Morgunblaðið - 23.10.1988, Blaðsíða 31
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
Útgefandi tn&Uifrft Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Ut úr skugganum
Nú þegar hin nýja mynd
Hrafns Gunnlaugssonar,
í skugga hrafnsins, er frum-
sýnd er ástæða til að minna
á mikilvægi innlendrar kvik-
myndaframleiðslu og þá að
sjálfsögðu einnig innlendra
þátta, einkum listrænna
þátta, í sjónvarpi. Víðtæk inn-
lend kvikmyndaframleiðsla
dregur mjög úr hættunni af
þeim ógnvekjandi erlenda
þrýstingi sem við sjáum hvar-
vetna en þó einkum í sjón-
varpi. Það er engan veginn
víst að tunga okkar lifí af við
þann þiýsting og blekking ein
að halda því fram að erlendar
tungur, og þá einkum enska,
glymji hvem dag viðstöðu-
laust á flestum íslenzkum
heimilum án þess arfí okkar
og tungu stafí af því hætta
til langframa. Það er ekki
undarlegt þó að íslenzkri
tungu hraki á svo viðsjárverð-
um tímum. En höfundur hinn-
ar nýju kvikmyndar, í skugga
hrafnsins, hefur bent á að
kvikmyndin geti gegnt svip-
uðu hlutverki og Hólaprent á
sínum tíma, þ.e. að mynda
eins konar vamargarð um
menningu okkar og tungu.
Oddur þýddi að vísu Nýja
testamentið í Skálholti en
Guðbrandur Bíblíuna alla á
Hólum og gaf hana út ásamt
öðmm merkum ritum sem
drógu að sér athygli þjóðar-
innar og áttu ekki hvað
minnstan þátt í því að tunga
okkar hélt velli.
Að vísu hlýtur þetta vamar-
starf okkar að vera marg-
þætt. Ábyrgðin er mikil hjá
uppalendum, bæði á heimilum
og þá ekki sízt í skólum þar
sem fræðslustarfíð fer að
mestu fram. Ábyrgð kennara
er því einna mest. íslenzkar
bækur og bókmenntir eru að
sjálfsögðu grundvöllur þess
að við munum áfram geta
talizt sérstök menningarþjóð
með merkan og sérstæðan
arf. Má vel rifja það upp hér
að við hefðum áreiðanlega
ekki fengið handritin heim ef
við hefðum glatað tungu okk-
ar og sumir vilja halda því
fram að tvísýnt væri hvort við
hefðum fengið þann byr sem
raun ber vitni í baráttu okkar
fyrir aukinni fískveiðilögsögu
ef ekki hefði komið til einstæð
saga okkar og sá arfur sem
við höfum ávallt getað lagt
fram sem tryggingu fyrir sér-
kennum okkar og sjálfstæðis-
vilja. Þessi arfur, ásamt
landinu sjálfu, hefur aukið
okkur virðingu og opnað okk-
ur margar dyr í samskipta-
miklum nútímaheimi.
Heiður okkar er í veði að
við ávöxtum arf okkar og
verndum tunguna einsog unnt
er. í þeirri baráttu verður inn-
lend kvikmyndaframleiðsla
ómetanleg og við eigum að
leggja áherzlu á hana, bæði
af þjóðlegum metnaði og svo
einnig — og ekki síður —
vegna þeirrar listrænu áskor-
unar sem leiklist er, hvort sem
við upplifum hana á sviði, í
sjónvarpi, kvikmyndahúsum
eða með öðrum hætti. Og þá
er ekki sízt mikilvægt að
ávallt sé fyrir hendi á mynd-
bandaleigum gott úrval inn-
lendrar framleiðslu sem freist-
ar ungs fólks í harðri sam-
keppni við yfírgnæfandi inn-
flutning.
