Morgunblaðið - 09.10.1988, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988
. Þorbjörg Daníelsdóttir
Frelsimar-
guðfræðin 20 ára
Frelsunarguðfræðin sem fjallar
um frelsun úr ánauð, leit dagsins
ljós með bókinni A Theology of
Liberation eftir kaþólska prestinn
Gustavo Gutierrez árið 1968. í
frelsunarguðfræði eru hin fátæku
og kúguðu leidd tii uppsprettu
Bibiíunnar til að íhuga líf sitt í
ljósi hennar. Frelsunarguðfræðin
er guðfræði um hjálpræðisverk
Krists og allar þær afleiðingar,
sem það hefur. Hún á hliðstæður
í kvennaguðfræðinni og guðfræði
svartra, sem líka hafa komið fram
á síðustu áratugum og boða skyld-
ur kirlqunnar til að beijast fyrir
því frelsi sem Kristur býður.
Frelsunarguðfræðin mætti
áköfum mótmælum þegar hún
kom fram. En hún hiaut líka mik-
ið fylgi. Það jókst mjög meðal
landlausra bænda og eignalausra
stórborgarbúa í Suður-Ameríku.
Ýmsir guðfræðingar, þeirra á
meðal nokkrir biskupar og starfs-
menn Vatíkansins, hafa ásakað
Gutierrez um marxisma. Guð-
fræðingar hans eigin kirlqu, róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar, hafa
bæði skrifað bækur á móti honum
og með honum. -
Faðir Gutierrez hefur aldrei
kært sig um að svara ásökunum,
sem á hann eru bomar vegna
guðfræði hans. Samt féllst hann
á.að svara nokkrum spumingum
á 20 ára afmæli frelsunarguð-
fræðinnar, sem var haldið hátíð-
legt í New York í júlf. Á þessu ári
á hann sjálfur sextugsafmæli.
Hann býr meðal hinna fátæku og
undirokuðu í Lima í Perú.
Gutierrez var spurður hvort
hann hefði órað fyrir því árið
1968 að guðfræði hans myndi
hafa svo mikil áhrif sem hún hef-
ur. Hann svaraði því neitandi.
Hann sagðist hafa verið beðinn
fyrir 20 árum að tala um þróunar-
guðfræði, sem þá var í tízku. Það
var á prestafundi í Chimbote, litlu
sjávarþorpi skammt frá Lima.
Hann hafi þá verið sannfærður
um að tími væri til kominn að
tala um frelsunarguðfræðina,
guðfræði um hjálpræði Krists með
öllum þeim afleiðingum, sem það
hefur.
Hvað finnst honum um ásakan-
imar, sem hafa verið bomar á
hann, að hann hafi klofið kirkjuna
í Perú? Hann segist ekki hafa
klofíð kirkjuna heldur bent á mis-
ræmið í henni. Það sem hafi klof-
ið kirkjuna og valdið togstreitu
sé f rauninni hin ómanneskjulega
fátækt í Perú.
Tekur hann þær nærri sér,
þessar ásakanir um að hafa klofið
kirkjuna? Já. Ástæðan fyrir því
er einföld. Ég elska kirkjuna inni-
lega, segir hann. Þar hef ég fund-
ið Guð, sem gefur lífi mínu gildi.
Þess vegna eru þessar ásakanir
Til að sigrast á óréttlætinu þarf að styðja hin veiku og undirokuðu. Frelsunarguðfræði er guð-
fræði uin hjálpræði Krists, með öllum þeim afleiðingum, sem það hefiir.
Égfel
mig þér
Þú
sem vildir að ég lifði
og hefur skapað mig
eftir vilja þínum,
allt sem í mér býr þekkir þú
og umlykur blíðu,
hið veika sem hið sterka
hið vanheila sem hið heilbrigða.
Því fel ég mig þér
án ótta og skilyrða
eins og leirker
legg ég mig í hendur þínar.
Ég lofa visku þína
þú sem tekur að þér
hið veika og skaddaða
og leggur fjársjóð þinn
í brothætt leirker.
Margareta Melin, sænsk skáld-
kona og ríthöfundur.
Höggmyndin er eftir Dorotheu Steigerwald og heitir Vertu alltaf
barnið hans.
Stríð bitna á öllum en harðast á börnum og gömlu fólki eins og
þessari öldnu suður-amerísku konu.
særandi. En þær valda mér samt
ekki bara sársauka. Ég heyri líka
frá fólki, sem hefur fundið hjálp
til þess f frelsunarguðfræðinni að
gera sér grein fyrir kristinni trú
sinni og stöðu kirkjunnar.
