Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988 9 12. sunnudagur eftir trinitatis. Mark. 7, 31.-37. 11 HUGVEKJA eftir séra GUÐMUND ÓLA ÓLAFSSON fp \ | 1 II iiin í i \ Effaþa! Jesús bannaði þeim að segja frá því, sem hann gerði fyrir daufa manninn og málhalta. En þeir gátu ekki orða bundizt: „Allt gjör- ir hann vel,“ sögðu þeir. „Daufa lætur hann heyra og mállausa rnæla." Skyldi hann hafa trúað því sjálfur, að þeir gætu þagað um slíkt? Hvað, sem því leið, þá fer svo enn í dag, á öld mannvonzkunn- ar, að fáir verða ósnortnir af trú og vináttu þeirra fátæku manna, sem þótti taka því að fara með heymardaufan og varla talandi vin á fund hans og biðja fyrir hann. Og smá var bónin að vísu. Þeir fóru ekki fram á annað, en að hann legði hendur yfir smæl- ingjann. Hann gerði miklu meira. Það gerði hann oftast, ef hann sinnti hjálparbón. En þessu sinni virðist svo af frásögn guðspjallamanns- ins, sem hann hafi tekið eitthvað nærri sér, líkt og byrði þung eða sársauki væru á hann lögð. Hann stundi við eða andvarpaði, segir þar, þegar hann talaði til þessa manns eitt lítið orð: „Effaþa!" Opnist þú! Hver er hin mesta fötlun manns? Það veit Guð einn, en örðugt og þungbært hlýtur hlutskipti þeirra manna að vera, sem eru útlagar í samfélagi manna og Guðs og manna, geta ekki tjáð sig, en verða að hrópa innra með sjálfum sér: Systir mín, bróðir minn, hví heyrirðu mig ekki? Hví talarðu ekki svo, að ég skilji? Hví hjálparðu mér ekki? Eða: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ Og enn kemur í hugann andlátsbænin síra Hallgríms, sem háöldruð kona, ævinlega heymarskert, og undir lokin varla talandi, stundi þó fram með hvfldum: Þá sólarbirtunni ég sviptur er, sjón og heym tekur að dvína, raust og málfæri minnkar mér, myrkur dauðans sig sýna, í minni þér, Drottinn sæll, þá sé sonar þíns hróp á krossins tré, leið sál til ljóssins mína. Jafnvel slíka fötlun læknaði hann, og það þótt heiðinn maður ætti í hlut, að því er virðist. Ekki þarf að fara í grafgötur um, að bænir þessara manna, bæði vin- anna og málhalta mannsins, voru einnig meira en lítið í ætt við bæn tollheimtumannsins í musterinu: „Guð, vertu mér syndugum líknsamur!“ — Var að furða þótt þeim þætti hann gera allt vel? Sagan er harla jarðnesk, þ.e.a.s. hún er öll líkust því, að sjónarvottur segi frá, ekkert sé fært í stflinn, heldur sé næstum öllu haldið til skila. Hún er dálítið hijúf og sár og enginn hátíðabrag- ur á henni, enda engin leið að bera brigður á neitt. Og þó er hún án efa einnig tákn, og þannig • hafa kristnir menn ætíð skilið hana. Hún er í ætt við ganilar bænir sálmaskálda, eins og þessa: „Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!“ Sálm. 51. Hvemig fer hann að? Stundum verða þrengingar honum verkfæri og amboð, stund- um harðar raunir og fötlun, stund- um hrösun manns. „Þér ætluðuð að gera mér illt,“ sagði Jósef við bræður sína, sem selt höfðu hann í ánauð til Egyptalands, „en Guð sneri því til góðs, til að gjöra það, sem nú er fram komið, að halda lífínu í mörgu fólki.“ Og blasir ekki við augum, að þau orð eru í ætt við fómardauða Frelsarans á krossi? I. Mós. 50. Síra Hallgrímur hlaut sína eldskírn, og Drottinn opnaði varir hans. Eins og Davíð lærði hann að slá hörpuna, svo að hljómar hennar og tónar heyrast um ald- ir. Sú harpa grét ekki einungis. Lofsöngvar hennar óma enn um „blessaðar himna hallir". Opnist þú. Það er kynlegt og harla gott, að þetta litla orð, sem kom svo miklu til leiðar, skuli varðveitt í íslenzkri Biblíu á móð- urmáli Jesú. Það minnir á móður- mál síra Hallgríms og bæn hans fyrir því og krossins orði. Og Orðið, orðið frá Guði varðar hér mestu, að sjálfsögðu. Jesús opn- aði eym þessa manns, til þess að hann fengi numið það orð, sem kemur til manna, eins og Páll sagði: „Seg þú ekki í hjarta þínu: Hver mun fara upp í himininn? Það er til að sækja Krist ofan, eða: Hver mun stíga niður í undir- djúpið? Það er til að sækja Krist upp frá dauðum. Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu.“ Róm.10. Orð krossins, orð trúarinnar á Jesúm Krist, Guð gefi þér það í eyra og á tungu. LIFANDIPENINGAMARKAÐURIKRINGLUNNI SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS Fáið ráðgjöf sérfræðinga við innlausn eldri spariskírteina og kaup á nýjum. Gengi: 19. ágúst 1988: Kjarabréf 3,217 - Tekjubréf 1,544 - Markbréf 1,689 - Fjölþjóðabréf 1,268 Sigrún Ólafsdóttir Margrét Hinriksdóttir Brynhildur Sverrisdóttir Stefán Jóhannsson FJARFESTINGARFELAGIÐ Hafnarstræti - Kringlunni - Akureyri AÐILI AÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.