Morgunblaðið - 09.10.1988, Qupperneq 37
I
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988
37
Geir Sverrisson:
Lofaði kenmirum mínum
að standa mig vel
Geir Sverrisson 17 ára úr
Keflavík segir tilviijun hafa
ráðið þvi að hann fór að æfa
sund. ’A sínu fyrsta móti vann
hann til silfurverðlauna í 100
metra bringusundi og á Opna
hollenska meistaramótinu sem
Cram fór í sumar setti hann
heimsmet í 200 metra
bringusundi. Ekki afleitur
og hann skiptir ekki svo litlu máli.“
-Áttu þér önnur áhugamál?
„Ég hef í fjölda mörg ár verið
mikiil áhugamaður um jeppaferðir.
Fyrir slysið ferðaðist ég mikið á
jeppa um hálendið með föður
mlnum Kristófer Sturlusyni sem nú
er iátinn. Eftir slysið hætti ég að
fara slíkar ferðir í nokkur ár en
byrjaði svo aftur fyrir um þremur
árum síðan. Og nú er ég komin
með mikla dellu. Ferðast mikið með
kunningja mínum sem á góðan
jeppa og stundum fer ég með fjöl-
skyldunni, konu minni Sólrúnu
Gunnarsdóttur og dótturinni Agnesi
sem er tíu ára. Það er óskaplega
skemmtilegt að ferðast um hálendi
Islands á jeppa. Svo dunda ég mér
við að dytta að bflunum okkar
tveimur. Ég vinn hjá fyrirtækinu
Rafíðn hálfan daginn og hef því
góðan tíma til að dútla mér í
bflskúmum sem minnir reyndar
frekar á viðgerðarverkstæði!“
Talið berst aftur að íþróttunum
og Reynir segir oft erfitt.að ein-
beita sér að þremur íþróttagreinum
í einu, kringlukasti, kúluvarpi og
spjótkasti.
„í rauninni ætti ég bara að æfa
eina grein en einhvem veginn hef
ég ekki getað gert það upp við mig
hvaða grein ætti að verða fyrir
vaiinu. Eg veit þó alveg að ég er
sterkastur í kringlukastinu og geri
mér því mestar vonir um góðan
árangur í þeirri grein." Reynir seg-
ir mikinn tíma hafa farið í æfingar
að undanfömu, reyndar allt of mik-
inn. „Ég reikna með að draga mik-
ið úr æfingum að loknum Ólympíu-
leikunum og mér fínnst ólíklegt að
ég taki þátt í mörgum ftjálsíþrótta-
mótum í viðbót. Eg mun þó alltaf
stunda einhveijar íþróttir og í vetur
ætla ég að æfa lyftingar eins og
ég hef reyndar gert í mörg ár. Það
kemur ekki annað til greina en að
ég hreyfi mig eitthvað."
BF
árangur hjá ungum íþróttamanni
sérstaklega eftillit er tekið til
þess að ekki er nema eitt og
hálft ár síðan hann byrjaði að
æfa sund.
„Þegar ég var yngri æfði ég
mikið fótbolta en var að mestu
hættur því þegar ég leiddist út í
sundið," segir Geir. „Það vildi þann-
ig til að um páskana 1987 var
Landsmót fatlaðra haldið í Keflavík.
í ljós kom að enginn frá Suðumesj-
um hafði skráð sig til keppni í sundi
og til að bæta úr því ákvað ég að
slá til og sjá hvemig mér gengi.
Ég hafði alitaf verið ágætur í skóla-
sundi og vonaði að ég yrði mér að
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal.
Geir Sverrisson sundkappi úr
Keflavík.
minnsta kosti ekki til skammar á
mótinu. Og frammistaða mín var
ekki svo afleit því ég hreppti silfur-
verðlaunin í 200 metra bringu-
sundi, mér til mikillar undranar.
Eftir mótið kom Bjöm Jóhannsson
fyrmrn sundkappi til mín og skor-
aði á mig að byija að æfa sund.
Ég var alveg til í að fara að stunda
einhveija íþrótt og skráði mig því
í Sunddeild Njarðvíkur.“
Geir keppir á Ólympíuleikunum
í flokki sundmanna sem vantar
framan á hægri handlegg, rétt
framan við olnboga. Bringusundið
er hans sérgrein en þó keppir hann
einnig í öðmm greinum. Hann
kveðst ekki eingöngu taka þátt í
sundmótum fatlaðra heldur einnig
öðmm mótum og þar komi hann
út sem meðalsundmaður. „Á slíkum
mótum gengur mér auðvitað ekki
eins vel og þegar ég keppi við fati-
aða en að keppa við mér sterkari
sundmenn veitir mér þjálfun og
góða reynslu."
-Ekki ertu alltaf ofan í laug?
„Nei blessuð vertu. Ég hef áhuga
á svo mörgu öðm og reyni að sinna
því þegar tími gefst til. Systir mín
er búin að smita mig alvarlega af
ljósmyndadellu og fæst ég mikið
við að mynda þessa stundina. Er
búinn að koma mér upp alls kyns
græjum og hef óskaplega gaman
af þessu. Svo er ég mikill skíðaá-
hugamaður og var reyndar að
hugsa um að fara að æfa skíði þeg-
ar að ég leiddist út í sundið. Ætli
það hafi ekki líka verið betri kostur
því ég hef komist að því að ég er
miklu betri í sundi en á skíðum.
