Morgunblaðið - 23.10.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1988
43
Minning:
Guðmundm
Bergmann
Fædd 25. mai 1925
Dáin 8. október 1988
Ég kynntist Gýju árið 1982 þeg-
ar ég og ijölskylda mín fluttum í
sama stigahús þar sem hún og eftir-
lifandi eiginmaður hennar Jón
Franklín býr. Margt kemur upp í
hugann þegar ég hugsa um Gýju
sem reyndist mér og fjölskyldu
minni mjög vel.
Við ræddum oft um lífið og tilver-
una og fannst mér mjög gott að
koma til Gýju og Jóns. Það sem
mér fannst mest einkennandi fyrir
Gýju var hvað hún hafði manneskj-
una í fyrirrúmi.
Hún var mikið fyrir ijölskyldu
sína. Við brostum oft þegar hún fór
út í bíl með nokkur bamaböm á
eftir sér, sem hún hafði greinilega
mjög gaman af að vera með. Hún
hafði oft orð á hvað fjölskylda henn-
ar reyndist henni vel í hennar veik-
indum, sem og hún gerði af dugn-
aði til hinstu stundar. Þegar Gýja
veiktist fyrst dáðist ég að hve
raunsæ mér fannst hún þegar hún
ræddi um sjúkdóm sinn. Og hún
reyndi hvað hún gat til að sigrast
á honum en það dugði því miður
ekki til.
Mér var mjög brugðið þegar ég
las um andlát Gýju. Ég hafði ein-
hvem veginn ekki gert mér grein
fyrir hve stutt var eftir. Eigum við
eftir að sakna hennar sárt sem
nágranna.
Við sendum Jóni, Rósu, Sigrúnu
og öllum aðstandendum samúðar-
kveðjur. Guð veri með ykkur öllum.
Jana og íjölskylda
||.JV1WV
sísiiianp
Stokkseyri:
Bjarmi mótmæl-
ir skerðingu
launahækkana
Verkalýðs- og sjómannafélag-
ið Bjarmi á Stokkseyri sam-
þykkti á félagsfundi 19. október
sl. eftirfarandi ályktun:
Almennur félagsfundur í Verka-
lýðs- og sjómannafélaginu Bjarma,
er haldinn var 19. október 1988,
mótmælir harðlega afnámi samn-
ingsréttar og skerðingu umsaminna
launahækkana, sem fram náðust í
síðustu kjarasamningum.
amfctá.
II||gJ
Persónuleg umönnun meó Lactacyd..!
Lactacyd léttsápan eflir náttúrulegar varnir húðarinnar og
kemur í veg fyrir kláða og óþægindi sem myndast oft
við kynfæri, endaþarm og undir brjóstum.
Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápan inniheldur m.a. mjólkursýru sem á þátt í
lágu pH-gildi sápupnar, sem er 3,5. Lágt pH-gildið við-
heldur súrum eiginleikum húðarinnar sem eru náttúruleg
vörn hennar gegn sýklum og sveppum. „Venjuleg sápa“ er
lútarkennd (basísk) og brýtur þessar náttúrulegu varnir niður.
Lactacyd er fljótandi sápa með eða án ilmefna í 350 ml plast-
flöskum með spraututappa. Allar upplýsingar á íslensku.
Lactacyd léttsápan fæst í Fjarðarkaupum, Glæsibæ, Hag-
kaupum og Miklagarði. Og að sjálfsögðu í næsta apóteki.
Lágt pH-gildi 3,5
Sýrueiginleikar
Hlutlaust
---------------14
Hátt pH-gildi
Lútareiginleikar
Lútarleifar — Kláði
Það er mikilvægt að viðkvæmum stöðum líkamans sé haldið
hreinum. „Venjulegur sápuþvottur“ er varasamur því að leif-
ar af lút verða gjarnan eftir og valda kláða á viðkvæmum
stöðum s.s. við kynfæri og endaþarm. Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápunnar kemur í veg fyrir slíkan kláða.
MUNDU! Húðin heldur uppi sínum eigin vörnurn
gegn sýklum og sveppum. Ef við notum ranga sápu
eyðum við pessum vörnum.
Iceland Review
Gjafaáskrift að lceland Review treystir sambandið við vini og viðskiptamenn i útlöndum.-
-----------------Upplýsingar og móttaka gjafaáskrifta í síma 84966, Höfðabakka 9, Reykjavík.