið umsjón kirkj- unnar i Ábæ. Það duldist eigi, að hún var trúuð kona og hafði strax í æsku upplifað mátt bænarinnar í lífi sínu, og oft háfði bænin veitt henni styrk á erfið- um stundum. Auk þes áleit hún það menningarlegt atriði, að kirkjunni yrði haldið við, þótt hún væri orðin eins og „ekkja“ frammi í dalnum, því ef kirkjan legðist af, færi fleira forgörðum. Hún unni þessari kirkju og gerði sér Ijóst, að kirkja og krist- indómur hefur alltaf verið samofin íslenzkri menningu, að hvomgt get- ur án hins verið, þjóðin og kirkjan, eigi þeim vel að famast. Síðan hef ég átt nokkrar messu- ferðir í Ábæ og ætíð em messu- dagamir þar sannkallaðir hátíðis- dagar, enda kemur fólk oft um lang- an veg til að sækja messur þar. Kirkjukaffið á Merkigili eykur á hátiðleika dagsins. Þar ríkir sérstak- * ur andblær, sem þeir þekkja, er þangað hafa komið. Þar sat Monika hin síðustu árin í sæti sínu og ræddi við kirlqugesti, meðan þeir neyttu kræsinga, er fram vom bomar, því þótt þrek og kraftar væm á þrotum, varð þess eigi vart hið innra, svo vel fylgdist hún með öllu, er var að gerast í samtímanum, og gaman hafði hún að bregða fyrir sig gaman- málum, ef tilefni gáfust. Veit ég, að margir kirkjugestir munu geyma þessa mynd af Moniku á Merkigili í huga sér. Um hana mætti vissulega segja eitthvað svip- að og Bjami Thorarensen yrkir um Rannveigu Filippusdóttur: „Að þótt hún kvala kenndi af kvillum í eili, brána jafn heiðskír himin hugarró sýndi." Svo vel hélt hún sinni andlegu reisn allt til hinztu stundar, að að- dáun og gleði mátti vekja þeim er næst henni stóðu og til þekktu. í raun og sannleika var ævistarf Moniku á Merkigili einstakt ævin- týri. Hún trúði á framtíð dalsins síns og íslenzkrar moldar, var alla ævi bam lífs og gróanda, átti sér þann draum, að einhvem tíma kæmi brú á Jökulsá og vegur yfir Merkigilið, svo hægt yrði að aka hring í dalnum. Draumurinn rættist að nokkm leyti árið 1961, þegar brú var byggt á ána um 4 km framan við bæinn. Fyrir þeirri framkvæmd hafði Mon- ika barizt ámm saman með þeirri þrautseigju, sem henni var svo lag- in. Með brúnni va eingangrun bæjar- ins rofin, engum var það meira gleði- efni en húsfreyjunni á Merkigili, enginn hafði kynnst betur erfiðleik- unum, sem einangruninnni em sam- fara. Dalnum sínum unni hún til hinztu stundar, hún þekkti kosti hans og galla, þar hafði hún upplifað fjöl- margar sólskinsstundir, en einnig hriðarbylji vetrarins, hún vissi, að íslenzk náttúra er gjöful og gefur þeim góðar gjafir, sem lifa í sátt við hana og elska hana. Skapgerð hennar sjálfrar var vissulega í ætt við dalafjöllin, þar getur hvesst skyndilega, en er minnst varir gert blíðalogn. Hún var kona skapheit og stór í sniðum, sagði meiningu sína umbúðalaust á mönn- um og málefnum, hver sem í hlut átti, óheilindi og undanbrögð vom henni ekki að skapi, en eigi duldist neinum, sem henni kynntist, að und- ir yfiborðinu sló hlýtt og viðkvæmt hjarta, sem fann til með öllu, er bágt átti. Sem fyrr segir bjuggu þau Monika og Helgp Jónsson að mestu ein á Merkigili síðustu árin, þótt bömin og aðrir afkomendur vitjuðu oft æskustöðvanna og léttu undir við heimilisstörfin. Sýndi Helgi henni einstaka um- hyggju allt til hinztu stundar. Nú býr Helgi einn á Merkigili og ber að vona, að honum takizt áfram að halda þar uppi merki hinnar látnu heiðurskonu. Böm Moniku em öll á lífi utan eitt, elsta dóttirin, Elín, húsfreyja á Völlum í Seyluhreppi, lézt árið 1981. Böm Moniku em búsett víðs vegar * , um land; öll atgervisfólk eins og þau j eiga kyn til. Heima dvaldi Monika allt þar til á sl. hausti, er hún sakir lasleika varð að fara á Sjúkrahúsið á Sauðár- króki. Líkamlegir kraftar vora á þrotum, hún hafði lengi kennt titr- ings og einhvers konar máttleysis í vinstri