Allt þetta leitar á hugann
þegar ný íslenzk kvikmynd er
frumsýnd. Það er mikið í húfí
og næstu áratugir munu ráða
úrslitum um það hvort við
höldum velli sem íslenzk þjóð
eða ekki. Vonandi verður
gæfan okkur hliðholl en sjálf
þurfum við að taka til hendi
á öllum vígstöðvum og veita
þá viðspymu sem nauðsynleg
er. Það vinnur enginn stríð
með því að hlaupa af vígvellin-
um. Við vemdum engan arf
með þeirri blekkingu að unnt
sé að banna útlönd á íslandi.
Tæknin sér um það að útlönd
koma til íslands hvað sem
hver segir. En við vinnum
þetta stríð með því að efla
innra þrek okkar sjálfra og
leggja áherzlu á þann arf sem
við beztan eigum og hvemig
við ávöxtum hann. Kvikmynd
einsog í skugga hrafnsins er
slík ávöxtun. Hún er sérstæð
og persónuleg fyrir leikstjór-
ann, hún fjallar um íslenzkt
efni og minnir á arf okkar og
sögu og 'nún hvetur okkur til
baráttu gegn þeim öflum sem
geta orðið okkur skeinuhætt-
ust. Svartur galdur myndar-
innar leiðir til mikilla átaka,
harmleiks. En hún endar í
þeim hvíta galdri sem er í
tengslum við vonina.
Rúmar tvœr vikur eru
þangað til Bandaríkja-
menn ganga að kjör-
borðinu og velja sér for-
seta til næstu fjögurra
ára. Kosningabaráttan
hefur verið löng og
ströng en ekki þótt að
sama skapi spennandi. George Bush, vara-
forseti og frambjóðandi repúblíkana, hefur
unnið á jafnt og þétt og þykir nú hafa svo
öruggt forskot fram yfir keppinaut sinn,
Michael Dukakis, ríkisstjóra í Massachu-
setts og frambjóðanda demókrata, að
stuðningsmenn Bush hafa nú orðið helst
áhyggjur af velgengninni. Með hliðsjón af
því að í vor og um mitt sumar var Dukak-
is spáð sigri er óhætt að slá því föstu, að
kosningabarátta Bush hafi verið vel skipu-
lögð og skilað árangri.
í maímánuði síðastliðnum hitti sá sem
þetta skrifar mikilsvirtan stjómmálamann
úr röðum demókrata og tók þátt í óform-
legum samræðum við hann um stöðuna í
forsetakosningunum á þeim tíma, en þá
var orðið ljóst, að þeir Bush og Dukakis
myndu keppa til úrslita. Voru menn að
óska demókratanum til hamingju með
það, hve hans manni gengi vel samkvæmt
könnunum og þá sýndist helst að demó-
kratar fengju að nýju forseta eftir átta
ár undir repúblíkananum Ronald Reagan.
Demókratinn tók þessu öllu með stillingu
og sagði, að þetta sýndi því miður helst
það, hve Bush væri ómögulegur, því að
fáir hefðu trúað því fyrirfram að Dukakis
myndi njóta slíkra vinsælda.
Hefur hugurinn oft leitað til þessara
orða þegar fréttir af framvindu kosninga-
baráttunnar hafa borist. Virðist hafa kom-
ið í ljós að því meira sem Bandaríkjamenn
sjá til pukakis þeim mun minna fylgi fær
hann. í síðari kappræðum þeirra frambjóð-
endanna varð Dukakis að svara spuming-
um um það, hvers vegna hann væri svona
durtslegur. Ótrúlegt öryggisleysi heijaði
oft á Bush þegar hann stóð í sviðsljósi
fjölmiðlanna og honum er gjamt að mis-
mæla sig og sýnist þá eins og annars
hugar. Hann hefur unnið bug á þessu í
kosningaslagnum og þykir hafa sýnt meiri
slagkraft í málflutningi en Dukakis. Ann-
ars vegar hefur Bush gripið til hugmynda-
fræðilegra röksemda í baráttunni við Duk-
akis og hins vegar hefur málflutningur
hans einkennst af beinskeyttum árásum á
andstæðinginn vegna einfaldra mála, sem
mörgum finnst raunar að ekki eigi heima
í baráttu sem þessari og nefna þá gjaman
fyrst deilumar um hyllingu bandaríska
fánans í skólum. Er Bush meðmæltur fána-
hyllingu en Dukakis ekki.
