Morgunblaðið - 21.08.1988, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1988
í Reykjavík þykir ekkert
tiltökumál að búa í húsum sem
hituð eru upp með vatni. Heita
vatnið er í augum Reykvíkinga
sjálfsagður hlutur á sama hátt
og kalt drykkjarhæft vatn úr
krönunum þykir sjálfsagður
hlutur. Engu að síður er notkun
jarðhitavatns til húshitunar
sjaldgæf ef litið er til
umheimsins. Sérstaða íslands
felst í því að landið liggur á
virku eldfjallasvæði.
Fyrstu boranir eftir heitu vatni
til húshitunar í Reykjavík voru
gerðar við Þvottalaugarnar
árið 1928. Þar fengust 14 lítrar
á sekúndu af 87 stiga heitu
vatni sem leitt var I nýreista
sundhöll borgarinnar og tU að
hita sjúkrahús, tvo skóla og um
70 íbúðarhús.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan fyrstu boranirnar
fóru fram. Nú þjónar Hitaveita
Reykjavíkur líka Kópavogi,
Haf narfirði og Garðabæ auk
þess sem hún selur vatn í
MosfeUsbæ, Kjalarneshrepp og
Bessastaðahrepp. Alls njóta
130.000 manns hita frá veitunni
eða um 53% landsmanna. Þetta
eru margir viðskiptamenn og
þeim fer ört fjölgandi.
Hitaveita Reykjavíkur þarf því
sífeUt að leita að nýjum svæðum
til vatnsöflunar. Nýjasta dæmið
um þessa viðleitni er
jarðvarmavirkjunin að
NesjavöUum en fyrsti áfangi
hennar verður tekinn í notkun
á árinu 1990.
Jarðhitasvæðin á
höfuðborgarsvæðinu teljast tU
lághita. Þar er hiti lægri en 150
gráður og vatnið nýtanlegt
beint til húshitunar og þvotta.
Háhitasvæði eru bundin við
virk eldgosabelti. Vatn þeirra
er heitara en 200 gráður og svo
ríkt af gasi og steinefnum að
það verður ekki nýtt beint í
hitaveitur. Hár gufuþrýstingur
og mikil varmaorka gera þau
hins vegar eftirsóknarverð til
raforkuframleiðslu, iðnaðar og
upphitunar fersk vatns til
húshitunar.
Nesjavellir eru hluti af
Hengilssvæðinu sem er eitt af
stærstu háhitasvæðum
landsins. Blaðamaður
Morgunblaðsins var á ferð á
Nesjavöllum fyrir skömmu og
ræddi þá m.a. við Egil Jónsson
staðarverkfræðing.
Texti og myndir:
Helgi Þór Ingason.
Fylgst með
framkvæmdum
Hitaveitu
Reykjavíkur á
Nesjavöllum
Helstu mannvirki á Nesjavöllum. Hægra megin við miðju sjást stöðvarhúsið og útblástursháfurinn en vinstra megin við miðjuna má m.a.
sjá tilraunastöðina. Vinnubúðirnar eru fyrir ofan stöðvarhúsið á myndinni.
Rekstur á að
hefjast 1990
-Rætt við Egil Jónsson staðarverkfræðing
AÐ sögn Egils Jónssonar staðar verkfræðings á NesjavöUum eru
framkvæmdir við virkjunina nú í fullum gangi. Unnið er við að klæða
og gera stöðvarhúsið fokhelt, verið er að steypa grunn skiljustöðvar
og ganga frá lóð og umhverfi stöðvarhússins. Að auki verða á þessu
ári steyptar undirstöður fyrir dælustöð við Grámel þar sem köldu
vatni verður dælt að stöðvarhúsinu.
Framkvæmdir við virkjun-
ina hófust í fyrrasumar
er reistar voru vinnubúðir
fýrir 80 manns auk mötu-
neytis. Þá var einnig byij-
að á stöðvarhúsinu og uppsteypu
þess lokið siðastliðið vor. Að auki var
að mestu lokið við að leggja gufu-
lagnir frá borholunum flórum sem
tengdar verða í fyrsta áfanga.