handlegg, sem ágerðist með ámnum, svo hún varð að styðjast við staf síðustu árin, en það segir þó sína sögu, að heimilisstörfum á Merkigili sinnti hún allt fram undir það siðasta. Hún stóð, meðan stætt Á sjúkrahúsinu naut Monika hinn- ar beztu aðhlynningar, sem völ var á, en ætíð var þó hugurinn bundinn^" við dalinn kæra, var það henni mik- il huggun að fá að dvelja heima nokkra daga í enduðum maímánuði. Á sjúkrahúsinu hitti ég hana siðast aðeins hálfum mánuði fyrir andlát hennar. Kraftamir vom þrotnir, en hugurinn frjór og fylgdis að vanda vel með öllum hræringum mannlífsins. Ofarlega í huga var sem oftast áður litla kirkjan í dalnum, og hvað framtíðin bæri í skauti sér fyrir hana. Við kvöddumst á ganginum fram-4* an við sjúkrastofuna, handtakið var traust. Þannig var líf Moniku á Merkigili. Ég kveð hina látnu með einlægri þökk fyrir ógleymanlega viðkynn- ingu. Minninginer auður, sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Ástvinum öllum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Megi hin látna hvíla í Guðs friði. Ólafur Þ. Hallgrímsson Sigrún Þórarinsdóttir frá Úlfsá — Minning Fædd 18. júlí 1912 Dáin 26. aprU 1988 Við brotthvarf vina og náinna samferðamanna rifjast oft upp atvik og sviðsmyndir af ýmsum toga er leita á hugann. Þannig var það með mig er ég frétti lát Sigrúnar Þórarinsdóttur frá Úlfsá, en hún lést Sólvangi þann 26. apríl sl. Þar sem ég var ekki stadd- ur á landinu er hún lést verður þetta nokkuð síðbúin kveðja. Sigrún var fædd á Úlfsá í Skutuls- firði þann 18. júlí 1912. Faðir henn- ar var Þórarinn Sigurðsson frá Neðri Húsum i Önundarfírði, og móðir hennar var Herdís Guðmundsdóttir frá Veðrará í sömu sveit. Þau flutt- ust frá Önundarfirði yfír Breiðdals- heiðina í Skutulsfjörð og settust að á Úlfsá. Þau átti miklu bamaláni að fagna og eignuðust 7 dætur og einn son. Ifyrsta bam þeirra, Sigrún, dó rétt eftir fæðingu, síðan kom Ólavía, hún giftist Sveinbimi Hall- dóresyni, þau bjuggu á ísafirði en em nú bæði látin. Guðmundur kom næst, hann bjó lengi á ísafirði en er nú látinn. Petrína var næst í röð- inni, hún bjó lengi á ísafirði en flutt- ust til Hafnarfjaíðar og dó þar. Ingi- leif kom næst, hún fluttist uppkomin til Hafnaifyarðar og býr þar enn. Hún giftist Guðna Tómassyni. Þau áttu tvo syni, Tómas og Þórarin, er búa í Garðabæ og Mosfellsbæ. Guðni er látinn fyrir mörgum ámm. Yngsta bam Herdísar og Þórarins var Pálína, hún giftist Valgeiri Ólafssjmi, þau eiga einn son, Ómar, og búa í Hafnarfirði. Þau Herdis og Þórarínn tóku í fóstur Stefán Jóns- son ættaðan úr Onundarfirði, á fyrsta ári, og ólu hann upp til fullorð- insára. Hann býr í Hafnarfírði, gift- ur Björk Jónasdóttur. Sigrún ólst upp í hinum stóra systkinahópi á Úlfsá. Það var oft þröngt í búi, því marga munna þurfti að fæða og oft lítið um at- vinnu. Um skólagöngu var lítið að ræða. Farekóli var og stopul kennsla. Haustið 1931 gerðist örlagaríkur atburður í Kfi Sigrúnar. Þá kom í fjörðinn ný útskrifaður kennari og tók að sér farkennslu i Skutulsfirði. Þessi maður var Eyjólfur Guð- mundsson frá Steig í Mýrdal. Þau felldu hugi saman og giftu sig haus- tið 1932. Þetta var í mestu krepp- unni eftir verðfallið mikla 1930. Efnin vom því ekki mikil til að hefja búskap. Kennaralaunin vom þá ekki nema um 200 kr. á mán- uði. Ýmsir töldu þó að það væri nú munur að hafa slík laun. En ungu hjónin vom bjartsýn og áræðin. Sigr- ún var vön að vinna og lagin til allra verka, og saumaskapur og útsaumur vom henni séretök ánægja. Og Ey- jólfur dró ekki ef sér. Það var erfitt að vera kennari á þessum ámm. Kennt var hálfan mánuð í Amardal og hálfan mánuð á Hauganesi. Ganga þurfti út í Amardal eða fá sig feijaðan frá ísafirði. Síðan var nemendum sett fyrir til hálfs mánað- ar það námsefni