Morgunblaðið - 23.10.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.10.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988 A A DROTTINSWGI Umsjón: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Séra Kristján Valur Ingólfsson Þorbjörg Daníelsdóttir Prestsetrið í Hrísey er eitt ófríðasta húsið á eynni. Finnst mér. En það hefúr einu sinni verið með þeim Mðustu og verður það kannski aftur þótt baráttan yrði hörð ef efht yrði til fegurðarsamkeppni húsanna. Ég sá eiginlega ekki hvað prestsetrið var lotlegt fyrr en ég kom aftan að því eitt kvöldið eftir gönguferð um angandi lyngmóana. Mig grunaði ekki að þessi þreytulegi baksvipur væri baksvipur hússins, sem ég bjó í sjálf. Það sýnir að það á að umgangast hús eins og fólk. Ekki koma aftan að þeim, ekki fara á bak við þau. Þetta hús hefúr góða sál og það er gott að vera þar inni. Það er opið fyrir birtunni, tekur á móti sólinni bæði daga og nætur um hásumarið. Horfir út á sjóinn og nýtur frelsis þeirra, sem búa við flæðarmálið. Hér hafa verið beðnar margar bænir, talað við guð bæði dimma daga og bjarta. Ekki að það sé eina húsið í Hrísey, þar sem talað er við guð, talað við Jesúm og heilagan anda. Þótt ég viti það ekki með vissu held ég að það sé í öllum húsunum. Séra Hulda Hrönn M. Helga- dóttir er hér prestur. í júlímán- uði skiptum við um prestaköll, hún sat í Þykkvabæ, en ég, Auð- ur Eir, þjónaði Hrísey og Ár- skógsströnd. Það er góð leið til að auka kynni milli prestakalla. Við séra Jakob Ágúst Hjálmars- son á ísafirði höfum áður skipt um prestaköll um tíma. Þetta eru mikil tækifæri til að kynnast því trúfasta dugnaðarfólki, sem star- far í kirkjunni, annast bygging- amar, stjómar safnaðarstarfinu með prestinum og syngur í kirkjukórunum. Organisti Hríseyjarprestakalls er Guð- mundur Þorsteinsson. Hann býr á Akureyri en lætur sig ekki muna um að koma til Hríseyjar og á Árskógsströnd til að halda uppi kirkjusöng. Og þegar ég hafði verið á æfingum og mess- um í báðum kirkjunum skildi ég það mæta vel. Stemmningin og starfsgleðin er heillandi og gefur áreiðanlega meira en hún krefst. Formaður sóknamefndarinnar í Hrísey er Valdís Þorsteinsdóttir og í Stærri-Árskógssókn er Sig- urður J. Stefánsson sóknamefnd- arformaður. Þegar ég kom til Hríseyjar vissi ég að ég myndi strax fara að hugsa um það hvort það væri hægt að vinna jafn mikið og gert er, jafn langa og marga vinnudaga. Ég fór í heimsókn í frystihúsið og sá hvað allt er þar vel um gengið, skínandi hreint og bjart, hvað kaffistofan er fal- leg með viðargólfi og málverkum á veggjum. Og útsýnið enn fal- legra. Það er undursamlegt ævin- týri að ganga um Hrísey, um móana, meðal fuglanna, um steinlagðar göturnar milli fal- legra húsanna. Inni í þeim öllum býr fólk, sem guð elskar og ann- ast sérhveija stund daga og nátta. Við tölum æ meir um umhyggju guðs á öllum sviðum mannsins og tilka.ll guðs til allra þátta mannlífsins. Þegar siglt er að eynni gnæfír kirkjan yfír byggðina og þangað kemur fólk til að sækja sér styrk. Og þau, sem koma sjaldan, njóta líka styrks hennar, einfaldlega vegna þess að hún er þama, eitt hú- sanna, þar sem talað er við guð. Talað um fólkið í Hrísey, áhyggj- ur þess og gleði. Og guð hefur sjálfur sagt að hann heyri bænir. Eg fór út í bæ til að spyija þijá Hríseyinga um mannlífíð, vinn- una og kirkjuna. Fólk þreytist á einhæfri vinnu p' - segir Elsa Jónsdóttir Það er gott að búa í Hrísey. Mér finnst notalegt að geta verið í nánu sambandi við náttúruna eins og héma. Á stærri stöðum hverfur fólk frekar í fjöldann held ég. Við hjónin fluttum héðan um tíma en gátum ekki hugsað okkur annað en að koma aftur. Ég vildi reyndar að hér væri fjölbreyttari vinna. Þá væri hér fleira fólk og það væri