Morgunblaðið - 21.08.1988, Side 1
96 SÍÐUR B
189. tbl. 76. árg._________________________________SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Zia forseti
hylltur sem
píslarvottur
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
* __ >
LAGT UT A POLLINN A AKUREYRI
Vopnahlé Persaflóastríðsins
virt af báðum stríðsaðilum
Islamabad, Reuter.
MOHAMMAD Zia-ul-Haq, forseti
Pakistans, var hylltur sem píslar-
vottur í gaer þegar útför hans fór
fram f einni stærstu mosku heims
í Islamabad.
Líkkista Zia var sveipuð pakist-
anska fánanum og á henni var hers-
höfðingjahúfa hans þegar hún var
flutt á fallbyssuvagni 'til Paisal-
moskunnar í Islamabad. Tugir þús-
unda syrgjenda voru á götum höfuð-
borgarinnar og söngluðu: „Zia lifír.
Píslarvottar deyja ekki.“
Leiðtogar fímmtíu ríkja voru með-
al viðstaddra, auk helstu framá-
manna í Pakistan. Benazir Bhutto,
leiðtogi stjóraarandstöðunnar í Pa-
kistan, var þó ekki viðstödd.
Nikósíu, Reuter.
VOPNAHLÉ, sem bindur enda I
á hið átta ára langa Persaflóa-
stríð írans og íraks, hófst á I
laugardagsnótt og sagði eftir- I
litslið Sameinuðu þjóðanna að
það væri haldið af báðum aðil- I
um. „Allt stendur sem stafur á I
bók og útlitið er gott,“ sagði
írski ofurstinn William Phillips, |
sem er í hinu 350 manna eftir-
litsliði SÞ.
„í dag náðum við vopnahléi,"
sagði Ali Akbar Rafsanjani yfir-
maður íranska hersins í ríkisút-
varpi landsins. „Engin brot á
vopnahlénu eiga að eiga sér stað
á vígvöllunum og Guð forði þvi
að svo mikið sem einni kúlu verði
hleypt af í ógáti.“
Að sögn sérfræðinga hefur um
ein milljón manns fallið í stríði
þjóðanna, en þær hafa nú tekist á
í átta ár með öllum tiltækum vopn-
um: sprengjum, stórskotaliði, eld-
flaugum og efnavopnum.
Irakar reyndu þegar á vopna-
hléð og sendu olíuskipið Ain Zada
með 18.000 tonn af hráolíu af stað
út Persaflóa.
Frá upphafi stríðins hindruðu
íranir nær alla olíuflutninga íraka
um Flóann og þurfti stjómin í
Bagdað að reiða sig á olíuleiðslur
og landflutninga til þess að koma
olíuframleiðslu sinni úr landi.
Bæði íran og írak hafa Qármagn-
að stytjaldarrekstur sinn með olíu-
útflutningi.
í kjölfar vopnahlésins sigla frið-
arviðræður ríkjanna, sem hefjast
í Genf hinn 25. ágúst undir yfir-
stjóm Javiers Perezar de Cuellars,
framkvæmdastjóra SÞ.
Alexander Dubcek, fyrrum leiðtogi Tékkóslóvakíu:
Mín verður minnzt sem manns,
sem var málstað sínum trúr
„ÉG SKRIFAÐI aldrei undir yfirlýsingu um, að gagnbylting væri
yfirvofandi i Tékkóslóvakíu. Allar staðhæfingar fyrr og síðar í þá
veru eru uppspuni," segir Alexander Dubcek, fyrrum leiðtogi komm-
únistaflokks Tékkóslóvakíu, í viðtali við vestur-þýzka vikublaðið
Der Spiegel í síðustu viku. Varsjárbandalagsríkin með Sovétríkin
í broddi fylkingar notuðu einmitt slíka yfirlýsingu til að réttlæta
innrásina í Tékkóslóvakiu 21. ágúst 1968.
Vasil Bilak, einri helzti andstæð-
ingur Dubceks innanlands fyrr og
nú, sagði í viðtali við Der Spiegel
fyrir skömmu, að Dubcek og helztu
samheijar hans eins og Ludvik
Svoboda forseti og Josef Smrkov-
sky hefðu undirritað þessa yfirlýs-
ingu á fundi í Bratislava í byijun
ágúst 1968. Það hefði því legið
fyrir ótvíræð viðurkenning forystu-
manna umbótasinna í kommúnista-
flokki Tékkóslóvakíu á því, að
gagnbylting væri á næsta leiti í
landinu, er Varsjárbandalagsríkin
sendu heri sína inn í landið.
„Þessar staðhæfingar Bilaks eru
lygar og sér í lagi svívirðilegar
gagnvart mönnum eins og Svoboda
og Smrkovsky, sem báðir eru látn-
ir og geta þvl ekki borið hönd fyr-
ir höfuð sér,“ segir Dubcek. Rekur
hann síðan efrii yfirlýsingar fund-
arins í Bratislava og segir þar
hvergi vera minnzt á gagnbyltingu,
enda hefði slíkt verið ástæðulaust
með öllu.
„ — Mín verður minnzt sem
manns, sem var trúr sjálfum sér
og málstað sínum. Ég lét ekki
kaupa mig til að falla frá því að
fordæma innrásina. Ég kaus heldur
að láta reka mig úr flokknum,"
segir Dubcek, sem lýsir innrásinni
á þann veg, að hún hafi verið „til-
eftiislaus og brot á þjóðarétti".
Sem kunnugt er, var Alexander
Dubcek í forystu fyrir Vorinu í
Prag árið 1968, en henni lauk með
innrás Varsjárbandalagsins. Dub-
cek var þá handtekinn og fluttur
nauðugur til Moskvu. Hann er nú
66 ára að aldri og býr í Bratislava.
Sjá ennfremur „20 ár liðin frá
innrásinni i Tékkóslóvakíu" á
síðum 32 og 33.
Alexander Dubcek. Mynd þessi
var tekin fyrir skömmu i Brat-
islava.
Sprengjutilræði IRA:
7 breskir
hermenn
farast
Omagh á Norður-írlandi, Reuter.
SJÖ breskir hermenn fórust og
29 slösuðust í sprengjutilræði i
gær og hafa ekki jafn margir
breskir hermenn farist í árás á
Norður-írlandi i hartnær áratug.
írski lýðveldisherinn, IRA, lýsti
yfir ábyrgð á tilræðinu.
Hermennimir fórust þegar
sprengja sprakk í langferðabifreið
við vegarbrún ekki langt frá bænum
Omagh skömmu eftir miðnætti. Her-
mennimir voru á leið þangað úr leyfi
á Englandi.
Tveggja metra djúp hola var á
veginum eftir sprenginguna og þeir
sem fyrstir komu að töldu undur og
stórmerki að ekki hefðu fleiri farist.
Líkamsleifar hermanna voru sagðar
hafa dreifst um 45 til 90 m2 svæði.