Margir eiga eftir að gera úttekt á þess-
ari kosningabaráttu í Bandarfkjunum eins
og öðrum. Ástæðumar fyrir sveiflunni
Bush í hag era margar. Mestu skiptir
auðvitað að bandarískir kjósendur telja
afkomu sina almennt góða og treysta því
að Bush haldi áfram á sömu braut og
Reagan.
Gorbatsjov verður
forseti
Kosningabaráttan um völdin í Hvíta
húsinu tekur í raun og vera mörg ár í
Bandaríkjunum. Hún kostar mikla Qár-
muni, óendanlega fundi, ferðalög, umræð-
ur og mannamót. Allir fíölmiðlar era á
þönum í kringum þá sem gefa kost á sér
og hvert einasta smáatvik í lífi þeirra er
grandskoðað. Margir taka ekki þá áhættu
að fara þannig undir smásjána og aðrir
falla úr leik eftir að henni er beint að þeim.
Baráttan um völdin í Kreml er háð með
öðram hætti eins og best kom í ljós undir
lok septembers, þegar menn urðu fyrst
varir við að eitthvað óvenjulegt væri á
seyði í æðstu stjóm Sovétríkjanna vegna
þess að Edúard Shevardnadse, utanríkis-
ráðherra þeirra, sem var í New York og
hafði skipulagt þar fundi með fulltrúum
erlendra ríkja var allt í einu kallaður heim
í skyndi vegna óvænts fundar í miðstjóm
flokksins. Vestrænir fíölmiðlar hófu strax
að geta sér til um það, hvað kynni að
vera að gerast, því að þrátt fyrir glasnost
eða aukna upplýsingamiðlun var sovéskum
þegnum auðvitað ekkert skýrt frá þvf hvað
höfðingjamir hefðust að. Hefur raunar
verið á það bent af sérfræðingum að Gorb-
atsjov hafí beitt samskonar aðferðum við
hreinsanir sínar og forverar hans, þótt
blóðstraumurinn hafí ekki legið frá Kreml
eins og á tímum Stalíns.
Miðstjómarfundurinn stóð í klukku-
stund föstudaginn 30. september og þar
var ákveðið að sefja forseta landsins
Andrej Gromyko út úr stjómmálaráðinu
og skipa nýjan hugmyndafræðing flokks-
ins, Vadim Medvedev, og setja forvera
hans, Jegor Lígatsjov, sem talinn hefur
verið helsti keppinautur Gorbatsjovs, yfír
landbúnaðarmál f stjómmálaráðinu, æðstu
valdastofnun flokks og þjóðar. Daginn eft-
ir, 1. október, var síðan haldinn skyndi-
fundur í löggjafarsamkundu Sovétríkjanna
og stóð hann í innan við klukkustund. Þar
var Míkhaíl Gorbatsjov, aðalritari flokks-
ins, kjörinn forseti Sovétríkjanna. Þrátt
fyrir fyrirheit Gorbatsjovs um að þegnar
Sovétríkjanna fengju innan tíðar að velja
á milli fleiri en eins frambjóðanda í ábyrgð-
arstöður, var aðeins stungið upp á honum
einum í forsetaembættið. Samþykktu
æðstaráðsmennimir 1.500 kjör hans einum
rómi og var atkvæðagreiðslan ekki leyni-
leg. I tilefiii af kjöri Gorbatsjovs og ræð-
unni sem hann flutti yfir Æðsta ráðinu
komst Moskvufréttaritari New York Times
þannig að orði:
„Á milli línanna virtist megja skilja
þann boðskap, að sjálfstætt þjóðþing sem
endurspeglaði í raun vilja fólksins — lykil-
atriði í áformum Gorbatsjov um að endur-
skipuleggja Æðsta ráðið — kæmi auðveld-
legast til sögunnar ef hann tæki sjálfur
við foiystu í löggjafarstarfínu.