Honum er borið á brýn að nota
marxistískar aðferðir f guðfræði
sinni og hann er harðlega gagn-
rýndur fyrir það. Er þetta satt eða
ósatt? Hann segir að það sé satt.
Og þetta sé aðalástæðan fyrir
gagnrýninni á frelsunarguðfráeð-
ina. En hann segist engan veginn
styðjast við heimspekikerfi marx-
ista, sem sé í mótsögn við sjónar-
mið trúaðs fólks. Það sé reyndar
svo augljóst að allir ættu að sjá
það. Aukin heldur noti frelsunar-
guðfræðin ekki aðferðir marxism-
ans í heild sinni.
Hefur hann haldið uppi áróðri
fyrir stéttabaráttu? Nei, það seg-
ist hann ekki hafa gert. Hann
segir að átök séu í þjóðfélaginu
og árekstrar milli stétta séu ein
mynd þessara átaka. Til að sigr-
ast á þessu ástandi þarf að koma
fram réttlæti og styðja hin veiku
og undirokuðu. Það sé þetta, sem
í kirkjunni sé kallað „hin göfuga
réttlætisbarátta". En það þarf
ekki að beita stéttabaráttu eða
þjóðfélagsátökum til að koma
réttlætinu fram. Það á þvert á
móti að draga úr þessum átökum.
Hægri sinnuð öfl hafa ásakað
hann um að vera marxista, sem
hafi smokrað sér inn í kirkjuna
vegna þess að utan hennar væri
hann bara eins og hver annar
marxisti. Hvað segir hann við
því? Hann segir að það sé algjör-
lega rangt. Allir eiga kröfu á því
að heiður þeirra sé virtur. Kristin
trú gefur lífi mínu þýðingu. Ég
tel ekki að nokkur hafi rétt til að
segja slíkt um aðra. Svona at-
hugasemdum ber að hafna gjör-
samlega.
Andstæðingar hans gagniýna
hann líka fyrir að gera trúna að
stjómmálum. Gerir hann það? Það
hef ég aldrei ætlað mér, segir
hann. Ég hef miðað að því að
láta kröfur fagnaðarerindisins
koma fram í félagsmálum og
stjómmálum. En það er ekki
stuðnirigur við nein sérstök stjóm-
mál.
En hættir hann prestskap ef
fhaldsöm öfl verða ofan á í kirkj-
unni í Perú? Það er útilokað, seg-
ir faðir Gutierrez. Það hefur aldr-
ei hvarflað að mér. En ég held
að það sé alveg ómögulegt að búa
í Perú án þess að komast í tæri
við alvarleg vandmál og átök.
Þetta gildir líka um kirkjuna.
Lokaspumingin var þessi: Hvað
heldurðu að verði um frelsunar-
guðfræðina? Ég vona að hún verði
til að boða fólki hinn óréttláta
dauða Krists, sem er vinur lífsins.
Það er það eina, sem ég hef nokk-
um tíma óskað mér og eftir því
hef ég keppt alla mína ævi, svar-
aði Gutierrez.
Þetta viðtal við föður Gutierrez
birtist í vikuritinu Caretas í Lima.
Lutheran World Information, upp-
lýsingablað Lúterska heimssam-
bandsins í Genf, fékk lejrfi til að
þýða það og birta og við lásum
það þar.
Þeim, sem vildu kynna sér
frelsunarguðfræði nánar, er í
fyrsta lagi bent á bók Gutierrez
sjálfs, sem er gefin út af bókafor-
laginu Orbis Books, sem hefur á
20 árum frelsunarguðfræðinnar
verið aðalútgefandi hennar. Hann
hefur skrifað fleiri bækur um
frelsunarguðfræði. í öðru lagi
bendum við á bækur Leonardo
Boff og Dorothee Sölle. Bóksala
stúdenta við Hringbraut hefur
ágætt úrval guðfræðibóka og gef-
ur upplýsingar um þær og fleiri
bóka.
Biblíulestur vikunnar
Sunnudagur:
Mánudagur:
Þriðjudagur:
Miðvikudagur:
Fimmtudagur:
Föstudagur:
Laugardagur:
Jóh. 9.1-11 Jesús er ljós heimsins.
Esekíel 33.10-11 Þiggið fyrirgefninguna.
Kól. 1.24-29 Flytjum Guðs orð óskorðað.
Matt. 21.28-32 Tveir synir.
Sálm. 56.4-5.9-14 Þegarviðerumhrædd...
Fil. 2.12-18 Eins og ljós í heiminum.
Matt. 5.13-16 Borg, sem stendur á fjalli.
Fyrstu þrír lestrarnir tilheyra ritningarlestri kirlgunnar á
þessum sunnudegi en hinir þrír næstu tilheyra næsta sunnu-
degi til iindirbúnings messunnar.