Morgunblaðið - 12.10.1988, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
11
STOFNAÐ 1913
233. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTOBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin:
Stórbanki ákærður
fyrir viðskipti við
eiturlyflasmyglara
Tampa, Florida. Reuter.
Bandarísk dómsyfirvöld birtu
í gær ákæru á hendur stórum
alþjóðlegum banka og 81 ein-
staklingi fyrir að hafa „hreins-
að“ eiturlyQagróða kólumbísks
eiturlyfjahrings og er talið að
fjárhæðin nemi 32 milljónum
dala, eða tæpum einum og hálf-
um milljarði ísl. kr.
Fulltrúar bandarískra dómsyfir-
valda í sex bandariskum borgum,
auk Lundúna og Parísar, söfnuðu
hinum ákærðu saman og hófu leit
í skrifstofum Bank of Credit and
Commerce Intemational, sem er
alþjóðlegur banki með höfuðstöðvar
í Lúxemborg.
Noregnr:
Alnæmi eng-
inástæðafyr-
ir brottrekstri
Ósló. Fri Runé Timberlid,
fréttaritara HorgunbUdsins.
Alnæmissjúklinga má ekki
reka úr starfi í Noregi vegna
sjúkdómsins, að þvi er hæsti-
réttur Noregs hefiir úrskurð-
að.
Þrítugum barþjóni var sagt
upp í Fredrikstad fyrir þremur
árum eftir að hafa sagt vinnufé-
lögum sínum að hann hefði
smitast af alnæmi. Hann kærði
brottreksturinn og borgardómur
úrskurðaði að hann hefði verið
rekinn að ófyrirsynju. Hann
fékk 50.000 norskar krónur (um
350.000 ísl. kr.) í bætur en ekki
starfið aftur. Hæstirétturinn
úrskurðaði síðan að hann gæti
krafist starfsins á ný og það
hyggst barþjónninn gera.
„Þetta er í fyrsta sinn sem slík
ákæra er birt á hendur alþjóðlegri
gármálastofnun ásamt forstöðu-
mönnum hennar," sagði William
von Raab, talsmaður bandaríska
tolleftirlitsins á blaðamannafundi.
Bandarískir saksóknarar sögðu
að 81 einstaklingur hefði verið
ákærður fyrir að færa eiturlyfja-
gróða kólumbíska eiturlyfjasmygl-
hringsins Medellin í lögleg við-
skipti. Talið er að frá hringnum
komi um 80 prósent af öllu því
kókaíni sem flutt er til Banda-
ríkjanna.
Meðal hinna ákærðu eru átta
framkvæmdastjórar bankans, sem
rekur útibú { 72 löndum og er tal-
inn sjöundi stærsti einkabanki í
heiminum.
Ian Paisley veitistað páfa
Reuter
Ian Paisley, leiðtogi mótmælenda á Norður-
írlandi, var dreginn út af Evrópuþinginu i Strass-
borg í gær eftir að hafa hrópað „andkristur"
þegar Jóhannes Páll páfi II. ávarpaði þingið.
Paisley, sem á sæti á þinginu, hélt einnig á
spjaldi þar sem á stóð: „Jóhannes Páll páfi II.
andkristur.“ Henry Plumb, forseti þingsins, bað
Paisley tvisvar um að hætta og skipaði síðan svo
fyrir að hann yrði Qarlægður. Atvikið virtist
lítið fá á páfa, sem hélt áfram ræðunni og ræddi
um sameinaða, kristna Evrópu. Fjögurra daga
heimsókn páfa í Anstur-Frakklandi lauk í gær.
Ríkisstjórn Tékkóslóvakíu segir af sér:
Uppstokkunin sögð mikið
áfall fyrir umbótasinna
Png. Reuter.
MIKIL uppstokkun átti sér stað í gær meðal valdamanna í
Tékkóslóvakíu og te(ja vestrænir stjórnarerindrekar hana
hnekki fyrir umbótasinna í landinu. Eftir tveggja daga fund
miðstjómar kommúnistaflokksins sagði öll ríkisstjóm landsins
af sér og ný stjóm var í burðarliðnum.
skorta pólitísk áhrif. Nýi utanríkis-
ráðherrann, Johanés, er reyndur
stjómarerindreki en einnig talinn
áhrifalítill innan flokksins.