kannski betra ef við værum heldur fleiri. Maður sér eftir hveijum sem fer. Fólk verður þreytt á að vinna alltaf í físki. En er eins um allt landið. Fólk þreytist á einhæfri vinnu. Fé- lagslífið var meira hér áður en sjónvarpið kom. En félögin starfa alltaf þótt það sé ekki eins, ung- mennafélagið, kvenfélagið og fleiri félög. En þetta fer að breyt- ast. Eg held að fólk verði bráðum fullsatt á að horfa á sjónvarpið og vilji fara að hittast meira aftur. Við krefjumst of mikilla lífsgæða - segir Svandís Gunnarsdóttir Fólk virðist vera farið að gera sér grein fyrir því að lífið er meira en leit að lífsgæðum og að í kapp- hlaupinu vilja gleymast önnur og kannski mikilvægari verðmæti. Orð eru til alls fyrst og þegar þetta er komið inn í umræðuna má vonandi fara að vænta ein- hverra breytinga. Við gerum allt of miklar kröfur til lífsgæða. Við fþurfum að vinna mikið til að hafa einungis í okkur og á og þar af leiðandi enn meira til að upp- fylla allar „gerfiþarfirnar". Vegna þeirra verður vinnutíminn allt of langur, líka á smástöðum eins og þessum, þar sem allir þekkjast og skilyrði til góðra, gefandi sam- skipta ættu að vera einna best. I predikunarstólnum eiga prest- amir einmitt að taka á þessum málum. Þeir eiga að tala um þann veruleika sem við hrærumst í hversdags, og réttmæt ádeila er bara til góðs. Það skiptir miklu máli um hvað presturinn talar í stólnum og ræðan hefur veruleg áhrif á hvort ég fer í kirkju eða ekki. En það er líka gaman að hlusta á góðan söng. Þessir hefð- bundnu sálmar sem venjulega eru sungnir við kirkjulegar athafnir eru fallegir, en veraldlegir söng- textar mættu gjarnan vera í bland. Það væri til góðs að bijóta upp hið hefðbundna messuform að einhveiju leyti svo guðsþjón- ustan höfðaði meira til fólksins og fleiri sýndu áhuga á að koma í kirkju. Eins og er virðist fólk lítið sem ekkert hafa þangað að sækja. En í kirkjunni er friður og ró sem getur veitt fólki einhveija þá vel- líðan sem það leitar að og það er í raun markmiðið með þessu öllu saman, að okkur líði sem best. Áður hittist fólk til að syngja - segir Albert Þorvaldsson Biblíulestur vikunnar Sunnudagur: Orðskv. 1. 7-8 Upphaf þekkingarinnar Mánudagur: Orðskv. 4. 23 Uppsprettur lífsins Þriðjudagur: Orðskv. 15. 1 Mjúklegt andsvar Miðvikudagur: Orðskv. 16. 1-3 Fel drottni verk þín Fimmtudagur: Orðskv. 25. 17-22 Vinir og óvinir Föstudagur: Orðskv. 28. 1-3 Ráðleysi og öryggi Laugardagur: Orðskv. 31. 10-31 Hver hlýtur hana? Ég er búinn að syngja í kirkju- kómum í rúm 30 ár og hef haft mikla gleði af því. Mágkona mín, Elínborg Þorsteinsdóttir, var lengi organisti hér. Henni gekk afskap- lega vel að ná fólkinu saman. Hún var líka menntuð í organleik, lærð hjá Páli ísólfssyni. Við æfðum alltaf einu sinni í viku og fórum strax á haustin að æfa jólasál- mana. Hér var líka mikið sönglíf þegar Hreinn Pálsson var hér. Ég var svo heppinn að fá að vera með í því. Hann var mikill söng- maður og músíkmaður. Ég hef alltaf haft gaman af söng og við systkinin sungum öll. Fólk hittist til að syngja áður en fjölmiðlarnir urðu svona margir. Ég held að fólk missi áhugann á því að koma saman og syngja þegar það hefur þessi tæki hjá sér allan daginn og hlustar á músík í þeim. Ég er fæddur og uppalinn hér í Hrísey. Mér hefur alltaf líkað vel hérna og aldrei fundist ég ein- angraður. Fyrst var það fjögurra tonna trilla sem við fórum með á milli. Það var ekki lengur nógu gott, sérstaklega í svartasta skammdeginu. En ég man ekki eftir að nokkurn tíma hafi orðið nokkur slys. Þetta er allt annað eftir að við fengum svona góðan bát eins og við höfum núna. Það er ekki lengur nokkur munur á að vera hér og á fasta landinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.