Morgunblaðið - 09.10.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988
1
im Larsen er í dag risinn í danskri j
(og norrænni) popp/rokktónlist j
(ekki eru hértaldirmeð þeirtónlist-;
armenn sem gert hafa út á al-;
þjóðamarkað s.s. Europe, A-Ha, j
Laid Back, Abba og viðlíka sem
réttast er að kalla alþjóðlega tón-!
listarmenn) og hefur selt fleiri plöt-1
ur en nokkur annar danskur tón- j
listarmaður. Af plötu hans Midt i
om natten seldust um 650.000 :
eintök og af Forklædt som voksen j
seldi hann um 450.000 eintök.
Ekki er honum að fatast flugið, því
nýjasta plata hans, Yummi, j
Yummi, hefur nú selst í um
600.000 eintökum og er enn á :
góðri hreyfingu. Það er með tónlist j
af þeirri plötu í farteskinu sem Kim j
Larsen kemur til íslands til tón-;
Bellami í Hótel íslandi 9. 10. og
11. október næstkomandi.
Barist með búsetum
Kim Melius Flyvholm Larsen
fæddist í Kaupmannahöfn í októ-
ber 1940. Hann ólst upp við kröpp i
kjör hjá einstæðri móður sinni. Sá
uppruni hefur gert það að verkum
að hann hefur alla tíð staðið með
lítilmagnanum og er þá skemmst
að minnast samstöðu hans með
búsetunum sem lögðu undir sig
hús á Nörrebro og fráegt varð á
íslandi. Áhrifavaldar hans í tónlist
voru Presley, Jerry Lee Lewis, j
Little Richard og Cliff Richard. j
Hann fór snemma að stæla fyrir- j
myndir sínar og fjórtán ára kenndi j
hann sér sjálfum á gítar. Uppúr
3- í
hafnar, gerðist þar kennari i
skamman tíma og þar stofnaði
hann hljómsveitina Gasolin með
gítarleikaranum Franz Beckerlee
og Willy Jönsson 1969.
Framan af héldu meðlimir Gas-
olin sér við enska texta eins og
lenska var (líkt og hér á landi), en
1971 fór hljómsveitin að syngja á
móðurmálinu og þá fyrst fóru hjól-
in að snúast. Fyrsta platan kom
út það ár og með annarri plötu
hljómsveitarinnar sem út kom
1972 náði hún almannahylli og var
upp frá því og þar til hljómsveitin
lagði upp laupana 1978 ein vinsæl-
asta rokkhljómsveit Dana. Tónlist
hljómsveitarinnar þróaðist á þeim
tíma úr hráu bílskúrsrokki í það
að vera hreinræktað danskt popp-
rokk, sem hélst í hendur við það
að smám saman fóru menn að lita
á sveitina sem Kim Larsen og
Gasolin.
í leit að frægðinni
Kim Larsen hafði verið að
stússa einn síns liðs áður en hljóm-
sveitin hætti og má segja að sóló-
ferill hans hafi verið hafinn áður
en sveitin hætti, enda var það
löngun hans til að starfa einn sem
gerði út af við hana.
Þriðja sólóplata Larsens,
231045-0637, kom út 1979 og
miklar vinsældir hennar urðu til
þess að hann ákvað að láta draum
sinn rætast og reyna fyrir sér í
Bandaríkjunum. Þangað fluttist
hann árið 1980 og settist að í New
York. Hann gaf þar út plötu í sam-
vinnuvið John Delia og setti saman
hljómsveitina Jungledreams með
Delia í kjölfar hennar. Ekki hafði
hann erindi sem erfiði og 1982
sneri hann aftur til Danmerkur til
að taka upp þráðinn þar sem frá
var horfið. 1983 skipti hann um
útgáfufyrirtæki, sagði skilið við
CBS, sem hann hafði verið samn-
ingsbundinn frá 1969, og gerði
samning við smáfyrirtækið Medl-
ey. Á því merki sendi hann frá sér
plötuna Midt om natten, sem fær
nafn sitt af samnefndri kvil<mynd
sem sýnd var hér á landi fyrir
nokkru, eg Kim lék einmitt eitt
aðalhlutverkið í þeiri mynd sælla
minninga. Platan sú seldist í
stærra upplagi en áður hafði
þekkst í Danmörku og er í dag
mest selda plata í Danmörku frá
örófi, en þriðja piata hans hjá
Medley, Forklædt som voksen,
seldist í um 450.000 eintökum,
eins og áður sagði.
Af ofangreindu má vonandi ráða
að koma Kim Larsen til íslands er
merkisviðburður, reyndar næst
merkast heimsókn erlends tónlist-
armanns á árinu á eftir Pere Ubu,
sem gerðu allt vitlaust í Tunglinu
fyrir skemmstu.
Eins og áður sagði verða tón-
leikar Kim Larsens og Bellami í
Hótel íslandi 9., 10., og 11. októ-
ber næstkomandi og tilvalið að
láta reyna á dönskukunnáttuna.
Haustið 1972 var sá er þetta
ritar staddur á vertshúsi í
Christianíu, þegar þar á svið
gekk hljómsveit. Hljómsveitin
kynnti sig ekki, en nærstadd-
ur gaukaði því að undirrituð-
um að hún héti Gasolin, en
undirritaðurvarengu nær. j
Tónlistin sem hljómsveitin lék
vareinkennileg blanda af
bílskúrsrokki og alþýðlegri j
popprokktónlist með snjöllum
dönskum textum. Athygli
vakti hárfagur gitarleikari sem !
stældi Jimi Hendrix af mikilli
fimi. Sá sem mest bar á í
hljómsveitinni var þó söngvari j
hennar og rytmagítarleikari, j
sem var sem persónugerving- j
ur laganna, óhrjálegur útlits j
en sarrít fullur af lífi og orku.
Hann spjallaði gjarnan við
áheyrendur milli laga og
beindi til þeirra velvalinna at- !
hugasemda um þá, stjórn-
völd, lífið og tilveruna. Einhver
á staðnum sagði að þetta
væri Kim Larsen.
Texti: Árni Matthíasson