Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B 244. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins wfZMnoALii , fagjm' IISTUVA WJí UIH*. Filippseyjar: Feiju með 431 manni innanborðs saknað Manila. Reuter. Talstöðvarsamband rofiiaði við feiju, með 431 farþega innanborðs, sem sendi neyðarkall í gær þegar fellibylurinn Ruby geisaði yfir Filippseyjar á 185 kflómetra hraða á klukkustund, að sögn embættis- manna. Þeir sögðu ennfremur qð tugir manna hefðu farist og 18.000 manns misstu heimili sin vegna fellibylsins. Að minnsta kosti 61 manns var saknað. Embættismenn sögðu að björgun- arbátar hefðu verið sendir til að leita að feijunni Dona Marilyn, sem er 3.000 tonn að stærð, eftir að skip- stjóri hennar hefði tilkynnt í talstöð að ferjan hefði lent í miklum sjó og væri á leið í land. Feijan fór frá Manila, höfuðborg Filippseyja, á sunnudag og var ferðinni heitið til eyjarinnarLeyte. Talsmaður eigenda feijunnar sagði að talstöðvarsam- band við feijuna hefði rofnað fyrir klukkan sex í gærmorgun. Siglinga- yfírvöld sögðu að feijan væri ef til vill í vari við einhveija eyjuna. Talið var ( gær að 54 hefðu farist á Filippseyjum af völdum fellibyls- ins. Talsmenn hersins sögðu að 35 farþegar langferðabifreiðar hefðu týnt lífí þegar hún feyktist af trébrú í Antique-héraði. Nítján manns drukknuðu í þremur öðrum héruðum Mindanao-eyjar áður en fellibylurinn barst til Luzon-eyju, sem er fjöl- mennasta eyjan, í gærkvöldi. Atlantshafsbandalagið: Tilraunir með nýja tækni við kafbátaleit Lundúnum. Daily Telegraph. Leynilegar tílraunir fiira nú fram á vegum Atlantshafebanda- lagsins í skosku stöðuvatni og i kjölfar þeirra gæti bandalagið tekið njósnahnetti i notkun til að leita að kafbátum i úthöfimum. Bandariska vamarmálaráðuneyt- ið fjármagnar tilraunirnar og tals- menn Atlantshafebandalagsins telja að þær getí tryggt yfirburði NATO i hemaði gegn kafbátum. Mikilvægt væri fyrir NATO að geta fundið sovéska kafbáta með skotflaugar strax og til átaka kæmi, áður en þeir kæmust út á Atlants- haf, og geta grandað þeim áður en gerð væri árás á Vesturlönd. Leitar- tilraunir fara nú fram í stöðuvatninu Loch Linnhe, á vesturströnd Skot- lands. Þar eru aðstæður ákjósanlegar vegna dýptar vatnsins og nálægðar við Faslane-kafbátastöð breska hers- ins og bandarísku kjamorkukaf- bátastöðina við Holy Loch. Tæknin sem verið er að reyna gæti í framtið- inni leyst hljóðsjána (sónarinn) af hólmi. Tilraunimar, sem hafa farið fram í átján mánuði, munu leiða f ljós hvort æskilegt sé að beita gervihnött- um til að fylgjast með breytingum á yfirborði sjávar og segja nákvæm- lega til um á hvaða leið og á hvaða dýpi kafbáturinn er og ákvarða þyngd og gerð hans. Til þessa hefur hljóðnemum, sem komið hefur verið fyrir á botni Atlantshafsins, verið beitt til að fylgjast með ferðum sov- éskra kafbáta, svo sem um svæðið milli íslands, Grænlands og Bret- lands. Sovéskir kafbátar fara um þetta svæði til vesturhluta Atlants- hafsins. Þessir hljóðnemar eru fastir við botninn og geta ekki fylgst með jafn stóru svæði og gervihnettir. Reuter Á myndinni sjást Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, og Helmut Kohl, kannslari Vestur-Þýska- lands, koma til kvöldverðar í Kreml í gær. Fyrir firaman leiðtogana eru konur þeirra, Raisa Gorbatsjova (til vinstri) og Hannelore Kohl. Fjögurra daga heimsókn Kohls í Moskvu hófet í gær. Gorbatsjov og Kohl ræðast við í Moskvu: Isinn hefur verið brot- inn segir Sovétleiðtoginn Deilt um sameiningu þýsku ríkjanna Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétleið- togi sagði að ísinn hefði verið brotinn í viðræðum hans og Helmuts Kohls, kanslara Vestur- Reuter „Litháar vilja vera fijálsir“ Á sunnudag, á öðrum degi stofn- fundar Þjóðfylkingarinnar í Lithá- en, safnaðist margt fólk saman fyrir utan ráðstefnuhúsið með kröfuspjöld. Voru kröfumar af ýmsum toga og meðal annars þessar: „Losum okkur við her- námsliðið"; „Litháar vilja vera fijálsir"; „Armenar, Litháar styðja ykkur"; „Við styðjum Lýð- rseðislega einingarflokkinn" og „Við styðjum aðskilnað Rússlands og Sovétríkjanna" (!). Sjá „Fallið firá kröfimni . á bls. 29. Þýskalands, sem hófiist í gær, að sögn talsmanns kanslarans, Friedhelms Osts. Að loknum rúmlega tveggja tima fundi I gær lýstu leiðtogarnir þvi yfir að þeir myndu leitast við að koma á meiri tengslum milli rflqanna og nánara persónulegu sambandi sín á milli, sagði talsmaðurinn ennfiremur. Kohl hvatti einnig til þess að þýsku ríkin yrðu samein- uð að nýju en Gorbatsjov sagði að Sovétmenn myndu ekki breyta stefiiu sinni hvað varðar Berlfn og Austur-Þýskaland. Viðræð- umar standa í fjóra daga. „Gorbatsjov sagði: „ísinn hefur verið brotinn"," sagði Ost og bætti við að leiðtogamir hefðu verið sam- mála um að tengslum ríkjanna yrði þannig háttað að þau útilokuðu ekki önnur ríki til að skapa ekki óánægju meðal bandamanna þeirra í vamarbandalögunum, NATO og Varsjárbandalaginu. Kohl minntist meðal annars á sameiningu þýsku ríkjanna, sem vestur-þýsk stjómvöld stefna að en Kremlveijar em algerlega mótfalln- ir. „Við virðum landamærin eins og þau em en þó viljum við að allir Þjóðveijar — eins og allir Evrópubú- ar — geti ákveðið eigin örlög og lifað saman við frelsi," sagði Kohl í veislu sem sovésk stjómvöld héldu. „Þjóðveijar verða að geta unnið bug á skiptingu landsins með friðsam- legum hætti," sagði Kohl ennfrem- ur. Gorbatsjov lagði hins vegar áherslu á að stöðu Berlínar og Austur-Þýskalands mætti ekki breyta. Samskipti Sovétmanna og Vest- ur-Þjóðveija versnuðu stórlega þeg- ar eldflaugum af gerðinni Pershing 2 var komið fyrir í Vestur-Þýska- landi árið 1983 og síðar þegar Kohl líkti Gorbatsjov við áróðursmeistara nasista, Josef Göbbels. Verið er að (jarlægja eldflaugamar eins og kveðið er á um ( samningi stórveld- anna og Gorbatsjov virðist hafa ákveðið að leiða ummæli Kohls hjá sér til að reyna að auka viðskipta- tengsl ríkjanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.