Morgunblaðið - 25.10.1988, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
Loftárás ísraela
í Bekaa-dalnum
Jerúsalem. Beirút. Reuter.
ÍSRAELAR héldu í gær uppi loft-
árásum á æfíngabúðir þjóðernis-
sinnaða Sósíalistaílokksins firá
Sýrlandi (SNSP) í Bekaa-dalnum,
um 2 km firá herstöðvum Sýr-
lendinga. Þetta er önnur loftárás
ísraela á Líbanon á fjórum dög-
um. Þá handtóku Israelar sjö
palestínska skæruliða í húsi í
þorpinu Kfar Kila. Á miðvikudag
í síðustu viku sprakk bílsprengja
í Kfar Kila sem varð tilræðis-
manninum, sem var liðsmaður
Hizbollah-samtakanna, og átta
ísraelskum hermönnum að bana.
Talsmaður Sýrlendinga sagði að
einn flokksfélagi hefði særst í loft-
árásinni í gær og að einlyft hús þar
sem flokkurinn hafði bækistöðvar
sínar hefði verið jafnað við jörðu.
Sjónarvottar sögðu að íbúar nær-
liggjandi húsa hefðu flúið þegar
sprengjubrotum og glerbrotum tók
að rigna yfir heimili þeirra. Loftár-
ásimar koma í kjölfar aukinnar
ásóknar palestínskra og múslím-
skra skæruliða inn á öryggisvæði
sem ísraelar settu upp árið 1985 í
þeim tilgangi að veija landnám sitt
í norðurhluta Israels.
ísraelar og bandamenn þeirra úr
Suður-líbanska hemum (SLA)
handtóku í gær sjö skæruliða úr
Fatah-samtökunum í þorpinu Kfar
Kila skammt frá norðurlandamær-
um ísraels. í yfirlýsingu frá sam-
tökunum sagði að skæruliðamir
hefðu verið á leið inn í ísrael þar
sem þeir áttu að taka gísla. Skæm-
liðamir réðust til inngöngu í hús í
þorpinu og ætluðu að leynast þar
jrfír nótt. Eiganda hússins tókst að
komast á brott og gera ísraelskum
hermönnum viðvart.
í gær ítrekuðu Jihad-skæmliða-
samtökin hótun sína um að taka
tvo bandaríska gísla af lífí ef
Bandaríkin létu ekki af stuðningi
við ísraela. „Það hefur slæmar af-
leiðingar í för með sér fyrir gíslana
ef Bandaríkjamenn halda áfram að
styðja ísraela í árásum þeirra á
þjóð vora,“ sagði í yfírlýsingu Ji-
had-samtakanna.
í gær kom fjögurra manna nefnd
breskra þingmanna til Beirút til að
ræða um örlög þriggja breskra gísla
sem em í haldi í Líbanon. 17 vest-
rænir gíslar em nú í haldi skæm-
liðasamtaka í Líbanon sem em hlið-
holl írönum. Bresk og írönsk stjóm-
völd tóku upp stjómmálasamband
í síðasta mánuði og þar með hafa
vonir manna glæðst um að gíslam-
ir hljóti frelsi.
Ijórir háttsettir liðsmenn Hiz-
bollah-skæmliðahreyfingarinnar
em í Teheran í íran þar sem þeir
ræða um lausn bandarískra gísla
sem samtökin hafa í haldi, að sögn
öryggisvarða múslíma í gær. Einn
heimildarmaður hélt því fram að
þeir hefðu verið í Teheran frá því
í síðustu viku að vinna að lausn
gíslamálsins. Annar heimildarmað-
ur sagði að íranir hefðu boðið þeim
til Teheran til að „kynna þeim drög
að samningi sem stjómvöld em að
gera við Bandaríkjamenn um lausn
gíslanna". Heimildarmaðurinn
sagði að samningurinn fæli í sér
að skipt yrði á gíslum og vopnum.
Bandaríkjastjóm vísaði alfarið á
bug í síðustu viku tillögum alþjóð-
legra vopnasala að þeir myndi selja
írönum F-5 ormstuflugvélar í skipt-
um fyrir bandaríska gísla.
Reuter
Vísundahlaup
Úngir menn í þorpinu Chonburi í Tælandi keyra
vísunda sina áfiram i kappreiðum á svonefiidri
Vísundahátíðið, sem er árlegur viðburður þar í
landi. Vegalengdin, sem vísundarnir eru látnir
hlaupa, er 100 metrar. Að þessu sinni tóku á
annað hundrað dýr þátt en úrslit fylgdu ekki i
firétt af hátiðinni.
Sendiboði Bandaríkj astj órnar:
Ný tækifæri skapast í sam-
skiptum austurs og vesturs
Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Brussel.