Fýrir áramót var lokið við 560
fermetra birgðaskemmu. í haust og
á næsta ári verður lokið við alla pípu-
lögn á svæðinu. Tæki í stöðvarhúsi
% verða sett upp og húsið innréttað.
Lokið verður við dælustöðina við
Grámel og einnig 6 km vatnslögn
þaðan og upp í stöðvarhús. Síðla
næsta árs eru fyrirhugaðar prófanir
og stilling á búnaði virkjunarinnar
og gert er ráð fyrir því að rekstur
heflist fyrri hluta árs 1990.“
Verkfræðistofa Guðmundar og
Kristjáns var ráðin sem aðalráðgjafi
við hönnun orkuversins. Aðrir ráð-
gjafar þar eru verkfræðistofumar
Fjarhitun, Rafteikning, Rafhönnun
auk arkitektanna Jósefs Reynis og
' Reynis Vilhjálmssonar. Verkfræði-
stofan Fjarhitun var ráðin sem aðalr-
áðgjafí við hönnun aðveituæðarinnar
en aðrir ráðgjafar þar eru Rafhönnun
og fyrmefndir arkitektar.
Tilraunir með nýja gerð
varmaskipta
í stuttu máli má lýsa orkuverinu
á Nesjavöllum á eftirfarandi hátt.
Gufa úr borholum er leidd í skiljur
þar sem vatn er skilið frá gufu. Þá
er gufan leidd áfram í stöðvarhúsið
þar sem hún hitar upp kalt vatn sem
dælt er úr borholum við Grámel,
skammt frá Þingvallavatni. Vatnið
nær 83 gráðu hita og því er dælt til
Reykjavíkur inn á hitaveitukerfíð.
Þó Hitaveita Reylqavíkur standi
fyrir framkvæmdum á Nesjavöllum
vinna fáir af starfsmönnum hennar
við þær. Allar framkvæmdir eru
boðnar út og verkhlutar eru í höndum
verktaka og undirverktaka. Nokkrir
starfsmanna Hitaveitunnar vinna þó
við tilraunastöð sem komið var á fót
árið 1974 og annast eftirlit og við-
hald borhola. Þeir sjá einnig um
rekstur gufutúrbínu til framleiðslu á
rafmagni sem notað er á svæðinu. í
tilraunastöðinni eru einnig gerðar
tilraunir með sérstaka gerð varma-
skipta.
„í framtíðinni er stefnt að nýtingu
vatnsins sem kemur upp með guf-
unni. í því er kísill og ekki er hægt
að nýta hita skiljuvatnsins í hefð-
bundnum varmaskiptum vegna út-
fellingavandamála. I tilraunastöðinni
Egill Jónsson verkfræðingur. í baksýn er ein af borholunum
sem nýttar verða f fyrsta áfanga Nesjavallaviijunar.
eru gerðar tilraunir með sérstaka
varmaskipta. Þessir varmaskiptar
eru búnir stálkúlum sem berast
áfram með vatnsstraumnum og beija
kísilútfellingar jaftióðum í burtu."
Aflmiklar borholur
Boranir á Nesjavöllum hófust árið
1965 og lauk borun fímmtu holunnar
árið 1972. Sú hola var jafnframt
fyrsta djúpa rannsóknarholan, 1800
metrar á dýpt. Allar þessar holur
voru boraðar nærri yfirborðsjarð-
hitanum innst í Nesjavalladalnum
vestanverðum. Eftir tíu ára hlé hóf-
ust boranir að nýju haustið 1982 og
borun átjándu holunnar á Nesjavöll-
um var lokið haustið 1986.
FVá 1972 voru allar rannsóknar-
holumar á Nesjavöllum hannaðar
þannig að þær gætu einnig nýtst sem
vinnsluholur. Boranir gengu mjög vel
og afkastageta borhola er mun meiri
en björtustu spár sögðu til um í upp-
hafí. Þess má geta að í einni hinna
18 borhola mælist tæplega 400 gráðu
hiti en það er mesti hiti sem mælst
hefur í slíkri borholu í heiminum.
í fyrsta áfanga Nesjavallavirkjun-
ar verða fjórar borholur nýttar og
tengdar við stöðvarhúsið. Tvær
þeirra eru nálægt stöðvarhúsinu en
ÓGNARKRAFTUR
í IÐRUM JARÐAR