Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, FlMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
Frá ráðstefnu nálastungu- og leysigeislalækna sem sótt var af sér-
fræðingur frá 9 löndum.
Hallgrímur Þ. Magnússon svæfingalæknir, Andrew Fischer frá
Bandaríkjunum, Pekka Pöntinen læknir frá Finnlandi og Phil Rog-
er« dýralæknir frá írlandi.
þar sem beitt er nálastungu- og
leysigeislatækni. Hallgrímur var
kosinn í stjórn samtakanna á ráð-
stefnunni. Auk hans sátu hana 5
íslenskir læknar. „Við höfum hér á
ráðstefnunni kynnst mörgu sem
unnt er að nota við daglega vinnu
við meðferð á sjúklingum," sagði
Hallgrímur.
Að sögn Pekka Pöntinen hefur
fjöldi lækna sýnt fram á að sárs-
auki minnkar eftir að leysigeisla-
tækni hefur verið notuð. Hlutlæga
rannsókn á árangrinum hafa menn
gert með sérstökum sársaukamæli
sem Andrew Fisher, læknir frá
Bandaríkjunum, fann upp. Um
tvenns konar mæla er að ræða og
annar er notaður til að fínna sárs-
aukapunkta. Honum _er þrýst á
svæðið sem kannað er og sýnir
hvað það þolir mikinn þrýsting áður
en sársauki kemur fram. Mjög þýð-
ingarmikið er að fínna rétta sárs-
aukapunktinn sem beina á með-
ferðinni að. Hinn mælirinn er notað-
ur til að mæla áhrif meðferðar og
til að kanna ástand vöðva. Hann
sýnir mýkt vöðvans. Mælirinn er
mikið notaður við meðferð á íþrótta-
mönnum sem þurfa meðferð gegn
stífum vöðvum. Mælingar fyrir
meðferð, meðan á henni stendur
og eftir gera það mögulegt að fylgj-
ast með árangri meðferðarinnar.
„Eg er mjög ánægður að kynn-
ast þeim sem nota þetta tæki. Með
því er hægt að fylgjast með með-
ferðinni og sanna hvenær aðferðirn-
ar eru áhrifaríkar og hvenær ekki.
Það síðarnefnda hefur ekki síður,
verið rætt á ráðstefnunni,“ sagði
Andrew Fischer.
Læknarnir sögðu notkun þessara
mæla stöðugt aukast en þeir væru
mikilvægir fyrir sjúklinginn því
hann gæti séð árangur meðferðar-
innar og þannig næðist betra sam-
band við hann. Slíkt væri nauðsyn-
legt því oft þyrfti að fá sjúklingana
til að breyta lífemi sínu svo ekki
sækti í sama horf eftir meðferð hjá
lækni.
Einn dýralæknir sótti ráðstefn-
una, Phil Rogers frá írlandi. Hann
sagði mjög þýðingarmikið fyrir sig
að kynnast notkun sársaukamælis-
ins. Hann mætti nota á dýr til að
fínna hvar sársaukinn væri áður en
nálarstungu- eða leysigeislatækni
væri beitt, svo sem við kappreiða-
hesta.
— Sig. Jóns.
WORD
SÉ RITVINNSLA EITTHVAÐ FYRIR ÞIG,
ÁTT ÞÚ ERINDI VIÐ WORD KERFIÐ,
eitt hið öfíugasta og mest notaða hérlendis.
5.-8.
september
Word kerfið inniheldur m.a. sjálfvirkt efnisyfirlit og atriða-
skrá. í því má vinna samtímis á 7 mismunandi skrár.
EFNI: Skipanir kerfisins • Uppsetning skjala og
bréfa • íslenskir staðlar • Æfingar.
LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen,
ritvinnslukennari.
TÍMI OG STAÐUR: Kl. 8.30-12.30 í Ánanaustum 15.
SÍMI: 621066
Stjórnunarfélag Islands
---— « m-----------æ*---
Okkur fannst vera kominn tími til að gera
eldhúsinu og baðinu jafn hátt undir höfði og öðru
rými heimilisins. Þess vegna höfum við opnað
verslun sem sérhæfir sig í valinni vöru fyrir eldhús
og bað.
í versluninni kynnum við nýjatímann í innrétting-
um frá Poggenpohl og Ármannsfelli (hannaðar af
Finni Fróðasyni), tækjunum frá Gaggenau,
hreinlætistækjunum frá Ideal Standard, flísum,
matarstellum, eldhúsáhöldum...—öllu sem
viðkemur eldhúsi og baði.
Velkomin.
FAXAFEN 5, SÍMI: 68 5680
.81-31 -ÓBaiiyonuJöm c'tfiri ifiíj >1101 num [