Viðleitni Gorbatsjovs til að breyta kerf-
inu hefur frá upphafí verið bylting sem
hófst á toppnum og er stjómað þaðan.“
Með því að taka forsetaembættið f sínar
hendur hefur Gorbatsjov ekki stuðlað að
valddreifíngu heldur fest sjálfan sig enn í
sessi. Yfírlýst markmið hans er að breyta
sovéska forsetaembættinu á þann veg, að
það verði valdameira en til þessa. Þegar
Leonid Brezhnev, aðalritari, lét fyrstur
slíkra manna gera sig að forseta Sovétrílq-
anna vora andstæðingar hans innan og
utan Sovétríkjanna þeirrar skoðunar, að
hann væri að gera þetta vegna tildursins
sem forsetaembættinu fylgir. Hann sæti
þá jafnfætis erlendum þjóðhöfðingjum.
Raunar var fljótlega farið að tala um það
eftir að Gorbatsjov hafði fetað í fótspor
Brezhnevs, að Bretadrottning kynni að
heimsækja Sovétríkin, en Kremlveijar hafa
dálæti á konungbomu fólki og fínnst ekk-
ert ánægjulegra að sýna heima fyrir en
minjar frá keisaratímunum, gull og ger-
semar.
Hin langvinna kosningabarátta í Banda-
rílgunum og þær þrautir sem þeir verða
að standast fyrir opnum tjöldum, sem vilja
komast til valda f Hvfta húsinu, era f hróp-
legri andstöðu við laumuspilið í Kreml.
Gorbatsjov kallar menn saman að óvöram
og gefur þeim ekki færi á að velja aðra
en sig til forsetaembættis, þrátt fyrir fog-
ur fyrirheit um breytta og lýðráeðislega
stjómarhætti. Síðan ganga talsmenn Sov-
étstjómarinnar fram fyrir skjöldu til að
lýsa því, að enginn gangi í raun næstur
Gorbatsjov að völdum f Kreml, hann sé
sem einn á hefðartindinum og allir aðrir
jafnir í skugga hans. Átti persónudýrkun
ekki að hverfa úr sögunni?
Breytingar hjá KGB
Þegar Æðsta ráðið kaus Gorbatsjov
forseta var einnig skipaður nýr yfírmaður
yfír KGB, leyni- og öryggislögregluna,
helstu valdastofnun Sovétríkjanna, Vlad-
imir Kijútsjkov, sem í áratug hefur stjóm-
að erlendri starfsemi KGB og var um tfma
stöðvarstjóri njósnamiðstöðvarinnar í New
York. Hann var í fylgd með Gorbatsjov á
fundinn með Reagan í Washington í fyrra.
Að sögn fréttaritara Daily Telgraph er
hann á sovéskan mælikvarða vel kunnugur
á Vesturlöndum. Skipar hann að því leyti
sama sess og Alexander Jakovlev, félagi
Gorbatsjovs og fyrram sendiherra í
Kanada, sem nú fer með stjóm alþjóða-
mála á vegum flokksins. Var Jakovlev með
Gorbatsjov hér á landi 1986. Fréttaritari
Daily Telegraph segir að þekking nýja
pr OQ y "
_______MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988_31
REYKJAVÍKURBRÉF
Laugardagur 22. október
Morgunblaðið/RAX
KGB-forstjórans á Vesturlöndum segi ekk-
ert til um-afstöðu hans til þeirra. Viktor
Tsjebrikov, fráfarandi KGB-forstjóri, var
settur yfír laganefnd í stjómmálaráðinu
en nýi forstjórinn á ekki í sæti I því valda-
mikla ráði. Hafa margir síðan velt fyrir
sér, hvemig stöðu og völdum KGB sé nú
háttað.
í franska blaðinu Liberation er því hald-
ið fram að með því að velja mann með
jafn mikla reynslu f störfum KGB erlendis
og Kijútsjkov sé verið að beina starfsem-
inni meira inn á þær brautir að afla upplýs-
inga um menn og málefni utan Sovétríkj-
anna. Kijútsjkov hafí ekki einungis starfað
í New York heldur hafí hann á sfnum tíma
verið með Júrí Andropov, þáverandi sendi-
herra Sovétríkjanna í Ungveijalandi, en
þar var Andropov 1956 þegar sovéski her-
inn braut uppreisn Ungveija á bak aftur.
