Morgunblaðið - 23.10.1988, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
Ævintýri
Hoffmanns
Tónlist
JónÁsgeirsson
Það er næsta einkennileg þver-
sögn, að sá maður er einna óvægi-
legast gerði grín að öllu því til-
standi sem tengist sögu óperunn-
ar, skuli um síðir hafa átt sér
þann draum að semja það sem
heitið gæti alvöru ópera. Víst var
það rétt hjá Offenbach að margt
er það í óperunum, sem segja má
að sé tilbúningur og tildur er liggi
einkar vel við háðskri umfjöllun.
Þó er það svo, að þegar gert er
grín að því sem er auðvelt að
skopstæla, þá slær háðið þann
háðska, enda upplifði Offenbach
það, að gamanverk hans flest
gleymdust en þau sem höfðu ver-
ið skotspónn hans, stóðu af sér
grínið.
Endir grínsins gæti verið fólg-
inn í því að Offenbach náði ekki
að búa til þá alvöruóperu sem til
stóð, því aðeins einn þáttur þessa
verks er þrunginn þeim leikræna
krafti sem menn sækjast hvað
mest eftir að heyra í óperuverk-
um. Eftir stendur tildursleg, þó
ekki óskemmtileg og í heild lífleg
leiksýning.
Sýning íslensku óperunnar og
Þjóðleikhússins á Ævintýri Hoff-
manns er stórbrotið sjónarspil, þar
sem leiksvið, glæsilegir búningar,
ijölmennur kór, margir helstu
söngvarar okkar við undirleik sin-
fóníuhljómsveitarinnar, slá út
sínum trompspilum.
Hljómsveitarstjóri sýningarinn-
ar var Anthony Hose. Auðheyrt
var að vel hafði verið unnið og
að hann er öruggur stjómandi,
er stýrði fagmannlega ágætum
leik hljómsveitarinnar og góðu
samspili hennar við söngfólkið.
Leikstjórinn, Þórhildur Þorleifs-
dóttir, skapar þama heilsteypta
sýningu, lausa við leikstjóraleik-
brellur aðrar en þær sem eru hluti
af sjálfu leikverkinu.
Leikmynd gerð að Nicolas
Dragan og búningamir eftir Alex-
andre Vassiliev áttu stóran hlut í
góðri heildarmynd. Húsakynni
Spalanzanis og Giuliettu voru
glæsileg og búningamir, sem
ýmist voru hversdagslegir, eins
og í kráaratriðinu og heima hjá
Antoníu, eða yfírmáta glæsilegir,
svo sem í fyrsta og öðram þætti,
undirstrikuðu fjarstæðukenndar
andstæður verksins.
Garðar Cortes söng Hoffmann
af glæsibrag og náði sérlega góð-
um tökum á þættinum um An-
toníu, sem er í raun besti hluti
óperannar. Nicklausse var sungin
af Rannveigu Bragadóttur, sem
syngur nú í fyrsta sinn í ópera
hér á landi og er þar á ferðinni
efnileg söngkona. Guðjón Óskars-
son söng Lindorf og enn kemur
hann á óvart með glæsilegri rödd
sinni. Sigurður Bjömsson var
ágætur í hlutverki Spalanzanis
og sérlega skemmtilegur sem
þjónninn Franz.
Olympía var glæsilega sungin
af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og
Kristinn Sigmundsson er lék
skúrkana í öllum sögunum var
frábær, einkum í demantasöngn-
um og þættinum um Antoníu.
Gleðikonan Giulietta var ágætlega
sungin af Signýju Sæmundsdótt-
ur. Rannveig, Sigrún og Signý era
að heija sinn feril sem óperasöng-
konur og er það tilhlökkunarefni
fyrir óperahlustendur hversu
margir efnilegir söngvarar hafa
komið fram nú síðustu árin.
