Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
51
Perluskreyttur myndarammi eftir Sarah Pucci og stjarna eftir Guð-
rúnu Hrönn Ragnarsdóttur.
Tvær sýningar opn-
aðar í Nýlistasafninu
TVÆR sýningar verða opnaðar í
Nýlistasafninu föstudaginn 2.
september á verkum Guðrúnar
Hrannar Ragnarsdóttur og Sarah
Pucci.
Guðrún Hrönn nam við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1974—1978
og útskrifaðist úr Nýlistadeild. Einn-
ig stundaði hún nám í Hollandi við
Den Vrije Akademie í Den Haag og
Jan van Eyck Akademie í Maastricht
1978-82.
Guðrún hefur áður haldið tvær
einkasýningar í Nýlistasafninu,
einkasýningu í Boekie Woekie í
Amsterdam, auk þátttöku í ýmsum
samsýningum á íslandi og erlendis.
Á sýningunni í Nýlistasafninu verða
olíumálverk, akrílmyndir og skúlpt-
úrar.
Sarah Pucci er á 86. aldursári og
hefur fengist við að búa til perluskre-
ytta og skrautlega hluti frá 1959.
Nýlistasafnið á verk eftir hana en
hún hefur sýnt í SÚM, Eat Art Gall-
erí í Dússeldorf, Galleríi Ben Votier
í Nissa og Neue Gallerie í Aachen
ásamt dóttur sinni, Dorothy Iannone,
og sl. vor sýndi Sarah í Boekie Wo-
ekie í Amsterdam.
Sýningarnar standa til 18. septem-
ber og er Nýlistasafnið opið daglega
frá kl. 16—20 og kl. 14—20 um helg-
ar.
(Fréttatilkynning)
Kynfræðslustöðin:
Fyrirlestur um kynlíf
FYRIRLESTUR um kynlíf og Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur og hefst
þörf á nýrri kynfræðslu verður klukkan 20. Jóna Ingibjörg lauk
haldinn á vegum Kynfræðslu- meistaraprófi í kynfræðslu frá
stöðvarinnar í Tónbæ í dag, Pennsylvaníuháskóla í Banda-
fimmtudag. ríkjunum í vor, segir í fréttatilkynn-
Fyrirlesturinn verður fluttur af ingu frá Kynfræðslustöðinni.
Músíkleikfimin
hefst mánudaginn 26. september.
Styrkjandi og liðkandi æfingarfyrir
konur á öllum aldri. Byrjenda- og
framhaldstímar. Kennslaferfram
í íþróttahúsi Melaskóla. Kennari
Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma
13022 um helgina og virka daga í
sama síma eftir kl. 15.
ÍSLENSKUKENNARAR
ATHUGIÐ!
Hin vinsæla Kennslubók í málvísi og Ijóð-
list fyrir 9. bekk grunnskóla eftir Gunnlaug
V. Snævarr og Jón Norland er komin út
að nýju.
Auk þess hefur bæst í hópinn ný bók eft-
ir sömu höfunda, sem nefnist Kennslubók
í íslensku fyrir 7. og 8. bekk grunnskóla,
og er hún í svipuðu formi og 9. bekkjar
bókin. Skiptist hún í þrjá aðalkafla sem
fjalla um málnotkun, málfræði og bók-
menntasögu.
Hafið samband við Offsetfjölritun
(s. 91 -687890) og pantið bækur fyrir bekki
ykkar.
Hvar
færðu yfír 150 tegundir af
sófasettum á sama stað?
Hvar
færðu dýr sófasett, ódýr
sófasett, venjuleg sófasett, óvenjuleg
sófasett, lítil sófasett og stór sófasett?
Hvar
færðu frábær greiðslukjör,
persónulega þjónustu, hámarks gæði
og faglega ráðgjöf í þægilegu um-
hverfi?
Svar:
IHúsgagnahöllinni!
Já, sértu í húsgagnahugleiðingum,
þá sérðu það að þú getur ekki sleppt
því að líta til okkar.
Við tökum heim nýjar sendingar af
vörum á hverjum degi.
Húsgagnasýning alla daga
REYKJAVÍK