JOHN C. Whitehead, aðstoðarráð-
herra sem fer með málefini Aust-
ur-Evrópu i bandariska utanríkis-
ráðuneytinu átti á föstudag fimd
með Atlantshafsráðinu i Brussel.
Á fúndinum gerði ráðherrann
fastafulltrúum aðildarrikjanna
grein fyrir heimsókn sinni til sex
austantjaldslanda dagana á und-
an. Hann sagði augljóst að umtals-
verðar jákvæðar breytingar væru
í aðsigi á þjóðfélögum Austur-
*
Israel:
Sjónvarpskappræður taldar
hafa lítil áhrif á kosningamar
Arafat ánægður með fundinn með Hussein
Jerúsalem. Reuter.
FLESTAR
benda til þess að Shimon Peres
leiðtogi Verkamannaflokksins í
ísraei hafi borið sigur úr býtum
í kappræðum við Yitzhak Sham-
ir, formann Likúdflokksins, á
sunnudagskvöld. Á hinn bóginn
er talið að kappræðuraar muni
hafa lítil áhrif á val kjósenda á
kjördag 1. nóvember.
í dagblaðinu Maariv birtist skoð-
anakönnun í gær sem gerð var með
því að hringja í sjónvarpsáhorfend-
ur að kappræðunum loknum. Sam-
kvæmt henni töldu 48% að Peres
hefði unnið en 41,5% sögðu Sham-
ir hafa staðið sig betur. Einungis
8% aðspurðra sögðu að kappræð-
umar myndu hafa áhrif á val þeirra
á kjördag, 5% sögðust nú myndu
kjósa Líkúdflokkinn en 3% höfðu
snúist á sveif með Verkamanna-
flokknum. í skoðanakönnun sem
dagblaðið Yedioth Ahronoth birti
var niðurstaðan sú að 51% þótti
Peres hafa staðið sig betur en 33%
voru á bandi Shamirs.
Kappræðumar á sunnudag stóðu
í 30 mínútur. Shamir réðst á and-
stæðing sinn fyrir að hafa dregið
Hussein Jórdaníukonung inn í
kosningabaráttuna. „Slíkt á sér
engin fordæmi," sagði Shamir.
Hann var með þeim orðum að vísa
til sjónvarpsviðtals þar sem Hus-
sein sagðist styðja áætlun Peresar
um frið í Miðausturlöndum. Peres
svaraði með því að spyija hvort það
væri „syndsamlegt að vinna araba-
ríki á sitt band“.
Peres vísaði einnig á bug ásök-
unum Shamirs um að hann vildi
semja við Frelsissamtök Palestínu,
PLO. „Hussein hefur sama álit á
Yasser Arafat og við — hann hefur
flækt Palestínumálið og beitt sér
fyrir hryðjuverkum í stað samn-
ingaviðræðna."
Fundur Husseins og
Arafats
Hussein, Arafat og Hosni Mu-
barak, forseti Egyptalands hittust
óvænt á laugardag í Aqaba á
Rauðahafsströnd Jórdaníu og er
litið á þann fund sem viðleitni til
að auka líkumar á sigri Verka-
mannaflokksins í kosningunum.
Mubarak hefur unnið kappsamlega
að því að fá Arafat og Hussein til
að hittast. Kuldi hefur ríkt í sam-
skiptum þeirra undanfama mánuði
tt þeir séu sammála um grand-
vallaratriði í tillögum um friðarráð-
stefnu er fjalla skal um málefni
Miðausturlanda. Hussein sagði fyr-
ir nokkram dögum að hann væri
fús til að taka aftur upp viðræður
við PLO og jafnframt að hann
myndi samþykkja að Jórdanía og
PLO sendu sameiginlega sendi-
nefnd á væntanlega friðarráð-
stefnu ef Arafat óskaði þess.
Á síðasta ári yfírgnæfði Persa-
flóastríð írana og íraka önnur mál
á vettvangi samtaka arabaríkja en
áhrif Arafats hafa vaxið á þessu
ári vegna þeirrar athygli sem int-
ifada, uppreisn Palestínumanna á
hemumdu svæðunum í ísrael, hefur
vakið. Að fundinum loknum sagði
Arafat að lagður hefði verið grand-
völlur að bættum samskiptum Jórd-
aníu og PLO.
Verkamannaflokkurir.n er
hlynntur því að ísraelski herinn
yfírgefí hluta herteknu svæðanna
og að efnt verði til alþjóðlegrar
friðarráðstefnu á vegum Samein-
uðu þjóðanna. Líkúdflokkurinn
leggst gegn slíkri ráðstefnu og
hefur uppi hugmyndir um að inn-
lima Vesturbakkann og Gaza-
svæðið.