Þrátt fyrir að allt söngfólkið
stæði sig með glæsibrag og ekki
síst kórinn, þá var burðarás sýn-
ingarinnar Garðar Cortes og i
þriðja þætti, þar sem sýningin
Morgunblaðið/Bjami
í lok sýningar íslensku óperunnar og Þjóðleikhússins á „Ævintýri Hoflmanna" í fyrrakvöld. Frá
vinstri: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Anthony Hose hljómsveitarstjóri, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri,
Garðar Cortes og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
og Viðar Guðmundsson í hlutverki
Crespel, ættu þar hlut í leik.
Eins og fyrr segir var kórinn
mjög góður. Aukahlutverkin öll
vora vel framfærð. Þar var að
hafa John Speight í hlutverki krá-
areigandans, Eið Gunnarsson og
Þorgeir J. Andrésson, er stóðu sig
mjög vel sem drykkjufélagar
Hoffmanns, Magnús Stein Lofts-
son sem þjón, aðstoðarmann og
elskhuga, Sieglinde Kahman í
hlutverki móður Antoníu, Loft
Erlendsson í hlutverki Schlemihl
og Helgu Bernhard, er fór með
hlutverk Stellu.
Garoar
Cortes
Sígrún
Hjálmtýsdóttir
Rannveíg
Fríða
Bragadóttir
Sigurður
Björnsson
Þórbildur
Þorlei&dóttir
Guðjón Grétar
Óskarsson
Signý
Sæmundsdótdr
Kristinn
Sigmundsson
Anthony
Hose
ÓIBr Kolbrún
Harðardóttir
reis hæst, var það ekki síst fyrir
frábæran og leikrænt áhrifamik-
inn söng Ólafar Kolbrúnar Harð-
ardóttur hversu vel tókst til, þó
aðrir sem einnig tóku þátt í þeirri
söngveislu, Kristinn Sigmundsson
Sögumar þijár era mjög and-
stæðar í gerð en þrátt fyrir það
var sýningin heilsteypt. Það sem
heldur henni svo vel saman, er
fyrst og fremst vel gerð og leik-
andi létt tónlistin, mjög góður
flutningur, glæsileg leikmynd
sviðs og frábærlega vel gerðir
búningar. Öllu þessu stefndi leik-
stjórinn til þeirrar samvirkni, að
útkoman var sannfærandi og góð
sýning.
Morgunblaðið/Þorkell
Við afhendingu á vatnsböðunar- og nuddtæki Lyngásheimilisins. Frá vinstri eru Baldursfélagamir
Haraldur Þórðarson, Sveinn Sæmundsson, Benedikt Antonsson, Baldur Áraason og Karl Á. Ragnars
formaður, Hrefna Haraldsdóttir, forstöðukona Lyngáss, Friðrik Jörgensen úr Baldrí og Magnús Kríst-
insson, formaður Styrktarfélags vangefinna.
Lionsklúbburínn Baldur 35 ára
Lionsklúbburinn Baldur í Reykjavík verður 35 ára 24. október nk.
Á þessum 35 árum hefur klúbburínn unnið að margvíslegum líknar-
og umhverfisverndarmálum.
Fýrstu árin var unnið að ýmsum
aðkallandi Iíknarmálum en fljótlega
var farið að vinna að stærri og
markvissari verkefnum. Má þar
nefna stuðning um árabil við upp-
eldisheimilið að Kumbaravogi við
Stokkseyri. Sá stuðningur leiddi
síðar til þess að keypt var notuð
saumastofa og hafín framleiðsla á
striga- og ofnum plastpokum, hey-
ábreiðum o.fl., sem skapaði heimil-
isfólki vinnu og heimilinu flárhags-
grandvöll.
í tilefni af 25 ára afmæli Bald-
urs 1978 beitti klúbburinn sér fyrir
ijársöfnun allrar Lionshreyfíngar-
innar f samstarfí við Hjálparstofnun
kirkjunnar utn byggingu sundlaug:
ar fyrir Sjálfsbjörg í Hátúni 12. í
framhaldi af því beittu sömu aðilar
sér fyrir fjársöfnun til stofriunar
Styrktarsjóðs Sjálfsbjargar.