Skíðin verða þó áfram áhugamál
hvað svo sem kunnáttu minni líður
og vonast ég til að komast oftar á
skíði í vetur en í fyrra en þá var
mikið að gera hjá mér vegna
Ólympíuleikanna."
Geir er nemandi í Fjölbrautar-
skóla Suðumesja á Viðskipta-- og
tölvubraut og segist staðráðinn f
að leggja kerfisfræði fyrir sig að
loknu stúdentsprófí. „Tölvur eru
framtíðin, á því leikur ekki nokkur
vafi. Ég hef unnið mikið í fyrirtæki
föður míns Sverris Guðmundssonar
sem nefnist Rafvík. Þar hef ég
kynnst tölvuvinnu og líkar hún vel.“
Hann vill ekki meina að hann sé
spenntur fyrir leikana, segir þá
ieggjast vel í sig. „Ég hef verið að
virða fyrir mér sundlaugamar í
Seoul í gegnum sjónvarpið undan-
farið og það liggur við að ég rati
um Ólympíusvæðið. Sundfólkinu á
nýafstöðnum Ólympíuleikum gekk
ekkert allt of vel en ég vona bara
að við verðum heppnari.“
Hann kveðst ekki ætla að taka
skólabækurnar með sér til Seoul,
kýs frekar að lesa upp þegar heim
verður komið. „Allt í allt fara þijár
vikur í ferðina en það var ekkert
mál fyrir mig að fá frí úr skólanum.
Skólameistarinn og kennarar mínir
lögðu þó fram eina kröfu og hún
er sú að ég standi mig vel þama
úti. Ég lofaði þeim að ég myndi
gera mitt besta."
SUND
Sóley Axelsdóttir:
Ætla að reyna
að bæta mig
Sóley Axelsdóttir úr Reykjavík
er 19 áragömul og heftir verið
lömuð fyrir neðan mitti frá
fæðingu. Hún er ekki bundin
við hjólastól og getur ferðast
um á hækjum þó að hún hafí
ekki mikla hreyfigetu. Sóley
byrjaði að æfa sund fyrir átta
árum síðan.
„Þegar ég var yngri æfði ég í
nokkum tíma auk sundsins bæði
borðtennis og boccia með íþrótta-
félagi fatlaðra í Reykjavík," segir
Sóley. „Það var allt of tímafrekt
að vera í þessu öllu svo ég ákvað
að einbeita mér að sundinu. Ég
keppi í 100 metra og 400 metra
skriðsundi og 100 metra bak-
sundi. Reyndar er ég mun betri í
skriðsundinu en æfi baksundið
með engu að síður. Og mér hefur
gengið alveg ágætlega undanfar-
ið, setti til dæmis tvö íslandsmet
á Opna hollenska meistaramótinu
sem haldið var í Hollandi síðastlið-
ið sumar." Sóiey segist hafa mjög
gaman af því að _æfa sund, það
sé skemmtileg íþrótt og auk þess
fylgi því mikill og góður félags-
skapur.
Sóley er nemandi á félags-
fraíðibraut í Menntaskólanum við
Hamrahh'ð. „Ég er svona um það
bil hálfnuð með námið og stefni
að sjáifsögðu að því aðljúka stúd-
entsprófi frá skólanum. Mér líkar
vel í MH, kennaramir eru ipjög
indælir þó að •námsgreinamar séu
misjafnlega skemmtilegar. Svo
hef ég kynnst þó nokkrum krökk-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
Sóley Axelsdóttir sundkona.
ur áhugamál en sundið. „Ég hef
þó mjög gaman af að lesa og
nota hveija frístund til að grípa
niður í bók. Svo hef ég ákaflega
gaman af að ferðast. Ég hef keppt
nokkuð víða erlendis í sundi og
því haft tækifæri til að sjá mig
svolítið um í heiminum."
-Hvemig leggjast Ólympíuleik-
amir í þig?
„Bara vel. Ég get ekki sagt að
ég sé neitt taugaspennt og þetta
Þreytt eftir langa og stranga æfíngu.
um í skólanum. Þó að ég sé á
félagsfræðibraut þá þýðir það alls
ekki að ég ætli að leggja félags-
fræði fyrir mig, ég ætlaði upphaf-
lega á nýmálabraut en fannst svo
vera kenndar almennan greinar á
félagsfræðibrautinni. Ég hef oft
veit því fyrir mér hvað mig langar
til að gera að loknum skólanum
en ég hef ekki enn komist að
neinni niðurstöðu. Annars er ég
ekki orðin svo gömul að það liggi
neitt á, sé bara til hvemig málin
þróast."
Aðspurð segist Sóley eiginlega
hafa takmarkaðan tíma fyrir önn-
verður ömgglega mjög skemmti-
leg ferð. Það verður gaman að
koma til S-Kóreu og ég hef heyrt
að Seoul sé mjög falleg borg.
Annars má ég ekki gleyma mér
alveg í skoðunarferðum. Tek eitt-
hvað af skólabókunum með mér
út og því verð ég eiginlega að
gefa mér einhvem tíma í að læra.
Prófin em neftiilega í desember
svo það er ekki langur tími til
stefnu. Hvað sundið varðar þá
ætla ég að reyna að bæta mig á
leikunum, það væri ágæt upp-
skera langra og strangra æfinga."
BF