Morgunblaðið - 23.10.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER '1988
35
það eru þau spjöll sem unnin eru á
æskufólki og raunar þeim eldri
einnig, með vímuefnum og eiturlyfj-
um. Því miður eru á meðal okkar
samviskulausir menn, karlar og
konur, sem auðgast á því að svipta
aðra lífshamingjunni, svipta þá vilja
og viti um skemmri eða lengri tíma,
svipta þá í raun lífínu sjálfu.
Það er skuld háskóla og ábyrgð
að vera virkur í baráttunni fyrir
betra þjóðfélagi. Það er einnig
skylda þín kæri kandidat að vera
virkur í þessari baráttu, baráttu
fyrir betri heimi fyrir þig og þín
böm. Barátta þín fyrir betri heimi
nær til allra þeirra þátta sem skipta
þig máli, bærinn þinn og landið
þitt, heilsuvemd og menntun bama
þinna, gæði þeirrar þjónustu sem
þú þarft á að halda, gæði stjóm-
sýslu og stjómmálaumQöllunar.
Allir þessir þættir hafa áhrif á líf
þitt og lífsgaeði, þú mátt og þú átt
að taka þátt í baráttunni fyrir betra
þjóðfélagi.
Á undangengnum mánuðum höf-
um við fylgst með sorglegu sjónar-
spili í íslenskum stjómmálum.
Slíkar deilur, sem við erum vitni
að, skerða traust og virðingu stjóm-
málamanna okkar. Barlómur og
úrtölur djmja á okkur í flölmiðlum,
hrakspár og svartsýnj draga þrótt
og kjark úr fólkinu. Ástæðan fyrir
því að okkur skortir kjark er ekki
sú að lífíð sé erfitt, lífíð er erfítt
af því að okkur skortir kjark —
sagði Seneca forðum. Nú þrengir
að á erlendum mörkuðum fyrir
(slenskar útflutningsafurðir vegna
stefnu í hvalveiðimálum. Það þarf
kjark til að kyngja stolti og stefnu
sem ekki reynist farsæl. Flestum
landsmönnum er ljóst að hér þarf
að taka mið af raunveruleikanum
en ekki óskhyggju. Hvalveiðistefn-
an skaðar hagsmuni okkar. Ekki
er ástæða til að hafa áhyggjur af
friðun hvala að sinni. Hvalveiðar
hafa legið niðri í áratugi fyrr á
þessari öld án þess að valda offjölg-
un hvala eða raska jafnvægi í lífríki
sjávar svo vitað sé. Deilt er einnig
um arðsemi fjárfestinga til lands
og sjávar, um ofbeit og landeyð-
ingu, um hagkvæmni í fiskveiðum
og fískvinnslu og fleira mætti telja.
Kæru kandidatar, þið sjáið að
verkefnin eru næg við að glíma,
þið verðið einnig að taka til hendi
og vinna að lausn vandans. En það
er slíkt ofurvægi efnahagsmála í
allri þjóðmálaumræðunni í dag að
öðrum málum er vart gaumur gef-
inn. Eftir sem áður eigum við feng-
sæl fiskimið og gjöfult land sem
geta skapað okkur góð lífsskilyrði
ef hófs og hagsýni er gætt. Þið
verðið að leggja hönd á plóginn,
og taka þátt í uppbyggingunni með
virkri þátttöku í þeim samtökum
og stjómmálaflokkum þar sem ör-
lög þjóðarinnar eru ráðin í raun.
Verið virk og sjálfstæð, verið vel
upplýst um viðfangsefnið sem við
er að glíma hverju sinni. Þið eigið
sjálf að móta eigið líf og umhverfi
eftir því sem þið hafið afl til.
Ég vil að lokum kveðja ykkur
með orðum skáldsins frá Fagra-
skógi en hann segir svö í Háskóla-
ljóði, sem ort var í tilefni af hálfrar
aldar afmæli Háskóla íslands:
Úr útsæ risa Íslandsíjöll
með eld í hjarta, þakin mjöll,
og brim við björg og sand.
Þ6 mái tíminn margra spor,
þá man og elskar kynslóð vor
sitt fagra fóðurland.
Við tölum íslenskt tungumál.
