Morgunblaðið - 23.10.1988, Síða 57
dð
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER Í988
/S BYGGINGAVÖRUVERSUJN
WSAMBANDSINS
:;: KRÓKHÁLSI 7 SfMI 8 2033
Snarl
Haust táknar fleira en árstíð-
ina. Haust er einnig vörumerki
hollenzkrar kexgerðar sem selur
vörur sínar hér á landi. Ég býst
við að stðru hafrakexkökumar
þeirra séu einna bezt þekktar hér
heima, en það eru litlu sporöskju-
löguðu og stökku kexkökumar
sem mig langaði til að vekja at-
hygli ykkar á. Mér er tjáð að þær
séu lengi búnar að vera til hér í
búðum, en þær hafa alveg farið
framhjá mér. Ég sá nokkrar kon-
ur vera að kaupa svona pakka úti
í búð og varð forvitin. Tók ég því
eina þeirra tali og sagðist hún oft
kaupa þetta kex. Ég skellti mér
því á pakka og bauð heimilis-
fólkinu upp á fullan bakka af
gimilegum litlum kex„bollum“
með allskonar góðgæti á, svo sem
rækjusalati, lifrarkæfu með anan-
askurli á, sardínum með söxuðum
lauk, sýrðum ijóma með kavíar-
skreytingu og fleiru og fleiru. !
stuttu máli sagt þá féll þetta í
mjög góðan jarðveg, og nú passa
ég að eiga alltaf pakka í búrihu
sem grípa má til.
„Haust“-kexið er einnig sérlega
gott sem snarl með glasi af léttu
hvítvíni ef óvæntan gest ber að
garði, í saumaklúbbnum og fyrir
framan sjónvarpið á laugardags-
kvöldum svo eitthvað sé nefnt.
Það em líka til fleiri tegundir
af „Haust" kexi, til dæmis litlu
„ristuðu" munnbitamir sem einn-
ig eru einkar bragðgóðir. Ber ég
þá helzt fram með t.d. reyktum
laxi eða sfld, gráðosti, gaffalbitum
og harðsoðnum eggjum eða ýms-
um ávöxtum og grænmeti. Þið
sem hafíð ekki smakkað þetta kex
ættuð bara að prófa. Það kemur
skemmtilega á óvart!
Með kveðju,
Jórunn.
ELDHÚSKRÓKURINN
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur,
afa og langafa,
SIGURÐAR ÓSKARS STEINDÓRSSONAR
verkstjóra,
Flókagötu 6.
Elín Guðmundsdóttir,
Andrea Þórdfs Sigurðardóttlr, ErllngurThoroddsen,
Guðmundur Sigurðsson, Súsanna Slgurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerdir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjiif
_____ um gerð og val legsteina. \
ÍS S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
n ....
SKÉMMUÆGI 48 SIMI76677
Minning:
LAMELLA
PARKET
10%
afsláttur
Bjóðum viðskiptavinum
okkar 10% afslátt af
LAMELLA PARKETI í
tilefni finnskrar viku
JÓRUNN KARLSDÓTTIR
Ásgerður Hinríka
Guðjónsdóttir
Fædd 6. ágúst 1913
Dáin 17. október 1988
Mér barst sú óvænta sorgarfrétt
erlendis sl. mánudag að tengdamóð-
ir mín væri látin en hún verður jarð-
sett frá Fossvogskirkju á morgun
kl. 13.30.
Ásgerður fæddist á ísafírði 6.
ágúst 1913 dóttir hjónanna Þor-
bjargar Guðmundsdóttur er dó
1970 og Guðjóns Ásgeirssonar skip-
stjóra er drukknaði með m.b. Gunn-
ari 6. júnf 1914 þegar Ásgerður var
tíu mánaða gömul. Ásgerður átti
eina alsystur, Sigríði, og tvö hálf-
systkin, Helgu og Guðjón, er lést í
skotárás á ms. Súðina 21 árs gam-
all.
Ásgerður ólst upp hjá afa sínum
og ömmu, Ásgeiri Kristjánssyni og
Hinriku Sigurðardóttur í Am'ardal,
til 8 ára aldurs en flutti þá til móð-
ur sinnar.
Snemma þurfti Ásgerður að fara
að vinna og sjá fyrir sér og með
dugnaði tókst henni að safna fýrir
skólakostnaði til að komast í Hús-
mæðraskólann Ósk, sem á þeim
tíma var draumur margra ungra
kvenna.
