Morgunblaðið - 25.10.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
23
þeirra sem vilja Ástralíu „hvíta". Þó
eru hinir í meirihluta sem sjá þessi
málefni í víðara samhengi og tala
um tvískinnunginn í afstöðu yfír-
valda sem hafa flutt inn þúsundir
manna víða að úr heiminum sem
hafa ýmsa menntun og mikla starfs-
reynslu. En þegar til kemur viður-
kennir þjóðin ekki nám þeirra og
reynslu og setur þetta fólk til hliðar,
stundum mest vegna þess að það
talar ekki ensku eins og innfæddir.
Þetta gefur í skyn að aðeins þýði
fyrir fólk frá Bretlandi og Banda-
ríkjunum að koma og eiga von á að
geta gengið að vinnu án þess að
þurfa fyrst að setjast á skólabekk
eða taka próf í sínu fagi. Fólk frá
löndum eins og Asíulöndum gæti í
mörgum tilvikum skilað mjög góðu
starfi þar sem meira reynir á þá fleti
sem fólk raunverulega kann þó það
tali enskuna ekki vel. Enda er erfitt
fyrir það fólk að læra hana eins og
liggur í augum uppi. Og þetta fólk
er tilbúið^ að vinna störf sem hinn
almenni Ástrali lítur ekki við.
Nýjar tekjulindir
Nýlega var í sjónvarpinu frétt um
það að áströlsk yfirvöld ætluðu að
leggja skatt á alla þá sem hefðu yfir
fleiri en tveim salemum að ráða. Þar
undir hefðu auðvitað öll hótel flokk-
ast og þeir staðir sem bjóða upp á
slíka þjónustu en það er ekki allstað-
ar. Oft er erfitt að komast á salemi
í miðbænum og ekki næstum allir
veitingastaðir gefa gestum sínum
kost á að létta af sér í sínum húsa-
kynnum. Þeir benda bara á næsta
almenningssalemi sem getur verið
lengra í burtu en stundum er heppi-
legt. Ég hef oft hugsað hvað íslend-
ingar hljóta að vera örlátir í þessum
efnum því ég veit ekki um neitt kaffi-
hús sem ekki hafði salemi fyrir sína
viðskiptavini.
Kannski að þeir áströlsku hafi
fundið þetta á sér með skattinn?
Búið að leyfa
alkóhól á íslandi
Það koma ekki margar fréttir um
ísland í ljölmiðlum hér. En fréttin
um að búið væri að leyfa bjór á ís-
landi þótti þó nógu merkileg til að
um það væri fjallað tvisvar eða oftar
í útvarpi og talað um þá staðreynd
að um langan tíma hafi íslendingar
getað drukkið sig dauðadrukkna af
sterkum vínum en verið harðbannað
að drekka bjór o.s.frv.
Sumir þeirra sem hlustuðu tóku
þetta þó öðmvísi. í skóla þeim sem
sonur minn er, æpti einn nemandi
yfir bekkinn: Það er búið að leyfa
alkóhól á íslandi!
að menn þora ekki lengur að horfast
í augu við þær. Þess vegna er haldið
uppi gjaldeyrisútsölu árið um kring
og mikil verðmæti streyma út úr
landinu umfram það sem inn kemur
á hveijum degi.
Ef íslenska þjóðarbúið væri fyrir-
tæki sem rekið væri í réttarfarsríki
þá væri líklegast búið að fangelsa
flesta aðalpaurana í efnahagsstjóm-
kerfinu fyrír óábyrga og skaðlega
stjómun, nema ef hægt væri að sýna
fram á að þeir væm ekki heilbrigðir
á geðsmunum.
Óll þau fimm atriði sem hér hefur
verið fjallað um em jú homsteinar í
efnahagsstefnu Borgaraflokksins.
Það er mikið og erfitt starf framund-
an að koma íslenskum efnahagsmál-
um úr því lakasta sem þekkist meðal
Afríkuþjóða sem aðhafast ekkert til
að koma efnahagsmálum sínum á
réttan kjöl.
Kostir Gullvemdar Sjóvá
leynasérekki
En með samanburði við eldri tryggingar
koma þeirþó enn betur í Ijós
Lítum fyrst á Fjölskyldutrygginguna
sem er grunntryggingin t Gullvernd.
Hún hefur sannarlega ýmislegt umfram
gömlu heimilistrygginguna: Tjónsbætur
eru miðaðar við kaup á nýjum munum; tryggingarverðmæti
innbúsins fylgir mánaðarlegum hækkunum framfærsluvísitölu;
gildissviðið er sett upp t skilmálum með ótvíræðum hætti; bætur
vegna skammhlaups,
skemmdarverka, brots og hrutis
eru nýir liðir; sömuleiðis
útfararkostnaður, greiðslukorta-
trygging og farangurstrygging;
ábyrgðartrygging er endurbætt,
bótasvið vegna kæli- ogfrysti-
tækja er víkkað út og þannig
má áfram telja.
Fasteignatrygging í Gullvernd Sjóvá er aukin og
endurbætt húseigendatrygging. Nýjungar eru til dæmis:
Úrfellis- og asahlákutrygging, brot- og hrunstrygging,
snjóþungatrygging, frost-
sprungutrygging og hreinlætis-
tækjatrygging. Síðatt má bæta
við ýmsum sérþáttum svo sem
loftneti, garðskála eða mót-
tökudiski fyrir gervihnatta-
sendingar.
Og nú er spurt: Til hvers
öll þessi aukna vernd?
Svar: Gleymum aldrei að tryggingar, - hversu einfaldar
sem þær eru, snúast þegar á reynir fremur um bcetur fyrir
tjón en iðgjöld og afslætti. Leitið
nánari upplýsinga um aðra þætti
Gullverndar, iðgjöld og
greiðslukjör í síma 692500.
Sjóvátryggitigarfélag íslands hf, Suðurlandshraut 4, stmi 91-692500.
Höfimdur er hagfræðingur og
formaður efhahagsnefhdar Borg-
araflokksins.
Icela nd Review
Gjafaáskrift að lceland Review treystir sambandið við vini og viðskiptamenn í útlöndum.-
—---------------Upplýsingar og móttaka gjafaáskrifta í síma 84966, Höfðabakka 9, Reykjavík.