Undanfarin ár hefur líknarstarf
Lionsklúbbsins Baldurs einkum
beinst að stuðningi við dagheimilið
Lyngás, sem Styrktarfélag vangef-
inna rekur og við Hrafnistu í
Reykjavík og Hafnarfírði.
I sambandi við 35 ára afmæli
klúbbsins var Lyngásheimilinu af-
hent vatnsböðunar- og nuddtæki
ásamt tilheyrandi og Hrafnistu tæki
og áhöld fyrir augnlækningastofu
ásamt viðbót við sjúkraþjálfunar-
tæki.
Auk Qáröflunar til framan-
greindrar líknarstarfsemi hafa
Baldursfélagar unnið mikið starf
að uppgræðslu lands í Baldurshaga
við Hvítárvatn á Kili.
(Fréttatilkynning)
Keflavík og Sauðárkrókur:
Rætt um togaraskipti
„ÉG TEL að eftir næstu viku verði
Ijóst hvort við kaupum togarann
Drangey af Útgerðarfélagi Skag-
firðinga og það kaupi af okkur
togarana Bergvík og Aðalvík i
staðinn," sagði Ingólfur Falsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
húss Keflavíkur, í samtali við
Morgunblaðið. „Skipaverkfræð-
ingur er að meta skipin og eftir
helgina getum við farið að ræða
um verð,“ sagði Marteinn Frið-
riksson stjórnarformaður Útgerð-
arfélags Skagfirðinga.
„Við yrðum eingöngu með fjóra
ísfisktogara ef af þessum kaupum
verður," sagði Marteinn. „Við föram
fram á að fá tvö skip í staðinn fyrir
eitt en höfum hins vegar alltaf reikn-
að með því að þurfa að greiða eitt-
hvað í milli. Það var settur heilfrysti-
búnaður í Drangey til að frysta
karfa, grálúðu og rækju en skipið
fékk ekki leyfi til að veiða rækju,“
sagði Marteinn Friðriksson.
„Við setjum flökunarsamstæðu í
Drangey ef við kaupum hana,“ sagði
Ingólfur Falsson. „Það færi kvóti
héðan ef af þessum kaupum verður
og það er að sjálfsögðu hart. Við
höfum hins vegar ekki getað rekið
frystihúsið með fullum dampi vegna
manneklu og hún hefur átt sinn þátt
INNLENT
í erfíðleikum okkar. Það sem við
höfum ekki getað unnið sjálfír höfum
við selt á Fiskmarkaði Suðumesja.
Meðalframlegð frystihúsa er 16% og
við þykjumst góðir ef við náum 17
til 18% framlegð en hún þyrfti að
vera 25 til 30%. Hráefniskostnaður
og vinnulaun era of há og það hlýtur
að stjómast af rangri gengisskrán-
ingu,“ sagði Ingólfur Falsson.
Fyrirlestur
umriftun
skiprúms-
samninga
HIÐ íslenska sjóréttarfélag
gengst fyrir fræðslufundi þriðju-
daginn 25. október nk. Fundur-
inn verður haldinn i Lögbergi,
stofu 102, og hefst hann kl. 17.00.
Amór Halldórsson lögfræðingur
flytur erindi er hann nefnir „Riftun
skiprúmssamninga". Að erindinu
loknu er að venju gert ráð fyrir
fyrirspumum og umræðum.
Frammælandinn lauk embættis-
prófí í lögfræði frá Háskóla íslands
vorið 1988. Að prófí loknu var hann
um nokkurra mánaða skeið fulltrúi
sýslumanns á Sauðárkróki, en nú
starfar hann í lögfræðingadeild
Útvegsbanka íslands hf. Lokaprófs-
ritgerð hans í lagadeild Háskólans
fjallaði um vanefndir skiprúms-
samninga.