Morgunblaðið - 21.08.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
37
Þórhildur Bárðar-
dóttir- Kveðjuorð
Fædd 8.júní 1916
Dáin6.júlí 1988
Látin er í Sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja Þórhildur Bárðardóttir frá
Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri.
Hún fæddist á Ljótarstöðum í
Skaftártungu þ. 8. júní 1916. For-
eldrar hennar voru hjónin Guðrún
Þórðardóttir frá Hellnum í Reynis-
hverfi og Bárður Gestsson frá Ljót-
arstöðum. Þegar Þórhildur var eins
árs lézt faðir hennar úr erfiðum
sjúkdómi, og stóð þá Guðrún móðir
hennar uppi með þijú komungböm.
Á heimilinu vom foreldrar Bárðar
og bróðir hans, Vigfús yngri. Af
þessu fólki hafði Guðrún mikla að-
stoð. En haustið 1918 hófst Kötlu-
gosið illræmda og gerði jarðir í
Alftaveri og Skaftártungu óbyggi-
legar. Því varð Guðrún að yfirgefa
býlið sitt 1919. Og flutti hún þá
með tvær dætur sínar suður í Álfta-
ver, en sonur hennar var tekinn í
fóstur í Hvammi í Skaftártungu. í
Álftaverinu hóf hún störf við
saumaskap og fleira. Hér kynntist
hún ungum duglegum manni,
Brynjólfí Oddssyni á Þykkvabæjar-
klaustri. Ári síðar, eða 1920, giftist
móðir Þórhildar Brynjólfí og fluttu
þá mæðgumar að Þykkvabæjar-
klaustri, því Brynjólfur og Guðrún
tóku þar við búi af foreldrum Brynj-
ólfs.
Á Þykkvabæjarklaustri ólst Þór-
hildur upp og átti heimili þar til
fullorðinsára.
Þann 5. janúar 1940 giftist Þór-
hildur Símoni Bárðarsyni frá Holti
í sömu sveit. Að því loknu fluttu
ungu hjónin til Vestmannaeyja og
hófu búskap í Garðhúsum. Símon
stundaði ætíð sjóinn á þessum
árum, en 1964 varð hann fyrir
þeirri reynslu að missa heilsuna að
nokkm leyti. Þórhildur studdi mann
sinn og aðstoðaði hann eftir mætti.
Á ámnum 1955 til 1958 byggðu
þau Þórhildur og Símon húsið á
Sóleyjargötu 5 í Eyjum, myndarlegt
hús á fögmm stað. Þetta hús varð
illa leikið í Heimaeyjargosinu 1973,
eins og fjöldi húsa í Eyjum. En er
gosinu slotaði tóku þau Þórhildur
og Símon til við að endurbæta hús-
ið utan og innan. Einnig var askan
þrifín af lóðinni. Síðan bjuggu þau
í þessu húsi á meðan Símoni entist
líf, en hann lézt 10. maí 1981. Þór-
hildur og Símon eignuðust tvö böm.
Þau em Birgir bifvélavirki, fæddur
16. september 1940, hann er
kvæntur Klöm Bergsdóttur og þau
eiga þijú böm. Jóna Sigrún, fædd
15. ágúst 1945, hún er gift Eðvarð
Jónssyni matsveini og eiga þau tvo
syni. Börn Þórhildar og Símonar
em bæði búsett í Vestmannaeyjum.
Þórhildur var jarðsungin frá
Landakirkju í Eyjum 16. júlí af
séra Jóhanni Hlíðar. Er ég kveð
þessa mágkonu mína hinztu kveðju
með þessum fátæklegu orðum,
þakka ég henni samfylgdina um
fjömtíu og fímm ára skeið og óska
henni hvíldar í Guðs friði.
Stefán Nikulásson
t
Ástkær eiginkona mín,
HILDEGARD GUÐLEIFSSON,
LyngheiAi 15, Selfossi,
andaðist að kvöldi 18. ágúst á gjörgæsludeild Landspítalans.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Guðmundur Guðleifsson.
Skrifstofutæknir_
Athyglisvert
námskeið!
Nú er tækifærið til að mennta sig fyrir allt er
lýtur að skrifstofustörfum. Sérstök áhersla er
lögð á notkum PC-tölva. Námið tekur þrjá
mánuði. Námskeið þessi hafa reynst mjög
gagnleg fyrir skrifstofufólk og þá er hyggja á
skrif stof u vinnu.
1 náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlunargerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við
stjórnun, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur, víxlar og
verðbréf, íslenska og viðskiptacnska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
Innritun og nánari upplýsingar veittar í
símum 687590 og 686790
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
Hvað segja þau
urn námskeiðið.
Sótveig Krístjánsdóttir:
Síðastliðinn vetur var ég við nám
hjá Töfvufræðslunni. Þessi timi
er ógleymanlegur bæði vegna
þeirrar þekkingar, sem ég hlaut
og kemur mér mjög til góða þar
sem ég starfa nú, svo og vegna
andans sem þama ríkti. Þetta
borgaði sig.
Sigríður Þórisdóttir:
Mér hefur nýst námið vel. Ég
er öruggari i starfi og m.a. feng-
ið stöðuhækkun. Viötæk kynn-
ing á tötvum og tölvuvinnslu i
þessu námi hefur reynst mér
mjög vel. Maður kynnist þeim
fjölmörgu notkunarmöguleikum
sem tölvan hefur upp á að bjóða.
Þetta nám hvetur mann einnig
til að kanna þessa möguleika
ogfærasérþáinyt.
Jóhann B. Ólafsson:
Ég var verkamaður áður en ég
fór i skrifstofutækninámiö hjá
Tölvufræðslunni. Ég bjóst ekki
við að læra mikið á svo skömm-
um tima, en annaðhvort var það
að ég er svona gáfaöur, eða þá
að kennslan var svona góð (sem
ég tel nú að frekar hafi verið),
að nú er ég allavega oröinn að-
stoðarframkvæmdarstjóri hjá
islenskum tækjum. Ég vinn svo
til eingöngu á tölvur, en töhrur
voru hlutir sem ég þekkti ekkert
inná áður en ég fór i námið.
Á skrifstofu
Tölvufræðslunnar
er hægt að fá
bæklinga um
námið,
bæklingurinn er
ennfrcmur sendur í
pósti til þeirra sem
þess óska
HUSGAGNADEILD
KRISTJAN
SIGGEIRSSON HF.
Laugavegi 13 — 101 Reykjavík — S. 91 -625870
Nokkrar tegundir af höfða-
göflum og tilheyrandi lappir
eða bogar fyrirliggjandi.
GÓÐ DÝNA -
GÓÐ FJÁRFESTING