Andropov varð síðar yfírmaður KGB og
loks aðalritari og forseti Sovétríkjanna og
er talinn hafa ýtt Gorbatsjov í fremstu
röð. Þá er sagt að Kijútsjkov hafí gegnt
miklu hlutverki í Póllandi 1980 þegar snú-
ist var gegn Samstöðu og komið á her-
stjóm í landinu.
Nýlega birtist hér í blaðinu viðtal við
háttsettan landflótta Sovétmann, Stanislav
Levtsjenko, sem á sínum tíma starfaði í
þágu KGB. Hann var meðal annars spurð-
ur um afstöðu KGB gagnvart Gorbatsjov
og sagði að án stuðnings KGB hefði orðið
erfítt fyrir hann að komast til valda. „Með
stuðningi við glasnost er KGB að reyna
að bjarga kerfínu. Lögreglan getur ekki
barist gegn spillingu því að hún er á kafí
í henni sjálf. Gorbatsjov notar þvf KGB
til þess að rannsaka öll spillingarmálin.
KGB framkvæmir sem sé mikið af hug-
myndum hans. Spumingin er hve langt
KGB leyfír honum að fara. KGB getur
ekki steypt honum af stóli en ef þeir snúa
við honum baki verður erfitt fyrir hann
að framkvæma stefnu sína og þá er hann
búinn að vera hvort eð er.“
Uppstokkunin í Kreml á dögunum hefur
vakið venjubundnar spumingar á Vestur-
löndum um valdahlutföllin á milli flokksins
annars vegar og KGB hins vegar. Við
fyrstu sýn var talið að KGB hefði frekar
sett niður en sfðan hefur verið sýnt fram
á það meðal annars af Mary Dejevsky í
grein í The Times, að líklega sé það tölu-
verð einföldun að túlka atburðarásina á
þennan veg. Hún segir, að f nýja sijóm-
málaráðinu hafí KGB og fulltrúar öryggis-
aflanna í landinu sterkari stöðu en í því
gamla. Til dæmis verði að líta þannig á
að Viktor Tsjebrikov, fyrram KGB-for-
stjóri, hafí styrkt stöðu sína innan stjóm-
málaráðsins. Hann sé sá félaganna þar
sem hafi hæsta tign f hemum og í raun
kunni honum að hafa verið falin umsjón
með hemum og lögreglunni auk KGB. Sé
svo fari hann óneitanlega með mikil völd.
Grein sinni um styrka stöðu KGB í stjóm-
málaráðinu lýkur Maiy Dejevsky með
þessum orðum: „Þetta [hin sterka staða]
gæti táknað annað af tvennu: Annaðhvort
nýtur Gorbatsjov fulls stuðnings KGB og
öryggisaflanna í viðleitni sinni við að
breyta Sovétrílqunum, eða hann á óþægi-
lega mikið undir stuðningi þeirra. Sé síðari
tilgátan rétt standa völd hans jafnvel á
veikari granni nú en nokkra sinni fyrr.“
Matarskortur
Þegar Gorbatsjov kallaði saman skyndi-
fundina í æðstu sovésku valdastofnunum
vora ýmsir þeirrar skoðunar, að hann ætl-
aði að boða breytingar vegna þeirrar gagn-
rýni sem hann varð fyrir þegar hann sneri
til starfa úr sumarleyfí og hitti almenning
í Síberíu. Þar vora gerð hróp að honum
vegna skorts á öllum sviðum. Ekkert slíkt
vakti þó fyrir Gorbatsjov eins og að fram-
an er rakið, hann var aðeins að feta í fót-
spor fyrirrennara sinna og treysta völd sín
með því að koma andstæðingum sfnum á
óvart; Lfgatsjov var til dæmis í sumarleyfí
þegar fundimir vora boðaðir.