Sjá „Kameljónið sem vissi
á bls. 20.
Lubomir Strougal lét af emb-
ætti forsætisráðherra á mánudag
og Jan Fojtik, talsmaður kommún-
Reuter
Krefjast lyfja gegn alnæmi
Lögregiumenn stilltu sér upp fyrir framan byggingu lyQaeftirlits
Bandaríkjanna í Rockville i gær þegar mótmælendur, sem sjást liggj-
andi á götunni, kröfðust þess að lyQnm yrði beitt i ríkara mæli
gegn alnæmi.
istaflokksins, sagði að Ladislav
Adamec myndi veita nýrri stjóm
forystu og Jaromir Johanes yrði
utanríkisráðherra í stað Bohuslavs
Chnoupeks. Eftirtektarvert þykir
að á meðan tveir af helstu umbóta-
sinnum Júgóslavíu, Strougal og
Colotka, fyrrum aðstoðarforsætis-
ráðherra, draga sig í hlé heldur
Vasil Bilak, sem telst til hinna
afturhaldssamari í flokknum,
áfram sem hugmyndafræðingur.
„Engin tilraun er gerð til að bæta
upp afsagnir Stougals og Co-
lotka," sagði vestrænn stjómarer-
indreki í samtali við fréttaritara
Reuters. „Þetta virðist mikið áfall
fyrir umbótastefnuna," bætti hann
við.
Forusta kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu hefur fagnað um-
bótastefnu Míkhafls Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga en lítt orðið ágengt
í að koma henni í framkvæmd.
Fimm nýir menn fá sæti í stjóm-
málaráði Tékkóslóvakíu í stað
Strougals og Colotka, allir fremur
ungir. Talið er að Milos Jakes, leið-
togi kommúnistaflokksins, hafí
viljað treysta stöðu sína með þess-
um mannaskiptum.
Stjómarerindrekar sögðu að
Adamec forsætisráðherra, 62 ára
að aldri, hafi talist til umbótasinna
meðan hann var forsætisráðherra
Bæheims og Mæris en töldu hann
Júgóslavía:
Spáir kommúnisman-
um falli innan tíu ára
Belgrad. TTie Daily Telegraph.
MILOVAN Djil-
as, júgóslavn-
eskur andófs-
maður og fyrr-
verandi sam-
starfemaður
Títós, fyrrum
leiðtoga Júgó-
slavíu, sagði i Reuter
samtali við Milovan Dijas
fréttaritara The Daily Te-
legrapb & mánudag að hann
væri sannfærður um að Júgó-
slavar myndu hverfa frá
kommúnisma innan tiu ára.
„Ég tel að það sem nú er að
gerast sé upphafið að endalokum
kommúnismans. Kommúnista-
flokkur Júgóslavíu er að sundrast
og hefur misst tökin á mörgum
sviðum," sagði Djilas. „Ég er
sannfærður um að kommúnism-
inn um heim allan er á sínu síðasta
stigi og að Júgóslavar verði fyrsta
evrópska þjóðin sem losar sig við
hann. Ekki aðeins vegna efna-
hagsins, heldur einnig vegna
stjómmálaástandsins í landinu en
stjómleysi ríkir meðal alþýðunnar.
Hér er kreppa vegna athafna-
leysis. Enginn veit hvað beri að
gera. Júgóslavar hegða sér eins
og að bylting sé hafin en óvissa
ríkir jaftivel um það vegna þess
að okkur skortir leiðtoga."
Djilas, 77 ára að aldri, vísaði
þeirri hugmynd á bug að Slobodan
Milosevic, leiðtogi kommúnista-
flokksins í Serbíu sem hefur verið
sérlega áberandi síðan þjóðemis-
sinnar hófu að láta í sér heyra,
gæti fetað í fótspor Títós sem leið-
togi Júgóslavíu. „Hann gæti aldr-
ei stjómað allri Júgóslavíu. Yrði
hann leiðtogi kommúnistaflokks
Júgóslavíu leiddi það ( besta falli
til klofnings meðal Júgóslava, í
versta falli til borgarastyij aldar. “
Djilas sagði að lokum að breyta
þyrfti stjómarskrá Júgóslavíu, þvi
sú sem nú er í gildi væri orðin
úreld.