Morgunblaðið - 21.08.1988, Page 47
8861 T8Ú0Á ,IS flU0A(IUVIVlU3 ,gIQAJaVlUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
8*
47
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Framkvæmdastjóri
- landsbyggðin
Verslunarfyrirtæki á landsbyggðinni,
(innlend og erlend viðskipti), vill ráða fram-
kvæmdastjóra til starfa.
Viðkomandi getur hafið störf á tímabilinu
október til áramóta.
Staðgóð viðskiptamenntun, reynsla í við-
skiptalífinu og góð bókhaldsþekking er skil-
yrði. Góð enskukunnátta er nauðsynleg,
þekking í Norðurlandamálum er æskileg.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Aðstoðað verður við útvegun húsnæðis.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í trúnaði
á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst nk.
frUÐNT Tónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NCARÞJÓNU5TA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
BORGARSPÍTALINN
Lausar Stðdur
Oldrunardeildir
B-5 og B-6
Hjúkrunarfræðingar óskast frá 1.09.’88 á
kvöld- og helgarvaktir.
Hjúkrunarfræðingar óskast á fastar nætur-
vaktir í B-álmu. I starfinu felst skipulagning
og framkvæmd hjúkrunar aldraðra á öldrunar-
deildum B-5 og B-6. Vinnutími frá kl. 23.00-
08.30. Vinni hjúkrunarfræðingur 60% starf eða
meira á næturvöktum greiðast deildarstjóra-
laun. Jafnframt raðast hjúkrunarfræðingar
starfandi á öldrunardeild einum launaflokk ofar
en ella.
Sjúkraliðar óskast frá 1.09.’88. Ýmsir vakta-
möguleikar. Á deildinni eru 20 rúm fyrir heila-
bilaða aldraða sjúklinga. Sjúkraliðar starfandi
á öldrunardeild raðast tveimur launaflokkum
ofar en ella.
Heilsuverndarstöð,
hjúkrunar- og
endurhæfingadeild
Sjúkraliðar óskast frá 1.09.'88. Deildin hefur
25 rúm ætluð ungum sem öldnum einstakl-
ingum er búa við fjölþætta líkamlega, and-
lega og félagslega fötlun. Sjúkraliðar starf-
andi á deildinni raðast tveimur launaflokkum
ofar en ella.
Hjúlkrunarfræðingar óskast á kvöld-, næt-
ur- og helgarvaktir nú þegar. Gagngerar
endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði
deildarinnar er bæta mjög aðstöðu sjúklinga
og starfsliðs.
Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður
fást hjá Önnu Birnu Jensdóttur, hjúkrunar-
framkvæmdastjóra, í síma 696358 og Elín-
borgu Ingólfsdóttur, hjúkrunarframkvæmda-
stjóra starfsmannaþjónustu, í síma 696356.
Barnaheimilið
Furuborg
Fóstra eða starfsmaður óskast í 80%-100%
starf sem fyrst.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma
696705.
Býtibúr - ræsting
Starfsfólk óskast í býtibúr og ræstingar.
Vinnutími eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir ræstingastjóri í
síma 696600 milli kl. 10.30 og 11.30 daglega.
Öldrunardeild Borgarspítalans.
Vélvirki
vanur bílaviðgerðum og stillingum óskar eft-
ir vel launuðu starfi. Sölustörf og annað slíkt
kemur vel til greina. Getur byrjað strax.
Upplýsingar í síma 72714 eftir kl. 18 virka daga.
Viðskiptafræðingur
Ungur viðskiptafræðingur, sem lauk prófum
sl. vor, óskar eftir góðri atvinnu.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Viðskiptafræðingur - 4354“.
PÓST- OG SlWIAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa
hjá Póststofunni í Reykjavík.
Upplýsingar á skrifstofu Póststofunnar, sími
687010.
Póststofan í Reykjavík.
m
Dagvistarheimilið
Marbakki
Hefur þú áhuga á að vinna skapandi starf
með börnum og fullorðnum?
Dagvistarheimilið Marbakki, Kópavogi, óskar
eftir uppeldismenntuðu starfsfólki til að vinna
í anda Reggio Emilia.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
641112.
MJÓLKURSAMSALAN
Bltruhálsi 1, pósthólf 635, 121 Reykjavlk.
Mjólkursamsalan óskar að ráða starfsfólk við
vöruafgreiðslu.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fljót-
lega.
Góð vinnuaðstaða og mötuneyti í nýjum og
glæsilegum húsakynnum á Bitruhálsi 1.
Allar nánari upplýsingar gefur Bent Bryde í
síma 692322.
Fjármálastjóri
Þekkt þjónustufyrirtæki vill ráða fjármálastjóra
til starfa. Viljum ráða viðskiptafræðing með
eða án starfsreynslu. Góð laun. Trúnaður.
Umsóknir merktar: „Fjármálastjóri - 2792“
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir miðviku-
dagskvöld.
Atvinna
Óskum eftir starfsmanni til starfa við fram-
leiðslu í verksmiðju okkar.
FRIGG
Lyngási 1 Garðabæ
sími 651822
Blikksmiðir
Óskum að ráða til starfa blikksmiði og nema
í blikksmíði. Einnig vana járniðnaðarmenn.
Upplýsingar hjá verkstjóra og í síma 686666.
Blikk og stál.
Starf á
endurskoðunarstofu
Fyrirtækið er endurskoðunarstofa í
Reykjavík.
Starfið felst í umsjón sérdeildar innan fyrir-
tækisins ^sem veitir aðstoð við bókhald og
gerð ársreikninga og skattframtala hjá minni
fyrirtækjum og einstaklingum.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi
Verzlunar-, Samvinnuskóla- eða hliðstæða
menntun ásamt víðtækri reynslu á endur-
skoðunarstofu eða skattstofu af sambæri-
legum störfum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst
nk. Ráðning verður eftir samkomulagi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-5.
Skólnvördusliq Ia - 101 Reyk/avik - Simi 621355
Kjötiðnaðarmenn
Sláturfélag Suðurlands vill ráða nú þegar
nokkra kjötiðnaðarmenn til starfa í kjötiðnað-
ardeild fyrirtækisins á Skúlagötu 20.
Allar nánari upplýsingar um störf þessi veit-
ir starfsmannnastjóri á skrifstofu fyrirtækis-
ins, Frakkastíg 1.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
Nemar íkjötiðnaði
Sláturfélag Suðurlands vill taka nokkra ein-
staklinga á námssamning sem nema í kjöt-
iðnaði.
Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast hafið
samband við starfsmannastjóra á skrifstofu
fyrirtækisins, Frakkastíg 1, sem veita mun
allar frekari upplýsingar.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
Ritari
Óskum að ráða ritara til starfa á skrifstofu
okkar.
Góð vélritunar- og íslenskukunnátta hauð-
synleg, ennfremur er æskileg einhver reynsla
á tölvur.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendast Mbl. merkt-
ar: „A - 6926“.
Jésmmm siwð
ÆVAR GUBMUNDSSON HDL.
LOGIEGILSSON HDL.