Við tignum guð og iandsins sál
og foman ættaróð.
þeir gjaida best sinn gamla arf,
sem glaðir vinna þrotlaust starf
til vaxtar vorri þjóð.
Á meðan sól að morgni rís
og máni silfrar jökulís
og drengskapar er dyggð,
skal fólkið rækta föðurtún
og fáninn blakta efst við hún
um alla íslands byggð.
Kæru kandidatar, við höfum veitt
ykkur gott veganesti út í lífið. Við
erum stolt af ykkur og við væntum
einnig mikils af ykkur. Skuld ykkar
og skylda er að vera virk og vinna
vel. Við óskum ykkur og fjölskyld-
| um ykkar haminjgju. og_ heilla. .Guð
véri með ykkur.
SENATORAR
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráöherra veröur gestur okkar
á kvöldveröarfundinum í Holiday Inn,
fimmtudaginn 27. október kl. 19:00.
Muniö aö tiíkynna þátttöku tímanlega.
FORSETI ÍSLENSKA SENATSINS
Fundurinn er aöeins opinn Senatorum.
Landsráðstefiia Samtaka
herstöðvaandstæðinga
LANDSRÁÐSTEFNA Samtaka herstöðvaandstæðinga var nýiega hald-
in í Reykjavík. í stjórnmálaályktun sem samþykkt var á ráðstefiiunni
er skorað á utanríkisráðherra að halda á lofti sjálfetæðri íslenskn
utanrikisstefiiu í friðar- og afi'opnunarmálum sem byggi á einarðri
andstöðu við kjarnorkuvopn og vígbúnaðarhyggju.
Í fréttatilkynningu frá Samtökum
herstöðvarandstæðinga segir að
íslensk stjómvöld verði að vera vak-
andi fyrir því að stórveldin auki ekki
á kjamorkuumsvif sín í Höfunum,
Umferð kjamorkuknúinna herskipa
og kafbáta sé ógnun við við lífríki
hafsins og þar með lífshagsmuni
íslensku þjóðarinnar. Samtökin
minna á að skoðanakannanir hafí
sýnt að 90% landsmanna styðja hug-
myndir um kjamorkuvopnalaus
Norðurlönd, og vænta samtökin þess
að stjómvöld taki upp eindregna
afstöðu í málinu sem endurspegli
þennan þjóðarvilja.
Samtök herstöðvaandstæðinga
skora á stjómvöld að setja þegar í
stað reglur sem heimila almennan,
greiðan og eðlilegan aðgang að öll-
um skjölum utanríkisráðuneytisin%i
og öðnim gögnum sem varða sam-
skipti íslendinga við erlend stórveldi
og hemaðaröfl.
Þær eru
komnar aftur !
^ - Sífl.
Jjg -jf NORDMENPE CV2201 VIDEO
I
FUU. AUTO a,. HQ
■ ■ 1830 ggjg HOHCWAUTt
fOCUS WÖALANCt SHUTUH R£SCT MEMQRY
tom piav / 0 x mwo« zoom
Nordmende upptöku- og afspilunarvélamar, fyrir VHS-C
spólur, sem passa í venjuleg VHS heimatæki
*
*
*
*
*
★
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
Aðeins 1300 gr (með rafhlöðu)
HQ myndgæði (High Qualily)
Aðeins 10 lúx (kertaljós í 25 cm íjarl.)
430 línu upplausn
Sjálfvirk lit-, ljós og „fókus“-stilling
Dags- og tímainnsetning
14 stillingaratriði sjást í myndkíki
Tekur VHS-C spólur (fyrir VHS heimatæki)
Mynd- og hljóðdeyfir (fader)
Sexfalt-tveggja hraða súm
CCD örtölvu myndkubbur
Fljótandi kristals-stjómskjár
4 lokarahraðar i/6o, 1/250, 1/500 og 1/1000
Hægt að skoða upptöku strax
Ýmsir fylgihlutir
o. fl. o. fl.
Alm. verð: 102rt8Sr-
Almenntverð: 87.000,-
'kr./stgr.
NORDMENDE
NYTSOM NUTIMATÆKI
SKIPHOLT119
SÍMI 29800