Árið 1932, 19 ára gömul, giftist
hún eftirlifandi manni sínum, Viggó
Bergsveinssyni vélvirkja, og bjuggu
þau fyrst á ísafírði en fluttu til
Reykjavíkur 1949 á Grenimel 23.
Ásgerður og Viggó eignuðust tvö
böm, Ingveldi Þorbjörgu, gift Gísla
Ólafsson, forstjóra, og Þráin Eirík,
Blómastofa
Friöfinm
Suöurfandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til ki. 22,- einnig um heigar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
vélstjóra, giftur Margréti Björg-
vinsdóttur, og bamaböm og bama-
bamaböm þeirra era tíu.
Fjölskylduböndin hafa verið mik-
il og sterk og átti Ásgerður sinn
mikla þátt í þeim enda var hún
fyrirmyndar húsmóðir eins og heim-
ili þeirra Viggós ber gleggst vitni.
Eg þakka tengdamóður minni
góð og náin tengsl og tengdaföður
mínum votta ég innilegustu samúð
með ósk um styrk.
Blessuð sé minning Ásgerðar H.
Guðjónsdóttur.
Gísli Ólafson
Mánudaginn 24. október verður
mín ástkæra amma borin til graf-
ar. Hún andaðist í Landspítalanum
17. október sl., eftir stutta legu.
Veikindi hennar voru samt mikil,
en hún bar þau ekki utan á sér.
Amma var lítið fyrir að láta stjana
í kringum sig, hún reyndi, þó veik
væri, að gera alla hluti sjáíf fram
á síðustu stundu.
Hún var sterkur persónuleiki, og
það verður erfítt fyrir mig, að feta
í hennar fótspor. Ég og mamma
bjuggum hjá ömmu minni mín
fyrstu sjö æviár. Þessi ár og alla
hennar tíð mótaði hún mikið minn
persónuleika. Hún reyndi að kenna
mér, að maðurinn ætti að fara vel
með alla hluti, og eyða ekki um
efni fram.
Þar sem afí var vélstjóri til sjós,
og oft að heiman, dvaldi ég nótt
og nótt hjá ömmu á mínum yngri
árum. Ég spurði ömmu oft, hvort
hún væri aldrei hrædd að sofa ein,
þegar afi væri á sjónum. Hún sagð-
ist aldrei vera hrædd, henni liði svo
vel á Grenimelnum.
Amma var mikil húsmóðir. Ég
veit, að ég kemst aldrei í hálfkvisti
við hana, hvað það snertir. Hún var
mikil hannyrða- og saumakona. Það
vora ófáar flíkumar sem hún saum-
aði á okkur bamabömin. Einnig
setti hún upp púða fyrir annað fólk.
Hún hugsaði vel um heimilið og
afa, sem nú á um sárt að binda.
Hjá mér og mínum bömum verð-
ur mikill söknuður, að sjá ekki
ömmu meira, því samband okkar
var gott og mikið. Maður fór aldrei
svo í bæinn að maður kæmi ekki
við á Grenimelnum, _ og fengi sér
kaffí og kleinur. Eða eins og Gísli
sonur minn sagði alltaf: Amma Ása
býr til bestu kleinumar.
Ég mun sakna ömmu minnar
alla mfna ævi, því við voram svo
samrýmdar. Ég gat alltaf leitað til
hennar með öll mín vandamál. Eft-
ir að ég eignaðist bömin, sagði
amma oft við mig: „Ása mín, farðu
þér hægt og njóttu þess sem þú
hefur.“ ^
Ég vil þakka ömmu minni allar
þær ánægjulegu stundir sem ég og
fyílskylda min höfum átt með henni.
Nafina
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför,
SIGRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR
Sleltustöðum.
Fyrir hönd atdraðs föður, Sigurðar Þorvaldssonar, og annarra
vandamanna,
Arndís G. Óskarsdóttlr, Broddl S. Björnsson,
Þorvaldur G. Óskarsson, Slgurlfna Elrfksdóttir,
böm og barnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4“— Síml 681960
Sölustjóri LAMELLA
PARKET frá Finnlandi
verður viðskiptavinum
okkar til aðstoðar í
versluninni miðvikudag
26. okt. frá kl. 13.30 til
15.30.
25 HAUST