Evrópu.
Á ferð sinni heimsótti Whitehead
Rúmeníu, Austur-Þýskaland, Pól-
land, Tékkóslóvakíu, Ungveijaland
og Búlgaríu. Hann gerði stutta grein
fyrir ástandinu í hveiju landi fyrir
sig eins og það kom honum fyrir
sjónir. í Rúmeníu, sagði ráðherrann
að lítið færi fyrir endurbótum. Sam-
skipti Rúmena við umheiminn færu
versnandi og þjóðin væri að einangr-
ast. Leiðtogar hennar sjá enga
ástæðu til breytinga hvorki í efan-
hagslegu né pólitísku tilliti. Eyðilegg-
ing heilu byggðarlaganna á grand-
velli opinberra áætlana væri skelfi-
leg. Whitehead hitti leiðtoga Aust-
ur-Þýskalands í Berlín. Hann sagði
að þeir hefðu áhuga á að taka þátt
í bættum samskiptum en væra þó
mjög hikandi. „Berlínarmúrinn er
órækur vitnisburður um þá þröskulda
sem við verðum að yfirstíga," sagði
Whitehead. „Hann verður að rífa.
Okkur er öllum ljóst að fyrir höndum
er mikið þolinmæðisverk.“
í Póllandi sagðist ráðherrann hafa
fundið fyrir mikilli gangkvæmri tor-
tryggni á milli hinna stríðandi fylk-
inga en ljóst væri að fyrir hendi
væri nægur vilji til að hefja viðræð-
ur. „Það þarf að sýna biðlund," sagði
Whitehead, „stuðla verður að lausn
sem öll pólska þjóðin getur sætt sig
við.“ í Tékkóslóvakíu var fullyrt að
nýafstaðin mannaskipti væru líkleg
til að auðvelda og flýta fyrir nauðsyn-
legum breytingum. „Sjötíu ára af-
mæli tékkneska lýðveldisins mun
varða leiðina," sagði Whitehead.
Leiðtogar Ungveijalands fullvissuðu
Whitehead um að fyrirætlunum
þeirra um endurbætur yrði ekki
haggað. Samskipti Ungveijalands og
Bandaríkjanna hafa verið góð og
Whitehead sagði að þeir hefðu rætt
ýmsar leiðir til að auka þau enn frek-
ar. Síðasta landið sem Whitehead
heimsótti var Búlgaría. Hann sagði
um heimsókn sína þangað að Búlg-
aría væri ekki lengur í kyrrstöðu sem
fulltrúi „óbreytts ástands" í Austur-
Evrópu. Umtalsverðar breytingar
væru fyrirhugaðar I efnahagslífínu,
breyta ætti ríkisfyrirtækjum í al-
menningshlutafélög og jafnvel heim-
ila erlenda fjárfestingu. Það væru
hins vegar ekki sjáanlegar neinar
breytingar á stjómmálasviðinu. Þó
yrði að hafa það í huga að fijálsara
efnahagslíf stuðlaði að auknu frelsi
á öðrum sviðum. Aðspurður um við-
horf hans til hugmynda um einskon-
ar Marshall-aðstoð við Austur-Evr-
ópu sagði Whitehead að ólíku væri
saman að jafna Vestur-Evrópu í lok
heimsstyijaldarinnar og austan-
tjaldslöndunum um þessar mundir.
Það væri hins vegar tilvalið fyrir
þessi ríki að sækja um aðild að al-
þjóðlegum samtökum á borð við
GATT, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og
Alþjóðabankann.
Þrír létust
er hundurinn
Cachi féll
af svölum
Buenos Aires. Reuter.
REKJA má dauðsfall þriggja
manna til þess að hundur féll af
svölum á 13. hæð i miðborg Buen-
os Aires á föstudagskvöld, að
sögn sjónarvotta og lögreglu.
Kjölturakkinn Cachi lenti á höfði
Mörtu Espina, 75 ára gamallar
konu, og létust hundurinn og konan
samstundis. Þá varð 46 ára gömul
kona að nafni Edith Sola fyrir
strætisvagni þegar hún stóð úti á
miðri götu að fylgjast með atburðin-
um. Hún lést einnig samstundis.
Þá fékk ónafngreindur maður
hjartaáfall og lést hann í sjúkrabíl
á leið til sjúkrahúss. Hann var vitni
að atburðunum.
Ekki er ljóst hvað olli því að
Caehi féll af svölunum en dagblöð
í Buenos Aires greindu frá því að
nýlega hafði verið gert við svalir á
húsi Montoya fjölskyldunnar sem
átti kjölturakkann.