I fyrrgreindu samtali við Levtsjenko er
rætt um stöðu Gorbatsjovs heima fyrir og
hann segin
„Hann á ekki einungis S vandræðum
með gamlingjana, spillinguna, skrifræðið
og Lígatsjov, sem er helsti andstæðingur
hans innan kerfísins. 80% kerfískallanna
reyna líka leynt og ljóst að skemma fyrir
stefiiu hans. Þetta era þó vandamál sem
hann ræður við. Helsta vandamál hans er
verkalýðurinn.
í þau þijú ár sem Gorbatsjov hefur ver-
ið aðalritari hafa lífslqör versnað í Sov-
étríkjunum. Þeir sem ég hef talað við, og
era nýkomnir frá Sovétríkjunum, segja
mér að jafnvel í borgum á borð við Odessu
sé skortur á matvælum. Það ríkir vissulega
engin hungursneyð en úrvalið af matvæl-
um er takmarkað og fábreytt. Það er þó
bamalegt að álykta sem svo að stór hluti
íbúa Sovétríkjanna sé að fara að snúast
gegn kerfinu. Það er enginn félagslegur
óstöðugleiki, einungis félagsleg óánægja.
Sovétmenn era flestir mjög íhaldssamir
og vilja föðurlegan og sterkan leiðtoga,
sem vissulega getur stungið þeim inn en
sér líka til þess að skriffinnamir séu ekki
afætur á kerfínu. Af þeim ástæðum sakna
furðulega margir Stalíns. í þeirra augum
er Gorbatsjov bara enn eitt fíflið, sem lof-
ar gulli og grænum skógum líkt og
Khrústsjov og Brezhnev."
Annar landflótta Sovétmaður, skáksnill-
ingurinn Boris Spasskíj, tekur í sama
streng í nýlegu Morgunblaðsviðtali. Hann
segir, þegar hann er spurður, hvort hann
hafí farið til Sovétríkjanna eftir að hann
fluttist vestur fyrir jámtjald:
„Fyrir sex áram já. Ég hef ekki hug á
því núna. Það er svo sársaukafullt fyrir
mig að sjá hið mikla ríki eins og Rússland
var fyrir byltinguna sokkið í smánarlegt
tóm. Ég treysti Gorbatsjov ekki. Hann er
dæmigerður stjómmálamaður. Sovétríkin
eru enn byggð á hræðilegri ógnun. Grand-
völlur ríkisins er rangur, því má ekki
gleyma. Mikilvægasta verkefnið hlýtur að
vera að fæða þjóðina. Gorbatsjov talar
Ijálglega en ennþá er matarskortur í Sov-
étríkjunum. Himn uppfyllir ekki loforð sín.
Maturinn er mikilvægastur, síðan má fara
að ræða frelsið."
Lokaorðin hjá Spasskíj falla saman við
það sem Levtsjenko sagði, þegar hann
benti á þrá Sovétmanna eftir hinum sterka
leiðtoga sem gæti brauðfætt þá og veitt
þeim frelsi frá matarskorti í öllu ófrelsinu.
Af þessum orðum verður það helst ráðið,
að þeir hafí rétt fyrir sér sem segja, að
til þessa hafí perestrojkan látið meira að
sér kveða utan Sovétrflqanna en innan.
Enn hefur Gorbatsjov aðeins talað um
frelsi og nauðsyn breytinga. Á hinn bóginn
notar hann sömu aðferðir og forverar hans
til að tryggja völd sín og stöðu.
Hínlangvinna
kosningabarátta I
Bandaríkjunum
og þær þrautir
sem þeir verða að
standast fyrir
opnum tjöldum,
sem vilja komast
til valda í Hvita
húsinu, eru í
hróplegri and-
stöðu við laumu-
spilið í Kreml.
Gorbatsjov kallar
menn saman að
óvörum og gefur
þeim ekki færi á
að velja aðra en
sig til forseta-
embættis, þrátt
fyrir fögur fyrir-
heit um breytta
og lýðræðislega
stjórnarhætti.