er þau skildu læra þar til kennarinn kæmi aftur. Oft vildi verða misbrestur á því námi og eftirlit þurfti að vera gott. Ungu hjónin byrjuðu búskap á Úlfsá hjá foreldmm Sigrúnar, en keyptu síðan býlið Brautarholt og bjuggu þar síðan meðan þau áttu heima í Skutulsfirði, en Eyjólfur stundaði kennslu þar til ársins 1943 eða í nær 13 ár. Þá flytja þau hjón- in til Ytri Njarðvíkur og em þar til ársins 1947, er þau flytja í Hafnar- fjörð og kaupa húsið á Tunguvegi 2 og bjuggu þar sfðan. Eyjólfur kenndi fyrst við Lækjarskóla í Hafnarfirði, en síðustu 20 árin við Flensborgar- skólann. Þau eignuðust tvo syni, Þóri f. 1937, sem er giftur Helgu Pálsdóttur, þau eiga tvö böm Emu og Guðrúnu Kristínu, og Guðna f. 1947 sem giftur er Guðríði Karls- dóttur, þau eiga þijú böm Lám, Þórdísi og Unni. Hjónaband þeirra Sigrúnar og Eyjólfs var mjög farsælt. Þó þröngt væri í búi á fyrstu hjúskaparárunum, og húsnæðið ekki stórt, tvö herbergi uppi á lofti á Úlfsá, var samt ekki skorast undan því að taka litla snáða er vantaði hjálp heim til sín á kvöld- in, til að reyna að skýra fyrir þeim erfið dæmi lærdómsins. Um slíka hjálpsemi vom hjónin einstaklega samtaka. Á milli bæjanna Úlfsár og Góu- staða þar sem við bræðumir ólumst upp, em tæpir eitt hundrað metrar, svo samgangur var mikill milli bæj- anna á þessum ámm. Á Úlfsá ólust upp 8 böm og á Góustöðum 7 og þó bömin á Úlfsá væm töluvert eldri var samgangur mikill og oft komið saman til leikja og allskonar skemmtana eins og unglingum er títt. Það vom dýrðardagar. En fátæktin var mikil á þessum ámm og þeir sem em að alast upp í dag eiga erfitt með að gera sér slfkt f hugarlund. Til dæmis um það, minnist ég þess frá því ég var 7 eða 8 ára og Sigrún um tvítugt, að hana langaði mikið til að fara til Reykjavíkur að einhveiju séretöku tileftii ef til vill í sína fyrstu ferð. Hún leitaði á náðir móður minnar um aðstoð vegna ferðarinnar, en það vantaði einar 15 krónur. Ekki vom eftiin það mikil á Góustöðum að slíkir flármunir lægju á lausu, en einhvemveginn tókst mömmu að bjarga málinu, því hún sagði: „Svo oft hefur hún Rúna mín hjálpað mér, að hún átti þetta margfaldlega skilið." Mér er þetta séretaklega minnistætt, því ég var alltaf f sér- stöku uppáhaldi hjá Sigrúnu. Þó efn- in væm ekki mikil gaf hún mér allt- af einhveija afmælisgjöf meðan ég var í bemsku, og mamma sá um að ég myndi eftir hennar afmælisdegi, sem var 18. júlí. Eftir að suður kom urðu sam- verastundimar færri, en tengslin sem bundust á æskuárunum slitnuðu þó aldrei. Það var gott að koma á Tunguveginn, og blanda geði við Rúnu og Eyjólf og gömlu æskufélag- anna frá Úlfsá er nú vom flestir komnir suður. Vom þá oft rifjaðar upp gamlar minningar frá æskuár- unum og gamla skólanum fyrir vest- an. Sigrún var aldrei sérlega heilsu- hraust, en um 1979 fer hún að kenna heilarýmunar, sem ágerðist eftir því sem árin liðu. Og 1984 fer hún á Sólvang og er þar að mestu leyti rænulaus síðustu fjögur árin, þar til hún lést þann 26. apríl sl. Sigrún tók ekki mikinn þátt f opinberum störfum. Heimilið var fyrst og fremst hennar vettvangur, uppeldi bam- - anna og umhyggja fyrir móður sinni og sfnum nánustu var fyret og fremst hennar starf, en móðir henn- ar var hjá henni fyretu árin í Hafnar- fírði. Hún var ein af þessum hæg- látu konum sem gott var að eiga að vini, og skila sínu dagsverki með sæmd og virðingu. Að leiðarlokum vil ég þakka henni samferðina góðu og viðkynninguna í gegnum árin, sem seint munu fym- ast. Ég flyt Eyjólfi vini mínu, böm- um og öðmm ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Sveinsson Blómostofa Friöfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvötd til td. 22,- einnig um heigar. Skreytingar við Öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.