Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
Langaði til að líkjast
Hannesi Hafstein
Hann situr og horfir hugsi
út um stofugluggann þegar
ég ber upp á á heimili hans
og konu hans Guðrúnar
Sveinsdóttur í Reykjavík.
Hann er fámáll í fyrstu,
virðir fyrir sér
blaðamanninn sem
kominn er til að spyrja
hann spjörunum úr vegna
þess eins að hann er orðinn
100 ára gamall. Eins og
það sé eitthvað merkilegt.
En svo lifnar yíir honum
og hann fer að segja frá
sjálfum sér. Og ég á bágt
með að trúa því að þessi
fjörlegi maður sé
aldargamall.
Morgunblaðið/BAR.
agnús, af
mörgum
kallaður
Snæra-
Mangi, hefur
frá mörgu að
SPJALLAÐ VIÐ MAGNUS OLAFSSON BILSTJORA 100 ARA
Wm mm ■ ■
tvenna. Hann fæddist að Úlfljóts-
vatni í Grafningi 20. ágúst 1888
og er hann var þriggja ára flutti
fjölskyldan til Reykjavíkur og
þaðan að Lækjarbotnum. Ungur
stundaði hann ýmis störf, svo sem
bjargsig í Krísuvíkurbjargi og sjó-
mennsku. Ævistarf hans sem
bflstjóri er honum þó ofar í huga
og hann lifnar allur við er hann
riQar upp gamla tíma. “Eins og
aðrir strákar hafði ég mikinn
áhuga á að læra á bfl og fór um
tvítugt til Reykjavíkur í þeim er-
indagjörðum“, segir Magnús. “Þá
var maður nokkur Jón að nafni
nýkominn frá Bandarikjunum og
átti hann Fordbifreið sem hann
kenndi á. Vorum við saman sex
til átta strákar hjá honum, allir
með mikla bfladellu. Bifreiða-
stjóraprófið tók ég svo um suma-
rið 1918“. Þvi má bæta við að
ökuskírteini Magnúsar er númer
78 svo ekki voru ýlga margir
komnir með próf á þeim tíma.
Er Magnús var kominn með
skírteini upp á vasann hóf hann
störf hjá Garðari Gíslasyni heild-
sala og flutti vörur hingað og
þangað á vörubifreið í eigu fyrir-
tækisins. Segir hann að þá hafí
tvær aðrar vörubifreiðir verið til
á landinu, ein í Reykjavík og önn-
ur úti á landi. Magnús starfði
fjölda ára hjá Garðari og síðar
hjá Vörubflastöðinni Þrótti.
Kveðst hann oft hafa þurft að aka
vegleysur til að koma vamingi á
áfangastað og ósjaldan lent í
hrakningum. “Arið 1942 eignaðist
ég minn fyrsta fólksbfl og fór þá
jafnframt að aka leigubifreið hjá
BSR. Vegna anna hætti ég svo
fljótlega vörubifreiðaakstrinum.
Hjá BSR vann ég sleitulaust til
1968 en þá iærbrotnaði ég og tók
sonur minn þá við bflnum. Enda
var ég þá um áttrætt og kannski
kominn tfmi til hætta akstri", seg-
ir Magnús og kímir. Hann kveðst
alltaf hafa haft gaman af þvf að
aka bfl og aldrei hvarflað að hon-
um að gera annað að ævistarfí
sfnu.
