Morgunblaðið - 23.10.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
39
„Þannig var, að sumarið 1973
falaðist Brian Clough, sem þá var
framkvæmdastjóri hjá Derby
County, eftir því við West Ham að
fá mig keyptan og bauð 100.000
sterlingspund í mig sem var mikil
upphæð í þá daga. Derby varð
meistari 1972 og svo aftur 1975.
Þegar þetta gerðist var ég orðinn
32 ára gamall, og sá fyrir endann
á knattspymuferli mínum. Ég var
samningsbundinn hjá West Ham
og átti eitt ár eftir af samningi
mínum við félagið. Ron Greenwood
vildi ekki gefa eftir og neitaði því
að ég yrði seldur því West Ham
hefði enn not fyrir mig. Ég verð
að viðurkenna að ég var alls ekki
ánægður með þessa niðurstöðu
mála. Ég hafði mikinn áhuga á að
fara til Derby og eiga þar síðustu
ár mín sem knattspymumaður sem
um leið hefði gefið mér tækifæri
til þess að leika í Evrópukeppni
með Derby, en þeir áttu stórgóðu
liði á að skipa á þessum árum.“
Það var svo í mars árið eftir sem
Bobby Moore yfirgaf West Ham.
Hann varð fyrir slæmum hnémeiðsl-
um í leik með West Ham í þriðju
umferð ensku bikarkeppninnar í
bytjun janúar það ár. Hann var því
frá keppni í tæpar átta vikur. Á
þessum tíma lék West Ham níu leiki
og sigraði í átta af þeim, og þegar
Moore var tilbúinn í slaginn að
nýju ákvað félagið að hann mætti
fara frá því án nokkura skilyrða,
eftir 17 ára glæstan feril.
Lék gegn West Ham
á Wembley
„Það vom nokkur félög sem vildu
fá mig til liðs við sig þegar að ég
fór frá West Ham óg eitt þeirra var -
2. deildarlið Fulham. Ástæða þess,
að ég valdi Fulham var að félagið
var staðsett í Lundúnum og ég
þurfti ekki að flytjast með fjölskyld-
una mína á nýjar slóðir. Þá lék
Fulham ekki ólíka knattspymu og
West Ham; léttleikandi sóknar-
knattspymu auk þess sem hjá liðinu
lék fyrrum félagi minn úr enska
landsliðinu Alan Mullery, þá ný-
kominn þangað frá Tottenham.
Þau tvö ár sem ég var hjá Ful-
ham gekk okkur ekki alltof vel í
deildakeppninni, en þess í stað mun
betur í bikarkeppninni, og í maí
1975 komumst við alla leið í úrslit-
in og lékum þar gegn West Ham
af öllum liðum fyrir mig. Það var
nokkuð einkennileg reynsla fyrir
mig að leika gegn þeim í bláa og
vínrauða búningnum þennan dag á
Wembley. Okkur gekk ekki vel í
leiknum. Við töpuðum 0:2 í leikn-
um, sem verður minnisstæður
vegna marka „spörfuglsins" Alans
Taylor og mistaka markvarðar okk-
ar, Peters Mellor, í báðum mörkun-
um sem við fengum á okkur. En
þrátt fyrir tapið var þetta skemmti-
leg stund og ógleymanleg fyrir
mig.“
Fyrsti landsleikurinn í Chile
Einstæður landsleikjaferill Bobby
Moore með enska landsliðinu hófst
í Chile árið' 1962. Leikið var gegn
heimamönnum í æfingaleik fyrir
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spymu sem var haldin þar í landi
það sama ár.
„Þessi fyrsti leikur minn er mér
ekkert sérstaklega minnisstæður.
Ég hafði þá nýlega verið valinn í
enska landsliðshópinn og var valinn
í þennan leik til reynslu, en ég lék
ekkert á heimsmeistaramótinu
þetta ár. Við sigruðum í þessum
leik 4:0 og gerði Jimmy Greaves
þijú mörk í leiknum. Ári síðar tók
Sir Alf Ramsey við enska landslið-
inu og þá fékk ég fast sæti í liðinu
hjá honum. Hann gerði mig að fyrir-
liða árið 1964 og tók ég við fyrir-
liðastöðunni af Jimmy Armfield,
sem hafði gegnt henni með sóma
árin á undan. Þeirri stöðu hélt ég
allt þar til 1973.“
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Bkðberar
óskast
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Hverfisgata 4-62
Lindargata 39-63
Austurgerði o.fl.
Byggðarendi
Laugarásvegur 39-75
HtorgtmMiiMft
HEKLA HF
Laugavegi 170 172 Simi 695500
GOODYEAR
ULTRA GRIP 2
Engin tilfinning er eins
notaleg og að finna að
maður hefur fulla stjórn á
bilnum sinum l vetrar-
færðinni.
Goodyear Ultra Grip 2
vetrarbarðarnir eru hann-
aðir með ákjósanlega eig-
inleika til að veita gott
hemlunarviðnám og
spyrnu, hvort sem er I
snjó, hálku eða bleytu, og
þeir endast vetur eftir
vetur.
Öll smáatriði varðandi
framleiðslu hjólbarðans
— svo sem efni, bygging
og mynstur, — hafa verið
þaulhugsuð og þraut-
reynd til að ná fram há-
marks öryggi, mýkt og
endingu.
í vetur vel ég öryggið — Ég
nota hina rómuðu Good-
year tækni.
EG KEMST HEIM A
GOOD&YEAR
Þá er gott að vita að bíll-
inn hefur staðfast grip á
veginum, og þá stendur
manni líka á sama um
veðurspána.
STRIK/SÍA