Magnús kveðst alla tfð hafa
verið eldheitur sjálfstæðismaður
og segir hann frá tildrögum þess
að hann snerist á sveif með hægri
mönnum. “Ég bjó lengi að Lækj-
arbotnum þar sem foreldrar mfnir
ráku greiðasölu og var ég oft á
unglingsárunum sendur í bæinnn
eftir vamingi. Einu sinni sem oft-
ar fór ég til Reykjavíkur eftir bjór
og brennivfni og ýmsu öðru, þá
sextán ára gamall. Kom ég þar
að þar. sem um 40 bændur úr
nærliggjandi sveitum höfðu safn-
ast saman og vom að karpa við
hann Hannes Hafstein blessaðan
út af símamálinu sem allt ætlaði
vitlaust að 'gera. Bændurnir,
margir hveijir fullir, vom hinir
reiðustu og ætluðu hreinlega að
drepa Hannes Hafstein. En hann
var svo mælskur og sannfærandi
og eftir að hann hafði haldið góða
ræðu yfír körlunum vom þeir allir
sem einn á hans máli og riðu
heim til sín þegjandi og heldur
lúpulegir". Magnúsi er greinilega
skemmt þegar hann rifjar upp
þetta atvik og hann segist muna
það eins og það hafí gerst í gær.
“Ég strákpjakkurinn stóð álengd-
ar heillaður af Hannesi Hafstein
og óskaði þess heitar en nokkuð
annað að ég ætti einhvem tímann
eftir að líkjast þessum manni. Á
þeirri stundu varð ég pólitískur.“
Magnús ber mikið lof á Jón
Þorláksson og Bjama Benedikts-
son. Um Ólaf B. Thors talar hann
þó sem “aðalhöfðingjann". “Hann
Ólafur var engum lfkur, það var
hægt að taka mark á orðum hans
enda gerðu menn það óhræddir.
Mér líst sömuleiðis vel á forsætis-
ráðherrann okkar og ég hef trú á
því að hann verði jafn harður og
Ólafur Thors þegar fram líða
stundir. Þorsteinn mætti að vísu
vera aðsópsmeiri og dálítið hávær-
ari en það á eftir að lagast. Ég
held satt að segja að þess verði
ekki langt að bíða að hann verði
jafn aðgangsharður og Ólafur.“
Magnús stendur greinilega fast á
sínu og eiginkona hans Guðrún
Sveinsdóttir segir hann jafn
ákveðinn í skoðunum nú og fyrir
80 ámm.
Ég sit andspænis Magnúsi Ól-
afssyni og furða mig á því hve
hann er em. Og ekki virðist minn-
inu farið að hraka. Hann virðist
litlu hafa gleymt, að minnsta kosti
af því sem skiptir hann máli.
Hann hefur sýnilega gaman af
því að hugsa aftur í tímann og
rifla upp gamlar minningar og
hann spaugar óspart. Magnús
segist alla tfð hafa verið friskur.
Gengur nú við staf en er hnar-
reistur. Kvartar aðeins undan því
að hann sé farinn að tapa heym.
En það sé kannski ekki við öðm
að búast. Magnús kann enga
skýringu á langlífi sínu, segist
hafa dmkkið mikið kaffí um
ævina og reykt pípu lengi. Reynd-
ar finnst honum ekkert tiltökumál
að vera orðinn 100 ára. Það hafi
fleiri orðið en hann.
BF
Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
Amgrimur twgrimi
S6k»~<W'
Hi-atnhlkfu r i
SóbnuAj,
0uihintdói
' 'íwvm:
,ngóHu> Guóriason
Söhjmaftur
Kriatió"
Ölatur Haraldssön
sr*»rvtóo' I
PÍónustutulHrúi
Só«mun<t,dól,
Þófumaóur
°® hJí*njnany}rur
Sérfræöingar í rekstrarvörum fyrir:
SIOFHAj
Þú hringir eða lítur við og spjallar við einhvern okkar um þínar þarfir.
ifrÆKl
ÞEKKING
ÚRVAL
ÞJÓNUSTA
Eitt símtal!
.. og þú fœrft
ALLT
Asama
STAÐ
Guðný Einarsdóttlr
Sðíumaður
Vettingahús
EKSTRARVORUR
Réttarhálsi2 -HOR.vik - Simar31956-685554
• Hreinsiefni • Papnír • Vélar • Ahöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.